Morgunblaðið - 14.09.2020, Blaðsíða 20
20 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. SEPTEMBER 2020
ára. Ég sá hana fyrst fyrir mörg-
um árum í Tónó þar sem hún var
alltaf að ljúka æfingum á sama
tíma og ég og gekk út með Ár-
manni sínum og fleira fólki, alltaf
talandi og hlæjandi. Ég man að ég
hugsaði hver þessi hressa týpa
væri. Þetta var hún Haffí sem átti
síðan eftir að vera 1. flautuleikari
Sinfóníuhljómsveitar Íslands í
rúma tvo áratugi.
Við áttum alltaf gott samstarf
og á milli okkar ríkti ávallt virðing,
samkennd og vinátta. Hún var
mikil hugsjónamanneskja og vildi
sjá veg hljómsveitarinnar sem
mestan og bestan. Hún hafði
sterka sýn og sterkar skoðanir og
mér fannst alltaf svo hressandi
þegar við vorum yngri hvað hún
var ófeimin að segja hug sinn og
skoðanir á fundum og í hópum þar
sem konur voru af skornum
skammti. Hún var mikil kvenrétt-
indakona og barðist á sinn hátt
fyrir konur, þeirra rétt sem og
jafnrétti og veit að hún studdi við
bakið á ófáum kvenkyns lista-
mönnum sem voru ef til vill hik-
andi að stíga sín fyrstu skref í list-
inni. Og ég gleymi ekki þegar við
vorum ennþá í Háskólabíói og hún
var að segja mér frá sögunni sem
hún hafði skrifað um litlu músina
sem var svo hrifin af tónlist sem
mér fannst tær snilld. Og hún
safnaði nokkrum okkar inn í stúdíó
þar sem við tókum upp stefið sæta
um Maxímús. Ævintýrið um Maxa
litla fór sigurför um heiminn og ég
veit hvað hún naut þess þegar
henni gafst tækifæri til þess að
heimsækja erlendar hljómsveitir
og fylgja Maxa eftir.
Hún lék á flautuna sína á mörg-
um eftirminnilegum tónleikum
með Sinfó með sínum hreina tæra
tóni og ég veit hvað það veitti
henni mikla ánægju. Hún spilaði
með opið hjarta og gaf allt sem
hún átti. Hún var eldhugi og var
ástríðufull í sambandi við hljóm-
sveitina og gæði hennar og var
mikill leiðari í einu og öllu. Svona
fólk mætir oft mótlæti og tor-
tryggni. Eins og sannur listamað-
ur bar hún harm sinn í hljóði. Hún
var hrein og bein og reyndi ávallt
að halda sínu striki og vera í
gleðinni. Hún hafði þvílíka lífsorku
og útgeislun.
Henni hlotnaðist sú gæfa að
eiga fjölskylduna sína fallegu, hún
hélt skemmtileg partí heima hjá
sér þar sem gleðin var við völd.
Frá mínum bæjardyrum séð áork-
aði hún fleiru á sinni ævi en venju-
leg manneskja á þremur manns-
ævum. Hún hringdi í mig í vor þar
sem hún sagði mér að hún ætlaði
að segja upp stöðu sinni hjá Sinfó
til þess að við hefðum tíma fyrir
okkur að finna einhvern í hennar
stað. Svona var Haffí. Og ég minn-
ist með hlýju síðustu tónleikaferð-
arinnar sem hún kom með okkur í
sem var til Japans árið 2018. Í mín-
um huga voru þar tveir risar á tón-
listarsviðinu með okkur í hinsta
sinn. Það voru hr. Askhenasy og
Haffí.
Með sorg og söknuði kveð ég
mína kæru vinkonu og votta Ár-
manni, Gunnhildi og Tryggva
mína dýpstu samúð.
Blessuð sé minning hennar.
Sigrún Eðvaldsdóttir.
Kveðja frá Íslenska flautukórn-
um
Komið er að leiðarlokum, skarð
hefur verið höggvið í íslenskt tón-
listarlíf. Hinn fegursti tónn þagn-
aður. Hallfríður Ólafsdóttir, Haffí,
er fallin frá langt um aldur fram.
Samfylgdin þó talin í áratugum.
Margt kemur í huga og margs er
að minnast. Erfitt er að sjá á eftir
föllnum félaga, en ef maður lokar
augum má sjá hana fyrir sér, geisl-
andi af gleði og lífsorku með sitt
einstaka blik í augum.
Haffí hafði ávallt skýra sýn á
það sem hún taldi mestu máli
skipta og var einbeitt og ósérhlífin
í öllu sem hún tók sér fyrir hendur.
Alltaf jákvæð og hvetjandi og auð-
vitað frábær listamaður og lífs-
kúnstner. Haffí var einn af stofn-
félögum Íslenska flautukórsins og
var þar ötull liðsmaður alla tíð
bæði sem flautuleikari og stjórn-
andi. Hún var endalaus upp-
spretta góðra hugmynda og drif-
kraftur til ýmissa verka, en
umfram allt var hún góður vinur
og félagi. Hennar verður sárt
saknað.
Við vottum Ármanni, Gunn-
hildi, Tryggva og öllum nánum
ástvinum innilegrar samúðar og
þökkum samfylgd á langri leið.
Fyrir hönd Íslenska flautu-
kórsins,
Kristrún og Karen.
Það eru stundum undarlegir
smámunir sem geymast í minni
manns. Veturinn 1979-80 var ég
13 ára og stundaði nám við
Kvennaskólann í Reykjavík. Ég
þekkti þar fáar stelpur aðrar en
þær sem voru í bekk með mér, en
þó tók ég eftir einni í eldri bekk í
skólastofunni við hliðina á okkar
stofu. Ég talaði aldrei við þessa
stelpu, en tók eftir henni af því að
hún var oft í bol með mynd af
hundinum „Snoopy“ úr „Smáfólk-
inu“ og ég heyrði að bekkjarsyst-
ur hennar kölluðu hana Haffí.
Svo liðu 12 ár. Árið 1992 var ég
orðin 25 ára og komin í tónlistar-
nám til Parísar. Á skemmtun hjá
Íslendingum þar í borg gaf ung
kona sig á tal við mig og spurði
hvort ég hefði ekki verið í Kvennó.
Í ljós kom að þetta var stelpan í
Snoopy-bolnum sem hét þá eftir
allt saman Hallfríður, en var köll-
uð Haffí eins og ég hafði heyrt.
Kostulegt að ég skyldi muna eftir
henni út af myndinni á bolnum
hennar, því hinar stelpurnar í
bekknum hennar voru mér flestar
gleymdar.
Hallfríður stundaði nám í
flautuleik og við höfðum báðar
áhuga á sígildri tónlist. „Ættum
við ekki að fara á tónleika saman?“
sagði Haffí og svo fórum við á tón-
leika. Leikin var Ítalska sinfónían
eftir Mendelssohn og ég man
hvernig Haffí ljómaði af gleði eftir
tónleikana þegar hún sagði:
„Mikið var gaman að heyra
þetta!“
Þarna var Haffí lifandi komin,
full af gleði og áhuga, ekki síst
þegar tónlistin var annars vegar.
Svo fórum við á fleiri tónleika,
enda nóg úrval í París: Kathleen
Battle, Margaret Price, Lynn
Harrell … Stundum var Ármann,
eiginmaður Haffíar, með, en hann
stundaði nám í klarínettleik. Það
var ekki heldur lítið í það varið
þegar þau heimsóttu mig í litlu
íbúðina mína og kenndu mér að
elda hið franska „escalope de
veau“ á mjög einfaldan hátt, en
einfaldar uppskriftir eru mikil-
vægar þegar aðeins eru tvær still-
ingar á eldavélinni: kveikja og
slökkva.
Haffí og Ármann urðu mér
ómetanlegir vinir meðan á þessari
námsdvöl stóð og vináttan hélst
eftir að við vorum öll komin aftur
heim til Íslands. Þau voru oft ná-
læg á mikilvægum stundum í lífi
mínu. Þegar faðir minn var jarð-
aður haustið 1998 spiluðu þau við
jarðarförina og þegar ég gifti mig
árið eftir spiluðu þau líka við brúð-
kaupið. Við buðum hvert öðru
heim og þau voru fastir gestir í af-
mælinu mínu. Ég fylgdist svo af
aðdáun með árangri þeirra á tón-
listarsviðinu.
Þó að ég fengi fyrir skömmu að
vita að Haffí væri komin með
krabbamein lokaði ég augunum
fyrir því að það gæti farið á versta
veg. Haffí var svo kraftmikil, glöð
og jákvæð að mér fannst að hún
hlyti að sigrast á sjúkdómnum. Í
febrúar á þessu ári stjórnaði hún
hljómsveit sem flutti tónlist eftir
gleymdar konur fyrri alda. Eins
og Haffí var líkt var hún full af eld-
móði þegar hún ræddi þetta
áhugamál sitt. Ég hugsaði að
rannsóknir hennar á þessu sviði
væru rétt að byrja. En þetta var í
síðasta skiptið sem ég sá Haffí.
Um leið og ég kveð hana svona
alltof, alltof fljótt segi ég í hug-
anum, í anda ummæla hennar um
fyrstu tónleikana okkar í París:
„Mikið var gaman að ég skyldi
kynnast þér.“
Una Margrét Jónsdóttir.
„Þið hljómið eins og ein flauta“
sagði tónleikagestur í móttöku
eftir vel heppnaða tónleika Sin-
fóníuhljómsveitar Íslands í Cen-
tennial Concert hall í Winnipeg í
byrjun október árið 2000. Tón-
leikarnir voru þeir fyrstu í tón-
leikaferð hljómsveitarinnar um
Norður-Ameríku. Ég hefði ekki
getað fengið betra hrós. Ég stóð
við hlið Hallfríðar og við vorum
báðar ruggandi af flugþreytu.
Tveimur mánuðum fyrr hafði ég
unnið prufuspil um afleysinga-
stöðu 2. flautu í hljómsveitinni og
var því frekar nýlega sest við hlið
Hallfríðar Ólafsdóttur leiðara
flautudeildarinnar. Kannski var
það enski skólinn eða bara ein-
hver andlegur skyldleiki en um
leið og ég settist við hlið Hallfríð-
ar þá fannst mér svo auðvelt að
falla inn í flæðið með henni og
stemma við tóninn hennar. Við
Haffí áttum margar ógleyman-
legar stundir saman á sviðinu
enda fátt jafnast á við að vera
hluti af samhljómi heillar sinfón-
íuhljómsveitar.
En Haffí var ekki bara frábær
flautuleikari. Hún var kennari af
guðs náð og vildi fræða. Eftir að
ég tók við stöðu tónleikastjóra
Sinfóníuhljómsveitarinnar var
fræðslustarf hljómsveitarinnar
okkur báðum hugleikið. Saman
unnum við að frumflutningi tón-
leikasögunnar Maxímús Músíkús
heimsækir hljómsveitina vorið
2008, sem Hallfríður samdi og
Þórarinn Már Baldursson víólu-
leikari myndskreytti. Viðtökurn-
ar á fyrstu leikskólatónleikunum
gáfu strax til kynna að Maxi
myndi slá í gegn. Ein Maxaminn-
ing er frá tónleikum sem fram
fóru á norrænu menningarhátíð-
inni Nordic Cool sem haldin var í
Kennedy Centre í Washington
árið 2013 þegar tæplega 3.000
börn kölluðu Maxa á svið af slíkri
ákefð að þakið ætlaði að rifna af!
Á einni af síðustu ljósmyndun-
um sem ég tók af Haffí stendur
hún fyrir framan Walt Disney-
tónleikahöllina í Los Angeles í
apríl 2017. Á myndinni er hún al-
sæl og sæt eftir vel heppnaðan
frumflutning á síðustu Maxasög-
unni, Maxímús fer á fjöll, með
Los Angeles-fílharmóníunni sem
hafði ásamt SÍ pantað verkið í
tengslum við tónlistarhátíðina
Reykjavik 2017. Við vorum ansi
kátar þennan dag. Hvoruga okk-
ar hefði órað fyrir því þegar við
hófum samstarf okkar 17 árum
fyrr að við myndum einn dag
standa þarna, fyrir utan eitt
magnaðasta tónlistarhús heims, í
samstarfi við þá allra fremstu í
tónlistarheiminum, hún sem höf-
undur og ég sem framkvæmda-
stjóri SÍ.
Nokkrum mánuðum síðar
greindist Hallfríður með illkynja
krabbamein. Mér datt aldrei
annað í hug en að hún myndi
sigrast á því eins og öllu öðru sem
hún tók sér fyrir hendur. Hún
hafði snúið sér að hljómsveitar-
stjórnun og hefði án efa náð langt
á þeim vettvangi enda viðhorf
hins karllæga sinfóníska heims
loksins tekið að breytast. Það er
mikill missir fyrir íslenskt tón-
listarlíf að hæfileika Hallfríðar
njóti ekki lengur við. Mestur er
þó missir fjölskyldu hennar, eig-
inmanns og barna því þrátt fyrir
alla hennar starfsorku og afrek
var alltaf ljóst að það var fólkið
hennar sem skipti hana mestu
máli. Þeim sendi ég mínar inni-
legustu samúðarkveðjur. Bless-
uð sé minning Hallfríðar Ólafs-
dóttur.
Arna Kristín Einarsdóttir,
fyrrverandi framkvæmda-
stjóri Sinfóníuhljómsveitar
Íslands og flautuleikari.
Hallfríður Ólafsdóttir
Látinn er góður
vinur minn og koll-
ega, Oddur Rúnar
Hjartarson dýra-
læknir. Hann fædd-
ist 8. maí árið 1931 í Vatnsholti í
Grímsnesi en ólst upp í Reykja-
vík. Hann sofnaði burt úr heimi
aðfaranótt 4. ágúst 2020 eftir
vanheilsu um nokkurt skeið,
aldrei kvalinn og hlaut hægt and-
lát l.s.g.
Oddur Rúnar brautskráðist
frá Dýralæknaskólanum í Ósló
árið 1959 og var héraðsdýra-
læknir á Hvanneyri 1960-1978.
Eftir það gerðist hann fram-
kvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits
(Hollustuvernd) ríkisins og
gegndi því embætti til 2001.
Hann var sífellt að bæta við sig
þekkingu, dvaldi erlendis við
nám til undirbúnings starfi sínu
við heilbrigðis- og hollustueftirlit
matvæla í Noregi, Danmörku,
Svíþjóð, Finnlandi og Bandaríkj-
unum. Hann var stundakennari
og prófdómari við Bændaskólann
Oddur Rúnar
Hjartarson
✝ Oddur Rúnarvar fæddist 8.
maí 1931. Hann lést
4. ágúst 2020. Odd-
ur Rúnar var jarð-
sunginn 19. ágúst
2020 í kyrrþey.
á Hvanneyri 1960-
1970 og stunda-
kennari í heilbrigð-
isfræðum við
læknadeild Háskóla
Íslands 1984-1994.
Auk þess starfaði
hann við ýmis verk-
efni á sviði mann-
heilsu og hollustu-
hátta. Oddur Rúnar
var keppnisharður
íþróttamaður á
yngri árum og keppnisgleðinni
hélt hann ævina út.
Það kom fljótt í ljós, að hann
var glöggskyggn, góður og vel
látinn dýralæknir, vaskur, vík-
ingsduglegur og hjálparhraður.
Hann var afburða samviskusam-
ur og reglusamur í embættis-
færslu sinni sem héraðsdýra-
læknir og skilaði ætíð
starfsskýrslum sínum reglulega
og fljótt. Það mátti ekki á milli
sjá hvor af öðrum bar í þeim efn-
um, hann eða Karl Kortsson
dýralæknir á Hellu með sína
þýsku og lofsverðu skyldurækni.
Í starfi sínu við heilbrigðis- og
hollustuvernd sýndi hann sömu
nákvæmni og reglusemi og áður.
Hann þoldi ekki losaraleg vinnu-
brögð eða kæruleysi í málum
sem heyrðu undir hann. Hann
tók á og fylgdi eftir því sem gera
þurfti þegar nauðsynlegt var
með ákveðni, en þó með skiln-
ingi.
Við Oddur Rúnar þekktumst
vel og lengi og vináttan var
óbrigðul. Það var gleðistund í
hvert sinn er við hittumst. Oddur
Rúnar var frábær félagi, fræðari
og vinur. Ég kynntist honum og
yndislegri fjölskyldu hans þegar
ég lauk námi 1968 og tók þá
strax við héraðinu, sem var víð-
áttumikið með fjölbreyttan og
blómlegan búskap. Það var gott
að koma til Odds Rúnars og
leysa hann af þegar hann fór út
til náms. Allt var í röð og reglu
og maður gekk inn í starfið eins
og ekkert væri sjálfsagðara.
Kona hans, Soffía Ágústsdóttir,
hugulsöm og myndarleg, lét sig
ekki muna um að taka mig inn á
heimilið þennan tíma. Ég varð
fljótt einn af þeim og hef unað
því hlutskipti vel síðan. Ég
kynntist börnum þeirra vel gerð-
um og vel gefnum: Ágústi, Krist-
jáni, Hirti, sem allir luku lækn-
isprófi, búsettir hérlendis, og
Sóleyju Hildi, sem gerðist kenn-
ari búsett erlends, lengi í París.
Þau Soffía og Oddur Rúnar urðu
fyrir því mikla áfalli að missa tvö
yngri börnin sín á besta aldri;
Hjört úr hvítblæði og Sóleyju
Hildi af slysförum. Djúp og
þungbær var sorg okkar allra.
Ég samhryggist þessari góðu
og samhentu fjölskyldu og sendi
hlýjar kveðjur okkar Ólafar
Erlu.
Sigurður Sigurðarson
dýralæknir frá Keldum.
Rafnar frændi
og Ellý hafa verið
samofin æsku-
minningum mínum frá því ég
var fimm ára gömul en þá lést
móðir mín 32 ára gömul frá sjö
börnum. Þau hjón tóku Þor-
gerði litlu systur þá ársgamla í
Rafnar Arndal
Sigurðsson
✝ Rafnar ArndalSigurðsson
fæddist 28. desem-
ber 1935. Hann lést
20. ágúst 2020.
Útför hans fór
fram frá Áskirkju í
kyrrþey að ósk hins
látna.
fóstur. Ýmislegt
er mér óljóst frá
þessu tímabili en
þó man ég eftir
þegar mamma var
jörðuð og lítilli
stelpu sem skreið
á eftir pabba
hvert sem hann
fór. Við erum
þakklát fyrir
hversu yndislega
foreldra Þorgerð-
ur eignaðist. Ég minnist heim-
sókna til Reykjavíkur og gist-
um við oft hjá þeim og nutum
samvista við systur mína.
Rafnar, Ellý og Þorgerður
komu líka oft til okkar heim á
Hellu.
Mig langar að þakka Rafnari
og Ellý hvað þau voru Þorgerði
góð og frábærir foreldrar og
áttu sinn þátt í því hvað hún er
ljúf og yndisleg og hafa stutt
hana vel og dyggilega alla tíð.
Þorgerður og fjölskylda er dýr-
mætur hlekkur í okkar fjöl-
skyldu og einstök vinkona mín
og frábær systir.
Pabbi Kristján, eins og Þor-
gerður kallar pabba okkar, bið-
ur fyrir kveðjur og þakkar
þeim hjónum Rafnari og Ellý
einstakan vinskap, elsku og
umhyggju fyrir dóttur sinni.
Hvíldu í friði kæri Rafnar.
Elsku Ellý, Þorgerður systir,
Þorgeir, Elína Dís, Axel Þór og
Anney Fjóla, ykkur votta ég
mína dýpstu samúð, minningin
lifir um góðan mann.
Dýrfinna Kristjánsdóttir.
„Halló, þetta er
Maggi litli, viltu
koma út að leika?“
Þessi glað-
hlakkalega kveðja hljómar ekki
framar.
Nú er Maggi litli farinn að
gantast við englana í Paradís.
Við kynntumst í „Bræðslunni
hans pabba“, eins og hann kall-
aði Síldarverksmiðjur ríkisins í
gríni. Föður hans forstjóranum
fannst það hlyti að taka mesta
galsann úr stráknum að senda
hann á loðnuvertíð austur á
Seyðisfjörð.
Við urðum fljótt vinir, ég
næturvörður og matráður og
hann að vinna á vöktum á rann-
sóknarstofunni. Þessi ljóshærði
skemmtilegi unglingur varð
hvers manns hugljúfi og lífgaði
upp á eintóna verksmiðjulífið
með uppátækjum og glaðværð.
Magnús Reynir
Jónsson
✝ Magnús ReynirJónsson fædd-
ist 22. október
1956. Hann lést 28.
ágúst 2020.
Útför hans fór
fram 10. september
2020.
Vetrarvertíðin varð
að lífslöngu vin-
áttusambandi, ekki
bara við mig heldur
fjörðinn og fólkið.
Þótt hann byggi
í Reykjavík fylgd-
ist hann af lifandi
áhuga með öllu
sem gerðist í bæn-
um, hringdi nær
daglega og spurði
frétta eða sagði
mér fréttir sem var oftar raun-
in. Allir í bænum þekktu Magga
litla sem gat fengið alvöru-
gefnasta fólk til að brosa út í
annað og yfirleitt bæði.
Hann fann sjálfur upp á
nafnbótinni „litli“, held ég til að
standa vörð um barnið í sér og
til að minna sig og aðra á að líf-
ið er oft skemmtilegra en við
höldum. Hversdagslegustu hlut-
ir eins og innkaupaferð í Kaup-
félagið gátu umbreyst í galsa-
fenginn leik þar sem allir
viðstaddir urðu sjálfkrafa þátt-
takendur.
En hann var ekki bara grall-
araspói.
Maggi var afar fær og list-
rænn ljósmyndari. Þess fengum
við að njóta hér eystra. Mynda-
sería af fjölda Seyðfirðinga er
einstakt listaverk og myndirnar
sem hann tók í Húsasögu Seyð-
isfjarðarkaupstaðar voru ómet-
anlegt framlag til þeirrar bók-
ar.
Hann fékkst líka við auglýs-
ingamyndatökur fyrir stofnanir
og fyrirtæki. Þar naut hug-
myndaauðgi hans og listfengi
sín vel. Það eru mér dýrmætar
minningar þegar við félagarnir
hjálpuðumst að við að stilla upp
sviðsmyndum fyrir þessar
myndatökur. Þar voru ekki allt-
af fetaðar troðnar slóðir.
Listfengi Magga litla birtist
líka þegar hann réðst í það að
koma þaki yfir höfuð litlu fjöl-
skyldunnar í Víðihlíð. Þar vann
hann flest verk sjálfur og skap-
aði einstaklega fallegt heimili í
lit og ljóma.
Það var þungbært að fylgjast
með erfiðum veikindum tæra
þennan glaðværa vin minn upp
hægt og bítandi. Þungbærast
var það elsku Veigu og börn-
unum sem stóðu æðrulaus og
sterk með honum allt til enda.
Megi góður guð og góðar vættir
vera með þeim í sorginni.
Það er hreint furðulegt að
hugsa sér veröldina án Magga
litla.
Hann er og verður einhvern
veginn alls staðar nálægur.
Þóra Bergný
Guðmundsdóttir.