Morgunblaðið - 14.09.2020, Blaðsíða 22
22 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. SEPTEMBER 2020
Atvinnuauglýsingar
Blaðberar
Upplýsingar veitir í síma
Morgunblaðið óskar eftir
blaðbera
k
Raðauglýsingar
Félagsstarf eldri borgara
Árskógar 4 Leikfimi með Hönnu kl. 9. Opin vinnustofa kl. 9-12.
Opinn handavinnuhópur kl. 12-16. Sýnum Stikluþátt kl. 14.
Hádegismatur kl. 11.40-12.50. Kaffisala kl. 14.45-15.30. Heitt á
könnunni. Allir velkomnir. s: 411 2600.
Boðinn Hádegismatur frá kl. 11.20-12.30. Gönguhópur kl. 10.30.
Myndlist kl. 13. Í Boðanum er heitt á könnunni allan daginn og allir
velkomnir.
Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffi og spjall við hringborðið kl.
8.50-11. Skráning á þátttökulista fyrir vetrarstarfið er á skrifstofunni kl.
8.50-16. Útvarpsleikfimi kl. 9.45. Ganga kl. 10. Hádegismatur kl. 11.30-
12.30. Myndlistarnámskeið Margrétar kl. 12.30-15.30. Síðdegiskaffi kl.
14.30-15.30. Allir velkomnir óháð aldri og búsetu. Nánari upplýsingar
í síma 411 2790.
Garðabæ Hægt er að panta hádegismat með dags fyrirvara. Meðlæti
með síðdegisk. er selt frá kl. 13.45-15.15. Gönguh. frá Jónshúsi kl. 10.
Gönguhópur fer frá Smiðju kl. 13. Zumba í Kirkjuhvoli kl. 16.30 og
17.15. Stólajóga í Jónshúsi kl. 11.
Gerðuberg 3-5 111 RVK Kl. 8.30-16, opin handavinnustofa, kl. 9-16
útskurður m/leiðbeinanda (Grænagróf), kl. 11 leikfimi Helgu (Háholt),
kl. 13-15 kóræfing (Háholt).
Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 9.30 postulínsmálun, kl. 10.50 Jóga,
heitt á könnunni frá kl. 8.30 til 16.30.
Hraunbæ 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9.
Opin handavinna kl. 9-14. Hádegismatur kl. 11.30. Sögustund kl.
12.30-14. Samsöngur kl. 14.15-15.
Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall kl. 8.30-10.30.
Útvarpsleikfimi kl. 9.45. Minningahópur kl. 10.30. Jóga með Ragn-
heiði kl. 11.10 og kl. 12.05. Tálgun – opinn hópur kl. 13-16. Spilað kl. 13.
Stólaleikfimi 13.30.
Korpúlfar Hugleiðsla og létt yoga með Ingibjörgu Friðbertsd. hefst í
dag kl. 9 í Borgum, þátttökuskráning. Ganga kl. 10 gengið frá Borgum
og Grafarvogskirkju, kaffispjall á eftir. Prjónað til góðs í listasmiðju í
Borgum kl. 13 í dag allir velkomnir í hópinn. Virðum samfélags-
sáttmálann og höfum gaman saman. Tréútskurðurinn á
Korpúlfsstöðum hefst á ný á fimmtudaginn 17. sept. kl. 13.
Samfélagshúsið Vitatorgi Leirmótun hefst kl. 9 í dag. Þá verður
núvitund í handverksstofu kl. 10 - æfum okkur í að róa hugann. Eftir
hádegi, kl. 13 er Handaband í handverksstofu. Þá verður lagt af stað í
létta gönguferð frá Vitatorgi kl. 15. Hlökkum til að sjá ykkur!
Seltjarnarnes Gler á neðri hæð félagsheimilisins kl. 9. Leir á
Skólabraut kl. 9. Billjard í Selinu kl. 10. Krossgátur og kaffi í króknum á
Skólabraut kl. 10.30. Jóga í salnum á Skólabraut kl. 11. Handavinna,
samvera og kaffi í salnum á Skólabraut kl. 13 -16. Ath. búið er færa
vatnsleikfimina yfir á þriðjudaga á sama tíma kl. 18.30.
Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10-16. Heitt á
könnunni frá kl. 10-11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá
kl. 11.30-12.15 og panta þarf matinn fyrir helgi. Kaffi og meðlæti er til
sölu frá kl. 14.30-15.30. Allir velkomnir. Síminn í Selinu er: 568 2586.
atvinna@mbl.is
Pantaðu pláss fyrir þína atvinnuauglýsingu á
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Húsviðhald
með
morgun-
nu
✝ Sigríður Jens-ína Gunn-
arsdóttir
fæddist á fæð-
ingardeild Land-
spítalans í Reykja-
vík þann 27.
nóvember 1966.
Hún lést á
Hvammstanga
þann 3. september
2020. Foreldrar
hennar eru Gunn-
ar Guðmundur Bjartmarsson,
fæddur í Neskaupstað 22.02.
1940, og Ása Sigríður Gunn-
arsdóttir, fædd á Ísafirði 13.07.
1946. Systkini Sigríðar Jensínu
og Benjamín Elí. Bjartmar Már
Björnsson og sambýliskona
hans er Lára Björk Elíasdóttir.
Börn þeirra eru Elísa Bjarney,
Klara Dís, Björt Rún og Marín
Mjöll. Vilhjálmur Freyr Björns-
son kvæntur Emelíu Birtu Jó-
hannsdóttur og sonur þeirra er
Björn Leví. Ása Soffía Björns-
dóttir gift Hjörvari Kjart-
anssyni og börn þeirra eru Elía
Von, Elísabet Elma, Alvar Örn
og Bjartmar Elí.
Berglind Ósk Gunnarsdóttir,
fædd 19.12. 1978. Börn hennar
eru Birta Líf, Alexander Blær
og Guðný Björt.
Sigríður bjó í Kópavogi
þangað til hún flutti norður,
fyrst á Gauksmýri, svo á
Hvammstanga þar sem hún
lést.
Útförin fer fram frá Digra-
neskirkju mánudaginn 14. sept-
ember 2020 klukkan 13.
eru Ásólfur Bjart-
mar Gunnarsson
fæddur, 31.12.
1962, Valgeir
Magnús Gunn-
arsson, fæddur
18.02. 1965, látinn
22.12. 2000, Guð-
rún Hlíf Gunn-
arsdóttir, fædd
16.04. 1972. Hún
var gift Birni Vil-
hjálmssyni en er
fráskilin. Börn þeirra eru
Böðvar Sigurvin Björnsson og
sambýliskona hans er Aníta
Róbertsdóttir og börn þeirra
eru Alexander Logi, Aþena Líf
„Komdu sæl/sæll og góðan
daginn, velkomin á vaktina!“
Svona tók Sigga iðulega á móti
okkur starfsfólkinu þegar við
mættum til vinnu, er hún sat á
ganginum og beið eftir að við
kæmum. Hún tók alltaf vel á móti
hverjum þeim sem á vegi hennar
varð, var ófeimin við að kynna sig
og spjalla um heima og geima.
Sigga var líka mikill sælkeri og
naut þess að borða góðan mat og
ekki var verra að fá vel sætt
bakkelsi með kaffibollanum. Hún
hafði gaman af að taka í spil og
líklega munum við flest hér eftir
segja „ólsen-pass“ á viðeigandi
stöðum þegar við spilum ólsen-
ólsen.
Sigga var mikill tónlistarunn-
andi og yfirleitt var hún með tón-
list í gangi á mörgum vígstöðvum
í einu í íbúð sinni. Það var kveikt
á Youtube í tölvunni sem og far-
símanum, útvarpið var jafnvel í
gangi líka og sjónvarpið. Henni
fannst ekkert mál að hlusta á
svona margt í einu og þó að okkur
fyndist það með ólíkindum að
geta náð að einbeita sér að ein-
hverju tilteknu þá átti hún ekki í
nokkrum vandræðum með það;
hún sagðist bara hlusta á það sem
hún vildi heyra.
Við vorum svo lánsöm að ná að
fara öll saman í ferð til Tenerife á
síðasta ári. Þar naut Sigga sín í
botn. Hún drakk litríka kokteila,
fór í búðarferðir og dansaði svo á
kvöldin eins og enginn væri
morgundagurinn. Ef það var ein-
hver sem vildi lifa og njóta og
gera það með stæl – þá var það
það hún Sigga okkar. Við vorum
öll þakklát og glöð að þessi ferð
skyldi takast svona vel og Sigga
talaði oft um að hana langaði að
fara aftur.
Þrátt fyrir að Sigga hafi oft
þurft að ganga grýtta slóð á sinni
ævi sá hún alltaf það góða í lífinu
og aldrei lét hún styggðaryrði
falla um nokkurn mann.
Það er með miklum söknuði og
trega sem við kveðjum hana
Siggu okkar. En á sama tíma
brosum við gegnum tárin og
gleðjumst yfir því að hafa fengið
að kynnast henni og fá að vera
hluti af lífi hennar.
Mér finnst ég varla heill né hálfur
maður
og heldur ósjálfbjarga, því er verr.
Ef værir þú hjá mér vildi ég glaður
verða betri en ég er.
Eitt sinn verða allir menn að deyja.
Eftir bjartan daginn kemur nótt.
Ég harma það en samt ég verð
að segja,
að sumarið líður allt of fljótt.
Við gætum sungið, gengið um,
gleymt okkur með blómunum.
Er rökkvar ráðið stjörnumál.
Gengið saman hönd í hönd,
hæglát farið niður á strönd.
Fundið stað, sameinað beggja sál.
Horfið er nú sumarið og sólin,
í sálu minni hefur gríma völd.
Í æsku léttu ís og myrkur jólin;
nú einn ég sit um vetrarkvöld.
Eitt sinn verða allir menn að deyja.
Eftir bjartan daginn kemur nótt.
Ég harma það en samt ég verð
að segja,
að sumarið líður allt of fljótt.
Ég gái út um gluggann minn
hvort gangir þú um hliðið inn.
Mér alltaf sýnist ég sjái þig.
Ég rýni út um rifurnar.
Ég reyndar sé þig alls staðar.
Þá napurt er, það næðir hér
og nístir mig.
(Vilhjálmur Vilhjálmsson)
Aðstandendum sendum við
okkar innilegustu samúðarkveðj-
ur.
Starfsfólk heimilisins Grund-
artúni 10,
Maríanna Eva
Ragnarsdóttir.
Sigríður Jensína
Gunnarsdóttir
✝ Stefán fæddistí Stóradal í
Djúpadal, Eyja-
firði, 16. október
1919. Hann lést á
Dvalarheimilinu
Hlíð Akureyri 16.
ágúst 2020. For-
eldrar: Lilja Jó-
hanna Stef-
ánsdóttir, f. 31.10.
1894, d. 21.10.
1930, og Sigurður
Stefánsson, f. 5.9. 1889, d.
19.10. 1983. Systur hans:
Helga Sigríður Sigurð-
ardóttir, f. 10.1. 1916, d. 29.3.
1932, Hekla Sigurðardóttir, f.
29.12. 1927, d. 4.4. 1930.
Maki: Annalísa Helga Sigurð-
ardóttir, f. 4.9. 1934, d. 5.5.
2000, gift 17.6. 1955. Dætur
þeirra: Lilja, Helga og Sóldís.
1) Lilja Stefánsdóttir, f. 26.9.
1955, maki Karl J. Guðmunds-
son, f. 9.10. 1948, börn þeirra:
Svana og Stefán. Svana
Karlsdóttir, f. 4.4. 1979, sam-
býlismaður Stefán Dagbjarts-
son, f. 1.3. 1963,
þau slitu sam-
vistum 2009.
börn þeirra: Sól-
ey Lilja, f. 10.7.
1999, Einar Logi,
f. 18.1. 2002,
Dagur Karl, f.
7.7. 2006. Stefán
Karlsson, f. 9.9.
1981. 2) Helga
Stefánsdóttir, f.
26.9. 1955, d.
29.1. 2019. 3) Sóldís Stef-
ánsdóttir, f. 11.4. 1960, sam-
býlismaður Aðalsteinn S. Sig-
fússon, f. 10.3. 1960, þau slitu
samvistum 2004, börn þeirra:
Katla, Sigurður Ormur og
Atli Sigfús. Katla Aðalsteins-
dóttir, f. 1.2. 1986, maki
Michael A. Boudreau, f. 9.3.
1977, Sigurður Ormur Að-
alsteinsson, f. 8.5. 1996, Atli
Sigfús Aðalsteinsson, f. 17.7.
2003.
Útförin fór fram í kyrrþey
að ósk hins látna í Akureyr-
arkirkju 4. september 2020.
Pabbi, að fylgja þér í gegnum
gleymskuna var bæði skemmti-
legt og sárt.
En þú hafðir húmor fyrir
sjálfum þér allt til enda og við
hlógum oft saman. Mikil bless-
un það.
Pabbi, þú varst yndislegur í
alla staði, lékst við okkur syst-
urnar, við fórum í ótal hjólatúra
og fjallgöngur saman, sem ég
og börnin mín stundum enn.
Náttúran, heimspeki, bók-
menntir, skák og þjóðfélagsmál,
allt þín hugðarefni. Þú elskaðir
sveitina þína og sagðir okkur
frá barnæsku þinni í Stóradal
og Kambfelli. Hvernig þú og
Helga systir þín rákuð einu
kúna í Kambfelli inn Hraun-
árdalinn í hagann. Hvernig það
var að sitja, skelfdur snáði, fyr-
ir framan mömmu þína á hest-
baki yfir straumharða Hagána í
leysingum. Mörgum áratugum
seinna gengum við fjölskyldan
fram í Kambfell og sátum á
gömlu bæjartóftunum og þú
lífgaðir rústirnar við með lif-
andi lýsingum þínum.
Alltof ungur varðstu fyrir
mikilli sorg, þú misstir báðar
systur þínar og móður, en eins
og svo margir upplifðu á tímum
berklanna var höggvið stórt
skarð í margar fjölskyldur.
Engin áfallahjálp var til staðar
í þá daga, menn báru harm
sinn í hljóði.
Pabbi, þú varst hatrammur
bindindismaður, samviskusam-
ur, árrisull og síðast en ekki
síst skemmtilegur ferðafélagi.
Það var gott að alast upp heima
í Þór. 118, hjá ykkur mömmu.
Pabbi, ég minnist þín með
gleði og þakklæti, nú trónir þú
á fjallstindi og hefur útsýni til
allra átta.
Pabbi
Ég minnist handa þinna,
sem struku mér um vangann.
Armar þínir báru mig veika um
nætur
og þú raulaðir vísur með þinni
djúpu rödd.
Ef ég hlusta heyri ég söng þinn
og enn verður mér hugarhægra.
Stóra hlýja höndin þín, sem hélt
í mína
og leiddi mig þangað sem ferðinni
var heitið.
Þín dóttir,
Sóldís.
Í dag verður hann Stefán, afi
barnanna minna þriggja, lagður
til hvíldar í sína eyfirsku mold
og með honum mikil saga og
löng. Hann var fæddur árið eft-
ir að Ísland varð fullvalda ríki
og fyrri heimsstyrjöldinni lauk.
Eins og margir af hans kynslóð
lifði Stefán í raun þúsund ár,
allt frá því að alast upp í ey-
firskum afdal við skilyrði mun
líkari þeim sem ríktu við land-
nám en nú eru, og fram á okkar
firrtu gervigreindardaga. Hann
fékk úthlutað ríkulega af
grimmd heimsins strax í
bernsku þegar berklar herjuðu
á fjölskylduna með hörmuleg-
um afleiðingum. En hann lifði í
heila öld.
Leiðir okkar Stefáns lágu
saman allt frá því að ég og
yngsta dóttir hans og Önnu
Lísu, Sóldís, fórum að draga
okkur saman og þangað til við
svo skildum tæpum aldarfjórð-
ungi síðar og ég flutti á annað
landshorn. Allan þann tíma
hafði ég mikið saman við
tengdaforeldrana að sælda, því
eldri börnin okkar Sóldísar áttu
hjá þeim annað heimili og
griðastað – hjá afa og ömmu.
Þar sem Stefán var óþreytandi
að gauka að þeim fróðleik og
bókum eða kenna þeim mann-
ganginn og tefla við þau tím-
unum saman. Hann var afi sem
talaði lágum rómi, gekk í
prjónavesti og inniskóm og var
hlýr og gjafmildur. Eins og af-
ar eru í bókum. Enda var Stef-
án meira og minna í bókum,
ekki síst eftir að langri starfs-
ævi hjá skóverksmiðjunni Ið-
unni lauk.
Aldrei tefldi ég við Stefán,
enda liðónýtur í þeirri kúnst,
en saman áttum við áhugann á
trjám og skógrækt, reynsluna
af kyrrð öræfanna og tign
fjallanna. Og bókaástríðuna.
Um þessa hluti gátum við kjaft-
að tímunum saman og í mínum
hillum eru þær enn ófáar, bæk-
urnar sem hann gaukaði að
mér gegnum tíðina. Sumar af
því hann vildi ég læsi þær, aðr-
ar af því honum fannst þær
eiga heima í mínum fórum.
Ófáum skópörunum sleit ég
sem hann gaukaði að mér –
smávægilega útlitsgölluðum Ið-
unnarskóm sem hann gat
ómögulega fengið af sér að
henda eins og fyrir var lagt.
Slíkt væri sóun.
Ást hans á landinu var
fölskvalaus og það var auðvelt
að gleyma sér við að hlusta á
hann rifja upp hálendisferðalög
með Ferðafélagi Akureyrar frá
árdögum bílferða um hálendið
norðan jökla. Þar sem hver
ferð var landkönnunarleiðangur
og jafnvel þurfti að bera bílkríl-
in á höndum yfir verstu höftin
ef ekki náðist að vinna á þeim
með járnkarli og haka. Fjöllin
seiddu hann sannarlega til sín
og kalli þeirra hlýddi hann fús-
lega. Kannski var hans fíkn sú
að standa á Súlum, einn að
morgni dags og horfa yfir
Eyjafjörð. Svo er að sjá sem
eldri börnin mín hafi erft frá
honum og móður sinni þessa
bráðhollu ástríðu til fjallanna –
sem er sannarlega þakkarvert.
Stefáni var ekki kappsmál að
fylgja tísku og tíðaranda heldur
fór sínar eigin leiðir. Lengst af
í fylgd sinnar ágætu dönsku
eiginkonu og móður dætranna
þriggja, Önnu Lísu. En nú er
göngu Stefáns Sigurðssonar
lokið og komið að langþráðri
hvíld í áfangastað. Ég kveð
þennan sérvitra öðling í hinsta
sinn með væntumþykju og
þökk fyrir samfylgdina. Afkom-
endum hans og ástvinum öllum
votta ég samúð mína.
Aðalsteinn Svanur
Sigfússon.
Stefán Sigurðsson
HINSTA KVEÐJA
Elsku afi, takk fyrir að
hafa alltaf haft tíma til að
spila með mér veiðimann
eða bobb, föndra, kenna
mér að tefla og bera virð-
ingu fyrir bókum og pappír,
labba með mér út um allar
trissur og upp á fjöll og fyr-
ir að eiga alltaf súkku-
laðimola.
Katla
Aðalsteinsdóttir.