Morgunblaðið - 02.09.2020, Síða 4

Morgunblaðið - 02.09.2020, Síða 4
Lilja Hrund Ava Lúðvíksdóttir lilja@mbl.is Gerðardómur úrskurðaði í gær að ríkið skuli leggja Landspítalanum til aukna fjármuni sem skuli ráðstafað til að bæta kjör hjúkrunarfræðinga á grundvelli stofnanasamnings, alls 900 milljónir króna á ári frá 1. september 2020 til loka gildistíma kjarasamn- ings aðila. Þá skal ríkið á sama hátt leggja öðrum heilbrigðisstofnunum sínum sem hafa almenna hjúkrunar- fræðinga í þjónustu sinni til aukna fjármuni sem skal ráðstafað á grund- velli stofnanasamninga, alls 200 millj- ónir króna frá 1. september 2020 til loka gildistíma kjarasamnings aðila. Guðbjörg Pálsdóttir, formaður Fé- lags íslenskra hjúkrunarfræðinga, sagðist í samtali við Morgunblaðið í gær fagna því að úrskurður gerðar- dóms lægi fyrir eftir eins og hálfs árs kjaraviðræður. „Þetta er 1,1 milljarð- ur sem er reiknað með sem viðbót- arframlag til heilbrigðisstofnana en frekari framkvæmd er ekki í gerð- ardómnum svo nú þurfum við að setj- ast niður með heilbrigðisstofnunum og þetta framlag verður notað til að endurnýja stofnanasamninga. Það verður þá fyrst sem við sjáum hvern- ig þetta kemur út fyrir hjúkrunar- fræðinga, hverju í rauninni þetta mun skila,“ sagði Guðbjörg. Þá segir hún enn fremur að endurnýjun stofnana- samninga þurfi að ljúka fyrir næstu áramót. „Vanmetin kvennastétt“ Ágreiningur samningsaðila snerist um hvort laun hjúkrunarfræðinga hjá stofnunum ríkisins séu í samræmi við ábyrgð, álag, menntun og inntak starfa þeirra samanborið við aðrar háskólamenntaðar stéttir hjá ríkinu. Í úrskurði gerðardóms segir meðal annars að það séu að mati gerðar- dóms „vísbendingar um að hjúkrun- arfræðingar séu vanmetin kvenna- stétt hvað varðar laun með tilliti til ábyrgðar. Sérstaklega á þetta við þegar horft er til þess að almennir hjúkrunarfræðingar eru gjarnan í hlutverki teymisstjóra og samhæfing- araðila milli annarra fagstétta. Þá eru þeir ráðgefandi í framlínu og fyrsta snerting skjólstæðings í bráðatilfell- um.“ Guðbjörg segir það ánægjulegt að fá viðurkenningu á þessu, en á sama tíma sé það sorglegt að vera í þeirri stöðu yfirhöfuð. „Þetta er alveg rétt eins og við höfum alltaf haldið fram. Að sjálfsögðu var ég ánægð að sjá þetta, þó að það sé náttúrulega sorg- leg niðurstaða, að við skulum standa í þeim sporum árið 2020, á ári hjúkr- unarfræðinga. Það er náttúrulega mjög sérstakt. En það er jákvætt að fá þessa viðurkenningu,“ segir hún. Gerðardóm skipuðu þau Ástráður Haraldsson, Guðbjörg Andrea Jóns- dóttir og Gylfi Ólafsson. Gerðardóm- urinn var skipaður í samræmi við miðlunartillögu ríkissáttasemjara sem var samþykkt af samningsaðilum 27. júní að lokinni atkvæðagreiðslu meðal hjúkrunarfræðinga. Samnings- aðilar náðu samkomulagi um öll meg- inatriði kjarasamnings utan afmark- aðra atriða launaliðs, þar á meðal um breytt vinnufyrirkomulag í dagvinnu og vaktavinnu. 1,1 milljarðs viðbótarframlag á ári Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Kjaramál Hjúkrunarfræðingar samþykktu miðlunartillöguna 27. júní.  Gerðardómur hefur komist að niðurstöðu í kjaradeilum Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og fjármála- og efnahagsráðherra fyrir hönd ríkissjóðs  Aukið fjármagn á að bæta kjör stéttarinnar 4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. SEPTEMBER 2020 Fullkomið fatbrauð f yrir öll tækifæri Morgunblaðið/Árni Sæberg Kynnast samnemendum með hæfilegu millibili Þessa dagana er skólastarf í óðaönn að hefjast á öllum skólastigum, þrátt fyrir kórónuveiru- faraldurinn. Þessir fyrsta árs nemar í félags- ráðgjöf við Háskóla Íslands nýttu tækifærið í gær til þess að kynnast samnemendum sínum, en margir kynnast einmitt á háskólaárum sínum traustum vinum fyrir lífstíð. Ósagt skal látið hvort slík vinabönd hafi myndast í gær, en tveggja metra reglan var alltént í hávegum höfð. Ráðherra málefna sveitarstjórna telur koma til greina að styðja sér- staklega þau sveitarfélög sem eigi í erfiðleikum með að sinna lögbundn- um verkefnum í þágu fólks í við- kvæmri stöðu, eins og til dæmis málefnum fatlaðs fólks og ef til vill einnig vegna vax- andi útgjalda vegna fjárhags- aðstoðar. Segir Sigurður Ingi Jó- hannsson að ver- ið sé að fara yfir málið, út frá skýrslu starfshóps um áhrif kórónuveirufaraldursins á sveitarfélög sem kynnt var fyrir helgi. „Skýrslan afhjúpar að staða sveitarfélaganna er mjög misjöfn,“ segir Sigurður Ingi. Hann bendir á að af þeim rúmlega 30 milljörðum, sem starfshópurinn metur áhrif kórónuveirunnar til, geti sveit- arfélögin fjármagnað um þriðjung með eigin fé og síðan tekið lán til að takast á við vandann. Staða sumra sé hins vegar þannig að þau geti ekki aukið skuldir til að halda uppi þeirri þjónustu sem allir séu sammála um að nauðsynlegt sé að halda uppi. Sérfræðingar ráðuneytisins eru að skoða hvaða sveitarfélög þurfa stuðning til lögboðinna verkefna og með hvaða hætti ríkið geti hjálpað til. Þegar það liggur fyrir verður að sögn ráðherra tekið upp samtal við samtök sveitarfélaganna. helgi@mbl.is Gætu styrkt einstök verkefni  Geta sveitarfélaga misjöfn Morgunblaðið/Ómar Borgarar Til greina kemur að styðja verkefni viðkvæmra hópa. Sigurður Ingi Jóhannsson Fimm ný innanlandssmit greindust á sýkla- og veirufræðideild Land- spítalans og hjá Íslenskri erfða- greiningu í fyrradag. Allir fimm voru í sóttkví við greiningu. Þá greindust fjögur smit við landamæraskimun. Tveir voru með mótefni og beðið var eftir niðurstöðu úr mótefnamælingu hjá hinum. Svandís Svavarsdóttir heilbrigðis- ráðherra skipaði í gær vinnuhóp til að skoða hvort stjórnvöld geti viður- kennt erlend vottorð um að viðkom- andi hafi fengið kórónuveiruna, og þannig fengið undanþágu frá kröfum um skimun á landamærum. Í tilkynningu heilbrigðisráðuneyt- isins segir að jafnframt þurfi að hefja skipulagða vinnu til að kanna gagnkvæma viðurkenningu vottorða milli landa. Fimm ný smit greind- ust í sóttkví

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.