Morgunblaðið - 14.09.2020, Blaðsíða 7
FRÉTTIR 7Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. SEPTEMBER 2020
Á síðasta fundi borgarráðs voru
lagðar fram fundargerðir verkefn-
isstjórnar miðborgarmála frá 24.
mars og 26. maí 2020.
Fyrri fundinn sátu 13 manns og
stóð hann yfir í tæpan klukkutíma.
Eitt mál var á dagskrá: „Fram fer
umræða um helstu verkefni full-
trúa og áheyrnarfulltrúa.“ Fund-
urinn fór fram í gegnum fjar-
fundabúnað.
Seinni fundinn sátu 11 manns og
stóð hann yfir í tæpan einn og hálf-
an klukkutíma. Tvö mál voru á dag-
skrá: „Kynning á Sumarborginni
2020 og umræða um helstu verk-
efni fulltrúa og áheyrnafulltrúa.“
Fundurinn var að þessu sinni hald-
inn í Aðalstræti 2.
Af þessu tilefni lögðu borg-
arráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokks-
ins fram svohljóðandi bókun: Fróð-
legt væri að vita hver helstu
verkefni fulltrúa og áheyrnarfull-
trúa eru í verkefnastjórn miðborg-
armála. sisi@mbl.is
Funduðu
um helstu
verkefni sín
Morgunblaðið/Jim Smart
Aðalstræti 2 Í húsinu héldu full-
trúarnir fund um helstu verkefnin.
Nýr áfangi hófst á dögunum í sögu
Sjómannadagsráðs og uppbygg-
ingar svonefnds lífsgæðakjarna við
Sléttuveg í Fossvogi þegar fyrsti
leigjandinn tók við lyklunum að
íbúð sinni úr hendi fulltrúa Nausta-
varar, dótturfélags Sjómannaráðs.
Naustavör hefur lokið byggingu
þrjátíu leiguíbúða við Hrafnistu-
heimilið í Fossvogi.
Það var Birna Bergsdóttir, sem
undirritaði fyrsta leigusamninginn
um nýja íbúð hjá Naustavör í lífs-
gæðakjarnanum, sem sam-
anstendur af leiguíbúðunum, þjón-
ustumiðstöðinni Sléttunni og
hjúkrunarheimili Hrafnistu. Lífs-
gæðakjarninn myndar heildstæða
þjónustu við íbúa hverfisins sem
njóta mismunandi búsetukosta og
þjónustu í samræmi við getu, óskir
og þarfir hvers og eins, segir í til-
kynningu frá Sjómannadagsráði.
Leiguíbúðir Naustavarar eru
miðaðar að þörfum og óskum 60
ára og eldri þar sem íbúar hafa
greiðan aðgang að fjölbreyttri
þjónustu á Sléttunni, svo sem fé-
lagsstarfi, heilsurækt og mismun-
andi tómstundum sem eru í farvatn-
inu. „Nú standa yfir undirritanir
leigusamninga um afnot af öllum
sextíu íbúðunum sem byggðar hafa
verið í fyrri áfanga og er því líf og
fjör í fjölbýlinu þar sem íbúar eru
óðum að koma sér fyrir þessa dag-
ana,“ segir í tilkynningunni.
Í síðari áfanga framkvæmdanna í
Fossvogi verða byggðar 80 leigu-
íbúðir til viðbótar sem teknar verða
í notkun á næstu tveimur til þremur
árum. sisi@mbl.is
Nýjar leiguíbúðir afhentar
Ljósmynd/Aðsend
Afhending Birna Bergsdóttir tók við lyklunum hjá Sigurði Garðarssyni,
framkvæmdastjóra Naustavarar, og Aldísi Einarsdóttur þjónustustjóra.
Sjómannadagsráð byggir 110 íbúðir við Sléttuveg
Óskar Reyk-
dalsson, forstjóri
Heilsugæslu höf-
uðborgarsvæð-
isins, telur að um
hundrað ein-
staklingar hafi
leitað til heilsu-
gæslunnar með
eftirköst vegna
kórónuveirunnar.
Helstu einkennin eru kraftleysi,
þreyta og úthaldsleysi. Sumir fá end-
urtekin einkenni eins og þeir séu
hálflasnir, segir Óskar í samtali við
mbl.is. Ekki séu fyrir hendi nákvæm-
ar upplýsingar, svo sem aldur eða al-
varleiki veikinda þeirra sem glíma við
eftirköst.
Heilsugæslan óskaði eftir fyrir-
spurnum meðal lækna á höfuðborg-
arsvæðinu um málið, en Óskar segir
að stefnt sé að því að rannsaka eft-
irköst nánar.
„Ef þú lítur á það þannig að rúm-
lega tvö þúsund manns hafi fengið
sjúkdóminn, þá er ég ekki viss um að
það sé skrýtið að það séu margir sem
eru lengi að jafna sig,“ segir Óskar.
Hundrað leitað
aðstoðar vegna
eftirkasta
Óskar Reykdalsson