Morgunblaðið - 22.08.2020, Side 21
FRÉTTIR 21Erlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. ÁGÚST 2020
Í þessu fallega húsi við Bárugötu 11, 101 Reykjavík, eru herbergi til leigu sem
eru tilvalin fyrir háskólastúdenta. Herbergin eru öll með fullbúnu baði og leigjendur hafa
aðgang að sameiginlegu eldhúsi og þvottaherbergi. Herbergin eru í 4 mismunandi stærðum
og verðin eru frá 80.000-120.000 kr.
Áhugasamir geta haft samband gegnum netfangið magga2016@gmail.com.
TILVALIÐ FYRIR STÚDENTA! Herbergitil leigu
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Læknateymið sem séð hefur um
rússneska stjórnarandstæðinginn
Alexei Navalní samþykkti síðdegis
í gær flutning hans til meðferðar í
Þýskalandi, en fjölskylda hans
hafði beðið sérstaklega um að það
yrði gert. Stóð til að flutningurinn
myndi fara fram í gærkvöldi.
Navalní var enn í dái á sjúkra-
húsi í Omsk í gær, en sá grunur
kom upp í fyrradag að eitrað hefði
verið fyrir hann. Læknarnir í
Omsk sögðu hins vegar í gærmorg-
un að þeir hefðu ekki fundið neinar
vísbendingar um eitrun.
Anatolí Kalínítsjenkó, aðstoðar-
yfirlæknir við sjúkrahúsið, sagði að
læknarnir hefðu ákveðið að láta af
fyrri andstöðu sinni við að Navalní
yrði fluttur, þar sem ástand hans
hefði náð jafnvægi. Tók hann hins
vegar fram að eiginkona og bróðir
Navalní hefðu „tekið ábyrgðina“ af
flutningnum á sig sjálf, en þau
leigðu einkaflugvél til þess.
Fyrr um daginn höfðu læknarnir
neitað að veita heimild fyrir flutn-
ingi Navalnís, þar sem þeir sögðu
líkamlegt ástand hans ekki bjóða
upp á slíkt. Júlía, eiginkona Na-
valnís, biðlaði hins vegar sérstak-
lega til Vladimírs Pútíns Rúss-
landsforseta um að heimila
flutninginn. Dímítrí Peskov, tals-
maður Pútíns sagði hins vegar að
rússnesk stjórnvöld hefðu ekki haft
neitt með ákvörðun læknanna að
gera, heldur væri mat þeirra alfar-
ið byggt á læknisfræðilegum
grunni.
Angela Merkel, Þýskalands-
kanslari, bauðst til þess í fyrra-
kvöld að Navalní yrði fluttur til
Þýskalands til umönnunar. Þýska
ríkisstjórnin hélt áfram umleitun-
um sínum í gær, og fóru þýskir
læknar sérstaka ferð til Omsk til
að skoða Navalní. Komust þeir að
þeirri niðurstöðu að unnt yrði að
flytja hann til Þýskalands til
umönnunar þar.
Blóðsykursfall orsökin?
Kalínítsjenkó sagði við fjölmiðla
í gær að læknarnir í Omsk hefðu
útilokað eitrun sem ástæðu fyrir
veikindum Navalnís. Sagði hann
bráðabirgðaniðurstöðu þeirra vera
þá að „efnaskiptaóreiða“ í kjölfar
skyndilegs blóðsykursfalls hefði
orsakað dáið.
Bætti hann við að þýsku lækn-
arnir hefðu einnig skoðað Navalní
og að þeir væru sammála greiningu
rússnesku læknanna og sáttir við
vinnubrögð þeirra. Þá hefðu Þjóð-
verjarnir lofað því að þeir gætu
komið Navalní heilu og höldnu á
sjúkrahús í Berlín.
AFP
Rússland Stuðningsmenn Navalnís söfnuðust saman fyrir utan sjúkrahúsið
í Omsk og kröfðust þess að hann fengi flutning á sjúkrahús í Þýskalandi.
Leyfa flutning til Berlínar
Þýskaland hyggst taka við umönnun rússneska stjórnarandstæðingsins Alexei
Navalní Engin merki sögð til staðar um eitrun Fjölskyldan leitaði til Pútíns
Stríðandi fylkingar í Líbíu tilkynntu
í gær að þær hefðu gert með sér
vopnahlé, og enn fremur að þær
hygðust boða til nýrra kosninga sem
næðu til alls landsins. Nái þau áform
fram að ganga verður bundinn endi
á borgarastríðið í landinu, sem stað-
ið hefur yfir nær óslitið frá því
Múammar Gaddafí var steypt af
stóli árið 2011.
Í yfirlýsingu Fayez al-Sarraj, for-
sætisráðherra stjórnarinnar í Trí-
póli, sagði að stefnt væri að því að
halda forseta- og þingkosningar í
mars á næsta ári.
Stjórnvöld í Egyptalandi, Ítalíu og
Þýskalandi fögnuðu fyrirhuguðu
vopnahléi og Stephanie Williams,
fulltrúi Sameinuðu þjóðanna í Líbíu,
fagnaði yfirlýsingum frá fylking-
unum og hvatti alla aðila til þess að
nýta þetta sögulega tækifæri líbísku
þjóðinni til hagsbóta. Sérfræðingar í
málefnum landsins vöruðu hins veg-
ar því að erfitt gæti reynst að fá hina
ýmsu vígahópa til þess að leggja nið-
ur vopn sín.
Vopnahlé og kosið
að nýju í Líbíu
Stefnt að kosningum á næsta ári
AFP
Líbía Barist hefur verið nær óslitið
frá falli Gaddafís árið 2011.
Joe Biden, forsetaframbjóðandi
Demókrataflokksins í Bandaríkj-
unum, hét því í fyrrinótt að hann
myndi binda enda á það „svart-
nætti“ sem fylgt hefði forsetatíð
Donalds Trump og reyna að sam-
eina bandarísku þjóðina á ný.
Biden tók formlega við útnefn-
ingu demókrata og flutti lokaræðu
landsfundar flokksins, sem nú fór
fram á netinu vegna kórónuveiru-
faraldursins. „Ef þið treystið mér
fyrir forsetaembættinu, mun ég
leita í bestu hvatir okkar, ekki þær
verstu. Ég verð bandamaður ljóss-
ins, ekki myrkursins,“ sagði Biden í
ræðu sinni.
Gerður var góður rómur að ræðu
Bidens í bandarískum fjölmiðlum,
og sagði Chris Wallace, fréttamað-
ur Fox-fréttastöðvarinnar, að ræð-
an hefði gert repúblikönum erf-
iðara um vik að ráðast að andlegu
atgervi og aldri Bidens.
BANDARÍKIN
AFP
Landsfundur Biden flytur ræðu sína.
Hyggst binda enda
á „svartnættið“
Samninga-
nefndir Evrópu-
sambandsins og
Stóra-Bretlands
slitu í gær sjö-
undu viðræðulot-
unni í fríversl-
unarviðræðum
ESB og Breta, og
voru aðilar
hvergi nær sam-
komulagi en þeg-
ar viðræðulotan hófst.
Michel Barnier, aðalsamn-
ingamaður Evrópusambandsins,
varaði við því að tíminn væri orðinn
ansi knappur, en forsvarsmenn
ESB hafa sagt að viðræðunum
verði að vera lokið fyrir októ-
berlok. Segja þeir nú ólíklegt að
það markmið náist.
David Frost, samningamaður
Breta, sagði hins vegar að þver-
móðska Evrópusambandsins í við-
ræðunum varðandi fiskveiðiréttindi
og reglur um ríkisaðstoð, væri
meginástæðan fyrir töfunum, en
Barnier vill ganga frá þeim atrið-
um áður en aðrir þættir verða
ræddir.
BRETLAND
Viðræðulotunni slit-
ið án árangurs
Michel
Barnier
Flugher Ísraelsríkis gerði loftárásir á Gaza-
svæðið í nótt og í gærmorgun sem lýstu upp næt-
urhimininn. Árásunum var ætlað að svara fyrir
nýjustu eldflaugaárásir Hamas-liða á Ísrael, en
mikill órói hefur verið í samskiptum Hamas og
Ísraels undanfarnar tvær vikur.
Vöruðu ísraelsk stjórnvöld við því fyrr í vik-
unni að þau væru reiðubúin til átaka, létu Ha-
mas-samtökin ekki af eldflaugaárásum sínum.
Svöruðu fyrir eldflaugaárásir með loftárásum
AFP