Morgunblaðið - 22.08.2020, Side 20

Morgunblaðið - 22.08.2020, Side 20
20 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. ÁGÚST 2020 BAKSVIÐ Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Lífeyrissjóður verslunarmanna (LIVE) hefur óskað eftir því að bakarískeðja Jóa Fel verði tekin til gjaldþrotaskipta. Þetta herma heimildir Morgunblaðsins. Málið er á dagskrá Héraðsdóms Reykjavík- ur miðvikudaginn 9. september næstkomandi. Allar líkur eru á að lyktir muni fást í málið þann dag þar sem fyrirtækið hefur nú þegar dregið á frest sem hægt er að óska í málum af þessu tagi. Reyndist fresturinn sem veittur var nokkuð lengri en venja er til þar sem dóm- stóllinn tók réttarhlé vegna sum- arleyfa. Ástæðan fyrir kröfu lífeyrissjóðs- ins er stór skuld fyrirtækisins við sjóðinn vegna ógreiddra iðgjalda af launum starfsfólks. Engin iðgjöld greidd Morgunblaðið hefur farið yfir gögn sem sýna að engin iðgjöld eða mótframlag atvinnurekanda hafa verið greidd af launum tiltekinna starfsmanna fyrirtækisins frá því í apríl í fyrra. Önnur gögn staðfesta að þótt ekkert hafi skilað sér til líf- eyrissjóðsins hefur fyrirtækið inn- heimt iðgjöldin af starfsfólki og haldið þeim eftir. Ekki hefur náðst í Jóhannes Fel- ixson, eiganda fyrirtækisins, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. Því hefur ekki fengist staðfest að sami háttur hafi verið hafður á í tilvikum allra starfsmanna fyrirtækisins. Allir undir sömu sök seldir Hins vegar leitaði Morgunblaðið upplýsinga hjá LIVE. Sjóðurinn tjáir sig ekki um málefni einstaka fyrirtækja en þar fékkst þó staðfest að sjóðurinn bjóði ekki upp á að ið- gjöld séu gerð upp af launum sumra starfsmanna en annarra ekki. Af þeim svörum að dæma má gera ráð fyrir að allir starfsmenn fyrirtækisins sem hafa talið sig vera að safna lífeyrisréttindum hjá LIVE hafi verið hlunnfarnir hjá fyrirtækinu frá því í apríl í fyrra. Samkvæmt upplýsingum frá LIVE sendir sjóðurinn ógreidd ið- gjöld í löginnheimtu um 3 til 4 mán- uðum eftir að vanskil verða. Reynt sé að sýna atvinnurekendum sveigj- anleika þar sem hægt er að koma því við og greiðsluvilji sé til staðar. Beri innheimtan ekki árangur er lögð fram fjárnámsbeiðni hjá sýslu- manni sem oft ljúki með árangurs- lausu fjárnámi. Þegar þau úrræði ásamt öðrum greiðsluáskorunum hafa verið fullreynd er beiðni lögð fyrir héraðsdóm um gjaldþrota- skipti. Mun sjóðurinn, líkt og aðrir lífeyrissjóðir í landinu, leggja áherslu á að slík beiðni sé lögð fram innan 18 mánaða frá því að vanskil hefjast. Er það gert þar sem ábyrgðarsjóður launa ábyrgist greiðslur vegna vangoldinna ið- gjalda eitt og hálft ár aftur í tím- ann. Í ViðskiptaMogganum á mið- vikudag var fjallað um að Jói Fel hefði lokað nýjasta útsölustað sín- um í Borgartúni. Heimildir blaðsins herma að útburðarmál sé í burð- arliðnum sem rekið er af lögmanni eiganda leigusala fyrirtækisins í Borgartúni 29. Krefjast gjaldþrotaskipta Jói Fel Var með sex útsölustaði á höfuðborgarsvæðinu þar til nú í ágúst þegar það lokaði dyrum sínum í Borgartúni.  Margir starfsmenn Jóa Fel hlunnfarnir  Mikilvæg réttindi fyrir borð borin  Krafa um gjaldþrotaskipti tekin fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur 9. september Aron Þórður Albertsson aronthordur@mbl.is Framleiðsla á mjólkurafurðum sprotafyrirtækisins Responsible Foods hefst á næstu dögum. Fram- leiðslan mun fara fram á Granda í Reykjavík. Þetta segir Hörður G. Kristinsson, einn stofnenda fyrir- tækisins. Responsible Foods framleiðir heilsunasl úr íslensku hráefni undir vörumerkinu Næra. Framleiðslulín- urnar eru tvær, annars vegar mjólk- urafurðir og hins vegar vörur unnar úr sjávarfangi. Gera má ráð fyrir að síðarnefndu vörurnar verði komnar í verslanir í haust. Fer framleiðsla sjávarafurðanna fram á Fáskrúðs- firði. Aðspurður segir Hörður að verið sé að bíða eftir leyfi til framleiðslu. Þegar öll tilskilin leyfi liggja fyrir mun framleiðsla hefjast. „Það er í raun allt tilbúið úti á Granda og það er verið að bíða eftir framleiðslu- leyfi. Við erum að horfa fram á næstu viku,“ segir Hörður og bætir við að framleiðslan muni aukast hægt og rólega þegar fram líða stundir. „Horft nokkur ár fram í tímann verða samtals um tuttugu til þrjátíu starfsmenn á framleiðslu- stöðunum tveimur.“ Hefja framleiðslu mjólkurafurða  Responsible Foods í startholunum Morgunblaðið/Sigtryggur Grandi Hugmyndin kviknaði í Sjávarklasanum. Fyrirtækið er nú í vexti. 22. ágúst 2020 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 137.09 Sterlingspund 179.91 Kanadadalur 103.82 Dönsk króna 21.785 Norsk króna 15.343 Sænsk króna 15.701 Svissn. franki 150.37 Japanskt jen 1.2938 SDR 193.6 Evra 162.2 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 191.3182 Hrávöruverð Gull 1928.05 ($/únsa) Ál 1746.5 ($/tonn) LME Hráolía 45.14 ($/fatið) Brent ● Hagnaður Landsvirkjunar á fyrri árshelmingi nam 40,6 millj- ónum dollara, jafnvirði 5,6 millj- arða króna en var 68,6 milljónir doll- ara, eða 9,5 millj- arðar króna, yfir sama tímabil í fyrra. Nemur samdrátturinn því 40%. Rekstrartekjur félagsins lækkuðu um 32,6 milljónir dollara eða 4,5 millj- arða króna á tímabilinu miðað við sama tíma 2019. „Afkoma Landsvirkjunar á fyrri árs- helmingi er lituð af erfiðu efnahags- ástandi í heiminum um þessar mundir. COVID-19-faraldurinn hefur valdið samdrætti í eftirspurn hjá okkar helstu viðskiptavinum og sér þess merki í tekjum fyrirtækisins á tíma- bilinu, sér í lagi á öðrum fjórðungi ársins. Landsvirkjun hefur sem kunn- ugt er stutt við bakið á stórnotendum á þessum erfiðu tímum með því að bjóða þeim rafmagn á afsláttarkjörum til 31. október næstkomandi,“ segir Hörður Arnarson í tilkynningu frá fyrirtækinu sem send var Kauphöll Ís- lands í gær. Hagnaður Landsvirkj- unar snarminnkar Hörður Arnarson STUTT Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum Vanskil fyrirtækja á lífeyrisiðgjöldum starfsfólks geta haft ýmsar aðrar af- leiðingar en þær sem felast í beinni réttindaskerðingu lífeyris. Margir sjóð- félagar lífeyrisjóðanna sækja þangað aðra þjónustu, einkum tengda lána- fyrirgreiðslu. Morgunblaðið ræddi m.a. við starfsmann Jóa Fel sem neitað var um sjóðfélagalán hjá Lífeyrissjóði verslunarmanna. Ástæðan sem sjóð- urinn gaf var sú að sjóðfélaginn uppfyllti ekki skilyrði fyrir lántöku. Regl- urnar kveða á um að sjóðfélagi geti sótt um lán hafi hann greitt iðgjöld í sex af síðustu 12 mánuðum fyrir umsókn eða í samtals 36 mánuði fyrir um- sókn. Þannig geta atvinnurekendur sem ekki standa í skilum fyrirgert mik- ilvægum réttindum starfsfólks án þess að það geti rönd við reist. Geta ekki tekið lán FYRIRGERIR MIKILVÆGUM RÉTTINDUM

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.