Morgunblaðið - 14.09.2020, Qupperneq 26
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. SEPTEMBER 2020
Pepsi Max-deild karla
KR – Stjarnan........................................... 1:2
KA – Fylkir ............................................... 2:0
FH – Breiðablik........................................ 3:1
HK – ÍA ..................................................... 3:2
Valur – Víkingur R. .................................. 2:0
Staðan:
Valur 13 10 1 2 30:12 31
Stjarnan 12 6 6 0 20:10 24
Breiðablik 13 7 2 4 29:21 23
FH 12 7 2 3 25:17 23
Fylkir 14 7 1 6 21:20 22
KR 12 6 2 4 23:17 20
HK 14 5 2 7 24:30 17
Víkingur R. 12 3 5 4 19:20 14
ÍA 13 4 2 7 29:32 14
KA 13 2 8 3 11:14 14
Grótta 13 1 3 9 10:27 6
Fjölnir 13 0 4 9 11:32 4
Lengjudeild karla
Víkingur Ó. – Grindavík........................... 2:2
ÍBV – Keflavík .......................................... 1:3
Afturelding – Þór ..................................... 2:3
Leiknir R. – Leiknir F ............................. 2:1
Fram – Vestri ........................................... 1:1
Magni – Þróttur R.................................... 1:1
Staðan:
Fram 15 9 5 1 34:20 32
Keflavík 14 9 3 2 44:21 30
Leiknir R. 15 9 2 4 35:20 29
ÍBV 15 6 7 2 26:19 25
Þór 15 7 2 6 29:27 23
Grindavík 14 5 7 2 29:25 22
Vestri 15 5 5 5 20:21 20
Víkingur Ó. 15 4 4 7 21:34 16
Afturelding 15 4 3 8 30:26 15
Þróttur R. 15 3 3 9 12:28 12
Leiknir F. 15 3 2 10 16:34 11
Magni 15 2 3 10 16:37 9
2. deild karla
Selfoss – ÍR............................................... 3:1
Njarðvík – Kári......................................... 2:0
Þróttur V. – KF ........................................ 4:0
Kórdrengir – Fjarðabyggð...................... 1:0
Haukar – Dalvík/Reynir .......................... 3:0
Staða efstu liða:
Kórdrengir 16 11 4 1 30:10 37
Selfoss 16 12 1 3 29:15 37
Njarðvík 16 10 3 3 31:19 33
Þróttur V. 16 9 4 3 30:16 31
Haukar 16 10 0 6 32:21 30
3. deild karla
Elliði – Höttur/Huginn ............................ 3:2
Reynir S. – Vængir Júpíters ................... 5:2
KV – Sindri ............................................... 5:1
Tindastóll – Ægir ..................................... 1:1
Augnablik – Álftanes ............................... 3:1
Einherji – KFG......................................... 3:2
Staða efstu liða:
KV 15 11 1 3 43:21 34
Reynir S. 15 10 2 3 46:27 32
Augnablik 15 7 4 4 33:27 25
KFG 15 6 4 5 30:27 22
Pepsi Max-deild kvenna
KR – Selfoss.............................................. 0:5
ÍBV – Fylkir.............................................. 2:2
Þór/KA – Breiðablik................................. 0:7
Stjarnan – Valur ....................................... 0:3
Þróttur R. – FH........................................ 2:2
Staðan:
Valur 14 12 1 1 36:10 37
Breiðablik 13 12 0 1 57:3 36
Fylkir 13 5 5 3 21:21 20
Selfoss 13 6 1 6 21:15 19
ÍBV 14 5 2 7 15:28 17
Stjarnan 14 4 2 8 22:33 14
FH 14 4 1 9 15:32 13
Þróttur R. 14 2 6 6 20:33 12
Þór/KA 14 3 3 8 17:36 12
KR 11 3 1 7 14:27 10
Lengjudeild kvenna
Haukar – Grótta ....................................... 2:1
Völsungur – Víkingur R........................... 1:4
Keflavík – Afturelding ............................. 1:0
Fjölnir – Tindastóll .................................. 0:3
Staða efstu liða:
Tindastóll 13 11 1 1 37:5 34
Keflavík 13 9 3 1 33:12 30
Haukar 12 7 2 3 20:12 23
Grótta 13 5 4 4 16:18 19
2. deild kvenna
ÍR – Fjarðab/Höttur/Leiknir.................. 2:5
Sindri – Grindavík .................................... 0:4
Álftanes – Hamrarnir .............................. 3:0
Staða efstu liða:
HK 12 10 0 2 42:7 30
Grindavík 11 7 2 2 27:10 23
FHL 12 7 2 3 29:21 23
Hamrarnir 13 5 3 5 18:20 18
England
Fulham – Arsenal..................................... 0:3
Crystal Palace – Southampton ............... 1:0
Liverpool – Leeds .................................... 4:3
West Ham – Newcastle ........................... 0:2
WBA – Leicester ...................................... 0:3
Tottenham – Everton............................... 0:1
Olísdeild karla
FH – Valur ............................................ 30:33
Olísdeild kvenna
Valur – Haukar..................................... 31:23
ÍBV – KA/Þór ....................................... 21:21
Valsmenn hófu Íslandsmót karla í
handbolta á laugardagskvöldið með
góðum útisigri á FH í Kaplakrika,
33:30, í viðureign tveggja þeirra liða
sem spáð er toppbaráttu í vetur. FH
var yfir í hálfleik, 15:14, en Vals-
menn náðu undirtökum í seinni hálf-
leiknum. Finnur Ingi Stefánsson
skoraði 7 mörk fyrir Val og Magnús
Óli Magnússon 6. Þá varði Einar
Baldvin Baldvinsson 12 skot í marki
Vals. Hjá FH var Ásbjörn Frið-
riksson markahæstur með 9 mörk
og Ásgúst Birgisson skoraði 5. Phil
Döhler varði 15 skot í markinu.
Góð byrjun hjá
Valsmönnum
Morgunblaðið/Íris
Mark Þorgils Jón Svölu Baldursson
skorar eitt 4 marka sinna fyrir Val.
ÍBV og KA/Þór skildu jöfn, 21:21, í
hörkuleik í fyrstu umferð Olísdeild-
ar kvenna í Vestmannaeyjum á
laugardag. Akureyringar skoruðu
tvö síðustu mörkin en leikurinn var
markalaus síðustu þrjár mín-
úturnar. Hrafnhildur Hanna Þrast-
ardóttir skoraði 6 mörk fyrir ÍBV
og Ásta Björt Júlíusdóttir 5 en Al-
dís Ásta Heimisdóttir skoraði 6 fyr-
ir KA/Þór og Rut Jónsdóttir 5. Þá
vann Valur öruggan sigur á Hauk-
um, 31:23, þar sem Lovísa Thomp-
son skoraði 9 mörk fyrir Val og
Sara Odden 8 fyrir Hauka.
Ljósmynd/Sigfús Gunnar
Eyjar Aldís Ásta Heimisdóttir var
markahæst hjá KA/Þór.
KA/Þór náði
stigi í Eyjum
KR – SELFOSS 0:5
0:1 Hólmfríður Magnúsdóttir 12.
0:2 Tiffany McCarty 20.
0:3 Tiffany McCarty 45.
0:4 Clara Sigurðardóttir 51.
0:5 Hólmfríður Magnúsdóttir 70.
MM
Hólmfríður Magnúsdóttir (Selfossi)
M
Anna María Friðgeirsdóttir (Selfossi)
Tiffany McCarty (Selfossi)
Clara Sigurðardóttir (Selfossi)
Karítas Tómasdóttir (Selfossi)
Magdalena Anna Reimus (Selfossi)
Þóra Jónsdóttir (Selfossi)
Áslaug Dóra Sigurbjörnsdóttir (Selfossi)
Anna Björk Kristjánsdóttir (Selfossi)
Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir (KR)
Dómari: Ásmundur Þór Sveinsson – 8.
Áhorfendur: 110.
ÍBV – FYLKIR 2:2
1:0 Karlina Miksone 13.
1:1 Bryndís Arna Níelsdóttir 50.
1:2 Þórdís Elva Ágústsdóttir 66.
2:2 Karlina Miksone 73.
M
Olga Sevcova (ÍBV)
Karlina Miksone (ÍBV)
Bryndís Arna Níelsdóttir (Fylki)
Þórdís Elva Ágústsdóttir (Fylki)
Stefanía Ragnarsdóttir (Fylki)
Dómari: Bríet Bragadóttir – 2.
Áhorfendur: 118.
ÞÓR/KA – BREIÐABLIK 0:7
0:1 Sjálfsmark 3.
0:2 Agla María Albertsdóttir 20.
0:3 Agla María Albertsdóttir 41.
0:4 Sveindís Jane Jónsdóttir 42.
0:5 Rakel Hönnudóttir 51.
0.6 Alexandra Jóhannsdóttir 58.
0:7 Sveindís Jane Jónsdóttir 62.
MMM
Sveindís Jane Jónsdóttir (Breiðabliki)
MM
Agla María Albertsdóttir (Breiðabliki)
M
Kristín Dís Árnadóttir (Breiðabliki)
Rakel Hönnudóttir (Breiðabliki)
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir (Breiðab.)
Karen María Sigurgeirsdóttir (Þór/KA)
Dómari: Ásgeir Þór Ásgeirsson – 8.
STJARNAN – VALUR 0:3
0:1 Hlín Eiríksdóttir 9.
0:2 Elín Metta Jensen 67.
0:3 Mist Edvardsdóttir 82.
M
Erin McLeod (Stjörnunni)
Anna María Baldursdóttir (Stjörnunni)
Katrín Ósk Sveinbjörnsdóttir (Stjörn.)
Betsy Hassett (Stjörnunni)
Aníta Ýr Þorvaldsdóttir (Stjörnunni)
Sandra Sigurðardóttir (Val)
Guðný Árnadóttir (Val)
Lillý Rut Hlynsdóttir (Val)
Hallbera Guðný Gísladóttir (Val)
Dóra María Lárusdóttir (Val)
Hlín Eiríksdóttir (Val)
Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir (Val)
Dómari: Þórður Már Gylfason – 8.
Áhorfendur: 90.
ÞRÓTTUR R. – FH 2:2
0:1 Andrea Mist Pálsdóttir 11.
0:2 Sjálfsmark 16.
1:2 Laura Hughes 57.
2:2 Mary Vignola 62.
M
Laura Hughes (Þrótti)
Andrea Rut Bjarnadóttir (Þrótti)
Stephanie Ribeiro (Þrótti)
Mary Vignola (Þrótti)
Elísabet Freyja Þorvaldsdóttir (Þrótti)
Rannveig Bjarnadóttir (FH)
Sigríður Lára Garðarsdóttir (FH)
Helena Ósk Hálfdánardóttir (FH)
Eva Núra Abrahamsdóttir (FH)
Andrea Mist Pálsdóttir (FH)
Dómari: Ásmundur Þór Sveinsson – 6.
Áhorfendur: 150.
Liðsuppstillingar, gul spjöld, viðtöl og
greinar um leikina – sjá mbl.is/sport/fot-
bolti.
Fóru þetta á reynslunni
Valskonur fóru í Garðabæinn og
sigruðu þar Stjörnuna 3:0. Þær eru
því áfram stigi á undan Blikum sem
eiga leik til góða.
„Þær þurftu þó að hafa fyrir sigr-
inum, segja má að að þær hafi farið
þetta á reynslunni,“ skrifaði Stefán
Stefánsson m.a. um leikinn á mbl.is.
Hlín Eiríksdóttir og Elín
Metta Jensen héldu uppteknum
hætti. Hlín skoraði sitt 11. mark í
deildinni og Elín síðan það tólfta.
Þær hafa gert 23 af 36 mörkum
Valsliðsins á tímabilinu.
Hólmfríður hrelldi KR-inga
Hólmfríður Magnúsdóttir fór á
kostum með Selfyssingum gegn
sínu gamla félagi, KR, á Meist-
aravöllum á laugardaginn. Hólm-
fríður átti þátt í öllum mörkum Sel-
fyssinga í 5:0 sigri og skoraði tvö
þeirra sjálf.
„KR er í alvörubasli og ef fram
heldur sem horfir er ólíkegt að liðið
rétt sleppi við fallið, fjórða árið í
röð,“ skrifaði Bjarni Helgason m.a.
um leikinn á mbl.is.
Hólmfríður skoraði þarna sín
fyrstu mörk í deildinni í ár en hún
er ellefta markahæst frá upphafi
með 122 mörk, einu marki á eftir
Rakel Hönnudóttur úr Breiðabliki
sem er í tíunda sæti með 124 mörk
eftir að hafa skorað gegn Þór/KA í
gær.
Tiffany McCarty gerði einnig
tvö mörk fyrir Selfoss og er marka-
hæst í liðinu með 8 mörk í deildinni.
Dagný Brynjarsdóttir landsliðskona
var ekki með Selfyssingum vegna
meiðsla.
Mætir sjóðheit gegn Íslandi
ÍBV og Fylkir skildu jöfn í Eyjum,
2:2, og Eyjaliðið þokaði sér aðeins
fjær hættusvæðinu. Fylkir og Selfoss
ætla greinilega að slást um þriðja
sætið á lokasprettinum.
Karlina Miksone skoraði bæði
mörk ÍBV en hún mun einmitt mæta
íslenska landsliðinu á Laugardals-
vellinum á fimmtudaginn ásamt
tveimur liðsfélögum sínum úr ÍBV.
Þær Karlina, Olga Sevcova og Eliza
Spruntule leika allar með landsliði
Lettlands.
Bryndís Arna Níelsdóttir, 17 ára
framherji Fylkis, skoraði sitt tíunda
mark í deildinni og þar af hefur hún
gert fjögur mörk í þremur síðustu
leikjum Árbæjarliðsins.
Jafntefli í fallbaráttuslagnum
Ekkert greiddist úr gríðarharðri
fallbaráttunni þegar Þróttur og FH
skildu jöfn í Laugardalnum, 2:2, í
gærkvöld.
Andrea Mist Pálsdóttir skoraði í
þriðja leiknum í röð fyrir FH sem
virtist ætla að vinna enn einn sig-
urinn eftir að hafa komist í 2:0 eftir
kortér.
Laura Hughes og Mary Vignola
jöfnuðu hins vegar fyrir Þrótt sem
sendi þar með Þór/KA niður í fallsæti
deildarinnar.
„Andrea Mist Pálsdóttir hefur svo
sannarlega reynst betri en engin og
réðu Þróttarar lítið við spyrnurnar
hennar. Þróttur var hins vegar sterk-
ari í opnum leik, en liðið spilaði vel
eins og oft áður í sumar á meðan FH
heldur áfram að bæta sig,“ skrifaði
Jóhann Ingi Hafþórsson m.a. um
leikinn á mbl.is.
Líklega fegnir
þegar henni
var skipt út af
Morgunblaðið/Íris
Óstöðvandi KR-ingar réðu ekkert við Hólmfríði Magnúsdóttur á hennar
gamla heimavelli þegar Selfoss vann Vesturbæinga 5:0.
Þór/KA réð ekkert við Sveindísi
Jane Styttist í úrslitaleikinn
FÓTBOLTINN
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Breiðablik og Valur juku enn for-
skotið á önnur lið í Pepsi Max-deild
kvenna í gær með öruggum sigrum
og óopinber úrslitaleikur þeirra um
Íslandsmeistaratitilinn nálgast.
Hann verður á Hlíðarenda 30. sept-
ember.
Blikar léku Þór/KA grátt í annað
sinn á tímabilinu og unnu 7:0, alveg
eins og í fyrri leiknum á Hlíðarenda í
sumar. Sveindís Jane Jónsdóttir var
óviðráðanleg fyrir varnarmenn Ak-
ureyrarliðsins í leiknum.
„Allt Breiðabliksliðið spilaði vel í
dag en Sveindís Jane stóð upp úr.
Hún skoraði tvö mörk og skapaði
önnur þrjú, annaðhvort með stoð-
sendingum eða fiskuðu víti. Leik-
menn Þórs/KA réðu ekkert við hana
og voru líklega mjög fegnir þegar
henni var skipt út af á 75. mínútu,“
skrifaði Baldvin Kári Magnússon
m.a. í grein um leikinn á mbl.is.
Staða Þórs/KA versnar stöðugt og
liðið er án sigurs í sjö leikjum þar
sem markatalan er 4:23. Ljóst er að
liðið á fyrir höndum bullandi lífróður
fyrir sæti sínu í deildinni á lokakafla
deildarinnar.
Agla María Albertsdóttir skor-
aði líka tvö mörk fyrir Breiðablik og
það fyrra var hennar 40. mark í efstu
deild.
Hulda Ósk Jónsdóttir úr Þór/
KA lék sinn 100. leik í deildinni.