Morgunblaðið - 14.09.2020, Blaðsíða 27
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. SEPTEMBER 2020
Kári Gunnarsson og Margrét Jó-
hannsdóttir úr TBR vörðu Íslands-
meistaratitla sína í einliðaleik í bad-
minton um helgina. Kári sigraði í
karlaflokki níunda árið í röð og Mar-
grét í kvennaflokki fimmta árið í röð
en mótinu lauk í gær í íþróttahúsinu
við Strandgötu í Hafnarfirði.
Kvennalandsliðið í golfi náði besta
árangri Íslands frá upphafi á Evr-
ópumóti áhugakylfinga sem lauk í
Uppsala í Svíþjóð um helgina en liðið
hafnaði í áttunda sæti. Karlalandsliðið
endaði í níunda sætið á sambærilegu
móti í Hollandi.
Knattspyrnumaðurinn Sveinn Aron
Guðjohnsen hefur verið lánaður frá
Spezia á Ítalíu til OB í Danmörku og
mun leika með danska liðinu út tíma-
bilið sem hófst þar um helgina.
Rúnar Alex Rúnarsson, markvörður
Dijon og íslenska landsliðsins í knatt-
spyrnu, var í gær orðaður við enska
stórliðið Arsenal í enskum fjölmiðlum.
Hörður Björgvin Magnússon skor-
aði eitt marka CSKA sem sigraði Spar-
tak 3:1 í nágrannaslag Moskvuliðanna í
rússnesku úrvalsdeildinni í knatt-
spyrnu í gær.
Viðar Ari Jónsson skoraði fyrra
mark Sandefjord í útisigri á Mjøn-
dalen, 2:0, í norsku úrvalsdeildinni í
knattspyrnu í gær.
Aron Jóhannsson skoraði seinna
mark Hammarby í gær þegar liðið
gerði jafntefli, 2:2, á heimavelli við
Helsingborg í sænsku úrvalsdeildinni í
knattspyrnu. Þetta var sjötta mark Ar-
ons í síðustu sjö leikjum liðsins.
Rúnar Már Sigurjónsson skoraði
bæði mörk Astana sem vann Ordabasy
2:1 á útivelli í úrvalsdeildinni í knatt-
spyrnu í Kasakstan á laugardaginn.
Rúnar hefur skorað fimm mörk í fyrstu
sjö umferðum deildarinnar.
Alfreð Finnbogason skoraði eitt
marka Augsburg sem vann léttan 7:0
sigur á Eintracht Celle í fyrstu umferð
þýsku bikarkeppninnar í knattspyrnu á
laugardaginn.
Willum Þór Willumsson skoraði tvö
marka BATE Borisov þegar liðið vann
Smolevichi 5:2 í úrvalsdeildinni í
knattspyrnu í Hvíta-Rússlandi á laug-
ardaginn.
Ólafur Guðmundsson landsliðs-
maður í handknattleik skoraði níu
mörk fyrir Kristianstad þegar liðið
vann Malmö 26:24 á útivelli í fyrstu
umferð sænsku úrvalsdeildarinnar.
Eitt
ogannað
Gylfi Þór Sigurðsson lék síðustu 25
mínúturnar með Everton í gær þeg-
ar lið hans vann góðan útisigur á
Tottenham, 1:0, í fyrstu umferð
ensku úrvalsdeildarinnar í knatt-
spyrnu. Nýju mennirnir þrír sem
Everton keypti í sumar hófu allir
leik á miðjunni. Dominic Calvert-
Lewin skoraði sigurmarkið.
Jamie Vardy skoraði tvö mörk
fyrir Leicester í 3:0 útisigri á WBA í
gær og Mohamed Salah skoraði
þrennu fyrir Liverpool sem vann
nýliða Leeds í bráðfjörugum leik á
Anfield, 4:3, á laugardaginn.
Gylfi hóf tíma-
bilið á bekknum
AFP
Unnu Dominic Calvert-Lewin fagn-
ar sigurmarki Everton.
Viðar Örn Kjartansson átti magn-
aða endurkomu í norsku úrvals-
deildina í knattspyrnu í gærkvöld
en þá lék hann sinn fyrsta leik fyr-
ir Vålerenga frá Ósló í sex ár. Lið-
ið tók á móti Brann og þegar stað-
an var 1:1 að 15 mínútum liðnum
tók Viðar sig til og skoraði þrennu
á aðeins átta mínútum. Þar með
voru úrslitin ráðin en lokatölur
urðu 5:1. Viðar hóf atvinnuferilinn
með Vålerenga árið 2014 þegar
hann varð markakóngur norsku
úrvalsdeildarinnar með 25 mörk í
29 leikjum.
Morgunblaðið/Eggert
Þrenna Viðar Örn Kjartansson
skoraði þrjú mörk á átta mínútum.
Mögnuð endur-
koma Viðars
KR – STJARNAN 1:2
1:0 Kristján Flóki Finnbogason 63.
1:1 Daníel Laxdal 86.
1:2 Guðjón Baldvinsson 89.
MM
Guðjón Baldvinsson (Stjörnunni)
M
Haraldur Björnsson (Stjörnunni)
Brynjar Gauti Guðjónsson (Stjörnunni)
Daníel Laxdal (Stjörnunni)
Elís Rafn Björnsson (Stjörnunni)
Finnur Orri Margeirsson (KR)
Kennie Chopart (KR)
Kristinn Jónsson (KR)
Ægir Jarl Jónasson (KR)
Stefán Árni Geirsson (KR)
Rautt spjald: Arnþór Ingi Kristinsson
(KR) 90.
Dómari: Pétur Guðmundsson – 8.
Áhorfendur: 400.
KA – FYLKIR 2:0
1:0 Hallgrímur Mar Bergmann 2.
2:0 Ásgeir Sigurgeirsson 33.
M
Kristijan Jajalo (KA)
Brynjar Ingi Bjarnason (KA)
Mikkel Qvist (KA)
Rodrigo Gómez (KA)
Hallgrímur Mar Bergmann (KA)
Djair Parfitt-Williams (Fylki)
Valdimar Þór Ingimundarson (Fylki)
Rautt spjald: Sveinn Margeir Hauksson
(KA) 56.
Dómari: Jóhann Ingi Jónsson – 5.
Áhorfendur: 400.
FH – BREIÐABLIK 3:1
1:0 Steven Lennon 34.
1:1 Viktor Karl Einarsson 45.
2:1 Steven Lennon 77.
3:1 Atli Guðnason 90.
MM
Steven Lennon (FH)
M
Þórir Jóhann Helgason (FH)
Guðmann Þórisson (FH)
Guðmundur Kristjánsson (FH)
Viktor Karl Einarsson (Breiðabliki)
Kristinn Steindórsson (Breiðabliki)
Höskuldur Gunnlaugsson (Breiðab.)
Dómari: Egill Arnar Sigurþórsson – 7.
Áhorfendur: 485.
HK – ÍA 3:2
1:0 Ásgeir Marteinsson 22.
2:0 Ólafur Örn Eyjólfsson 27.
2:1 Marcus Johansson 30.
2:2 Stefán Teitur Þórðarson 34.
3:2 Jón Arnar Barðdal 59.
MM
Ásgeir Marteinsson (HK)
M
Ásgeir Börkur Ásgeirsson (HK)
Jón Arnar Barðdal (HK)
Atli Arnarson (HK)
Valgeir Valgeirsson (HK)
Stefán Teitur Þórðarson (ÍA)
Marcus Johansson (ÍA)
Dómari: Einar Ingi Jóhannsson – 6.
Áhorfendur: 400.
VALUR – VÍKINGUR R. 2:0
1:0 Aron Bjarnason 54.
2:0 Sigurður Egill Lárusson 87.
M
Aron Bjarnason (Val)
Kaj Leo i Bartalsstovu (Val)
Lasse Petry (Val)
Rasmus Christiansen (Val)
Sigurður Egill Lárusson (Val)
Ágúst Eðvald Hlynsson (Víkingi)
Kwame Quee (Víkingi)
Nikolaj Hansen (Víkingi)
Dómari: Erlendur Eiríksson – 8.
Áhorfendur: 398.
Liðsuppstillingar, gul spjöld, viðtöl og
greinar um leikina – sjá mbl.is/sport/fotbolti.
FÓTBOLTINN
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Stjarnan og FH halda áfram í vonina
um að veita Valsmönnum keppni um
Íslandsmeistaratitil karla á þessu
lengsta hausti íslenska fótboltans
eftir afar mikilvæga sigra gegn KR
og Breiðabliki í gær.
Garðbæingar neita hreinlega að
tapa leikjum og þeir sneru tapi í sig-
ur á lokamínútunum gegn KR í Vest-
urbænum í gær þegar Daníel Laxdal
og Guðjón Baldvinsson skoruðu og
færðu liðinu sigur, 2:1. Ekki verð-
skuldaðan, miðað við gang leiksins,
en að því spyr enginn.
Stjarnan er enn taplaus eftir 12
leiki og sigurmark Guðjóns kann að
reynast liðinu gríðarlega dýrmætt.
Enn eitt jafnteflið hefði ekki gert
mikið fyrir Garðbæinga, frekar en
KR-inga sem nú sitja eftir í sjötta
sætinu.
„Þegar allt kemur til alls gekk
leikskipulag Stjörnunnar ekki upp í
dag, þeir voru undir í öllum þáttum
leiksins, og ef ekki hefði verið fyrir
töfra Guðjóns Baldvinssonar hefði
liðið farið tómhent heim úr Vest-
urbæ,“ skrifaði Bjarni Helgason m.a.
um leikinn á mbl.is.
Óskar Örn Hauksson kom inn á
hjá KR undir lokin og jafnaði leikja-
met Birkis Kristinssonar í deildinni
með því að spila sinn 321. leik.
Sjö sigrar Vals í röð
Það er sannkallaður meist-
arabragur á Valsmönnum sem unnu
sjöunda leikinn í röð í gærkvöld þeg-
ar þeir lögðu Víkinga 2:0 í hörkuleik
á Hlíðarenda.
Þeir þurftu reyndar að hafa mikið
fyrir sigrinum en Aron Bjarnason
skoraði fallegt mark snemma í seinni
hálfleik og Sigurður Egill Lárusson
skoraði eftir skyndisókn og mistök í
Víkingsvörninni undir lokin.
Stjarnan og Valur mætast í Garða-
bæ á sunnudaginn kemur og þar er
um sannkallaðan stórleik að ræða.
Lennon flýgur upp listann
FH náði Breiðabliki að stigum
með sanngjörnum 3:1 sigri í leik lið-
anna í Kaplakrika, og á auk þess leik
til góða á Kópavogsliðið. FH-ingar
eru stöðugt að bæta sinn leik undir
stjórn Eiðs Smára Guðjohnsen og
Loga Ólafssonar og fjórir sigrar í
síðustu fimm leikjunum hafa gefið
þeim möguleika á að blanda sér í
toppslaginn með góðum endaspretti.
Steven Lennon skoraði tvö fyrri
mörk FH og hefur nú skorað sex
mörk í þremur síðustu leikjum liðs-
ins. Hann er þar með orðinn áttundi
markahæsti leikmaður deildarinnar
frá upphafi með 84 mörk. Hann fór í
gær upp fyrir Björgólf Takefusa og
Ragnar Margeirsson sem skoruðu
83 mörk á sínum tíma.
Atli Guðnason komst í 21. sæti
markalistans þegar hann innsiglaði
sigur FH með skoti af 40 metra færi í
tómt markið. Þetta var hans 68.
mark í deildinni.
Langþráð mark Hallgríms
KA vann sinn fyrsta sigur í sjö
leikjum, 2:0 gegn Fylki, og er komið í
þægilega fjarlægð frá botnliðunum
Gróttu og Fjölni.
Hallgrímur Mar Bergmann
skoraði loksins fyrir KA, sitt fyrsta
mark á tímabilinu, en Akureyrarliðið
hefur saknað þess að hann skori jafnt
og þétt eins og hann hefur gert und-
anfarin ár.
Kristijan Jajalo markvörður KA
varði vítaspyrnu Valdimars Þórs
Ingimundarsonar í lok uppbótartím-
ans. Það var sennilega síðasta spyrna
Valdimars fyrir Fylki en hann er á
leið til Strømsgodset í Noregi.
„Hann brenndi af víti á lokamín-
útunni og kiksaði einnig fyrir opnu
marki þannig að boltinn endaði í inn-
kasti. Valdimar var líklegast að leika
sinn síðasta leik fyrir Fylki í bili og
því leiðinlegt fyrir hann að enda
svona,“ skrifaði Einar Sigtryggsson
m.a. um leikinn á mbl.is.
HK komið af hættusvæðinu
HK lagði ÍA að velli, 3:2, í bráð-
fjörugum leik í Kórnum og er komið
með sautján stig í 7. sæti deild-
arinnar. Fallhætta ætti að vera úr
sögunni í Kópavogi.
„HK-ingar skoruðu mörk af dýrari
gerðinni í dag en það leikur enginn
vafi á því að liðið getur svo sann-
arlega sótt hratt og skorað mörk,“
skrifaði Bjarni Helgason m.a. um
leikinn á mbl.is.
Ólafur Örn Eyjólfsson skoraði
sitt fyrsta mark í efstu deild þegar
hann kom HK í 2:0 í fyrri hálfleik.
Halda áfram í vonina
mbl.is/Íris
Meistaravellir Stuðningsmaður Stjörnunnar hljóp inn á völlinn og fagnaði
sigurmarki Guðjóns Baldvinssonar með leikmönnum liðsins.
Mikilvægir sigrar Stjörnunnar og FH Valsmenn virðast óstöðvandi Met-
jöfnun Óskars Stórleikur í Garðabænum næst HK upp í sjöunda sætið
KNATTSPYRNA
Úrvalsdeild karla, Pepsi Max-deildin:
Vivaldi-völlur: Grótta – Fjölnir ........... 19.15
Í KVÖLD!
Úrslitakeppni NBA
Vesturdeild, undanúrslit:
LA Clippers – Denver...................... 105:111
Denver – LA Clippers........................ 111:98
Staðan er 3:3 og oddaleikur aðfaranótt
miðvikudags.
LA Lakers – Houston ........................ 119:96
LA Lakers sigraði 4:1.
Austurdeild, undanúrslit:
Toronto – Boston.................................. 87:92
Boston sigraði 4:3 og mætir Miami í úr-
slitaeinvíginu.