Morgunblaðið - 14.09.2020, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 14.09.2020, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. SEPTEMBER 2020 DUXIANA Reykjavik | Ármuli 10 | Reykjavik | +354 5 68 99 50 | www.duxiana.is GÆÐI OG ÞÆGINDI SÍÐAN 1926 DUX 8008 – UNDRAVERÐUR SVEIGJANLEIKI Háþróuð tækni, alvöru handverk, strangar prófanir og vandlega valin efni tryggja góðan nætursvefn og passa upp á að líkaminn fái góða hvíld þegar þú þarf mest á því að halda. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Bæjarstjóri Fjallabyggðar hefur óskað eftir áliti Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS) á því hvort ekki sé eðlilegt að Vegagerðin taki á sig hluta kostnaðar við bruna- varnir og slökkvistarf í jarðgöngum með því að gera þjónustusamning við slökkvilið sveitarfélagsins. Er- indið var kynnt á fundi bæjarráðs í fyrradag. Fern jarðgöng eru í Fjallabyggð en íbúar aðeins ríflega 2.000 talsins. Það eru Strákagöng milli Siglu- fjarðar og Fljóta, Múlagöng sem tengja saman Dalvík og Ólafsfjörð og Héðinsfjarðargöng sem eru tvenn göng og liggja milli Ólafs- fjarðar og Siglufjarðar, þéttbýlis- kjarnanna í Fjallabygð. Vegna land- fræðilegra aðstæðna annast slökkvilið Fjallabyggðar alfarið brunavarnir og slökkvistörf í Strákagöngum og Héðinsfjarðar- göngum en samstarf er við slökkvi- lið Dalvíkurbyggðar um þjónustu í Múlagöngum. Elías Pétursson bæjarstjóri getur þess í erindinu að jarðgöng séu und- anþegin greiðslu fasteignaskatta. Sveitarfélagið fái því engar tekjur af þeim til að standa straum af kostnaði við brunavarnir. Aftur á móti fylgi brunavörnum í jarðgöngum sérhæfður tækjakostur og sérhæfð þjálfun slökkviliðs- manna sem eykur kostnað slökkvi- liðsins og þar með sveitarfélagsins. Meðal annars þurfi þeir búnað og þjálfun til að fara inn í reykfyllt göng vegna bílbruna eða annars. Fram kemur að Vegagerðin hafi veitt sveitarfélaginu 14 milljóna króna styrk til tækjakaupa þegar Héðinsfjarðargöng voru opnuð en hafi ítrekað hafnað að taka þátt í öðrum kostnaði við brunavarnir og viðbragð. Hafi stofnunin ávallt hafn- að því að gera samning um þjónustu slökkviliðs sveitarfélagsins. Göngin verði tekin út Fjallabyggð vekur einnig athygli HMS á því að sveitarfélagið hafi óskað eftir því að Vegagerðin láti gera áhættumat og brunavarnarút- tekt fyrir öll jarðgöng í Fjallabyggð. Brunaæfing í Múlagöngum hafi sýnt að úrbætur væru nauðsynlegar og slökkviliðsstjóri hafi vakið at- hygli á því að Héðinsfjarðargöng uppfylltu ekki lágmarksöryggis- kröfur. Vegagerðin hafi ekki orðið við þessum beiðnum. Meðal annars er bent á að umferð um göngin hafi aukist mjög en enn séu engin fjarskipti í Strákagöng- um. Þessu til viðbótar biður bæjar- stjórinn um afstöðu HMS til þess hvort Vegagerðinni beri skylda til að uppfæra öryggisbúnað í eldri jarðgöngum í samræmi við tækni- nýjungar, eftir því sem mögulegt er, þótt aðrar kröfur hafi verið gerðar þegar göngin voru grafin. Það myndi til dæmis auka öryggi að tengja þau útvarpssendum. Vegagerðin greiði fyrir brunavarnir  Bæjarstjóri Fjallabyggðar leitar álits HMS á því hvort Vegagerðinni beri að taka þátt í kostnaði við brunavarnir og slökkvistarf í jarðgöngum  Fern jarðgöng eru í 2.000 manna sveitarfélagi Morgunblaðið/Sigurður Ægisson Héðinsfjarðargöng Mikil umferð er um jarðgöng á Tröllaskaga. Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is Ekki er brýn þörf á því að virkja frekari vatnsföll til þess að orku- skipti geti átt sér stað í bílaflota Ís- lendinga. Er það ekki síst vegna minni eftirspurnar í kjölfar lokunar tveggja kísilvera, auk þess sem ál- verið í Straumsvík hefur dregið verulega saman í orkukaupum eða um 15%. Þá hafa gagnaver einnig dregið úr rafmagnskaupum. Svo segir Bjarni Bjarnason, forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur. „Ef við ætlum að keyra allan bíla- flotann á rafmagni þá þurfum við ákveðinn fjölda megavatta. Það eru u.þ.b. 500 MW sem við þurfum til þess. En það er ekki á morgun. Eft- ir 10 ár þurfum við 100 MW og eftir 30 ár gætum við þurft 500 MW. Ef maður umreiknar alla orkuþörf bíla- flotans, til framtíðar þá þarf þetta til en það liggur ekki á því að virkja.“ 7,5% orkunnar óseld Fram komu á ársfundi Samorku nýverið þau sjónarmið að virkja þurfi á viðkvæmum svæðum til að ná markmiðum í losun gróðurhúsa- lofttegunda og auka þurfi rafmagns- framleiðslu um 10% á næstu 10 ár- um í því skyni. „Tölurnar frá Samorku eru í sjálfu sér réttar og ég er ekki að bera brigður á þær. Það sem ég geri athugasemdir við er þessi tímarammi sem þarna er talað um. Sérstaklega þegar tekið er mið af því sem er að gerast í orkukerfinu okkar. Rafmagns- vinnslugetan í orkukerfinu er 20TW-stundir á ári. Við erum þegar búin að missa 1,5 TW-stund úr söl- unni vegna þessarar þróunar í orku- frekum iðnaði. Miðað við meðalraf- orkuvinnslugetu, þá erum við með 7,5% óseld,“ segir Bjarni. Það óselda rafmagn sem nú er fyrir hendi dugi til þess að knýja 600 þúsund rafbíla. Það er rúmlega tvöfaldur einkabílafjöldi landsins. Rafbílar eru um 15 þúsund í dag. „Einfaldlega ekki rétt“ „Til þess að knýja 100 þúsund rafbíla sem við gerum ráð fyrir að þurfi eftir 10 ár þurfum við kannski 1,5% af þessum 7,5%,“ segir Bjarni. „Eftir málþingið hjá Samorku sem var um margt gott þá sá ég fréttir af því að sumir teldu nauðsynlegt að virkja viðkvæm svæði hér til að knýja rafbílaflotann. Það er hins vegar einfaldlega ekki rétt.“ Næg orka til að knýja rafbílaflotann  Dregið hefur úr spurn eftir raforku

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.