Morgunblaðið - 03.09.2020, Page 28

Morgunblaðið - 03.09.2020, Page 28
28 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. SEPTEMBER 2020 VIÐTAL Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Ég var í sagnfræðinámi við Háskóla Íslands. Hugurinn leitaði til æsku- stöðvanna á Tálknafirði þegar ég var að leita að efni fyrir ritgerð í ein- hverjum áfanganum,“ segir Pétur Bjarnason, fyrrverandi fræðslustjóri Vestfjarða, um til- drög þess að hann fór að kynna sér athafnasögu Suð- ureyrar við Tálknafjörð. Hann ólst upp á Sveinseyri, norð- an Tálknafjarðar, og þaðan blasa rústir hvalveiði- stöðvarinnar á Suðureyri við augum. Við vinnu sína við ritgerðina komst Pétur í samband við Bolla A. Ólafs- son, barnabarn og uppeldisson Pét- urs A. Ólafssonar, konsúls á Patreks- firði, sem gerði út skip til selveiða í Grænlandsísnum og starfrækti hval- veiðistöðina á Suðureyri. Hjá Bolla fékk hann aðgang að ýmsum skjölum úr dánarbúi afa hans. Pétur skilaði ritgerð sinni og birti síðar í Ársriti Sögufélags Ísfirðinga. Nú hefur Pétur gert efninu ítarlegri skil og gefið út á bók. Saga selveiða Íslendinga Norðmenn byggðu hvalveiðistöð á Suðureyri og starfræktu á árunum 1893 til 1911. Pétur A. Ólafsson hóf aftur rekstur hvalstöðvar á árinu 1935 og rak hana í fimm ár. Áður hafði hann gert þaðan út selveiði- skipið Kóp til veiða í Grænlands- ísnum. Pétur gerir selveiðisögunni skil og öðrum selveiðitilraunum Ís- lendinga enda segir hann að það hafi ekki verið gert áður með heillegum hætti. Í bókinni er ágrip af sögu þéttbýlis- ins á Tálknafirði og býlisins Suður- eyrar sem í nokkra áratugi varð vett- vangur mikillar athafnasemi. Hvalveiðarnar lögðust af í upphafi seinni heimsstyrjaldarinnar því markaðir fyrir afurðirnar lokuðust og hvalbátarnir komust ekki frá Noregi. Þá hefur Pétur heimildir fyrir því að óeining hafi verið komin í hluthafa- hópinn sem endaði með því að Pétur sagði sig úr stjórn. Suðureyri lagðist síðan í eyði upp úr 1960. Slæmur vegur er út hlíðina við sunnanverðan Tálknafjörð. Þangað leggja þó margir ferðamenn leið sína til að skoða rústir stöðvarinnar. Þar er hlaðinn skorsteinn mest áberandi, byggður af Norðmönnum við upphaf hvalveiða. Einnig sjást múrsteins- hleðslur annarra mannvirkja. Þá eru á Suðureyri sumarbústaðir afkom- enda síðustu ábúenda jarðarinnar. Hálfrar aldar athafnasaga  Pétur Bjarnason gefur út bók um sögu Suðureyrar við Tálknafjörð  Á býlinu voru starfræktar hvalveiðistöðvar og selveiðistöð  Hann hafði hlaðna skorsteininn fyrir augum í æsku Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Suðureyri Þótt tímans tönn hafi unnið á mannvirkjum gömlu hvalstöðvarinnar á Suðureyri við Tálknafjörð má þar enn sjá stórbrotnar minjar um forna atvinnuhætti. Þar ber hlaðinn skorstein Katlahússins hæst. Úr myndasafni Péturs A. Ólafssonar Athafnasemi Haug I er við bryggju með tvo hvali og starfsemin í hvalveiðistöðinni á Suðureyri í fullum gangi. Vegna hvalveiðistöðvarinnar og útgerðar frá Suðureyri var meiri athafnasemi og atvinna vestan Tálknafjarðar en norðan yfir sumartímann. Því má velta því fyrir sér hvers vegna þéttbýlið byggðist upp norðan fjarðarins. „Þetta var talið erfitt svæði, lítil og hömrum gyrt eyri. Til þess að komast þangað þurfti að fara um grýtta hlíð og vegur var ekki lagður þar um fyrr en eftir miðja síðustu öld,“ segir Pétur. Þegar frystihús var byggt árið 1946 var því valinn staður í Tunguþorpi og byggðist þorpið í kringum það. Telur Pétur að það hafi haft áhrif að byggðin innan til í firðinum var fjölmennari og því auðveldara að manna vinnslu þar. Þar hafi og verið komið kaupfélag, skóli, sam- komuhús og sundlaug. Síðast en ekki síst sé lífhöfn í öllum veðrum í Hópinu. Þorpið norð- an fjarðar TÁLKNAFJÖRÐUR Pétur Bjarnason Bláu húsin Faxafeni ◊ S. 588 4499 ◊ Opið mán.-fös. 11-18, lau. 11-16 ◊ www.mostc.is Vefverslun komin í loftið! mostc.is Gerið verðsamanburð FULL BÚÐ AF NÝJUM OG FALLEGUM VÖRUM 24.990 kr. Úlpur Stærðir 38-56 Orsök strands Lágeyjar ÞH 265 í Þistilfirði í lok nóvember í fyrra er rakin til þess að stjórnandi bátsins var sofandi og hafði ekki tryggt örugga vakt meðan báturinn var lát- inn reka. Þetta er meðal þess sem fram kemur í áliti siglingasviðs rann- sóknanefndar samgönguslysa, sem lauk afgreiðslu málsins síðastliðinn föstudag. Mannbjörg varð, en fjórir skipverjar voru um borð. Lágey fór frá Raufarhöfn milli kl. 20 og 21 hinn 28. nóvember til veiða á Þistilfirði og eftir að hafa lagt línuna var látið reka. Báturinn var á reki frá því upp úr miðnætti til um klukkan 4:30 þegar hann strandaði norður af Krossavík. Óskað var eftir aðstoð á vaktstöð siglinga og voru björgunarsveitir kallaðar út ásamt þyrlu Landhelg- isgæslunnar. Björgunarskipin Gunn- björg frá Raufarhöfn og Jón Kr. frá Þórshöfn voru komin á strandstað um kl. 06:30 ásamt fiskibátnum Degi ÞH 110. Þyrlan kom á staðinn um sjöleytið um morguninn og bjargaði áhöfninni. Björgunaraðilum tókst að ná Lágey á flot um kl. 9:30 og dró Gunnbjörg bát- inn til Raufarhafnar. Í skýrslu rannsóknanefndar eru málsatvik rakin og þar kemur fram að skipstjóri kvaðst hafa farið að sofa á eftir öðrum skipverjum upp úr mið- nætti eftir að hafa talið bátinn örugg- an. Venja væri að láta reka ef veð- urspá og staðsetning virtust í lagi. Í skýrslunni kemur fram sam- kvæmt upplýsingum frá útgerð báts- ins að sú vinnuregla gilti um borð í smærri bátum þeirra að maður væri alltaf á vakt í stýrishúsi og viðvör- unarbúnaður siglingatækja notaður. Þessari vinnureglu hefði ekki verið fylgt í þessu tilviki. Ekki örugg vakt á meðan látið var reka  Rannsóknanefnd skilar lokaskýrslu um strand Lágeyjar Ljósmynd/Landhelgisgæslan Strand Mynd tekin úr þyrlu Gæsl- unnar sem kom á vettvang.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.