Morgunblaðið - 22.08.2020, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 22.08.2020, Blaðsíða 29
MINNINGAR 29 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. ÁGÚST 2020 Alltaf þegar ég kom til ömmu leið mér eins og barni, á öruggasta stað í heimi, þar sem var endalaust af knúsum, ristað brauð með osti og ómerktri sultu, hlátur og gleði. Þegar ég vaknaði heima hjá henni rauk ég á fætur til að byrja daginn með ömmu, sama hvað ég var gömul, sama hvað ég var þreytt, núna síðast um sjó- mannahelgina sendi hún mig aftur upp í í klst. í viðbót af því hún sá að ég var ekki tilbúin að vakna alveg strax, hún hafði rétt fyrir sér, eins og alltaf. Við amma urðum mjög nánar síðustu ár og fyrir það er ég óendanlega þakklát, við þekktum hvor aðra inn og út, ég gat sagt henni hvað sem er og hún mér. Vinátta okkar ömmu er mér mjög kær, ein sú verðmætasta sem ég á. Ég er svo þakklát fyrir öll þau 27 ár sem ég fékk með henni, allar þær samverustundir og allar þær minningar sem ég á, þær ylja mér á erfiðum tímum. Elsku amma, ég mun halda í höndina þína í hjartanu mínu það sem eftir er. Þín Anna. Halla mágkona kom inn í líf okkar systkina, þegar hún bast okkar elsta bróður böndum ung að árum. Glæsileg kona, af rótgrón- um ættum úr austurhluta Heima- eyjar. Það gustaði af henni, Halla var hressileg og hláturmild og ekki fór á milli mála að bróðir okk- ar hafði fundið góðan lífsförunaut. Enda kom það á daginn. Addi bróðir og Halla voru einstaklega samhent í gegnum lífið og mág- kona okkar stóð svo þétt við hlið bróður að varla bar nafn annars þeirra á góma að hitt fylgdi ekki í kjölfarið. Addi var höfuð systkina- hópsins, einstakur hugmynda- smiður og gleðigjafi, sem smitaði umhverfi sitt af glaðlyndi og bjart- sýni. Hann var sögumaður af guðs náð og þáttur Höllu var þar stærri en virtist við fyrstu sýn. Hún kunni þá list að taka undir, bæta inn í og laða fram frásagnargleði eiginmannsins sem náði oftar en ekki ógleymanlegum listrænum hæðum. Þannig var Halla mág- kona, hún kunni að kalla fram það besta hjá elsta bróður, sem gerðu hann að sönnum sagnalistamanni. Eins og hljómsveitarstjóri sló hún af sérstöku næmi á þá strengi, sem gerðu stundirnar með þeim hjónum að óviðjafnanlegum gleði- stundum. Sögur og frásagnir öðl- uðust ævarandi líf eins og sígild tónverk sem hægt var að njóta og endurtaka með ótal blæbrigðum. Börnin urðu 8 og Addi og Halla virtust fara létt með að koma þeim, hverju og einu til manns. Samstaða þeirra var einstök, börnin skiptu þau öllu máli, og lífs- gleðin jókst bara í hlutfalli við fjölgun á heimilinu! Þau hjón nutu sín best umkringd börnum og barnabörnum, því fleiri þeim mun betra! Og afkomendurnir sóttu í Halla Guðmundsdóttir ✝ Halla Guð-mundsdóttir fæddist 4. desem- ber 1939. Hún lést 8. ágúst 2020. Útför Höllu var gerð frá Landa- kirkju í Vest- mannaeyjum. félagsskap þeirra og hver annars og eru allt fram á þennan dag einstaklega samrýndir. Það var mikið áfall, þegar Addi bróðir féll skyndi- lega frá árið 2003. Systkinahópurinn missti gleðigjafann en þyngstur var harmur Höllu og barnanna. Sumir gefa svo mikið, að heimurinn verður aldrei samur aftur. En Halla mágkona hafði þrautseigju og seiglu til þess að lifa lífinu áfram, þótt hlátur henn- ar yrði aldrei sem áður. Við eftirlifandi systkin Adda þökkum Höllu mágkonu sam- fylgdina. Við þökkum henni fyrir að hafa ávallt staðið þétt við hlið elsta bróður og búið til minningar, sem eiga sérstakan sess í hugum okkar. Samspil Höllu og Adda var fyrirmynd okkar yngri systkina um það, hvernig ætti að standa saman í lífinu og takast á við það með lífsgleði og jákvæðni að leið- arljósi. Fyrir hönd systkinanna frá Steinholti og Illugagötu 7, Vest- mannaeyjum, Birgir Þór Baldvinsson. Við Halla kynntumst eiginlega ekki fyrr en fyrir nokkrum árum. Auðvitað heilsuðumst við eins og fólk gerir í litlum bæjarfélögum. Ég skoðaði börnin hennar (átta stykki) í ungbarnaskoðun og öll börnin hennar í skólaskoðun, þar sem ég vann á heilsugæslunni. Ekki man ég eftir, að við yrðum nokkurn tíma ósammála á þessum tíma. Það var mjög sorglegt er maður hennar, hann Addi Bald slökkviliðsstjóri, féll skyndilega frá 65 ára 2003, var hann öllum harmdauði, Halla var lengi að jafna sig, ef þá nokkurn tíma. Við unnum saman á Hraunbúðum og síðar á Sjúkrahúsi Ve. Einhvern veginn æxlaðist það svo, að við fór- um að sækja saman hinar ýmsu samkomur hjá eldri borgurum, sérstaklega spilakvöldin, sem maðurinn hafði lítinn áhuga á. Nokkrum sinnum fórum við í dagsferðir, þá slepptum við ekki þorrablótunum. Stofnaður var kaffiklúbbur, sem í voru um fjöru- tíu konur, sá var kallaður Perlurn- ar. Allar höfðum við unnið á Sjúkrahúsinu, og komnar á eftir- laun. Tókum við þátt í þessum sam- komum með mikilli gleði. Við Halla bjuggum nálægt hvor ann- arri og yfirleitt sótti ég hana þeg- ar við vorum að fara eitthvað. Einnig fór ég oft til hennar þegar ég var á heimleið úr bænum. Við áttum margar góðar stundir. Hún sagði mér frá æsku sinni í Eyjum og ég frá lífinu í 101 Reykjavík. Dætur hennar voru yndislegar stúlkur og tóku mér sérlega vel. Ég kvíði tímanum fram undan, þegar ekki verður hægt að kíkja í kaffi til Höllu. Elsku Halla, þakk- ar þér allar góðar stundir. Við Gaui vottum fjölskyldunni inni- lega samúð. Guð geymi þig. Hólmfríður Ólafsdóttir. Minningarkort á hjartaheill.is eða í síma 552 5744 Frímann & hálfdán Útfararþjónusta Frímann 897 2468 Hálfdán 898 5765 Ólöf 898 3075 Sími: 565 9775 www.uth.is uth@uth.is Cadillac 2017 Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SIGURÐUR SIGURÐSSON, húsa- og skipasmíðameistari, frá Vatnsdal, Vestmannaeyjum, lést á Hrafnistu í Hafnarfirði 16. ágúst. Í ljósi aðstæðna fer útförin fram með nánustu fjölskyldu. Blóm og kransar afþakkað en þeim sem vilja minnast Sigurðar er bent á Minningarsjóð Hrafnistu í Hafnarfirði. Atli Sigurðsson Harpa Andersen Bjartey Sigurðardóttir Gylfi Sigurðsson Guðrún Erlingsdóttir Arnar Sigurðsson Margrét Ragnarsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, RAGNHEIÐUR BJÖRNSDÓTTIR Stella, hjúkrunarfræðingur, lést á hjúkrunarheimilinu Hrafnistu við Sléttuveg sunnudaginn 16. ágúst. Í ljósi aðstæðna fer útförin fram í kyrrþey að viðstöddum nánustu aðstandendum. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á líknarsamtök. Hannes G. Jónsson Margrét Birna Hannesdóttir Sigurður Jónsson Guðný Hannesdóttir Baldur Gylfason Herdís Hannesdóttir barnabörn og barnabarnabörn Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐRÚN HAFLIÐADÓTTIR frá Dísukoti, Þykkvabæ, Búðargerði 4, Reykjavík, lést á heimili sínu mánudaginn 17. ágúst. Útförin fer fram frá Hvítasunnukirkjunni Fíladelfíu föstudaginn 28. ágúst klukkan 15. Vegna samkomutakmarkana verður athöfnin einungis fyrir nánustu fjölskyldu. Athöfninni verður streymt á filadelfia.is og á Facebook-síðu Hvítasunnukirkjunnar Fíladelfíu. Ásmundur Kristinsson Birna Kjartansdóttir Hafliði Kristinsson Steinunn Þorvaldsdóttir Katrín Kristinsdóttir Ólafur Kristinsson Regína Heincke Hrönn Kristinsdóttir Rúdólf Jóhannsson Óskar Kristinsson Sigrún Leifsdóttir Líney Kristinsdóttir Guðjón Hafliðason Árni Kristinsson Vaka Steindórsdóttir Magnús Kristinsson Ásta Hjálmarsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, ELLERT GUNNLAUGSSON, fyrrum bóndi á Sauðá, Garðavegi 19, Hvammstanga, lést á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Hvammstanga 16. ágúst. Útförin fer fram frá Hvammstangakirkju 24. ágúst kl. 13. Vegna aðstæðna í þjóðfélaginu er bara nánustu fjölskyldu og vinum boðið. Þeim sem vildu minnast hans er bent á Hollvinasamtök Heilbrigðisstofnunarinnar á Hvammstanga. Aðalheiður Jónsdóttir Sesselja Aníta Ellertsdóttir Gísli Már Arnarson Guðni Ellertsson Stella Guðrún Ellertsdóttir Tómas Örn Daníelsson afabörn og langafabarn Ástkær móðir okkar, dóttir, systir og barnsmóðir, JÓNA DÍS ÞÓRISDÓTTIR, lést miðvikudaginn 12. ágúst. Útför hennar fer fram frá Digraneskirkju þriðjudaginn 25. ágúst klukkan 13. Vegna samkomutakmarkana er athöfnin einungis fyrir nánustu fjölskyldu og vini. Athöfninni verður streymt á www.digraneskirkja.is. Þeim sem vilja minnast hennar og styrkja syni hennar er bent á styrktarreikning nr. 0370-13-400560, kt. 160386-2319. Þórir Jökull Ásgeirsson Halldór Elí Ásgeirsson Guðrún Jóna Jónasdóttir Ingi Halldór Árnason Þórey Þórisdóttir Sveinbjörn Sveinsson Ottó Ingi Þórisson Lára Björgvinsdóttir Hulda Þórisdóttir Árni Gunnar Reynisson Magnús Þórisson Ólafía Marelsdóttir Ásgeir Elíasson Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi, sonur og bróðir, GUÐMUNDUR HAUKUR GUNNARSSON lögfræðingur, lést á heimili sínu 16. ágúst. Útförin fer fram frá Háteigskirkju föstudaginn 28. ágúst klukkan 13. Í ljósi aðstæðna verða fjöldatakmarkanir í kirkjunni en athöfninni verður streymt á vefslóðinni https://youtu.be/H59lv9sk9UI María Dóra Björnsdóttir Diljá Guðmundardóttir Elías Guðni Guðnason Breki Guðmundsson María Ýr Elíasdóttir Ragnheiður Hulda Hauksd. Erla Gunnarsdóttir Pálmi Jónasson Ástkær móðir okkar og amma, RAKEL KRISTÍN MALMQUIST, áður Einarsnesi 44, lést miðvikudaginn 5. ágúst. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Valgerður Guðmundsdóttir Svanhildur Guðmundsdóttir Halldór Guðnason Reynir Guðmundsson Sigrún Sigurþórsdóttir Ebenezer G. Guðmundsson Lára Jónsdóttir Ásgeir Guðmundsson barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐRÚN INGVELDUR GUÐJÓNSDÓTTIR, Strikinu 2, Garðabæ, lést á Hrafnistu í Hafnarfirði fimmtudaginn 20. ágúst. Útför hennar fer fram fimmtudaginn 27. ágúst. Í ljósi aðstæðna er athöfnin einungis fyrir fjölskyldu og boðsgesti. Skúli Rúnar Guðjónsson Páll Skúlason Agnes Kragh Hansdóttir Jónas Skúlason Elísabet M. Jóhannesdóttir Skúli Rúnar Skúlason Sigríður Bergsdóttir Auður Skúladóttir Magnús V. Magnússon barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.