Morgunblaðið - 26.08.2020, Page 11

Morgunblaðið - 26.08.2020, Page 11
FRÉTTIR 11Erlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. ÁGÚST 2020 Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170 Verið velkomin HAUSTVÖRUR Glæsilegar komnar Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Dmitrí Peskov, talsmaður Vladimírs Pútín Rússlandsforseta, sagði í gær að engin ástæða væri til þess að hefja sakamálarannsókn vegna máls Alexeis Navalní að svo komnu máli, því að ekki hefði verið gengið úr skugga um það að eitrað hafi verið fyrir hann. Sagði Peskov að læknarnir á þýska Charite-sjúkrahúsinu í Berlín hefðu hrapað að ályktunum, en þeir lýstu því yfir í fyrradag að rannsókn- ir þeirra gæfu til kynna að eitrað hefði verið fyrir Navalní, án þess þó að borin hefðu verið nákvæm kennsl á hvaða eitur var notað. Bætti Peskov við að málið yrði ekki rannsakað af hálfu rússneskra stjórnvalda fyrr en það lægi fyrir hvaða efni hefði valdið því að Navalní féll í dá í síðustu viku. „Læknisfræðileg greining okkar lækna og þeirra þýsku er hin eina og sama, en niðurstöðurnar eru aðrar. Við skiljum ekki hvers vegna þýsku kollegarnir eru að flýta sér svona mikið,“sagði Peskov. Viðurkenndi hann að eitrun væri ein möguleg útskýring á ástandi Na- valnís, en bætti við að ýmsar aðrar útskýringar gætu legið þar að baki. Í niðurstöðum læknanna við Cha- rite-sjúkrahúsið kom fram að þeir teldu að Navalní hefði orðið fyrir eitrun af efni sem hindrar eðlilega starfsemi miðtaugakerfisins. Slík efni finnast meðal annars í efnavopn- um, sem og í ýmsum lyfjum og skor- dýraeitri. Kallað eftir rannsókn Helstu stuðningsmenn Navalnís voru ósáttir við svör Peskovs, en þeir halda því fram að rússnesk stjórn- völd standi á bak við eitrunina. „Það var augljóst að glæpurinn yrði ekki rannsakaður almennilega og hinn seki fundinn, þó að við vitum vel hver það er,“ sagði talskona Navalnís, Kíra Yarmush, á samskiptamiðlinum Twitter. Sagði hún jafnframt að svör Peskovs hefðu reitt sig til reiði. Nokkur vestræn ríki kölluðu eftir því í gær að Rússar myndu rannsaka málið í þaula. Hvatti Evrópusam- bandið til þess í fyrradag að „óháð og gagnsæ rannsókn“ á atvikinu færi fram, og Angela Merkel Þýskalands- kanslari sagði að þeir sem bæru ábyrgðina ættu að svara til saka. Franska utanríkisráðuneytið lýsti í gær yfir áhyggjum sínum vegna þess „glæps“ sem hefði verið fram- inn gegn mikilvægum þátttakanda í stjórnmálalífi Rússlands og hvatti til þess að málið yrði rannsakað sem fyrst. John Sullivan, sendiherra Banda- ríkjanna í Rússlandi, tók sömuleiðis undir þá hvatningu í gær, en hann sagði að rússnesk stjórnvöld ættu að hefja gagnsæja og nákvæma rann- sókn á málinu hið fyrsta og sækja þá sem hefðu eitrað fyrir Navalní til saka. AFP Eitrun Navalní liggur enn í dái á Charite-sjúkrahúsinu í Berlín. Hafna ótímabærum ásökunum  Talsmaður Pútíns segir þýsku læknana hafa flýtt sér um of við greiningu Navalnís  Munu ekki hefja rannsókn að svo stöddu  Frakkar og Bandaríkjamenn kalla eftir óháðri og gagnsærri rannsókn Spænsk stjórnvöld tilkynntu í gær að þau hygðust leita til herafla lands- ins til þess að hjálpa til við sóttvarna- aðgerðir gegn kórónuveirunni, en faraldurinn hefur verið í miklum uppgangi þar undanfarna daga, líkt og í nokkrum öðrum ríkjum Evrópu og Asíu. Í tilkynningu Spánverja kom fram, að um 2.000 hermenn yrðu kallaðir til, og er þeim ætlað að hjálpa til við smitrakningu. „Við get- um ekki látið faraldurinn taka aftur stjórn á lífi okkar […] við verðum að taka stjórnina og stöðva þessa seinni kúrfu,“ sagði Pedro Sanchez, for- sætisráðherra Spánar, þegar hann tilkynnti ákvörðunina. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin WHO sagði hins vegar í gær, að merki væru um að farið væri að hægjast aftur á nýjum tilfellum kór- ónuveirunnar eftir smitbylgju síð- ustu vikna. Þannig greindi stofnunin frá því að rúmlega 1,7 milljónir nýrra tilfella hefðu greinst í síðustu viku og um 39.000 dauðsföll hefðu bæst við á sama tíma. Hvort tveggja var lækk- un frá vikunni þar á undan. Fækkaði tilfellum um 5% á milli vikna og dauðsföllum um 12% á sama tímabili. Að minnsta kosti 23 milljónir manna hafa nú smitast af kórónu- veirunni og rúmlega 814.000 manns látist af völdum hennar um allan heim. Þá greindu hollenskir fjölmiðlar frá því að læknar í Belgíu og Hol- landi teldu sig hafa fundið tvö ný til- felli, þar sem viðkomandi sjúklingur hefði smitast af kórónuveirunni í annað sinn, en vísindamenn í Hong Kong töldu sig geta staðfest fyrsta tilfellið í fyrradag. Sjúklingurinn í Belgíu er einungis sagður með væg einkenni, en sérfræðingar segja flest benda til þess að sjaldgæft sé að fólk geti smitast af veirunni á nýjan leik. Kalla til herinn gegn veirunni  Tveir í viðbót sagðir hafa smitast á ný AFP Skimun Spánverji í Baskalandi fer í skimun fyrir kórónuveirunni. Jacob Blake, sem skotinn var sjö sinnum í bakið af lögreglunni í Ke- nosha í Wiscons- in-ríki, er mögu- lega lamaður fyrir lífstíð. Gefa læknar hans hon- um helmings- líkur á að geta gengið á ný. Þetta kom fram á blaðamannafundi fjölskyldu hans, en óeirðir hafa ver- ið í borginni undanfarnar tvær næt- ur vegna atviksins. Faðir Blake spurði í gær hvers vegna lögreglan hefði talið réttlæt- anlegt að skjóta son hans sjö sinn- um, en lögregluþjónarnir sem voru viðriðnir atvikið hafa verið settir í launalaust leyfi meðan rannsókn fer fram. BANDARÍKIN Blake mögulega lamaður fyrir lífstíð Mikil reiði ríkir vegna málsins. Stjórnvöld í Nígeríu og Alþjóðaheil- brigðismálastofnunin WHO lýstu því yfir í gær að mænuveiki í sinni nátt- úrulegu mynd herjaði ekki lengur á landið, en fjögur ár eru frá því síð- asta tilfellið greindist. Þar með eru öll ríki Afríku sögð vera laus við veir- una, sem herjar einkum á börn undir fimm ára aldri. Áfanginn þykir merkilegur ekki síst fyrir þær sakir að árið 2012 var rúmlega helmingur allra tilfella á heimsvísu í Nígeríu, og mátti telja fórnarlömb sjúkdómsins í þús- undum. Árangurinn er einnig rakinn til sérstakrar bólusetningarherferðar, sem Nelson Mandela hleypti af stokkunum árið 1996, en það ár löm- uðust 75.000 börn í ríkjum Afríku. Nú er hins vegar áætlað að um 95% allra íbúa álfunnar séu bólusett gegn mænuveiki. Þá áætlar WHO að her- ferðin hafi forðað 1,8 milljónum barna frá því að fá sjúkdóminn og bjargað um 180.000 mannslífum. Sjúkdómurinn fyrirfinnst nú bara í Afganistan og Pakistan. Engin lækning er til við honum, en árið 1952 þróaði Jonas Salk bóluefni gegn mænuveiki, en bólusetningin varir að jafnaði alla ævi. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin hefur varað við því að mænuveiki gæti aftur blossað upp, jafnvel í þeim ríkjum þar sem henni hefur verið út- rýmt. Í Angóla tókst til dæmis að út- rýma sjúkdómnum árið 2001, en ut- anaðkomandi tilfelli urðu til þess að hann blossaði upp á ný árið 2005. Leggur stofnunin því áherslu á að ríki hafi áfram allan vara á gagnvart mænuveikinni þar til búið verður að útrýma henni í öllum ríkjum. Mænuveiki útrýmt frá ríkjum Afríku  WHO segir mikilvægt að vera áfram á varðbergi fyrir mænuveikiveirunni AFP Bólusetning Mænuveiki hefur nú verið útrýmt í öllum ríkjum Afríku.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.