Morgunblaðið - 14.09.2020, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 14.09.2020, Blaðsíða 13
FRÉTTIR 13Erlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. SEPTEMBER 2020 Sími 555 2992 og 698 7999 • Við hárlosi • Mýkir liðina • Betri næringar- upptaka Náttúruolía sem hundar elska Við höfum notað Dog Nikita hundaolíu fyrir hundana okkar í 3 ár og við erum ekkert á því að hætta. Feldurinn á þeim er mjúkur, fallegur og hárlosið á þeim gengur fyrr yfir. Þófarnir eru mjúkir og sléttir en ekki harðir og grófir eins og þeir verða oft.Við mælum með Dog Nikita hundaolíu. Páll Ingi Haraldsson EldurÍs hundar Við mælum með Dog NIKITA hundaolíu NIKITA hundaolía - Selaolía fyrir hunda • Gott við exemi • Betri og sterkari fætur FRÉTTASKÝRING Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Gróðureldarnir á vesturströnd Bandaríkjanna geisuðu áfram um helgina, og var talið að a.m.k. 30 manns hefðu látið lífið í þeim. Sú tala mun líklega hækka nokkuð, þar sem enn er ekki vitað um staðsetningu fjölmargra einstaklinga í ríkjunum þremur. Tugþúsundir manna hafa neyðst til þess að yfirgefa heimili sín, og þá eru enn ótalin áhrif gróðureld- anna á náttúru og dýralíf í ríkjunum þremur. Rúmlega 20.000 slökkviliðsmenn hafa verið kallaðir til að berjast við eldana í ríkjunum þremur, en vonir stóðu til að kaldara veður nú eftir helgi myndi aðstoða í baráttunni við þá. Í Kaliforníu-ríki hafa um það bil 1,3 milljónir hektara brunnið til kaldra kola, en um 35 mismunandi gróðurelda er að ræða. Segja yfir- völd í ríkinu að fimm bæir hið minnsta hafi verið lagðir í eyði af eld- unum, sem eru einkum í norðurhluta ríkisins. Talið er að 22 hafi látist í ríkinu. Í Oregon-ríki glíma slökkviliðs- menn við um 16 mismunandi gróð- urelda, og hafa um 40.000 manns neyðst til þess að yfirgefa heimili sín. Að minnsta kosti níu manns eru látn- ir vegna eldanna í ríkinu, en yfirvöld þar eru sögð vera að búa sig undir að mun fleiri finnist látnir á næstu dög- um. Grunur leikur á að stærsti eld- urinn í Oregon-ríki, sem kenndur er við Alameda, hafi sprottið upp af íkveikju. Washington-ríki glímir svo við um 15 skógarelda. Landslag úr vísindaskáldskap Eldarnir hafa gefið frá sér mikið af sóti og reyk, með þeim afleiðing- um að Portland, stærsta borg Ore- gon-ríkis, mælist nú með verstu loft- gæði heims, samkvæmt mælingu IQair.com, en Vancouver í Kanada, sem er rétt handan landamæranna við Washington-ríki, er í öðru sæti. Seattle og San Francisco fylgja svo skammt á eftir. Sótið og reykurinn hafa svo aftur leitt af sér að himinninn í þessum borgum er orðinn appelsínugulur á litinn, og þykir hann minna mest á landslag úr kvikmyndum sem eiga að gerast í dystópískri framtíð. Íbú- arnir í borgunum eru nú hvattir til þess að dveljast sem mest innan- dyra, halda hurðum og gluggum lok- uðum og nota viftur og loftræstingu til að halda loftinu á hreyfingu. Reykurinn hefur einnig haft slæm áhrif á slökkvistarf í ríkjunum þrem- ur, þar sem hann hefur skert útsýni og gert flugvélum og þyrlum slökkvi- liðsmanna erfiðara fyrir að taka þátt í slökkvistarfinu. Deilt um orsakir eldanna Gróðureldarnir hafa fært lofts- lagsmál í forgrunn kosningabarátt- unnar í Bandaríkjunum, alla vegana um stundarsakir. Gavin Newsom, ríkisstjóri Kaliforníu og demókrati, sagði í ræðu á föstudaginn, að eld- arnir hefðu „bundið enda“ á um- ræðuna um hnatthlýnun af manna- völdum. „Þetta er bannsett neyðartilfelli,“ sagði Newsom. „Þetta er raunverulegt og að gerast núna.“ Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði hins vegar í kosningaræðu í Nevada um helgina, að kenna mætti slæmum vinnubrögðum ríkjanna þriggja við skógrækt og stýringu skóglendis um umfang eldanna. Ummæli Trumps drógu þegar að sér fordæmingu demókrata úr ríkj- unum þremur, og sagði Eric Gar- cetti, borgarstjóri Los Angeles, í við- tali við CNN-fréttastöðina í gær að Trump hefði sýnt af sér vanrækslu í baráttunni við eldana. Gerði Garcetti því skóna að Trump hefði reynst tregur til að veita aðstoð, af því að ríkisstjórar allra ríkjanna þriggja væru úr Demókrataflokknum. Sagði Garcetti jafnframt að Trump hefði sett „höfuðið í sandinn“ þegar kæmi að loftslagsmálum almennt. Hlýnun jarðar ekki á dagskrá Hnatthlýnun hefur annars sjaldan verið í brennidepli kosningabaráttu í Bandaríkjunum, en samkvæmt greiningu AFP-fréttastofunnar má rekja það til þess að á sama tíma og kjósendur demókrata hafa þungar áhyggjur af hlýnun jarðar, eru lofts- lagsmál frekar neðarlega á for- gangslista þeirra sem jafnan kjósa Repúblikanaflokkinn. Frambjóðend- ur flokkanna eyða því ekki miklum tíma í málaflokkinn. Jon Krosnick, prófessor í stjórn- málafræði við Stanford, sagði við AFP-fréttastofuna, að Joe Biden, frambjóðandi demókrata, myndi ein- ungis skaða sjálfan sig með því að einblína á loftslagsmál, þar sem þau vegi ekki þungt í þeim kjósendahóp- um sem hann þurfi að ná til. Á sama tíma ætti Trump að sjá lít- inn tilgang í því að reyna að höfða til kjósenda í Kaliforníu með því að tala meira um hlýnun jarðar, þar sem nær öruggt er að demókratar muni hafa betur í ríkinu. Trump hyggst heimsækja Kaliforníuríki í dag og funda þar með yfirmönnum al- mannavarna í ríkinu. Bannaði olíuborun óvænt Þó að loftslagsmál séu ekki ofar- lega á lista hjá kjósendum repúblik- ana, fer því fjarri að þeim standi al- farið á sama um umhverfið. Það kom engu að síður nokkuð á óvart þegar Trump ákvað í síðustu viku að banna olíuborun í Mexíkóflóa næstu tíu ár- in, en þá ákvörðun mátti rekja til þverpólitískrar baráttu flokkanna tveggja í Flórída-ríki fyrir því að slíkt bann yrði sett á. Francis Rooney, fulltrúadeildar- þingmaður repúblikana frá Flórída, er einn af fáum repúblikönum sem kallar sig umhverfisverndarsinna og hefur stutt kolefnisskatta. Rooney sagði við AFP-fréttastofuna að ferill Trump-stjórnarinnar í umhverfis- málum væri alls ekki góður, en að forsetinn hefði þó séð, að vilji kjós- enda í Flórída væri gegn því að bor- að væri fyrir frekari olíu undan ströndum ríkisins. Rooney mun láta af þingmennsku eftir þetta kjörtímabil, en hann hefur áhyggjur af því að yngri kynslóðir íhaldssamra kjósenda fyndu sig ekki hjá Repúblikanaflokknum vegna stefnu hans í umhverfismálum. „Ég óttast að við munum tapa. Og við munum tapa því að við höfðum ekki til nægilega breiðs kjósendagrunns,“ sagði Rooney við AFP. Baráttan í skugga gróðurelda  Talið að minnst 30 manns hafi farist í gróðureldunum til þessa  Loftgæði stórborga vesturstrand- arinnar sögð hin verstu í heimi  Loftslagsmál almennt séð ekki veigamikil í kosningabaráttunni AFP Gullna hliðið Hin fræga Golden Gate-brú í San Francisco var umlukin rauðgulum reykjarmekki á föstudaginn, en mikil loftmengun hefur fylgt eldunum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.