Morgunblaðið - 26.08.2020, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. ÁGÚST 2020
Óvarlegt er að hafa talningu ámótmælafundum sem ígildi
lýðræðislegrar kröfu. Iðulega
voru göngur í Lundúnum með og
á móti Brexit sem fullyrt var að
milljón manns
hefðu sótt.
Lögreglan hérer hætt að
gefa upp ætlaðan
fjölda á svona
fundum eftir að
liggja undir þrýstingi mótshaldara
um hækkað mat. Sumir mótshald-
arar töldu fólk sem kom á fund og
það sem fór, enda oft hug-
sjónafólk um jafnrétti á ferð.
Sagt er að 150 þúsund hafi mót-mælt forseta Hvíta-Rússlands
og niðurstöðum kosninga, þar sem
svindlað hafi verið. Brussel skrif-
ar undir það án nokkurrar athug-
unar. Ekkert handfast hefur verið
fært fram til sönnunar. En þar
sem sama einræðisstjórn hefur
setið í 26 ár og þó boðið reglulega
upp á kosningar í því andrúmi má
gefa sér að þar lúti kosningar
ekki endilega lýðræðislegum leik-
reglum fremur en annað.
Vissulega er 150 þúsund sálnafundur myndarlegur en mið-
að við íbúafjölda samsvarar það
að 5.000 Íslendingar mótmæli og
flest alvörumótmæli skila þannig
hópi hér og það þótt ekki sé talið
tvisvar. En slíkir koma ekki í stað
kosninga.
Allir muna ársbyrjun 2009 þeg-ar Samfylking reyndist
ístöðulausasti stjórnarflokkur til
þess tíma og líkastur Bjartri
framtíð 2017. Kratar hrukku af
lömunum er fáir hávaðaseggir
réðust inn á flokksfund í Leik-
húskjallaranum. Samfylking
hrundi ofan í smáflokk í fram-
haldinu.
Hávaði og köll eru
ekki kosningar
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
„Þetta datt inn á sunnudag,“ segir Guðbjartur
Ellert Jónsson, framkvæmdastjóri Herjólfs, eftir
að sá áfangi náðist að skipið gengur eingöngu
fyrir rafmagni. Í skipinu eru 528 rafhlöður en
skipta þurfi um skinnur í þeim, sem unnið hefur
verið að undanfarnar vikur. Guðbjartur segir að
einstaka rafhlöðustæður séu fjarlægðar meðan
unnið sé að viðgerðum, en að það komi ekki í veg
fyrir að skipið geti gengið fyrir rafmagni einu
saman og því ferli muni ljúka fljótlega. Hleðslu-
stöðvar eru bæði í Vestmannaeyjum og í Land-
eyjahöfn og segir Guðbjartur að svo lengi sem
skipið sigli þar á milli dugi rafhleðslan ein og
sér. „Þetta sparar töluverðan rekstrarkostnað,“
segir hann og bætir við að auk þess að vera um-
hverfisvænna þá sé hljóðvistin um borð mun
betri. Farþegar eru nú ekki truflaðir af hljóði frá
aðalvélum sem geri ferðalagið jafnvel enn þægi-
legra fyrir bæði gesti og áhöfn.
Skipið er að auki búið þremur vélum sem með
rafmagni er hægt að tengja á ýmsan máta.
Þannig er tryggt að sigla megi lengri ferðir, t.d.
í Þorlákshöfn sé þess þörf.
Herjólfur að fullu rafknúinn
Umhverfisvænna og
sparneytnara skip en áður
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Herjólfur Skipið siglir nær hljóðlaust um hafið.
Eiríkur Brynjólfsson
kennslustjóri lést sl.
sunnudag, 69 ára að
aldri.
Eiríkur fæddist 19.
maí 1951, sonur
hjónanna Brynjólfs
Eiríks Ingólfssonar
lögfræðings og Helgu
Sigurðardóttur. Hann
lauk kennaraprófi frá
Kennaraskóla Íslands
1972, stúdentsprófi frá
sama skóla 1973 og
prófi í uppeldis- og
kennslufræðum frá Háskóla Íslands
1983. Þá lauk hann BA-prófi í ís-
lensku og almennum málvísindum
frá HÍ 1983 og stundaði MA-nám í
íslenskum bókmenntum 1986 til
1987. Eiríkur stundaði einnig nám í
rússnesku og spænsku og sótti ýmis
námskeið um íslenskukennslu, sér-
kennslu og tölvufræði.
Eiríkur kenndi íslensku við Ár-
múlaskóla í Reykjavík 1974 til 1978
og Fjölbrautaskólann við Ármúla
1979 til 1990. Hann var kennari og
deildarstjóri sérdeildar unglinga í
Austurbæjarskóla 1994-2000 og
deildarstjóri sérkennslu og umsjón-
armaður námsvers unglinga í
Austurbæjarskóla 2000-2006. Þá
var hann sérkennari og íslensku-
kennari við Fjölbrautaskólann við
Ármúla frá hausti 2007 og kennslu-
stjóri almennrar
námsbrautar til
dauðadags. Hann var
um tíma prófarkales-
ari á DV og skrifaði
pistla í blaðið um ís-
lenskt mál. Þá var
hann þýðandi á Stöð 2
og rak ásamt öðrum
fyrirtækið Orðhaga sf.
um árabil.
Eiríkur var m.a. rit-
stjóri Kennarablaðsins
fyrir Hið íslenska
kennarafélag 1988 til
2000 og sat í stjórn þess félags um
tíma. Hann var ritstjóri handbókar
Hins íslenska kennarafélags 1992-
2000 og ritstjóri Skímu, málgagns
Samtaka móðurmálskennara, 1990-
1992. Hann var foringi Hins ís-
lenska glæpafélags frá 2007 en það
er félag rithöfunda og áhugamanna
um glæpasögur.
Eiríkur sendi frá sér smásagna-
söfn og ljóðabækur og smásögur og
ljóð eftir hann birtust í ýmsum
safnritum og tímaritum.
Fyrri eiginkona Eiríks er Ingi-
björg Einarsdóttir. Þau skildu.
Börn þeirra eru Matthildur, Einar
og Guðrún. Síðari eiginkona Eiríks
er Steinunn H. Hafstað, fjarnáms-
stjóri við Fjölbrautaskólann við Ár-
múla. Sonur þeirra er Jón Haukur
Hafstað.
Andlát
Eiríkur Brynjólfsson