Morgunblaðið - 22.08.2020, Síða 18
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. ÁGÚST 2020
1975 | Sérfræðingar í bílum | 2020
benni.is
Reykjavík
Krókhálsi 9
590 2000
Reykjanesbæ
Njarðarbraut 9
420 3330
Opið virka daga frá 9 til 18
Laugardaga frá 12 til 16
Verið velkomin í reynsluakstur
OPEL GOES ELECTRIC
Birtm
eð
fyrirvara
um
m
ynd-og
textabrengl
„Óbyggðirnar kalla...“
4x4 kraftur og Plug-in
Hybrid hæfileikar
Frumsýndur í dag!
Nýr rafmagnaður Opel Grandland 4x4 Plug-in Hybrid
Fórnaðu engu,
fáðu allt!
300 hestöfl og
allt að 59 km drægni
á rafmagninu einu saman.
eyðilögðu marga veiðistaði og talið
er að hafi haft slæm áhrif á seiðabú-
skapinn. En nú virðist náttúran að
vera að jafna sig á því, og hyljir sem
skemmdust að koma aftur inn og
aðrir nýir veiðistaðir að myndast.
„Meðalveiði síðustu þriggja ára-
tuga í Hofsá er um þúsund laxar og
við verðum eflaust nálægt því. Þegar
ég kom hingað fyrst, 2006, þá var
hún í tvö þúsund löxum. Það er alveg
hægt,“ segir hann og hlær vongóður.
Stórir Hofsárlaxar heilla
„Neðri veiðisvæðin breyttust tals-
vert við flóðin en farvegurinn breyt-
ist þar fyrir utan alltaf eitthvað á
hverju ári,“ segir Jón Magnús. „Áin
er að jafna sig og svo fer seiðabú-
skapurinn líka alltaf eftir tíðarfarinu
og hvernig vorar og þar með hvernig
vöxtur seiðanna er. Frá 2016 hefur
alltaf vorað vel og seiðin hafa stækk-
að og eru nú að ganga til hafs
þriggja ára í stað fjögurra áður. Í
fyrra gekk stór árgangur til hafs og
er að skila sér núna sem smálax og
sá árgangur sem fer út núna í sumar
er líka vel yfir meðaltali. Við vonum
að hann skili sér vel á næsta ári. Það
gæti því orðið enn betra en núna.
Þetta er spennandi!“
Hann bætir við að þótt ánægju-
legt sé að sjá smálaxa skila sér í öfl-
ugum göngum þá sé hlutfall stórlaxa
eftir sem áður mjög hátt í ánni og
þessir klassísku stóru Hofsárlaxar,
þykkir og sterkir, heilli veiðimenn.
Jón Magnús segir að lokum að það
hafi verið minna um erlenda veiði-
menn við Hofsá nú en síðustu sum-
ur, vegna kórónuveirunnar, en ís-
lenskir veiðimenn hafi komið inn í
staðinn og hafi Hofsá verið uppseld.
Veiðist vel í Eystri og Affallinu
Rangárnar tróna eins og áður
hæstar á listanum yfir aflahæstu
veiðisvæðin. Og sýnu meira hefur
veiðst í þeirri eystri, veiðin þar var
komin yfir 5.300 laxa á miðvikudag-
inn var og meðalveiði á hverja stöng
af þeim 18 sem veitt er á nær sex
laxar á dag. Má vel kalla það mok.
Í Affallið í landeyjum, þá nettu á á
Njáluslóð eru sett sömu hafbeit-
arseiði og í Eystri-Rangá. Þar er
veitt á fjórar dagsstangir og með-
alveiðin síðustu vikuna sex laxar á
dag og veiðimenn kampakátir.
„Að detta í sitt gamla góða far“
Góð veiði hefur verið í Hofsá í Vopnafirði í sumar Smálax hefur skilað sér í mun meira mæli en
undanfarin ár Stórir seiðaárgangar gengu til hafs í fyrra og aftur í sumar og vekja bjartar vonir
Morgunblaðið/Einar Falur
Tökugleði Silfurbjartur nýrenningur tók smáflugu Þorsteins J í Þvottalækjarhyl í Hofsá kvöld eitt á dögunum. Meðalveiði í ánni er mjög góð í sumar.
Afl ahæstu árnar
Heimild: www.angling.is
0 1.000 2.000 3.000 4.000 5.500
Staðan 19. ágúst 2020
Veiðistaður
Stanga-
fjöldi Veiði
21. ágúst
2019
22. ágúst
2018
Eystri-Rangá 18 5.321 2.316 2.651
Ytri-Rangá & Hólsá, vesturbakki 18 1.699 994 2.288
Miðfjarðará 10 1.202 984 1.863
Affal í Landeyjum 4 1.060 715 1.139
Urriðafoss í Þjórsá 4 943 138 391
Selá í Vopnafi rði 6 869 435 1.287
Haffjarðará 6 855 1.002 1.029
Norðurá 15 788 264 1.455
Þverá og Kjarrá 14 771 532 2.202
Hofsá og Sunnudalsá 6 752 460 505
Jökla (Jökulsá á Dal) 8 680 248 1.209
Langá 12 601 330 360
Laxá í Kjós 8 543 121 735
Laxá á Ásum 4 502 561 848
Blanda 14 475 502 552
STANGVEIÐI
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Það hefur verið önnur og mun betri
staða í Hofsá en undanfarin ár. Það
er meira af fiski og smálaxinn er að
skila sér í meira mæli en á síðustu
árum, enda veiðist mjög vel,“ segir
Jón Magnús Sigurðarson bóndi á
Einarsstöðum og formaður Veiði-
félags Hofsár. Hann er jafnframt
leiðsögumaður við ána og fylgist því
grannt með veiðinni og veiðimönn-
unum sem hafa verið heldur betur
lukkulegir á bökkum Hofsár í sum-
ar. Enda hefur meðalveiði tveggja
síðustu vikna verið um tveir og hálf-
ur lax á stöng á dag sem er með því
allra besta í laxveiðiám með nátt-
úrulegum stofnum þetta sumarið.
„Við finnum vel að Hofsá er að
detta í sitt gamla góða far,“ bætir
Jón Magnús við. „Smálaxinn hefur
vantað síðustu ár en nú er hann
mættur og bætist við öflugan stór-
laxastofninn sem lætur sig ekki
vanta.“
Blaðamaður var við Hofsá í liðinni
viku og getur, eftir að hafa kynnst
þessari perlu í Vopnafirði vel á síð-
ustu árum, staðfest þessi orð for-
manns veiðifélagsins. Það er mikið
af fiski í ánni, öll svæði virk og þegar
við tökuglaðan smálax bætast vonir
um þá stóru, sem gefa sig líka af og
til, þá eru veiðimenn ánægðir.
Nær sex á dag á stöng í Selá
Ef horft er til veiðitalna síðustu
tveggja vikna úr ám með náttúru-
legan laxastofn, sem gefnar eru upp
á vef Landssambands veiðifélaga,
angling.is, má sjá að meðalveiði á
stöng hefur verið best í systurá
Hofsár í Vopnafirði, Selá, eða nær
sex laxar á dag. Í Haffjarðará, sem
gefur besta veiði á Vesturlandi,
veiddust að meðaltali 4,3 laxar á
stöng þessar vikur, um fimm á stöng
í Laxá á Ásum, 2,6 í Miðfjarðará, 3,1
í Laxá í Kjós og nær tveir í Langá á
Mýrum. Eins og fyrr segir hafa
veiðst um 2,5 laxar á stöng í Hofsá
að meðaltali síðustu tvær vikur.
Jón Magnús endurtekur að veiði-
menn við Hofsá finni vel fyrir því að
mun meira sé af fiski í ánni en
undanfarin ár, en árin 2013 og 2014
urðu gríðarmikil flóð í henni sem