Morgunblaðið - 14.09.2020, Side 14
14
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. SEPTEMBER 2020
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
ÞórarinnHjaltason,umferð-
arverkfræðingur
og fyrrverandi
bæjarverkfræð-
ingur í Kópavogi,
ritaði athyglisverða
grein hér í blaðið
um helgina um
borgarlínuna svokölluðu og
reynsluna af „borgarlínum“ er-
lendis. Þórarinn, sem hefur
kynnt sér þessi mál erlendis
mjög vel, bendir á að Reykjavík
sé trúlega mesta bílaborg Evr-
ópu miðað við höfðatölu, en það
segi ekki mikið þar sem lítið sé
um bílaborgir af svipaðri stærð
í Evrópu. Þetta rekur hann til
þess að borgir í Evrópu hafi
byggst upp áður en bíllinn kom
til sögunnar og þar séu götur
því þröngar og byggð þétt.
Öðru máli gegni um Bandarík-
in, Kanada, Ástralíu og Nýja-
Sjáland.
Þórarinn tekur dæmi af til-
teknu borgarsvæði í Bandaríkj-
unum sem er álíka stórt og höf-
uðborgarsvæðið og þar sem
nýlega var lokið við gerð
borgarlínu. Ferðum með strætó
til vinnu fækkaði við þetta um
10% þrátt fyrir 6% fjölgun
íbúa. Ferðum til vinnu með
fólksbíl fjölgaði umtalsvert.
Hann segir að í Bandaríkj-
unum, Kanada og Ástralíu sé
búið að byggja upp nokkrar
borgarlínur í meðalstórum og
stórum bílaborgum og reynslan
sé misjöfn. Farþegafjöldi hafi
yfirleitt aukist umtalsvert en
tiltölulega lítill hluti aukning-
arinnar komi frá þeim sem áður
óku sjálfir í vinnuna. Þetta
skiptir vitaskuld miklu því að
tæpast er ætlun þeirra sem
beita sér fyrir borgarlínu að
færa þá, sem annars eru far-
þegar í bíl, ganga
eða hjóla, inn í
strætisvagna, stóra
eða smáa. Það væri
enginn árangur,
aðeins það að færa
ökumenn inn í al-
menningsvagna
gæti talist árangur,
jafnvel út frá und-
arlegum forsendum borgarlínu-
manna.
Ályktunin sem umferð-
arverkfræðingurinn dregur af
reynslu annarra af borgarlínu
er að hún gefi „ekki tilefni til
bjartsýni um að markmiðið um
12% hlut almenningssam-
gangna af ferðum á höfuðborg-
arsvæðinu náist.“ Óhætt er að
segja að þetta séu mjög var-
færin varúðarorð. Hlutfallið er
nú 4% og hefur ekki breyst síð-
asta áratuginn þrátt fyrir að
stórfé hafi verið sett í almenn-
ingssamgöngur á kostnað
gatnagerðar sem hefur setið á
hakanum, nema helst þegar
kemur að því að þrengja götur.
Það þarf fjörugt ímyndunarafl í
bland við verulegan skort á
raunsæi til að trúa því að borg-
arlínan muni umbylta sam-
göngum á höfuðborgarsvæðinu
eins og áætlanir gera ráð fyrir.
Allar líkur eru á, verði borg-
arlínuverkefnið ekki stöðvað,
að sá hluti borgarlínunnar sem
tekst að leggja verði ekkert
annað en minnisvarði um rang-
hugmyndir, þvermóðsku og yf-
irgengilega sóun á almannafé.
Slík sóun kann að hafa hljómað
vel í einhverjum eyrum fyrir
nokkrum misserum þegar ein-
hverjir töldu ef til vill að góð-
ærið mundi vara að eilífu. Nú,
þegar við vitum betur, er sjálf-
sagt að staldra við og láta af
stórkarlalegum og óraunsæjum
áformum.
Ætli stuðningsmenn
borgarlínu staldri
við þegar umferðar-
verkfræðingur
stingur niður
penna?}
Hvorki reynsla né rök
mæla með borgarlínu
Baráttan umBretland, án
vopna að þessu
sinni sem betur fer,
stendur nú sem
hæst. Frelsi Breta
undan reglum Evr-
ópusambandsins, þeir hafa þeg-
ar losnað úr félagsskapnum, er
innan seilingar, en Brussel-
valdið gerir allt sem það getur til
að koma í veg fyrir að Brexit
verði í raun að veruleika.
Dagblaðið The Telegraph
hvatti um helgina þingmenn til
að láta ekki slá sig út af laginu
og samþykkja frumvarp ríkis-
stjórnarinnar um innri mark-
aðinn og Norður-Írland. Blaðið
gefur lítið fyrir þá gagnrýni sem
fram hefur komið á frumvarpið
og bendir á að ESB hafi allar
götur frá samþykkt útgöngu
Bretlands reynt að hindra að
vilji kjósenda næði
fram að ganga. Og
staðreyndin er sú að
ESB hefur reynt og
reynir enn að nota
Norður-Írland til að
koma í veg fyrir að
Bretland sleppi út úr regluverki
sambandsins þó að landið sé
komið út úr sambandinu.
Þá spyrja Bretar, meðal ann-
ars forsætisráðherrann, hvers
vegna þeir geti ekki fengið sams
konar samning við ESB og til
dæmis Kanada. Við því getur
ESB ekki gefið neitt gott svar,
því að ástæðan er sú að ESB vill
gera Bretlandi útgönguna eins
erfiða og frekast er unnt. Það er
ekki aðeins til að refsa Bretlandi
fyrir að fara, heldur fyrst og
fremst til að fleiri ríki láti ekki
verða af því að yfirgefa klúbb-
inn.
Enn er reynt að
koma í veg fyrir að
vilji kjósenda nái
fram að ganga}
Baráttan um Bretland
S
l. miðvikudag skrifaði Óli Björn
Kárason pistil í Morgunblaðið um
ógn hinna „réttlátu“ sem fjallaði um
nýja tegund stjórnmála þar sem
ógn er notuð til þess að knýja fram
þjóðfélagsbreytingar. Ég tek undir það sjón-
armið sem Óli Björn fjallar um, slík stjórnmál
eru vissulega til og eru varhugaverð. Þar með
sé ekki öll sagan sögð því Óli Björn vill greini-
lega ekki kannast við réttlátu reiðina sem ligg-
ur þar að baki.
Það er skiljanlegt að fólk bregðist að lokum
við með reiði þegar búið er að valta yfir það aft-
ur og aftur. Þegar vanda þess er mætt með
skilningsleysi og hroka hverfur þolinmæðin og
málefnalega umræðan. Þegar valdi er ítrekað
beitt í þágu fárra en ekki allra verður ósann-
girnin augljósari og alvarlegri. Það er skilj-
anlegt að sumir leiti í reiðina því þau sjá ekki málefnalega
umræðu skila neinum árangri. Því þegar valdhafar sjá al-
menna reiði, þá hljóti þau að skilja alvarleika málsins.
Vandamálið ágerist hins vegar þegar reiðinni er svarað
með hroka. Þegar eðlilegar kröfur um að valdhafar sýni
niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslu tilhlýðilega virðingu
eru hunsaðar ofbýður mörgum. Þegar ráðherra felur
skýrslu um skattaundanskot ofbýður mörgum. Þegar ráð-
herra skipar flokksgæðinga í stöður ofbýður mörgum.
Þegar láglaunafólki er ítrekað ýtt til hliðar svo aðrir geti
grætt ofbýður mörgum. Þegar sjálftaka kjörinna fulltrúa
er opinberuð ofbýður mörgum. Þegar börnum er ítrekað
hafnað ofbýður mörgum. Það er hægt að tína
til margt og þótt sumt ofbjóði fáum á meðan
annað ofbýður mörgum þá safnast þegar sam-
an kemur.
Í andrúmslofti réttlátrar reiði í garð stjórn-
valda er svo tækifæri fyrir lýðskrumara að
nýta sér pólitíska reiðibylgju og úr geta orðið
þau stjórnmál óttans sem Óli Björn varar við.
Þar þarf að varast eftirlíkingar því að utanfrá
getur verið erfitt að greina á milli þeirra sem
vilja bara komast til valda og þeirra sem vilja
raunverulega gera góðar og nauðsynlegar
breytingar. Ég hef nokkrum sinnum orðið
reiður á undanförnum árum en hef reynt að
verða ekki reiðinni að bráð. Þrátt fyrir það
legg ég mig fram við að setja fram vel ígrund-
aða gagnrýni. Auðvitað tekst það ekki alltaf, ég
er ekki fullkominn frekar en nokkur annar.
Óli Björn óttast að vakna einn daginn í hlekkjum „rétt-
látrar ógnunar“. Ég held hins vegar að hann ætti að líta í
spegil og reyna að skilja að það er einmitt hans meðvirka
sérhagsmunapólitík sem heldur fjölmörgum í slíkum
hlekkjum nú þegar. Í hlekkjum sinnuleysis, hlekkjum
ósvífni og hlekkjum valdahrokans sem ber ekki ábyrgð á
eigin mistökum heldur verður enn hrokafyllri og ósvífnari.
Í þannig hlekkjum er reiðin réttlætanleg og valdhafar
ættu að sýna þeirri reiði virðingu og skilning því annars
getur reiðin vissulega þróast út í ógn. bjornlevi@althingi.is
Björn Leví
Gunnarsson
Pistill
Réttlát reiði
Höfundur er þingmaður Pírata
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjóri:
Davíð Oddsson
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Ritstjóri og framkvæmdastjóri:
Haraldur Johannessen
neytis, auk þess sem hluti fyrstu
hæðar verði endurinnréttaður sem
almenn rými fyrir ráðuneytin fjög-
ur sem verði í húsinu framvegis. Úr
verði nútímalegt og hagkvæmt
skrifstofuhúsnæði sem hannað
verður í anda verkefnamiðaðs
vinnuumhverfis. Þar verður lögð
áhersla á að húsnæðið henti fjöl-
breyttri starfsemi og nútímalegum
vinnubrögðum. Verkefnastjóri fyrir
hönd Framkvæmdasýslunnar er
Guðmundur Möller.
Á árinu 2019 fór fram útboð á
hönnunarvinnu og urðu Yrki arki-
tektar hlutskarpastir í útboðinu.
Ætlunin er að húsnæðið verði tilbú-
ið til innflutnings í lok árs 2021.
Kostnaður við verkefnið er áætl-
aður um 850 milljónir króna.
Húsið Skúlagata 4 var reist á
sjötta áratug síðustu aldar og var
arkitekt Halldór H. Jónsson. Rík-
issjóður Íslands er eigandi hússins.
Þar var aðsetur rannsóknastofnana
hafs og fiskvinnslu. Þá var Rík-
isútvarpið þar til húsa um árabil,
eða frá 1959 til 1987.
Uppgefin stærð Skúlagötu 4 er
tæpir 4.000 fermetrar. Aðalbygg-
ingin er fimm hæðir og síðan er við-
bygging til suðurs. Áform hafa ver-
ið uppi um að byggja tvær hæðir
ofan á hana.
Alþingi samþykkti í október
2016 ályktun í tilefni aldarafmælis
sjálfstæðis og fullveldis Íslands árið
2018 um að fela ríkisstjórn að efna
til samkeppni um skipulag Stjórn-
arráðsreits. Óskað var eftir hug-
myndum um hvernig öllum ráðu-
neytum, að forsætisráðuneyti
frátöldu, dómstólum og tilteknum
stofnunum ríkisins verði fyrir kom-
ið á Stjórnarráðsreit. Hæstiréttur
er staðsettur við reitinn og horft er
til þess að Landsréttur og Héraðs-
dómur Reykjavíkur flytji þangað.
Úrslit voru tilkynnt í byrjun
desember 2018. Átta tillögur bárust
í samkeppninni. 1. verðlaun hlaut
tillaga T.ark arkitekta ehf. og SP
(R)INT Studio. Tillagan verður
lögð til grundvallar við stefnumörk-
un um framtíðarfyrirkomulag og
uppbyggingu reitsins og gerð nýs
deiliskipulags fyrir svæðið í sam-
vinnu við Reykjavíkurborg.
Tvö ráðuneyti flytja
í Sjávarútvegshúsið
Morgunblaðið/sisi
Sjávarútvegshúsið Nú þegar Hafró hefur flutt starfsemi sína í Hafnarfjörð
er verið að undirbúa flutning heilbrigðis- og félagsmálaráðuneyta þangað.
Áformað að öll ráðuneytin verði á Stjórnarráðsreit
BAKSVIÐ
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
U
ndirbúningur að flutn-
ingi ráðuneyta heil-
brigðis- og fé-
lagasmála í Sjávar-
útvegshúsið að Skúla-
götu 4 í Reykjavík er í fullum
gangi.
Heilbrigðis- og félagsmálaráðu-
neyti hafa verið í bráðabirgða-
húsnæði í Skógarhlíð 6 frá árs-
byrjun 2017, eftir að mygla hafði
uppgötvast í húsnæði ráðuneytanna
í Hafnarhúsinu. Það húsnæði er í
eigu Faxaflóahafna og stendur enn
autt. Frá þeim tíma hefur legið fyr-
ir að ráðuneytin myndu flytja í
Skúlagötu 4 að afloknum flutn-
ingum Hafrannsóknastofnunar úr
Skúlagötu í Hafnarfjörð, að sögn
Karls Péturs Jónssonar, upplýs-
ingafulltrúa Framkvæmdasýslu rík-
isins. Hafró flutti starfsemi sína í
Hafnarfjörð í sumarbyrjun 2020.
Á árinu 2017 var unnin af hálfu
Framkvæmdasýslunnar frum-
athugun á því hvort fýsilegt væri að
flytja ráðuneyti félagsmála og heil-
brigðismála í húsnæði Hafrann-
sóknastofnunar við Skúlagötu 4. Í
byggingunni eru fyrir sjávarútvegs-
og landbúnaðarráðuneyti og at-
vinnuvega- og nýsköpunarráðu-
neyti. Talsverð samlegðaráhrif eru
af sambýli ráðuneyta í einu og sama
húsinu, segir Karl Pétur.
Húsnæðið talið henta vel
Niðurstaða frumathugunar var
að húsnæðið við Skúlagötu myndi
henta vel, auk þess sem flutningur í
húsið myndi ríma vel við áform um
að byggja húsnæði fyrir önnur
ráðuneyti á svokölluðum Stjórn-
arráðsreit, sem nær frá Lindargötu
í suðri að Skúlagötu í norðri, Ing-
ólfsstræti í vestri að Klapparstíg í
austri. Fyrir á reitnum eru nú þeg-
ar nokkur ráðuneyti.
Undirbúningur framkvæmda
fór af stað að lokinni frumathugun.
Lauk áætlunargerð með samþykki
samstarfsnefndar um opinberar
framkvæmdir í júlí 2019. Ætlunin
er að breyta og endurbæta skrif-
stofuhúsnæði á 2. og 3. hæð hússins
fyrir not félags- og heilbrigðisráðu-