Morgunblaðið - 14.09.2020, Síða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. SEPTEMBER 2020
Framboðsfrestur
Ákveðið hefur verið að viðhafa allsherjaratkvæða-
greiðslu í listakosningu í VR við kjör fulltrúa félagsins
á 44. þing Alþýðusambands Íslands 2020.
Kjörnir verða 91 fulltrúar og 30 til vara. Framboðslistar, með
fyrirliggjandi samþykki allra sem á listunum eru, ásamt
meðmælum 300 fullgildra félagsmanna VR, þurfa að hafa borist
kjörstjórn á skrifstofu VR, Húsi verslunarinnar, Kringlunni 7,
fyrir kl. 12 á hádegi 21. september næstkomandi.
Kjörstjórn VR
VR KRINGLUNNI 7 103 REYKJAVÍK SÍMI 510 1700 WWW.VR.IS
beygði til vinstri. Það var þó um sein-
an því augnabliki síðar brotlenti vél-
in. Lendingin var ekki mjög harkaleg
því vélin lenti í snjó og rann áfram
þar til hún stöðvaðist harkalega í
skafli. Annar vængur vélarinnar rifn-
aði af og eldur kviknaði í hreyflum.
Nokkrir úr áhöfninni þeyttust út
um rifur á vélinni þegar hún stöðv-
aðist. Einn fór alveg á kaf í snjó en
félögum hans tókst að grafa hann
upp. Þeir sem voru inni í vélinni kom-
ust út.
Mennirnir leituðu vars við klett í
nágrenninu og áttu illa vist þar en
komu sér aftur í vélina þegar eld-
urinn hafði slokknað. Ekki tókst að
koma neyðarboðum til hersins og
mennirnir vissu ekki hvar þeir voru
staddir. Tveimur dögum eftir slysið
ákváðu þeir að halda til byggða enda
hafði einn þeirra séð ljós niðri í daln-
um. Þeir komust við illan leik niður af
jöklinum og hluti þeirra komst yfir
Markarfljót og þegar þeir bönkuðu
upp á í bænum kom í ljós að ljósin
voru frá bænum Fljótsdal í Fljóts-
hlíð. Brátt var öllum bjargað.
Nokkrir leiðangrar að flakinu
Undir lok sama mánaðar gerðu
Bandaríkjamenn tvo leiðangra á jök-
ulinn, eins og Árni lýsir í Morg-
unblaðsgreininni. Þá var framhluti
vélarinnar alveg á kafi í snjó og rétt
sást í afturhlutann. Þeir grófu sig inn
í vélina og tóku með sér eitthvert lít-
ilræði, aðallega persónulega muni
áhafnarinnar. Seinni leiðangurinn
komst ekki að vélinni.
Flugvélin hvarf í jökulinn en hann
hefur verið að skila henni til baka.
Árið 2001 fór Árni Alfreðsson með
félögum sínum til að grafa upp
hreyfil og 2004 fjarlægði Landhelg-
isgæslan hættulega hluti, meðal ann-
ars nokkrar vélbyssur. Ekki var talið
að sprengjur væru í vélinni.
Jökullinn skilar „fljúgandi virki“
Jökullinn hefur tætt í sundur bandaríska sprengjuflugvél sem brotlenti á honum í seinni heims-
styrjöldinni Brakið dregur að sér áhugafólk Urðu friðlausir eftir að þeir heyrðu af flakinu
„Þetta er nokkuð augljóst í mínum
huga, þau eru í verslunarrekstri og
með aukinni umferð hefðu komið
fleiri gestir og skapað meiri viðskipti,
enda studdu þau
R-leiðina,“ segir
Ingimar Ingi-
marsson, vara-
oddviti Reykhóla-
hrepps. Hann
ræðir um ástæður
þess að eigendur
einu verslunar-
innar á Reykhól-
um, Hólabúðar-
innar, hafa
ákveðið að loka
verslun og veitingastað.
Fram kom í viðtali við eigendur
verslunarinnar á mbl.is að reksturinn
hafi verið erfiður vegna fólksfækkun-
ar og einnig hafi kórónuveiru-
faraldurinn og fáir erlendir ferða-
menn í sumar spilað inn í
ákvörðunina.
Ingimar var oddviti hreppsnefndar
og barðist fyrir því að nýr Vestfjarða-
vegur færi eftir svokallaðri R-leið, yf-
ir utanverðan Þorskafjörð og um
þorpið á Reykhólum. Taldi að það
yrði jákvætt fyrir byggðina. Vega-
gerðin taldi svokallaða Teigsskógar-
leið betri og að lokum féllst meirihluti
sveitarstjórnar á leiðaval Vegagerð-
arinnar og Ingimar sagði af sér sem
oddviti. Vegamálin eru enn í óvissu
því útgáfa hreppsins á framkvæmda-
leyfi var kærð til úrskurðarnefndar
umhverfis- og auðlindamála.
Ingimar segir að tillaga um R-leið í
gegnum Reykhóla hafi gefið íbúum
þar von sem slokknaði þegar henni
var hafnað. Það lýsi sér í því að íbúum
á Reykhólum hafi fækkað um þriðj-
ung frá því ákvörðunin var tekin. „Ég
skil það mjög vel að ákveðið vonleysi
hafi orðið hjá fólki eftir þetta. Ég sé
það líka á sveitarstjórnarfólkinu sem
var þvingað í þessa ákvörðun,“ segir
Ingimar.
Aka 150 km í verslun
Ingimar segir að sorglegt sé að
horfa upp á lokun verslunarinnar.
Næstu verslanir séu á Hólmavík og í
Búðardal, í 60 og 75 km fjarlægð. Á
báðum stöðum er Krambúð og segir
Ingimar að vöruverð sé þar hærra en
þó var í litlu búðinni á Reykhólum.
Því sé ekki góður kostur að fara
þangað til að kaupa í matinn. Næsta
lágvöruverðsverslun sé í Borgarnesi
en þangað eru rúmir 150 kílómetrar.
helgi@mbl.is
Fólksfækkun
vegna veglínu
Íbúum Reykhóla fækkað um þriðjung
Ingimar
Ingimarsson
Guðmundi fannst aðkoman að
slysstaðnum kynngimögnuð,
eins og hann lýsir í færslu á
Facebook. „Jökullinn var hrein-
lega búinn að hakka vélina í sig.
Eins og mulningsvél. Þarna
liggja fatalufsur, skór og fall-
hlífar innan um hreyfla, rafbún-
að og brotajárn úr flakinu. Allt í
einni kássu. Þetta var svo
magnað allt saman að við ætl-
uðum aldrei að hafa okkur niður
aftur.“ Guðmundur segir við
Morgunblaðið að ummerki séu
eftir umgang fólks, meðal ann-
ars megi sjá sígarettustubba.
Leggur hann áherslu á að fólk
umgangist staðinn með virð-
ingu og vonar að það taki ekki
með sér muni úr brakinu.
Brakið er allt
í einni kássu
KYNNGIMÖGNUÐ AÐKOMA
Ljósmynd/Guðmundur Gunnarsson
Slysstaður Brakið liggur eins og hráviði við jökulröndina. Hér sést ein skrúfan, illa beygluð eftir hramm jökulsins.
Félagarnir Daði Gränz, Hrannar Ásgrímsson, Guðmundur Gunnarsson og
Bergsveinn Snorrason gengu að flugvélarflakinu um helgina.
BAKSVIÐ
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Brak úr bandarísku sprengjuflugvél-
inni sem fórst á Eyjafjallajökli í
seinni heimsstyrjöldinni er smám
saman að koma í ljós eftir því sem
Gígjökull hopar. Jökullinn er búinn
að búta flakið niður þótt einstaka
hlutir úr henni séu auðþekktir og er
svæðið því eins og ruslahaugur yfir
að líta. Allir úr 10 manna áhöfn vél-
arinnar komust lífs af.
„Ég hef lengi verið í fjallgöngum
og frá því ég heyrði af þessu flaki í
sumar hef ég verið friðlaus. Fannst
þetta heillandi saga og þegar ég
sagði vinum mínum frá urðu þeir
einnig friðlausir,“ segir Guðmundur
Gunnarsson, fyrrverandi bæjarstjóri
á Ísafirði, sem fór með félögum sín-
um að flakinu um helgina í tengslum
við Þórsmerkurferð. Þeir skoðuðu
staðinn og tóku myndir. Það var ein-
mitt í Þórsmörk sem Guðmundur
heyrði af flakinu en hann var þar að
hjálpa vinum sínum sem reka ferða-
þjónustufyrirtæki.
Ill vist á jöklinum
Sprengiflugvélin brotlenti á Eyja-
fjallajökli 16. september 1944. Hún
var af gerðinni Boeing B-17, „fljúg-
andi virki“ eins og kallað var. Vélin
var á leiðinni til Englands til að gera
árásir á Þýskaland. Millilenti á
Keflavíkurflugvelli til að taka elds-
neyti.
Leiðindaveður var á Íslandi og
áhöfnin hefur villst af leið. Hún lenti í
miklu niðurstreymi og brotlenti á
jöklinum. Árni Alfreðsson sagði ít-
arlega frá aðdraganda slyssins og
hvernig áhöfnin komst til byggða í
grein í Morgunblaðinu í júní 1996. Þá
hafði Bandaríkjaher létt leynd af
gögnum varðandi flugslysið og
byggði Árni greinina á þeim.
Aðstoðarflugmaðurinn sem fylgd-
ist með ísingu á hægri væng rak
skyndilega upp vein og öskraði til
flugstjórans að hann skyldi vara sig á
fjöllum til hægri. Fugstjórinn snar-