Morgunblaðið - 14.09.2020, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 14.09.2020, Qupperneq 28
28 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. SEPTEMBER 2020 Funahöfða 7, 110 Reykjavík | Sími 577 6666      Kæli- & frystiklefar í öllum stærðum Flest könnumst við án efa við danska skáldsnillinginn H.C. And- ersen og sögur hans. Ein af hans þekktari heitir á íslensku „Nýju föt- in keisarans“. Hún segir frá keisara nokkrum sem sífellt reynir að bæta sér upp lífsleiðann með því að sanka að sér fallegum og sérstæðum hlutum. Nokkrir loddarar plata keisarann til að trúa því að þeir geti saumað handa honum fínustu og glæsileg- ustu föt sem nokkur maður hefur átt. Sá einn galli fylgi þessari snilld, segja þeir, að heimskingjar og ein- feldningar geta ekki séð fötin, að- eins gáfumenni og mikilmenni. Keisarinn bíður spenntur en þeg- ar hann loksins fær að máta fötin sér hann þau ekki, enda ekkert að sjá. En hann vill ekki láta menn halda að hann sé heimskur, svo hann hrósar klæð- skerunum og sprangar um allsnak- inn í hinum ímynduðu klæðum. Allir aðrir sem sjá keisarann hugsa eins og hann, ráðgjafar, hermenn, þjónar og almenningur. Enginn sér fötin en allir halda að það sé vegna þess að þeir séu svo heimskir. Enginn vill láta komast upp um heimsku sína, frekar en keisarinn, og allir hrósa þessum einstöku fötum. Það er svo ekki fyrr en keisarinn fer um bæinn í skrúðgöngu að barn hrópar upp: „Keisarinn er nakinn.“ Fyrst sussa allir á barnið, en svo taka fleiri og fleiri undir, uns allir hrópa: „Keis- arinn er nakinn, keisarinn er nak- inn.“ Þannig endar yfirleitt endursögn þessarar smásögu H.C. Andersens. En oft gleymist að nefna aðalatriðið, síðustu málsgreinina, sem hljóðar svo: „Det krøb i kejseren, thi han syn- tes, de havde ret, men han tænkte som så: „Nu må jeg holde processio- nen ud.“ Og kammerherrerne gik og bar på slæbet, som der slet ikke var.“ Eða á íslensku: „Það fóru ónot um keisarann, því að hann var eig- inlega á sama máli og allir hinir. En hann hugsaði samt með sér: „Ég verð að halda út skrúðgönguna.“ Og þjónar hans héldu áfram undir fald- inn sem var ekki til.“ Mér datt þessi gamla saga í hug fyrir nokkru einn daginn þegar ég stóð í anddyri kirkju einnar sem ég þá starfaði við og var að taka á móti kirkjugestum á sunnudegi. Ég var klæddur í svörtu, síðu, lútersku hempuna sem er einkennisbúningur íslenskra presta, eða var það til skamms tíma þó að það sé að breyt- ast eins og annað. Við hlið mér stóð fermingardrengur og hafði það hlut- verk að deila út sálmabókum til kirkjugesta. Þegar við höfðum stað- ið þarna góða stund og heilsað upp á fólkið tók ég eftir því að ferming- ardrengurinn gaut augunum á mig af og til, eins og hann væri að mæla út hempuna. Þegar hlé varð á fólks- straumnum inn í kirkjuna sagði hann allt í einu við mig: „Heyrðu, fyrirgefðu, en það er eitt sem ég hef verið að velta fyrir mér frá því ég byrjaði í fræðslunni í haust.“ Ég spurði hann hvað það væri og hélt að nú kæmi einhver spurning um ferm- ingardaginn eða eitthvað praktískt sem biði. En svo var ekki. Strák- urinn spurði: „Hvernig er það, ertu nakinn undir hempunni?“ Spurning fermingardrengsins hefur ekki alveg látið mig í friði. Fallegar og glæsilegar umbúðir eins og hempa íslenskra presta, höklar, ölbur, rykkilín, gullbikarar, glæsilegar kirkjur, stórkostleg tón- list, ómetanleg hof hindúa, pagóður og gullnar Búddhastyttur, ótrúlegar moskur – allt er þetta dæmi um þá glæsilegu umgjörð sem trúar- brögðin hafa búið sér. Sjálfur hef ég mikla ánægju af að heimsækja kirkjur og hof og moskur á ferðum mínum um heiminn og dást að öllu sem þar er að sjá. Ekki má gleyma hátíðum á tímamótum lífsins sem trúarbrögðin annast, við fæðingu, kynþroska, upphaf sambúðar og dauða. Eða stórum hátíðum sem all- ir taka þátt í án þess endilega að velta fyrir sér innihaldinu, eins og jólum, hanúkka, jivalí, og nú síðast halloween sem fer eins og eldur í sinu um heimsbyggðina. Á öldum áður réttlættu trúar- leiðtogar þessa umgjörð og öll sín tákn, kenningar, hátíðir og helgiat- ferli með því að veröldinni væri stjórnað af yfirnáttúrulegum mátt- arvöldum, en ekki lögmálum náttúr- unnar. Guðirnir eða Guð hefðu skap- að heiminn, sett honum reglur og mörk og hægt væri að skýra heim- inn út frá hugmyndum átrúnaðarins, hafa áhrif á vilja guðanna, lesa í framtíðina, breyta sögunni og svo framvegis með trúarlegum athöfn- um, táknum og umbúðum. Þess vegna þyrfti ákveðna stétt til að leiða allt þetta helgihald því að ef það færi fram á rangan hátt myndu guðirnir reiðast, náttúruhamfarir dynja yfir, veröldin jafnvel steypast. Styrjöldum, pestum, eldgosum, óveðrum, hungursneyðum, upp- skerum, sólinni, eldingunum, öllu þessu stýrðu æðri máttarvöld og þau þurfti að blíðka með trúarlegum at- höfnum. Þetta kölluðu Rómverjar hinir fornu superstitio, eða einfaldlega hjátrú. Hjátrú er sú trú að hægt sé að hafa áhrif á náttúrulögmálin með galdri eða helgiathöfnum. Á fyrri öldum gátu menn deilt um allt mögulegt, en flestir voru sannfærðir um að það sem við köllum hjátrú væri í raun raunveruleikinn sjálfur. Það var ekki fyrr en á sautjándu öld hér á Vesturlöndum sem menn tóku að efast um að þetta gæti stað- ist, þetta, að hægt væri að hafa áhrif á náttúrulögmálin með galdri og helgihaldi og að æðri máttarvöld stýrðu heiminum og hinu daglega lífi. Þetta tímabil í sögunni kallast upplýsingin og stóð fram á 18. öld. Smátt og smátt í kjölfar upplýsing- arinnar leystu raunvísindin hjátrúna af hólmi sem tæki til að skýra gang heimsins og náttúrunnar. Vís- indamenn sönnuðu og sýndu að allt í náttúrunni ætti sér náttúrulegar skýringar en ekki guðlegar og að allt gerðist af einhverri ástæðu. Smátt og smátt kviknaði ljós í hugum manna, getum við sagt og þeir fóru að leita orsakasamhengisins í nátt- úrunni. Nútímaraunvísindi uxu hægt og hægt fram. En það var ekki bara löngunin til að skilja hið nátt- úrulega samhengi sem rak upplýs- ingarmenn áfram. Það var líka við- bjóður þeirra á trúarbragðastyrjöldunum sem höfðu tætt í sundur Evrópu á 16. öld í kjöl- far klofnings kirkjunnar í kaþólska og mótmælendur. Hjátrúin var slæm. En styrjaldirnar voru enn verri. Lúter hafði hvatt til morða á bændum í nafni Guðs. Kaþólska kirkjan lét brenna þúsundir í nafni sama Guðs. Krossferðirnar bæði í Mið-Austurlöndum og Evrópu voru hryllingur í nafni Guðs. Og verst, sáu menn, var ástandið þar sem að- eins tvær eða þrjár trúarstefnur bárust á banaspjót í einu og sama landi, eins og lúterska og kaþólska kirkjan í Þýskalandi. Þegar Bandaríki Norður-Ameríku voru stofnuð árið 1776 voru það upp- lýsingarmenn sem héldu um stýrið og þeir beittu þessari hugmynd um trúfrelsið skilyrðislaust. Þeir sem skrifuðu stjórnarskrá Bandaríkj- anna höfðu séð hvernig þúsundir höfðu neyðst til þess að flýja frá Gamla heiminum og vestur um haf undan trúarbragðaofsóknum og styrjöldum. Þetta skyldi aldrei end- urtaka sig í þeirra landi. Byggja ætti múr milli ríkis og trúarbragða. Bandarísk stjórnvöld skyldu ekki setja nein lög um trúarbrögðin eða frelsi manna til að iðka trú sína. Í stjórnarskrá Bandaríkjanna segir þess vegna svo um átrúnaðinn og ríkið: „Congress shall make no law re- specting an establishment of reli- gion, or prohibiting the free exercise thereof ...“ Eða með öðrum orðum, ríkið á ekki að blanda sér í trúmál þegn- anna. Þetta er grundvallarlögmál í skipan Bandaríkjanna og hefur verið virt til þessa dags. Þróunin varð önnur í Evrópu, enda trú og ríki samtvinnuð þar um aldir. Hér er ekki tími til að rekja alla þá sögu en eftir frönsku stjórn- arbyltinguna 1789 og byltingar 19. aldar sem fylgdu í kjölfarið, fram- vöxt kommúnismans, félagshyggj- unnar, rússnesku byltingarinnar og átök fyrri og síðari heimsstyrjaldar, óx fram samfélag í Evrópu sem kall- ast veraldlegt ríkisvald. Hið verald- lega ríki ákvað að byggja ákvarðanir sínar aðeins á veraldlegum for- sendum en ekki forsendum annars heims eða trúarbragða, á forsendum sem byggja á kenningum sem hafa mótað Vesturlönd allt frá tímum upplýsingarinnar. Eitt dæmi um áhrif verald- arhyggjunnar á líf fólks er breytt staða samkynhneigðra, sumstaðar, stundum. Hin stóru trúarbrögð heimsins hafa ofsótt samkyn- hneigða. Segjum það bara eins og það er. Samkynhneigð er sögð synd gegn skikkan skaparans og vilja Guðs. Sá sem er samkynhneigður á jafnvel á hættu að verða dæmdur til dauða. Þannig er staðan víða. Hið íslamska kalífadæmi sem náði völd- um í stórum hluta Sýrlands eftir 2011 stundaði það að kasta samkyn- hneigðum fram af húsþökum. Nas- istar gerðu slíkt hið sama eða vörp- uðu þeim í gasofnana. Lengi fram eftir 20. öld var samkynhneigð bönn- uð og litin hornauga á Vesturlöndum vegna áhrifa trúarbragðanna. En hægt og bítandi hafa réttindi þeirra verið viðurkennd í mörgun löndum. Það var til dæmis gert á Íslandi fyrst árið 2010 þegar ein hjúskap- arlög voru samþykkt jafnt fyrir sam- kynhneigða og gagnkynhneigða. Þá hafði þjóðkirkjan staðið gegn þeirri þróun allt frá árinu 1996. En þótt réttindi samkynhneigðra og kvenna hafi aukist horfir hið ver- aldlega ríki oft framhjá framferði trúarstofnana samfélagsins. En ein- staklingar láta sig málefni þeirra varða. Hið veraldlega ríki var nefni- lega ekki eini ávöxtur upplýsing- arinnar, heldur einnig hin verald- lega hugsun, þar sem einstaklingurinn hugsar um sam- félagið, án þess að ætla Guði þar pláss. Æ fleiri á Vesturlöndum hafa tileinkað sér þessa lífsskoðun og hafna alfarið tilvist Guðs. Mörgum finnst þessi þróun sorgleg, jafnvel þótt þeir trúi ekki á Guð. Þeim finnst kirkjan og átrúnaðurinn þrátt fyrir allt standa fyrir eitthvað fallegt, sög- una, menninguna, tungumálið og all- ar þessar fallegu athafnir. Deilur þessara tveggja hópa hafa verið áberandi, t.d. um fræðslu barna um trú í skólum, kirkjuheimsóknir á jól- um, trúarlegan þjóðsöng og fleira og fleira. Stöðugt fækkar í kirkjunni, sér- staklega í Evrópu. Þó að trúarbrögð sæki fram víða um heim eru þau á hverfanda hveli í Evrópu. En inn í tómarúmið hafa stigið svokallaðir veraldlegir húmanistar sem hafa tekið að láni margt það besta frá trúarbrögðunum – en án Guðs. Orðið húmanismi hefur verið þýtt sem mannhyggja. Húmanisminn á sér langa sögu. En eins og nafnið gefur til kynna reyna húmanistar að lifa lífinu eins vel og hægt er, án þess að blanda Guði í málin. Þeir trúa því að mannkynið hafi þroskast frá Guði eins og börn sen hætta að trúa á æv- intýri þegar þau verða fullorðin. Að- eins mannkyn veit hvað mannkyni er fyrir bestu. Maður þarf ekki á Guði eða goðum að halda til að vita hvað er rétt og rangt, kenna veraldlegir húmanistar. Veraldlegir húmanistar hafa séð að það fellur vel að mann- inum að marka áfanga lífsins með hátíðum. Þess vegna hafa þeir og þeirra samtök boðið upp á verald- legar athafnir eins og nafngift, ferm- ingu, hjónavígslu og útför. Hér á landi er það Siðmennt – félag sið- rænna húmanista sem fer fyrir ver- aldlegum húmanistum og veitir at- hafnaþjónustu. Trúarstofnanirnar svara gjarnan fyrir sig með tvennskonar hætti. Sumar hafa hert á kenningunni og gerst strangtrúaðri, eins og við höf- um séð gerast bæði í hinu íslamska kalífadæmi sem og hjá öfgakristnum í Bandaríkjunum. Þá er stutt í of- beldið gagnvart öllum þeim sem eru öðruvísi. Á hinn bóginn hafa margar kirkjurnar reynt að laga sig að tím- anum, tala minna um Guð og hið yf- irnáttúrulega en veðja þess meira á skemmtunina, tónlistina eða hið fé- lagslega hlutverk svo að fólk velji að vera áfram í kirkjunni þó að trúin sé ekki til staðar vegna þess að kirkjan er svo flott, stendur sig vel í fé- lagslegum málum eða býður upp á svo skemmtilega umgjörð um at- hafnir lífsins. En er þá ekki eitthvað mikið að ef enginn nennir að koma í kirkjuna, bara til að hitta Guð? Er kirkjan þá ekki nakin þarna undir hempunni? Er ekkert eftir nema umgjörðin? Og hlýtur þá ekki trúin smátt og smátt að deyja út þegar nýjar kynslóðir segja, eins og barnið forðum í sögu H.C. Andersens: „Keisarinn er nak- inn“? Sjá það ekki allir og meira að segja kirkjan sjálf og forystumenn annarra trúfélaga sem hafa leitað á sömu slóðir? En hvers vegna halda þeir þá áfram showinu? Ef til vill hugsa þeir eins og keisarinn nakti í sögu H.C. Andersen: „Ég sé að ég er nakinn, ég veit að þetta er búið, ég trúi ekki lengur á þetta sjálfur, en ég verð samt að klára skrúðgönguna.“ „Ertu nakinn undir hempunni?“ Bókarkafli | Í Sögu guðanna fjallar Þórhallur Heimisson um það sem helstu trúarbrögð mann- kyns hafa sjálf fram að færa, rekur sögu þeirra í stórum dráttum og lýsir helstu einkennum þeirra. Ljósmynd/Þórhallur Heimisson Lífsgleði Á góðri stundu í Egyptalandi. Lífsgleðin brúar öll bil.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.