Morgunblaðið - 03.09.2020, Blaðsíða 54
54 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. SEPTEMBER 2020
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Mál skipast svo í þína þágu að
það veldur þér ánægjulegri undrun. Aðrir
eiga erfitt með að átta sig fyllilega á þér.
20. apríl - 20. maí
Naut Skemmtu þér eins vel og þú getur.
Haltu fólki í þeirri fjarlægð sem þú vilt
því engan varðar um þína einkahagi.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú ert of fljótur á þér að vilja
leiða ákveðið mál til lykta strax. Ekki
eyða tíma í óspennandi hluti sem ekki
fela í sér neina möguleika.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Langþráðar aðstæður hafa loks-
ins runnið upp. Farðu á námskeið, lærðu
eitthvað nýtt og svalaðu forvitninni.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Það lífgar tvímælalaust upp á til-
veruna að eiga stund með góðum vinum.
Sestu niður með blað og penna og sjáðu
fyrir þér næstu mánuðina.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Það hefnir sín alltaf að sópa
vandamálunum undir teppið. Láttu hrak-
spár annarra lönd og leið og treystu eðl-
isávísun þinni.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú hefur látið undan þrýstingi í nafni
vinskapar. Bregstu vel við því þarna er
komið kjörið tækifæri til að sanna sig.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Sýndu öðrum tillitssemi og
umburðarlyndi og þú munt fá þá fram-
komu endurgoldna þúsundfalt. Reyndu
að dæma aðra með sama umburðarlynd-
inu og þú vilt verða dæmdur með.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú veist ekki hvernig þú átt
að snúa þér í vinnunni og félagslífinu.
Vertu óhræddur við djarfar lausnir.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Skapandi hæfileikar þínir eru
umtalsverðir í dag. Líttu í kringum þig og
sjáðu að margur er verr staddur en þú
svo þú hefur ástæðu til þess að una
glaður við þitt.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Ef þú leggur þig allan fram er
ekki við þig að sakast þótt hlutirnir gangi
ekki upp. Líklegt er að eitthvað komi
upp.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Fólk hefur oft á orði að það sé
hugurinn sem gildir, þegar það gefur
ómerkilegar gjafir. Einbeittu þér að ein-
hverju eins og til dæmis hæfileikum þín-
um og vandamálin gufar hreinlega upp.
er í dag í 1.200 fm glæsilegu hús-
næði.
Í dag eru verslanirnar fimm:
Casa húsgagnaverslun í Skeifunni,
Casa gjafavöruverslun í Kringlunni,
Casa gjafavöruverslun á Glerár-
torgi, Dúka gjafavöruverslun í
Kringlunni og Dúka gjafavöru-
verslun í Smáralind. Tvær vefversl-
anir, www.casa.is og www.duka.is.
Nýlega hefur verið stofnuð deild
innan fyrirtækisins sem mun ein-
beita sér að vörum fyrir byggingar-
iðnaðinn, svo fyrirtækið er í stöð-
ugri þróun. Kynslóðaskipti hafa átt
sér stað í fyrirtækinu, sem er hefð-
bundið fjölskyldufyrirtæki, og hefur
nú Rósant Friðrik, sonur hjónanna,
tekið við framkvæmdastjórn og
daglegum rekstri og Skúli einbeitir
sér að sölunni og nýjungum á mark-
aði.
Áhugamál Skúla tengjast mest
S
kúli Rósantsson fæddist
3. september 1960 og
ólst upp á Faxabraut í
Keflavík, nálægt hafnar-
svæðinu sem í þá daga
var leikvöllur krakkanna í hverfinu
og spiluðu hverfisguttarnir þar fót-
bolta daginn út og inn. Þar hófst
íþróttaferill Skúla, sem fór að æfa
með ÍBK og vann með þeim Ís-
landsmeistaratitil í öðrum flokki
árið 1978. Ári áður hafði Skúli spil-
að sinn fyrsta meistaraflokksleik
með ÍBK og var þar í nokkur tíma-
bil en gekk síðan til liðs við Njarð-
vík. Skúli spilaði með unglinga-
landsliði Íslands á þessum árum,
þar með talið á Evrópumóti ung-
linga 1978 í Póllandi sem hann seg-
ir hafa verið ógleymanlega reynslu.
Eftir landspróf stundaði Skúli nám
í símvirkjun og lauk prófi með
sveinsbréf í rafeindavirkjun. Hann
vann í Fríhöfninni á Keflavík-
urflugvelli í 14 ár þar til hann opn-
aði sína fyrstu húsgagnaverslun í
Keflavík með eiginkonu sinni Guð-
rúnu Láru árið 1995.
„Þessi áhugi á húsgögnum bara
fæddist smám saman og eftir það
varð ekki aftur snúið.“ Skúli segir
að áhuginn hafi alltaf beinst að
gæðavörum og er ítölsk hönnun í
sérstöku uppáhaldi. „Segja má að
við séum með alla stærstu og vönd-
uðustu framleiðendur Ítalíu í bók-
um okkar,“ segir Skúli og bætir við
að hann hafi ferðast mikið til Ítalíu
og í raun megi segja að hans uppá-
haldssvæði í heiminum séu Ítalía
og Ísland. Árið 1998 opnuðu hjónin
Kósý húsgögn í Síðumúla í Reykja-
vík en þurftu fljótt að stækka við
sig og færðu sig í annað húsnæði í
sömu götu. „Það var mikill upp-
gangur í þjóðfélaginu á þessum ár-
um,“ segir Skúli. Árið 2004 keyptu
þau hjónin húsgagnaverslunina
Casa, sem var flutt undir sama þak
og Kósý húsgögn. Árið 2008 fluttist
verslunin í Skeifuna 8, þar sem hún
starfsvettvanginum þar sem vinnan
er sex daga vikunnar allan ársins
hring. „Það kemur ekki sá dagur að
það sé ekki tilhlökkun að mæta í
vinnu og takast á við ný verkefni,“
segir Skúli. Eins og í öllum við-
skiptum hefur Skúli fundið í eigin
rekstri að markaðurinn sveiflast
bæði upp og niður. „Einhvers stað-
ar segir að eftir sjö feit ár komi sjö
mögur og má það til sanns vegar
færa í viðskiptalífinu.“ Það er lang-
hlaup að stunda viðskipti og segir
Skúli að þegar fyrirtæki fundu fyrir
þrengingum hrunsins upp úr 2008
hafi hann fundið að ævilangt áhuga-
mál hans, íþróttirnar, hafi hjálpað
honum mikið. „Það skiptir máli að
vera í góðu formi, og ég hef undan-
farin 30 ár æft þrisvar í viku klukk-
an hálfsex á morgnana áður en ég
mæti til vinnu.“ Gott líkamlegt
ástand hefur áhrif á hugann og
Skúli Rósantsson, eigandi gjafavöru- og húsgagnaverslunarinnar Casa – 60 ára
Fjölskyldan F.v. Brynjar Hansson tengdafaðir Skúla, Gunnar Örn, Soffía Rún, Skúli Rósantsson, móðir Skúla Soffía
Petrea Gunnlaugsdóttir, Guðrún Lára, Rut, Davíð, Rósant Friðrik og Inga Svavarsdóttir.
Alltaf tilhlökkun að takast
á við verkefni dagsins
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Afmælisbarnið Skúli Rósantsson.
30 ára Henrietta er
Reykvíkingur og býr
enn í höfuðborginni.
Hún hefur starfað
sem atferlisþjálfi og er
núna að sinna börnum
og búi og er í atvinnu-
leit. Hennar helstu
áhugamál eru íþróttir og hún hefur gam-
an að fást við skapandi handverk.
Henrietta er ógift.
Börn: Víkingur Otri, f. 2012, og Ninja
Mjöll, f. 2017.
Foreldar: Linda Andersen, f. 1964, mót-
tökuritari hjá Öskju og Guðmundur Otri
Sigurðsson, f. 1964, kraftlyftingamaður.
Henrietta Otradóttir
30 ára Rebekka Loga-
dóttir er Hafnfirðingur
og býr þar enn. Hún er
flugmaður og hefur
unnið hjá Icelandair og
víðar en sinnir nú börn-
um og búi.
Maki: Jón Páll Hall-
dórsson, f. 18. september 1990, graf-
ískur hönnuður.
Börn: Halldór, f. 2017, og Ylfa Rakel, f.
2019.
Foreldrar: Sólveig Viðarsdóttir, f. 1954,
vinnur hjá Vinnumálastofnun og Logi
Már Einarsson, f. 1955, vinnur hjá Eigna-
miðlun. Þau búa í Hafnarfirði.
Rebekka Logadóttir
Steindór Guðmundsson | Löggiltur fasteignasali | Fasteignasala Lögmanna Suðurlandi ehf.
802 Selfoss | sími 862 1996 | steindor@log.is | www.log.is
LÖGMENN SUÐURLANDI
Um er að ræða vandað 237,7 fm. steinsteypt frístundarhús sem
skiptist í 86,3 fm. íbúðarhús, 30 fm. gestahús og 121,4 fm. vinnurými
í kjallara. Húsið stendur á 10.000 fermetra eignarlóð að Mosamóa í
landi Þórisstaða í Grímsnes- og Grafningshreppi. Einungis um kluk-
kustundar akstur er frá höfuðborgarsvæðinu og u.þ.b. hálftíma akstur
á Selfoss. Þá er örstutt frá húsinu í Reykholt í Biskupstungum þar sem
alla helstu þjónustu er að finna sem og í Skálholti og Laugarás. Góð
útivistarsvæði eru í nágrenninu, stutt í veiði, sundlaugar og golf. Þá
liggur staðsetninginn vel við Gullna hringnum og þjóðgarðinum á Þingvöllum sem býður upp á góða möguleika
á því að leigja húsið út til ferðamanna.
Húsið er einangrað að innan og utan og klætt með viðhaldsléttri klæðningu. Hringinn í kringum bæði húsin er
rúmlega 134 fm. timburverönd á steyptum stöplum, heitur pottur undir skyggni með fallegu útsýni til Hestfjalls.
Nánari upplýsingar veitir Steindór Guðmundsson löggiltur fasteignasali 862 1996
Mosamói 10 Grímsnes og Grafningshreppi Til hamingju með daginn
ReykjavíkYlfa Rakel Jóns-
dóttir fæddist 12. júlí 2019.
Hún vó 4.001 g og var 52
cm löng. Foreldrar hennar
eru Jón Páll Halldórsson
og Rebekka Logadóttir.
Nýr borgari