Morgunblaðið - 19.09.2020, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. SEPTEMBER 2020
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson
menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Skatturinn hefur fengið nærri þre-
falt fleiri umsóknir um endurgreiðslu
virðisaukaskatts vegna vinnu það
sem af er ári en á sama tímabili í
fyrra. Borist hafa yfir 6.500 umsókn-
ir vegna viðgerða á bílum. Vegna
þessa mikla fjölda umsókna hefur af-
greiðslutími lengst og er nú þrír til
fjórir mánuðir í stað eins mánaðar
eins og stefnt hefur verið að.
Umsóknum fjölgaði í vor, eftir að
Alþingi samþykkti að hækka endur-
greiðsluhlutfall vegna vinnu við end-
urbætur og viðhald á íbúðarhúsnæði
úr 60 í 100% og bætti við nýjum verk-
efnum sem njóta endurgreiðslu.
Breytingin var liður í aðgerðum rík-
isstjórnarinnar til að bregðast við
efnahagslegum áhrifum kórónu-
veirufaraldursins. Umsóknirnar hafa
síðan verið fleiri en á sama tíma und-
anfarin ár og eru nú orðnar um 23
þúsund í heild. Á sama tíma í fyrra
höfðu liðlega 8.300 sótt um endur-
greiðslu. Umsóknir eru því nærri
þrefalt fleiri en á síðasta ári.
Starfsmönnum fjölgað
Ekki hefur áður verið endur-
greiddur virðisaukaskattur vegna
vinnu við bílaviðgerðir. Hafa 6.500
slíkar umsóknir borist.
Í umsóknarferlinu kemur fram að
miðað er við 30 daga afgreiðslutíma.
Ekki hefur verið hægt að standa við
það vegna fjölgunar umsókna, segir
Elín Alma Arthursdóttir vararíkis-
skattstjóri. Afgreiðsla umsókna tek-
ur misjafnlega langan tíma en af-
greiðslutíminn er nú þrír til fjórir
mánuðir, samkvæmt uppýsingum
hennar.
Unnið er úr umsóknunum í starfs-
stöð skattsins á Siglufirði. Þar var
bætt við starfsmanni í vor og starfs-
mönnum á höfuðborgarsvæðinu hef-
ur verið falið að vinna ákveðin verk
til að létta undir. Þá er búið að aug-
lýsa eftir starfsmanni til viðbótar á
Siglufirði til að vinna að þessu verk-
efni.
Þrefalt fleiri umsóknir um vsk
Afgreiðslutími umsókna um endurgreiðslu virðisaukaskatts af vinnu hefur lengst í 3-4 mánuði
Miklar annir við úrvinnslu umsókna 6.500 einstaklingar sótt um endurgreiðslu vegna bílaviðgerða
Umsóknir um endurgreiðslu virðisaukaskatts
Fjöldi umsókna um
endurgreiðslu vsk af
vinnu 2019 og 2020
*1. janúar til 11. september
Skipting umsókna 2020*
2019* 2020*
8.308
22.889
Endurbætur / viðhald á íbúðar-
húsnæði Bílaviðgerðir Annað
14.694
Alls
22.889
umsóknir1.677
6.518
*1. janúar til 11. september
Alexander Gunnar Kristjánsson
alexander@mbl.is
Alls greindist 21 kórónuveirusmit
innanlands í fyrradag, þar af eitt
hjá Íslenskri erfðagreiningu og
eitt í sóttkvíar- og handahófsskim-
un. Sjö þeirra smituðu voru í
sóttkví við greiningu. Einn var
lagður inn á spítala í gær vegna
veirunnar og eru nú tveir inni-
liggjandi. Ekki hafa fleiri greinst
með veiruna á einum degi síðan 9.
apríl en að sama skapi hafa aldrei
fleiri sýni verið tekin á einum degi.
Alls voru 3.109 sýni tekin innan-
lands í fyrradag og 905 til viðbótar
við landamæraskimun.
Heilbrigðisráðherra undirritaði í
fyrradag reglugerð að tillögu sótt-
varnalæknis um að skemmtistöð-
um og krám á höfuðborgarsvæðinu
yrði lokað tímabundið fram yfir
helgi. Í minnisblaði sóttvarnalækn-
is þar sem tillagan er rökstudd
segir að á þremur sólarhringum,
þar sem 38 smit greindust, hafi að
minnsta kosti fjórðungur þeirra
tengst heimsókn á tilteknar krár
og skemmtistaði í Reykjavík.
Bregðast þurfi við sem fyrst með
markvissum aðgerðum til að koma
í veg fyrir útbreiddan faraldur
með tilheyrandi afleiðingum.
Veitingahúsaeftirlit
í forgangi
„Það er að koma betur í ljós að
þungamiðjan og ræturnar virðast
vera á þessum stöðum, alla vega í
þessum faraldri sem er núna,“ segir
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir
í samtali við mbl.is og vísar til
skemmtistaða og kráa.
Sem fyrr segir ná tillögurnar að-
eins út sunnudaginn og segir Þór-
ólfur að það komi „ekki endilega“
til þess að framlengja þurfi lok-
unina. „Það er líka hægt að grípa til
hreinsunaraðgerða og svo er hægt
að grípa til takmarkandi aðgerða
líka þannig að það þurfa ekki endi-
lega að vera lokanir áfram, það á
bara eftir að koma í ljós,“ segir
Þórólfur.
Veitingahúsaeftirlit er í forgangi
hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæð-
inu um helgina, en í samtali við
Morgunblaðið segir Ásgeir Ásgeirs-
son yfirlögregluþjónn að verkefnið
sé umfangsmikið. Um 200 veitinga-
og skemmtistaðir eru á höfuðborg-
arsvæðinu, en þar af falla 60 undir
skilgreiningu kráa og skemmtistaða
og eigi að vera lokaðir.
„Við setjum mikinn þunga í það
út frá þessum hagsmunum sem við
erum að reyna að vernda. Við erum
að reyna að stoppa útbreiðslu þessa
stóra hópsmits sem er komið af
stað,“ útskýrir Ásgeir en allar lög-
reglustöðvar á höfuðborgarsvæðinu
taka þátt í eftirlitinu.
Greindum veirusmitum fjölg-
ar með víðtækum skimunum
Spurður hvort þessi mikli fjöldi
smita, sem greinst hefur liðna
daga, gefi tilefni til hertra aðgerða
segir Þórólfur: „Það er við því að
búast þegar farið er í víðtækar
skimanir að þá fáum við tilfelli
sem við hefðum annars ekki fundið
eða fengið seinna. Ég held að það
þurfi að skoða þessar tölur í því
ljósi. Þetta er ekki vísbending um
að þetta sé að fara upp á við. Ég
held að með þessu séum við að ná
betur utan um þetta og rakning-
arteymið er að fá betri mynd af
þessu. Með þessum aðgerðum og
öllu því sem er í gangi núna eru
mjög góðar líkur á að hægt sé að
ná utan um þetta.“
Þórólfur bendir á að margir
þeirra sem eru sýktir af veirunni
séu einkennalausir eða einkenna-
litlir, því finnist þau smit helst
þegar ráðist er í skimanir en víð-
tækar skimanir eru farnar af stað
á vegum heilsugæslunnar og Ís-
lenskrar erfðagreiningar.
„Þess vegna er fjöldi einstak-
linga smitaður og veit ekkert af
því en við finnum þá núna með
þessari skimun. Þess vegna erum
við að fá þennan fjölda.“
Mörg hundruð í sóttkví
Nærri 800 manns sæta nú
sóttkví og hefur þeim fjölgað hratt
undanfarna daga. Í Listaháskóla
Íslands kom smit upp í gær og var
skólanum í kjölfarið lokað. Í til-
kynningu frá skólanum segir að
neyðaráætlun hafi verið virkjuð,
smitrakningarteymi almannavarna
hafi gripið til viðeigandi ráðstaf-
ana og allir þeir sem hafi verið í
sama „sóttvarnahólfi“ og sá smit-
aði séu komnir í sóttkví. Stefnt er
að því að opna skólann að nýju á
mánudagsmorgun.
Líkamsræktarsal á Jaðarsbökk-
um á Akranesi hefur sömuleiðis
verið lokað um óákveðinn tíma eft-
ir að einstaklingur greindist með
veiruna í bænum, en hann hafði
verið í ræktinni á þriðjudag. Allir
þeir sem sóttu líkamsræktina um-
ræddan dag þurfa að fara í sóttkví.
Starfsmaður tölvuleikjaframleið-
andans CCP er meðal þeirra sem
fóru á barinn Irishman Pub á
föstudag og greindist smitaður.
Hafa því átta starfsmenn fyrir-
tækisins verið sendir í sóttkví.
Þá hafa allir starfsmenn Isavia á
höfuðborgarsvæðinu verið sendir í
sóttkví eftir að hafa átt í sam-
skiptum við einstakling, sem
reyndist smitaður. Í samtali við
mbl.is tekur Guðjón Helgason,
upplýsingafulltrúi Isavia, fram að
málið tengist hvorki Reykjavíkur-
né Keflavíkurflugvelli og hafi því
ekki áhrif á starfsemi vallanna.
Vegna fjölgunar smita hefur
neyðarstjórn Hrafnistu tekið
ákvörðun um að herða heimsókn-
arreglur á hjúkrunarheimilið. Að-
eins má einn gestur heimsækja
hvern íbúa og heimilt verður að
skipta um valinn heimsóknargest á
sjö daga fresti. Undanþágur verða
aðeins veittar við mikil veikindi
íbúa og þá með leyfi vaktstjóra.
Ekki efni til að
auka viðbúnað
Viðbragðsstjórn og farsótta-
nefnd Landspítalans funduðu í
gær vegna stöðunnar sem upp er
komin í faraldrinum. Í forstjóra-
pistli segir Páll Matthíasson, for-
stjóri Landspítalans, að ekki sé
talið tilefni til að hækka viðbún-
aðarstig á spítalanum, sem nú er á
óvissustigi, þótt stjórnin sé ugg-
andi yfir stöðunni. Þessi bylgja
faraldursins hafi ekki haft slík
áhrif á starfsemina enn sem komið
er.
Grímuskylda hefur verið meðal
starfsmanna spítalans frá því í
sumar og er það talið eiga sinn
þátt í að mun færri starfsmenn
hafa þurft að sæta sóttkví en
þurftu að gera í fyrstu bylgju far-
aldursins.
Ekki fleiri smit greind frá 9. apríl
Metfjöldi sýna tekinn Skemmtistaðir lokaðir fram yfir helgi en „ekki endilega“ lengur 800 í
sóttkví Hertar heimsóknarreglur á Hrafnistu Viðbragðsstjórn Landspítala uggandi yfir stöðunni
Morgunblaðið/Eggert
Bið Alls voru 3.109 sýni tekin innanlands í fyrradag og 905 að auki vegna landamæra. Hafa þau aldrei verið fleiri.
Kórónuveirusmit á Íslandi
Nýgengi smita frá 30. júní
2.230 staðfest smit
Heimild: covid.is
Nýgengi innanlands 17. sept.
21,8 ný smit sl. 14 daga á 100.000 íbúa
júlí ágúst september
2 einstaklingar er á sjúkrahúsi,
enginn á gjörgæslu
244.348 sýni hafa verið tekin
Þar af í landamæraskimun
143.014 sýni, samtals skimun 1 og 2
2.002 einstaklingar eru í skimunarsóttkví30
25
20
15
10
5
0
21,8
5,2
27,0
12,8
19,6
793 einstaklingar eru í sóttkví
108 eru með virkt smit
Nýgengi innanlands Nýgengi, landamæri