Morgunblaðið - 14.09.2020, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 14.09.2020, Blaðsíða 25
DÆGRADVÖL 25 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. SEPTEMBER 2020 Fyrir líkama og sál L augarnar í Reykjaví k w w w. i t r. i s FYNDIN KISUMYNDBÖND BÆTA MARGT. „ÞETTA ER NÝJASTA MEGRUNARBÓKIN” Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að snerta varla jörðina þegar þú hugsar um hann. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann AH! HAFRA- GRAUTUR! HVERJUM FINNST HANN EKKI GÓÐUR? ÉG SPARSLAÐI Í SPRUNGUNA Í VEGGNUM VIÐ SKULUM KASTA GULLPENINGNUM MÍNUM UPP Á ÞAÐ HVOR OKKAR FÆR SÍÐASTA KJÚKLINGAVÆNGINN! ÉG ER MEÐ BETRI HUGMYND … VIÐ SKULUM NOTA GULLPENINGINN TIL AÐ KAUPA FLEIRI VÆNGI! HJ ÁL P! HRIFS Fyrri eiginkona Júlíusar var Guðrún Helga Sigurðardóttir lyfja- tæknir, f. 28.7. 1960. Börn: 1) Sigurður Brynjar, f. 2.12. 1979, verslunarstjóri á Ak- ureyri giftur Þórdísi Huld Vign- isdóttur, öryggis- og umhverfissér- fræðingi á Akureyri. Börn hans eru Atli Valur, Sædís Saga og Lilja Rós. 2) Ríkey, f. 14.3. 1984, jarðfræð- ingur í Reykjavík. Dóttir hennar er Júlía Rósa. 3) Ásgeir Jarl, f. 9.5. 1993, lag- erstarfsmaður í Hafnarfirði, kvænt- ur Söru Bestouh leikskólaleiðbein- anda í Hafnarfirði. Dætur þeirra eru Kolbrún Mía og Úlfrún Lea. Systkini Júlíusar eru 1) Helga Kristjana Ólafsdóttir, f. 9.12. 1944, d. 9.1. 2017, húsfreyja í Krossdal í Kelduhverfi. 2) Ólína Eygló Ólafs- dóttir, f. 4.5. 1946, húsfreyja á Húsavík. 3) Aðalsteinn Ólafsson, f. 31.3. 1953, skipstjóri á Húsavík. 4) Rannveig Ólafsdóttir, f. 9.3. 1962, klæðskerameistari á Akureyri. Foreldrar Júlíusar voru hjónin Ólafur Jón Aðalsteinsson, f. 17.6. 1919, d. 18.12. 1981, sjómaður, vörubílstjóri og hafnarvörður á Húsavík og Ásgerður Júlíusdóttir, f. 20.7. 1926, d. 1.8. 2008, sauma- kona á Húsavík. Andrés Júlíus Ólafsson Katrín Árnadóttir fædd í Berjanesi, Steinasókn Rangárvallasýslu, húsfreyja á Ísólfsstöðum á Tjörnesi Ólafur Jónas Magnússon frá Þönglabakkasókn S-Þing., bóndi á Ísólfsstöðum á Tjörnesi Ólína Guðrún Ólafsdóttir fædd í Botni, Fjörðum, S-Þing., húsfreyja á Ísólfsstöðum á Tjörnesi og síðar á Geldingsá og Sólheimum á Svalbarðsströnd Ólafur Jón Aðalsteinsson frá Sólheimum á Svalbarðsströnd. Sjómaður, vörubílstóri og hafnarvörður Aðalsteinn Halldórsson frá Leifshúsum á Svalbarðsströnd, sjómaður, orgelleikari og bóndi á Ísólfsstöðum á Tjörnesi, Geldingsá og Sólheimum á Svalbarðsströnd Lilja Sæmundsdóttir fædd í Ytri-Hlíð, Hofssókn í Vopnafi rði, húsfr. á Geldingsá á Svalbarðsströnd Halldór Halldórsson frá Geldingsá á Svalbarðsströnd, bóndi í Garðsvík, Ystuvík og Geldingsá á Svalbarðsströnd Guðrún Eiríksdóttir frá Gvendarstöðum í Ljósavatnshreppi, húsfreyja í Skógargerði hjáleigu frá Húsavík Eggert Kristjánsson frá Böðvarsnesi í Fnjóskadal, smiður, gullsmiður og bóndi í Skógargerði, hjáleigu frá Húsavík Helga Eggertsdóttir fædd á Grenjaðarstað í Aðaldal, Suður- Þingeyjarsýslu. Húsfreyja á Húsavík Andrés Júlíus Sigfússon fæddur í Sultum í Kelduhverfi , bátasmiður og bjó á Húsavík Rannveig Andrésdóttir frá Syðri-Skál, húsfreyja í Sultum og á Bangastöðum Sigfús Sigurðsson frá Sultum í Kelduhverfi , bóndi í Tumsu og síðar í Sultum og Bangastöðum Úr frændgarði Andrésar Júlíusar Ólafssonar Ásgerður Júlíusdóttir fædd á Húsavík. Saumakona Björn Ingólfsson yrkir á Boðn-armiði: Af hæversku heilsar oss öllum haustið, með kostum og göllum. Í lofti er kul, lauf eru gul og nýlagðar fannir í fjöllum. Sigrún Haraldsdóttir segist hafa róast með árunum: Ekkert reyni yfir klóra, öllu tek sem fyrir ber, heima róleg hangsa og slóra, hætt að leita að sjálfri mér. Helgi Ingólfsson hefur sína sögu að segja: Ég sjálfum mér gjarnan vil gleyma, því gott er að láta sig dreyma. Þótt orkan nú dvíni og ýmsu ég týni, ég oftast finn sjálfan mig heima. Helgi Ingólfsson spyr: „Hvað segja hinir spökustu um þetta rím? Gengur það?“ – Svar mitt er „Já!“: Svo tæknin ei sé mér til trafala ég tengi þrjár vélar í rafala. Ég snikka til feldinn og sníð hann á kveldin og sauma loks flíkur úr safala. Friðrik Steingrímsson hefur kvatt sér hljóðs á Boðnarmiði: Ber ég mig að bragasmíð á boðnarmiði, ef ég vitlaust eitthvað rita, elskurnar þá látið vita. Philip Vogler Egilsstöðum svar- aði: Um Friðrik Steingríms fyrst af öllu finnst mér gott réttkveðið að ríði á vað en ráð vill fá sé nokkuð að. Jón Arnljótsson bætti við: Allt er þáttum ýmsum háð, oft þarf ljóð að fægja, en ef Friðrik fengi ráð færi ég að hlæja. Sævar Sigurgeirsson segist skýla sér á bak við það, að „hváð“ sé bor- ið fram „kváð“ og tek ég undir að svo gerum við flest svo að hér er ekki ofstuðlun: Á himnum uppi heyrist hváð, í helju frýs og skefur þegar sér nú sækir ráð, sá sem ráðin hefur. Gamall húsgangur í lokin: Auminginn sem ekkert á einatt kinn má væta. Sæll er sá sem sjálfur má sína nauðsyn bæta. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Hæverska og leitin að sjálfum sér

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.