Morgunblaðið - 22.08.2020, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 22.08.2020, Blaðsíða 40
40 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. ÁGÚST 2020 FÓTBOLTINN Jóhann Ingi Hafþórsson johanningi@mbl.is Breiðablik fór upp í annað sæti Pepsi Max-deildar karla í fótbolta með naumum 1:0-sigri á Gróttu á útivelli í gærkvöld. Breiðablik þurfti sannarlega að hafa fyrir sigrinum, þrátt fyrir að Grótta léki allan seinni hálfleikinn manni færri eftir að Kristófer Melsted sá rautt spjald. Að lokum skoraði Thomas Mikkelsen sigurmarkið úr víti, en hann hafði áður brennt af á víta- punktinum. Blikar hafa oft leikið betur, en þeir taka stigunum þrem- ur fagnandi. „Blikar er væntanlega fegnir að fara með þrjú stig úr leik þar sem þeir þurftu að bíða lengi eftir því að skora og klúðruðu auk þess víta- spyrnu. Óskar Hrafn, þjálfari liðs- ins, var ekki ánægður með frammi- stöðuna og fannst sínir menn vera þungir. Hægt er að taka undir það,“ skrifaði Kristján Jónsson m.a. um leikinn á mbl.is.  Thomas Mikkelsen er marka- hæstur í deildinni á tímabilinu með tíu mörk í tíu leikjum. Óttar Magn- ús Karlsson kemur næstur með níu.  Valtýr Már Michaelsson lék sinn 50. keppnisleik hér á landi en 11 af þeim eru í efstu deild, einn með KR og tíu með Gróttu. Enn og aftur 1:1 Stjarnan gerði þriðja 1:1- jafnteflið í síðustu fjórum leikjum er liðið heimsótti Fylki í Árbæinn. Varnarmaðurinn Ásgeir Eyþórsson jafnaði metin með skalla eftir horn- spyrnu í seinni hálfleik, en Hilmar Árni Halldórsson kom Stjörnunni yfir í seinni hálfleik. Stjarnan á enn leik til góða á topplið Vals, en getur nú aðeins jafnað Valsmenn á stig- um, eftir hikst í síðustu leikjum. Stjarnan hefur misst niður eins marks forskot í síðustu fjórum leikj- um og aðeins unnið einn þeirra. „Stjarnan hefur leikið sjö leiki í röð í öllum keppnum án þess að halda hreinu og mörkin sem Stjörnumenn fá á sig hafa kostað þá stig. Það vantar alvöruframherja til að skora mörkin, en Stjarnan er hvað eftir annað að missa niður naumt eins marks forskot í leikjum, þar sem liðið fær færi til að skora fleiri mörk,“ skrifaði undirritaður m.a. um leikinn á mbl.is.  Hilmar Árni er annar leikmað- urinn til að skora 50 mörk fyrir Stjörnuna í efstu deild karla. Hall- dór Orri Björnsson er markahæst- ur með 58 mörk.  Markvörðurinn Haraldur Björnsson lék sinn 100. leik í efstu deild. Þungir Blikar gerðu nóg gegn tíu Gróttumönnum  Breiðablik vann nauman sigur  Stjarnan missti enn og aftur niður forystu Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Árbær Djair Parfitt-Williams úr Fylki sækir að Stjörnumanninum Heiðari Ægissyni í Árbænum í gærkvöldi. Vítaspyrna Thomas Mikkelsen skorar sigurmark Breiðabliks af vítapunktinum á Seltjarnarnesi í gær.  Pepsi Max-deild karla Grótta – Breiðablik .................................. 0:1 Fylkir – Stjarnan...................................... 1:1 Staðan: Valur 10 7 1 2 22:8 22 Breiðablik 11 6 2 3 24:17 20 Stjarnan 9 5 4 0 17:8 19 KR 9 5 2 2 14:9 17 FH 10 5 2 3 18:16 17 Fylkir 11 5 1 5 17:18 16 Víkingur R. 11 3 5 3 19:18 14 ÍA 10 4 1 5 24:23 13 HK 10 3 2 5 18:23 11 KA 9 1 5 3 6:11 8 Grótta 11 1 3 7 10:22 6 Fjölnir 11 0 4 7 10:26 4 3. deild karla Augnablik – Reynir S............................... 3:1 Ægir – KFG.............................................. 1:1 Staðan: Reynir S. 11 8 2 1 33:17 26 KV 9 6 0 3 25:15 18 Augnablik 10 4 4 2 22:18 16 Tindastóll 9 4 4 1 19:16 16 KFG 10 4 2 4 21:19 14 Ægir 10 4 2 4 15:17 14 Sindri 10 4 2 4 18:24 14 Einherji 10 3 1 6 16:23 10 Vængir Júpiters 9 2 3 4 9:14 9 Höttur/Huginn 9 2 2 5 13:17 8 Álftanes 10 2 2 6 15:20 8 Elliði 9 2 2 5 15:21 8 Lengjudeild kvenna Haukar – Fjölnir ...................................... 1:0 Víkingur R. – Afturelding........................ 0:1 Staðan: Keflavík 8 6 2 0 25:5 20 Tindastóll 8 6 1 1 20:4 19 Haukar 9 5 2 2 14:8 17 Grótta 8 5 2 1 10:5 17 Afturelding 9 3 3 3 11:12 12 ÍA 8 1 5 2 13:12 8 Víkingur R. 9 2 2 5 11:17 8 Augnablik 7 2 2 3 9:15 8 Fjölnir 9 1 1 7 4:20 4 Völsungur 7 0 0 7 3:22 0 2. deild kvenna ÍR – Fram ................................................. 2:2 Evrópudeild UEFA Úrslitaleikur: Inter Mílanó – Sevilla .............................. 2:3 Katar Al-Arabi – Qatar SC ................................ 0:0  Aron Einar Gunnarsson lék allan leikinn með Al-Arabi. Heimir Hallgrímsson þjálfar liðið. Belgía B-deild: Deinze Union – St. Gilloise ..................... 0:2  Aron Sigurðarson lék fyrstu 57 mínút- urnar hjá St. Gilloise. Úkraína Shakhtar Donetsk – Kolos Kovalivka... 3:1  Árni Vilhjálmsson var ekki í leikmanna- hópi Kolos Kovalivka. Meistaradeild Evrópu kvenna 8-liða úrslit: Glasgow City – Wolfsburg....................... 1:9  Wolfsburg áfram í undanúrslit. Atlético Madríd – Barcelona ................... 0:1  Barcelona áfram í undanúrslit. NBA-deildin Úrslitakeppni, 1. umferð: Milwaukee – Orlando ......................... 111:96  Staðan er 1:1. Portland – L.A. Lakers...................... 111:88  Staðan er 1:1 Brooklyn – Toronto ............................ 92:117  Staðan er 3:0 fyrir Toronto. Utah – Denver .................................... 124:87  Staðan er 2:1 fyrir Utah.   KNATTSPYRNA Pepsi Max-deild karla: Greifavöllurinn: KA – ÍA ........................L14 Kaplakriki: FH – HK ..............................L14 Pepsi Max-deild kvenna: Hásteinsvöllur: ÍBV – Þór/KA ...............S16 Lengjudeild karla: Fjarðabyggðarh.: Leiknir F.– FramL13:30 Grenivík: Magni – ÍBV............................L14 Grindavík: Grindavík – Þór ....................L14 Varmá: Afturelding – Keflavík...............L16 Olísvöllurinn: Vestri – Víkingur Ó .........S14 Domusnovav: Leiknir R. – Þróttur R. ...S16 Lengjudeild kvenna: Vivaldivöllurinn: Grótta – ÍA .................L13 Húsavík: Völsungur – Augnablik...........L16 FRJÁLSÍÞRÓTTIR Meistaramót Íslands í fjölþrautum og öld- unga fer fram um helgina í Kaplakrika, Hafnarfirði. Áhorfendur eru ekki leyfðir frekar en í knattspyrnunni. Í KVÖLD! Spænska liðið Sevilla varð í gær- kvöld Evrópudeildarmeistari í fót- bolta eftir 3:2-sigur á Inter Mílanó frá Ítalíu í úrslitaleik í Köln. Er sig- urinn sá sjötti hjá Sevilla í keppn- inni frá árinu 2006. Inter byrjaði með látum og komst yfir strax á 5. mínútu með marki Romelu Lukaku úr vítaspyrnu, en eftir það var komið að Luuk de Jong. Hollendingurinn jafnaði á 12. mínútu og á 33. mínútu var hann búinn að koma Sevilla í 2:1. Diego Godín jafnaði fyrir Inter á 35. mín- útu og var staðan eftir stór- skemmtilegan fyrri hálfleik 2:2. Seinni hálfleikurinn var nokkuð ró- legri og dugði Sevilla eitt mark til að tryggja sér enn einn titilinn, en Lukaku varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark á 74. mínútu og þar við sat. Sevilla hefur verið á gríðarlegri siglingu á árinu 2020 og var sig- urinn sá níundi í síðustu tíu leikjum í öllum keppnum. Spænska liðið vann keppnina síðast 2016, en það var þriðja árið í röð sem Sevilla fagnaði sigri í Evrópudeildinni, næststerkustu keppni álfunnar. Fögnuðu sigri í Evrópu- deildinni í sjötta sinn AFP Meistarar Sevilla fagnar enn einum Evrópudeildarbikarnum í gær. FYLKIR – STJARNAN 1:1 0:1 Hilmar Árni Halldórsson 37. 1:1 Ásgeir Eyþórsson 77. M Ásgeir Eyþórsson (Fylki) Daði Ólafsson (Fylki) Ragnar Bragi Sveinsson (Fylki) Djair Parfitt-Williams (Fylki) Ólafur Ingi Skúlason (Fylki) Brynjar Gauti Guðjónsson (Stjörnunni) Halldór Orri Björnsson (Stjörnunni) Hilmar Árni Halldórsson (Stjörnunni) Eyjólfur Héðinsson (Stjörnunni) Heiðar Ægisson (Stjörnunni) Dómari: Pétur Guðmundsson – 7. Áhorfendur: Ekki heimilað. GRÓTTA – BREIÐABLIK 0:1 0:1 Thomas Mikkelsen (víti) 73. MM Hákon Rafn Valdimarsson (Gróttu) M Ástbjörn Þórðarson (Gróttu) Pétur Theodór Árnason (Gróttu) Elfar Freyr Helgason (Breiðabliki) Stefán Ingi Sigurðarson (Breiðablik) Höskuldur Gunnlaugsson (Breiðabliki) Rautt spjald: Kristófer Melsted (Gróttu) 36. Dómari: Ívar Orri Kristjánsson – 5. Áhorfendur: Ekki heimilað.  Liðsuppstillingar, gul spjöld, viðtöl og greinar um leikina – sjá mbl.is/sport/ fotbolti.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.