Morgunblaðið - 03.09.2020, Qupperneq 59
MENNING 59
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. SEPTEMBER 2020
„Það er þó nokkuð mikið af fyrstu
útgáfum af ljóðabókum, það eru
yfirleitt góð eintök. Þarna eru
bækur eftir Jóhannes úr Kötlum,
Sigfús Daðason og Snorra Hjart-
arson og svo eru ansi margar
bækur sem bókbandsmeistarar
hafa bundið inn,“ segir Ari Gísli
Bragason bóksali um vefuppboð á
fágætum bókum sem nú stendur
yfir á vef Gallerís Foldar á slóð-
inni uppbod.is og lýkur 20. sept-
ember. Bækurnar á uppboðinu
voru sérvaldar af Ara og marga
gersemina er þar að finna fyrir
bókasafnara og aðra bóka-
áhugamenn.
Verðmætar matreiðslubækur
Ari nefnir að nokkrar af gömlu
matreiðslubókunum hennar Helgu
Sigurðardóttur séu á uppboði,
m.a. hin landsþekkta Matur og
drykkur bundin inn í skrautband
og Hráir grænmetisréttir. Ari
nefnir líka bók nr. 49 á uppboðinu,
Skýringar Páls lögmanns Jóns-
sonar Vídalíns yfir Fornyrði Lög-
bókar er Jónsbók kallast sem
prentuð var af Helga Helgasyni
árið 1849 í Reykjavík. Ari segir
bókina mikið fágæti. „Hún er með
kápunum og í fallegu skinnbandi,“
segir hann.
Fyrsta útgáfa af ljóðabók Dav-
íðs Stefánssonar, Svartar fjaðrir,
er einnig á uppboðinu og Galdra-
skræða Skugga. „Það er rúnabók
með skýringum, fjöldi galdra sem
hann tekur saman með rúnaletri,“
segir Ari en sá sem kallaði sig
Skugga hét réttu nafni Jochum M.
Eggertsson.
Einnig eru fyrstu ljóðabækur
Jónasar Svafár, áritaðar af skáld-
inu, á uppboðinu, bundnar inn af
Sigurþóri Sigurðssyni bókbands-
meistara og fyrstu bækur Þor-
steins frá Hamri, Í svörtum kufli
og Tannfé handa nýjum heimi og
er sú síðarnefnda með myndum og
kápumynd eftir Ástu Sigurðar-
dóttur.
Hæsta verðmatið, 120.000 krón-
ur, er á fyrstu þremur árgöng-
unum af Fjölni sem eru mikið til
fyrstu útgáfur og falleg eintök, að
sögn Ara. „Árs-Rit handa íslend-
ingum. Samið, kostað og gefið út
af Brynjólfi Péturssyni, Jónasi
Hallgrímssyni, Konráði Gíslasyni,
Tómasi Sæmundssyni. Hér eru
saman í bandi fyrstu þrjú árin af
Fjölni. Ágæt eintök en hefur að
sjálfsögðu verið flett,“ segir á
vefnum en árgangarnir eru frá
1835-7.
Ari segir fjölbreytt úrval bóka
á uppboðinu og að allar séu þær
til sýnis í Galleríi Fold. Af fleiri
bókum í bandi eftir bókbands-
meistara má nefna Ofvitann eftir
Þórberg Þórðarson og Sálminn
um blómið, bæði verk í fyrstu út-
gáfum og bundin í skinnband af
Ragnari Einarssyni. Lítil Varn-
ingsbók Jóns forseta er einnig á
uppboðinu sem Ari segir afar fal-
legt eintak með kápu. Þá má líka
nefna fyrstu bók Einars Bene-
diktssonar, Sögur og ljóð, í fyrstu
útgáfu frá 1897.
Vaxandi áhugi
Ari er spurður að því hvort
þeir séu margir sem kaupi fágæt-
ar bækur á vefuppboðum. Hann
svarar því til að bókasafnarar og
áhugamenn um sjaldgæfar bækur
séu þó nokkuð stór hópur. Virkir
bókasafnarar séu líklega um 50
talsins hér á landi. „Og svona 2-
300 sem eru svona hálfvirkir,“
bætir hann við.
Fágæt bók er góð fjárfesting,
líkt og önnur fágæt listaverk og
Ari er spurður að því hvort ein-
hverjar sveiflur hafi orðið í síð-
ustu vefuppboðunum nú á tímum
heimsfaraldurs. „Nei, ég hef ekki
fundið fyrir því. Það er frekar að
áhuginn aukist á svona hlutum
eins og bókum eða listaverkum,
einhverju sem hefur raunverulegt
gildi,“ svarar Ari.
Hann rekur fornbókabúðina
Bókina við Klapparstíg. Hvernig
skyldi bóksala þar hafa gengið í
kófinu? Ari svarar því til að
reksturinn hafi gengið mjög vel.
En vantar einhverjar bækur í
búðina? „Það vantar alltaf réttu
bækurnar,“ svarar Ari sposkur.
helgisnaer@mbl.is
Fágæt og fjölbreytt verk
Fyrstu bækur Jónasar Svafár áritaðar og fyrstu þrír árgangar Fjölnis eru
meðal verðmætra rita á vefuppboði Gallerís Foldar sem nú stendur yfir
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Bóksalinn Ari Gísli Bragason í verslun sinni Bókinni við Klapparstíg.
Verðmæti F.v. Dagbók borgaralegs
skálds eftir Jóhann Hjálmarsson,
Tómas Jónsson metsölubók eftir
Guðberg Bergsson, Klettabelti fjall-
konunnar eftir Jónas E. Svafár,
Hráir grænmetisréttir eftir Helgu
Sigurðardóttur, Skýringar á forn-
yrðum íslenzkrar lögbókar eftir Pál
Jónsson Vídalín og Í svörtum kufli
eftir Þorstein frá Hamri.
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
Magnaður nýr spennuþriller
með Russell Crowe í aðalhlutverki.
SÝND MEÐ ÍSLENSKU
OG ENSKU TALI
AÐRAR MYNDIR Í
SÝNINGU:
* Tröll 2 (ísl. tal)
* Hvolpasveitin (ísl. tal)
* My Spy
* The Postcard
Killings
* The Secret : Dare to
dream
FYRSTA STÓRMYND ÁRSINS
Nýjasta Meistaraverk
Christopher Nolan
SÝND MEÐ
ÍSLENSKU TALI
Frábær ný teiknimynd fyrir
alla fjölskylduna.★★★★★
★★★★★
★★★★★
The Guardian
The Times
The Telegraph
Tökur standa nú
yfir hér á landi á
íslensk-pólsku
kvikmyndinni
Wolka í leik-
stjórn Árna Ólafs
Ásgeirssonar. Ís-
lenskt fyrirtæki
og pólskt fram-
leiða hana, Saga-
film og Film Pro-
dukcja, og segir í tilkynningu að
tökur séu komnar vel á veg hér á
landi og hafi að mestu farið fram í
Vestmannaeyjum. Pólland tekur
við í byrjun þessa mánaðar. Kvik-
myndin fjallar um Önnu sem lokið
hefur 16 ára afplánun í pólsku
fangelsi. Hun einsetur sér að finna
konu sem nefnist Dorota og brýtur
við þá leit skilorð og lög þar sem
Dorota er að öllum líkindum á Ís-
landi. Með hlutverk Önnu fer
pólska kvikmyndastjarnan Olga
Boladz.
Íslensk-pólsk
kvikmynd í tökum
Olga Boladz
Það er (ekki) gigg í kvöld: Sam-
stöðufundur um áhrif Covid-19 á
tónlistariðnaðinn, var haldinn í há-
deginu í gær og mátti fylgjast með
honum á netinu. Að fundi loknum
sendu hagsmunasamtök í tónlistar-
iðnaði frá sér svohljóðandi ályktun:
„Tónlistargeirinn hefur nú botn-
frosið tvisvar á fimm mánuðum
með skelfilegum afleiðingum. Fyrst
með samkomubanni í mars og svo
aftur í ágúst. Þíðan sem var byrjuð
í sumar sýndi skýrt hvað tónlistar-
geirinn er fljótur að taka við sér, en
hættan er að hluta trésins kali nú í
frostinu.
Það er ekki bara tónlistarfólkið
sjálft sem er í vandræðum heldur
allt hagkerfið í kringum það. Til-
lögur sem lagðar voru fram í
skýrslu um áhrif Covid 19 á tónlist-
ariðnaðinn í sumar hafa verið tekn-
ar upp á borð ríkisstjórnarinnar og
við fögnum því að samtal sé hafið
um þær.
Fundurinn leggur áherslu á að
samtalinu verði haldið áfram og
lausnir fundnar sem gagnast iðn-
aðinum sem heild.“
Hætta á kali, segir
í ályktun fundar