Morgunblaðið - 22.08.2020, Page 26

Morgunblaðið - 22.08.2020, Page 26
26 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. ÁGÚST 2020 Hamraborg 12 200 Kópavogur 416 0500 www.eignaborg.is ÁRANGUR Í SÖLU FASTEIGNA Hátún 2A, 105 ReykjavíkTIL LEIGU Upplýsingar gefur Óskar Bergsson lgfs. sími 893 2499, oskar@eignaborg.is Vandað og vel skipulagt húsnæði á 2. hæð, innréttað sem tannlæknastofur. Mjög áhugavert fyrir fyrirtæki í heilbrigðisþjónustu. Vandaður hringstigi liggur upp á hæðina. Rýmið er skipulagt út frá gangi í miðju hússins og er innréttað þannig að hægt er að vera með 5-6 sjálfstæðar starfsstöðvar. Þakrými yfir hæðinni fylgir með sem geymsla. 22 bílastæði eru á lóðinni og fylgja 10 stæði þessari hæð. Húsnæðið losnar í nóvember 2020. Atvinnuhúsnæði - Stærð 413 m2 Hringið og pantið skoðun Þrátt fyrir orðspor Íslands á alþjóðavett- vangi um framfarir á sviði kvenréttinda og kynjajafnréttis er landið engin útópía fyrir konur. Athug- anir gefa til kynna að tíðni líkamlegs of- beldis og kynferðis- brota gegn konum á Íslandi sé hærri en að meðaltali í Evrópu og lagakerfið viðheldur tortryggni í garð þeirra kvenna sem hafa þolað ofbeldið. Sér- staklega er áberandi, í málum er varða forsjá og umgengni barna, rangsnúin fjandsemi réttarkerf- isins í garð mæðra sem greina frá ofbeldishegðun feðra. Íslensk löggjöf um skipan for- sjár og umgengni hvílir á þeirri skoðun að bestu hagsmuna barna sé gætt með því að deila ábyrgð jafnt á milli beggja foreldra. Á hinn bóginn, þegar foreldri beitir ofbeldi vill þessi hugmyndafræði, um eindreginn rétt barnsins til umgengni (e. pro-contact ideology), verða ríkjandi í réttarákvörðun og leiðir til þess að dómarar og sýslu- menn vísa frá eða afsaka ofbeldis- hegðun. Þar með setja þeir börn endurtekið í hættulegar aðstæður. Falsvísindakenningin um foreldrafirringu Meðhjálpari í þessari nálgun er hugtak sem nefnt er foreldrafirr- ing (e. Parental Alienation Synd- rome, PAS) og er notað ítrekað í íslensku réttarkerfi. PAS- „kenningin“ var fundin upp á ní- unda áratugnum af umdeildum geðlækni að nafni Richard Gardner með það að markmiði að kokka upp skýringakerfi ástæðna þess að sum börn kjósa eitt foreldri fram yfir hitt. Sú augljósa ástæða, að börn óttast foreldra sem beita of- beldi, hentaði honum ekki. Svo þess í stað mótaði Gardner ástæðuskýringar sniðnar að hans eigin andstyggilegu viðhorfum til kvenna, barnagirndar og ofbeldis gegn börnum. Vélabrögð Gardner ganga út frá því að ásakanir um ofbeldi gegn barni, bornar upp af barni eða móður þess, séu nánast alltaf falskar. Þeim mun eftirgangsharð- ari sem móðirin er um ofbeldið, þeim mun meiri sönnun telst vera á að heilkennið sé að verki. Hann smíðaði gildru sem myndi þagga niður í mæðrum en refsa þeim ef þær tilkynntu ofbeldi. Hann vildi útiloka að mæður gætu varið börn- in sín. PAS hefur víðast verið sett í flokk ruslvísinda af fræðafólki og verið hafnað af öllum leiðandi sam- tökum innan geðlæknisfræði, sál- fræði og læknisfræði á Vest- urlöndum vegna vöntunar á raunprófunum eða klínískum at- hugunum sem styðja kenninguna. Það hefur þó ekki komið í veg fyr- ir að misjafnir meðferðaraðilar og óforskammaðir lögmenn hafi fylkt liði, gremjufullum feðrahreyfingum til fulltingis og kenningunni til brautargengis sem þungamiðju í ákvörðun fjölskylduréttar. Niður- staðan er slóð eyðileggingar, varn- arlaus, misnotuð og dáin börn, mæðurnar brotnar eftir því. Miðaldahugsun réttar- kerfisins um konur Hatursfullar hugmyndir Gardner eru karlahreyfingum afar hjart- fólgnar af því þær réttlæta væn- isýkislega samsærishugsun þeirra, um að mæður séu að eitra sam- band þeirra við börnin, frekar en að gangast við því að ofbeldis- hegðun þeirra sjálfra valdi skaða og kvöl. Hér á landi hafa hug- myndir Gardner fengið samnefnara við tálmun á umgengni og hugtök á borð við foreldraútilokun, tálm- unarmóðir, tengslarof, tálmunar- ofbeldi, hollustuklemma og for- eldraklemma. Þessar hugmyndir sækja hljómgrunn sinn í myrka miðaldahugsun um konur sem „röklausar“ og „hysterískar“ en eru notaðar af ofbeldismönnum í dómsmálum til að mála konur upp sem hefnigjarnar, slóttugar og lygasjúkar. Allt vel þekktar og lítt duldar aðferðir notaðar til að beina athygli réttarkerfisins frá ofbeldis- hegðun þeirra. Það furðulega er að jafnvel með- al vel menntaðra dómara og sýslu- mannsfulltrúa, í því nútímavelferðarríki sem ætla mætti Ísland, þá svínvirka þessar augljósu aðferðir til að afvegaleiða réttarákvörðun. Stundin greinir frá því með ná- kvæmum hætti árið 2018, hvernig sýslumaður horfir kerfisbundið fram hjá vísbendingum um heim- ilisofbeldi og kynferðisbrot gegn börnum í úrskurðum sínum. Með mónómanískri trú á jafnræði for- eldra, í bland við endurtekna notk- un á PAS, eru börn þvinguð í sam- vistir eða eftirlitslausa umgengni við gerendur sína. PAS eykur líkur á að forsjá sé færð til föður sem beitir ofbeldi Bandarískar rannsóknir hafa leitt í ljós að þegar mæður greina frá líkamlegu ofbeldi og kynferðis- brotum föður gegn börnum, er notkun á PAS raunar til þess fallin að auka líkurnar á því að móðirin missi forsjá og börnin verði þess í stað sett í umsjá föðurins sem beit- ir ofbeldi. Þetta kann að hljóma fjarstæðukennt, en er engu að síð- ur hrottaleg afleiðing þess að dóm- arar og sýslumenn láta annaðhvort blekkjast auðveldlega af PAS- matsniðurstöðu eða þeir deila sömu grundvallarviðhorfum til kvenna. Þessi átakanlega dómsniðurstaða er orðin að veruleika á Íslandi. Í afar umdeildu máli er manni með sögu um kynferðislega misnotkun á börnum veitt full forsjá yfir barni. Móðurinni var refsað af dómstólum fyrir að fylgja ekki fyrri bráðabirgðaúrskurði um eft- irlitslausan aðgang mannsins að barninu. Óviljug til að taka slíka áhættu með líf barnsins bauð hún manninum þess í stað aðgang und- ir eftirliti, sem hann hafnaði í flest- um tilvikum. Þrátt fyrir þessa við- leitni móður virkaði PAS, tókst að gera konu sem verndar barn sitt tortryggilega og barnaníðing að fórnarlambinu. Börn gerð að peðum í stríði gegn konum Við dauða Gardner árið 2003 voru skrifuð um hann eftirmæli í The Independent, þar sem honum var lýst sem skrímsli „an authentic American monster“. Engu að síð- ur, úr sérplássi hans í helvíti, held- ur Gardner áfram að vera áhrifa- mesti karakter í fjölskyldurétti hins vestræna heims, af því að þegar PAS-kenningin hafði á ann- að borð vélað sér leið inn í dóma- framkvæmd breiddi hún úr sér og styrktist í sessi. Dómarar hafa gerst þrælar hugmynda Gardner án þess að þekkja nafn hans eða rotin verk hans. Í júní síðastliðnum birti breska dómsmálaráðuneytið óvenjulega skýrslu, en í henni er því staðfastlega lýst yfir að fjöl- skylduréttur þar í landi sé ófær um að vernda börn. Sams konar skýrslur væri hægt að skrifa í næstum hverri einustu höfuðborg Vesturlanda. Í byrjun maí skrifaði dóms- málaráðherra, Áslaug Arna Sigur- björnsdóttir, í Morgunblaðið, þar sem segir að í frumvarpi til nýrra laga, sem varða forsjá og búsetu barna sé sjónum beint að sjálf- stæðum rétti barns, hagsmunum þess og þörfum, að hagsmunir barns skuli alltaf hafa meira vægi en jafnræði á milli foreldra. Þar með er tekið skref í áttina að því að viðurkenna galla hugmyndar- innar í núgildandi löggjöf um ein- dreginn rétt barnsins til að um- gangast báða foreldra sína (e. pro-contact ideology). Vilji ráðherra sannarlega heiðra þessa hugsjón mun hún sjá til þess að notkun á PAS við mat á hags- munum barna verði gerð óheimil í íslensku réttarkerfi. Vegna þess að PAS þaggar ekki bara niður í kon- um, heldur gerir það börn að peð- um í víðtækara stríði gegn konum. PAS leitast við, með virkum hætti, að rjúfa tengsl móður og barns. Með þeirri viðleitni, ásamt því að gera lítið úr ofbeldi gegn börnum, er hafður að engu lögmætur rétt- ur, hagsmunir og þarfir barna. Ætli Ísland að vera leiðarljós heimsins í kvenréttindamálum og kynjajafnrétti þá þarf næsta stóra umbótaskref að vera að fjarlægja þetta illvíga æxli úr réttarkerfinu. Vegna þess að í kjarna hugmynda Gardner er sú trú að karlmönnum sé eðlislægt að beita ofbeldi sem ekki ætti að hamla, að það sé hlut- verk kvenna og barna að bera þungann af þessu ofbeldi í þágu samfélags þeirra. Haldi Ísland áfram að ala á þessari villimanns- legu heimsmynd er það smán- arblettur á orðspori heillar þjóðar bæði hvað varðar kvenréttindi og velferð barna. Dómstólar í greipum kvenhaturskenningar Eftir Sigrúnu Sif Jóelsdóttur og Grant Wyeth. »Ef dómsmálaráð- herra vill að hags- munir barns hafi alltaf meira vægi en jafnræði á milli foreldra, þarf hún að sjá til þess að notkun á PAS (e. Parental Al- ienation Syndrome) við mat á hagsmunum barna verði gerð óheimil í íslensku réttarkerfi. Sigrún Sif Jóelsdóttir Sigrún Sif starfar við rannsóknir sem verkefnastjóri hjá menntavísindasviði Háskóla Íslands og er ein af tals- konum samtakanna Lífs án ofbeldis. Grant starfar við rannsóknir hjá Asia Institute við Háskólann í Melbourne í Ástralíu og er pistlahöfundur hjá The Diplomat. Hann tístir @grant- wyeth Grant Wyeth Margir fylgja þeim skemmtilega sið að gera óskalista sem getur innihaldið óskir eins og „mig langar að fara í fallhlífastökk“, „mig langar að gerast Landvættur“, eða „mig langar að ferðast austur og sjá náttúru- perluna Stuðlagil með eigin augum“. Þó að það geti verið gagnlegt að setja sér markmið og gera áætlun um að ná því leiðir þetta stundum til þess að fólk gerir hluti aðallega til að geta strokið þá út af listanum, án þess að njóta þeirra til fulls. Það er lítið var- ið í að vera rétt kominn upp á Snæ- fell og byrja strax að hugsa um heimferðina eða næsta fjall til að klífa. Hvernig væri að hægja á sér, gera hlutina í fullri vitund og njóta feg- urðar augnabliksins? Með því að taka inn, njóta og varðveita upplif- anir, hvort sem um er að ræða ferð í Reynisfjöru, tónleika í beinni út- sendingu eða lestur góðrar bókar, er hægt að auka vellíðan. Þetta snýst um að uppgötva umhverfi sitt á sín- um forsendum og nota öll skilning- arvitin: sjón, heyrn, lyktarskyn, snertiskyn og bragðskyn. Kannski ætti óskalistinn að líta einhvern veginn svona út:  Ég finn lyktina og bragðið af því sem ég legg mér til munns.  Ég finn lyktina og bragðið af því sem ég drekk og veiti því sömu athygli og væri ég í vínsmökkunarferð.  Ég tek eftir fegurð lita, forma og mynst- urs; fjólubláu og gulu, bognu og beinu, dopp- óttu og röndóttu o.s.frv.  Ég tek eftir áferð hluta hvort sem þeir eru hlýir, kaldir, grófir, sléttir, mjúkir, harðir, loðnir o.s.frv.  Ég tek eftir hljóði eins og möl- un kaffibauna, mjálmandi ketti, fjúk- andi laufblöðum, röddum fólks o.s.frv.  Ég veiti augnlit þeirra sem ég tala við eftirtekt.  Ég skynja hvort fólk sem ég hitti er hamingjusamt, dapurt, stressað eða upplifir aðrar tilfinn- ingar. Ég reyni að koma þessum til- finningum í orð.  Ég sýni öðrum velvild með orð- um, gjörðum og hugsunum.  Ég hlæ. Hvað er á þínum óskalista í dag? Þarfnast óskalistinn þinn uppfærslu? Eftir Ingrid Kuhlman Ingrid Kuhlman »Hvernig væri að hægja á sér, gera hlutina í fullri vitund og njóta fegurðar augna- bliksins? Höfundur er framkvæmdastjóri Þekkingarmiðlunar. ingrid@thekkingarmidlun.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.