Morgunblaðið - 22.08.2020, Page 39
DÆGRADVÖL 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. ÁGÚST 2020
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„ÞÚ MUNT EKKI FINNA ATVINNU-
AUGLÝSINGAR Í ÍÞRÓTTABLAÐINU!”
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... fjölskyldan.
LÁNADEILD
ÞAÐ ER ALLT GOTT
Í VERÖLDINNI
SKO MINNI
VERÖLD
ÞÉR ER EKKI
BOÐIÐ
KÆRASTINN MINN HÆTTI
MEÐ MÉR Í DAG! HANN
SAGÐIST ÞURFA MEIRA RÝMI!
OG KOM ÞAÐ ÞÉR Á
ÓVART?
NEI, Í RAUN EKKI.
HANN ER STJÖRNU-
FRÆÐINGUR!
„BÍDDU NÚ HÆGUR – VIÐ SKULUM SJÁ
HVORT ÉG GET FUNDIÐ SKILMÁLA SEM
ÞÚ GETUR LIFAÐ MEÐ.”
Fjölskylda
Sambýliskona Guðmundar er
Helga I. Stefánsdóttir, f. 19.11. 1962,
leikmynda- og búningahöfundur.
Börn Guðmundar og Rakelar Stein-
arsdóttur, f. 4.12.1965, eru 1) Agnes
Guðmundsdóttir, f. 4.8. 1990, mark-
aðs- og innkaupastjóri Icelandic Asia
og formaður Félags kvenna í sjávar-
útvegi, sambýlismaður hennar er Lár-
us Kazmir, f. 26.2.1989, lögreglu-
maður og dóttir þeirra er Aþena
Lárusdóttir, f. 1.10. 2018; 2) Rebekka
Guðmundsdóttir, f. 13.6. 1992, tölv-
unarfræðingur, sambýlismaður henn-
ar er Magnús Óli Magnússon, f.8.5.
1992, handboltamaður og börn þeirra
eru Guðmundur Óli Magnússon, f. 2.6.
2018 og óskírð dóttir, f. 27.7. 2020; 3)
Kristján Guðmundsson, f. 19.8. 1999,
háskólanemi í Bandaríkjunum.
Systkini Guðmundar eru Hjálmar
Þór Kristjánsson, f. 2.7. 1958, fiskverk-
andi á Rifi, og Sigurrós Kristjáns-
dóttir, f. 31.5. 1962, búsett í Reykjavík.
Foreldrar Guðmundar voru hjónin
Kristján Guðmundsson, f. 30.3. 1928, d.
30.12. 2012, skipstjóri og fiskverkandi
á Rifi, og Ragnheiður Hjálmtýsdóttir,
25.11. 1925, d. 27.3. 2016, húsmóðir á
Rifi.
Guðmundur
Kristjánsson
Þuríður Þorsteinsdóttir
húsmóðir, f. í Ytra-
Skógskoti í Miðdölum
Jón Jónsson
bóndi á Saurstöðum
Sigurfljóð Jónsdóttir
húsmóðir á Saurstöðum
Hjálmtýr Jóhannsson
bóndi á Saurstöðum í Haukadal,Dal.
Ragnheiður Hjálmtýsdóttir
húsmóðir á Rifi
Guðrún Torfadóttir
húsmóðir, f. í Neðri-
Hundadal
Jóhann Guðmundsson
bóndi í Miðskógi í Miðdölum
Bæring
Jónsson bóndi á
Saurstöðum
Jón ísleifsson fiskimatsmaður
í Stykkishólmi
Níels Eyjólfsson
skipahönnuður í Rvík
Eggert Jónsson
skipstjóri í Stykkishólmi
Jón Hjálmtýsson
bóndi á
Saurstöðum
Kristrún Ísleifsdóttir húsmóðir
í Stykkishólmi
Kristborg Guðbrandsdóttir
húsmóðir, f. Miklagarði í Saurbæ
Ísleifur Jónsson
bóndi á Tindi í Tungusveit, Strand., síðar
verkstjóri í Stykkishólmi
Halldóra Ísleifsdóttir
húsmóðir í Nesi
Guðmundur Finnsson
bóndi og verkamaður í
Nesi í Stykkishólmi
Helga Sigríður Jónsdóttir
húsmóðir, f. á Fremri-
Brekku í Saurbæ
Finnur Finnsson
bóndi á Hnúki á
Skarðsströnd
Úr frændgarði Guðmundar Kristjánssonar
Kristján Guðmundsson
skipstjóri og fiskverkandi
á Rifi
Gátan er sem endranær eftirGuðmund Arnfinnsson:
Krakki þessi kátur er.
Kerra, sem um veginn fer.
Hér um ræðir heimskan ver.
Heiti þetta maður ber.
Eysteinn Pétursson svarar:
Fjörkálfur er frændi minn.
Fer um veginn kálfurinn.
Kálf má heimskan kalla ver.
Kálfur heitir maður hver?
Dyggur lesandi Vísnahornsins
sendir þessa lausn:
Fjörkálfinn ég þekki þar.
Þrælar kálfinn draga.
Enginn kálfur Kálfur var;
kunn er sú forna saga.
Sjálfur skýrir Guðmundur gát-
una þannig:
Kálfur glaðvær krakki er.
Kálfur tengist bílinn við.
Kálfur harla heimskur ver.
Heitir Kálfur manntetrið.
Þá er limra:
Limrurnar létt er að kveða,
lítt þarf með töngum að streða,
þær yrkja sig sjálfar,
og aular og kálfar
eins og ég sjálfur þeim spreða.
Síðan er ný gáta eftir Guðmund
nr. 42:
Drýpur regn og drúpa strá,
döggvott grasið jörðu á,
tilveran er gegnum grá,
gátan kær er mörgum þá:
Meyju lipra má nú sjá.
Margir sér í hana fá.
Ein er stór og önnur smá.
Út sig teygir hafið á.
Kristján Fjallaskáld orti:
Þótt séu brot til sekta nóg
og syndir margháttaðar,
í himnaríki held ég þó
þeir holi mér einhversstaðar.
Þorlákur Þórarinsson á Ósi
kvað:
Þótt hinn armi, það ég sver,
þiggi varma og fæði
tóbaksjarmur í honum er
eins og harmakvæði.
Gömul vísa í lokin, - sláttuvísa
Kölska:
Grjót er nóg í Gníputótt,
glymur járn á steinum.
Þó túnið sé á Tindum mjótt
tefur það fyrir einum.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Fyrr skal bæsa kálfinum
en uxanum