Morgunblaðið - 19.09.2020, Qupperneq 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. SEPTEMBER 2020
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Fasteignafélögin Reitir, Reginn og
Eik hafa bókfært tekjutap vegna
tekjufalls hjá hótelum í faraldrinum.
Eigið fé Reita var tæpir 48 millj-
arðar í fyrra og voru rekstrartekjur
tæplega 12 milljarðar króna.
Guðjón Auðunsson, forstjóri
Reita, segir félagið áætla að tjón
þess af faraldrinum verði allt að
tveir milljarðar. Þar af verði lang-
stærstur hlutinn vegna ársins 2020
og ársins 2021 en eftir það dragi
hratt úr áhrifum faraldursins á
rekstur félagsins.
Áætlað tjón varði alla starfsemi
félagsins en ekki aðeins hótel eða
veitingastarfsemi. Sundurgreiningin
á tjóninu verði ekki birt opinberlega.
16% af heildartekjum
„Þetta er samkvæmt okkar bestu
upplýsingum en óvissan er mikil.
Það segir sig sjálft að stærstu töl-
urnar tengjast ferðaþjónustunni og
langstærstu tölurnar tengjast hótel-
um sem við eigum,“ segir Guðjón.
Samkvæmt starfsþáttayfirliti í
ársreikningi Reita voru tekjur af
hótelunum 1.917 milljónir í fyrra,
eða um 16% af heildartekjum.
Að sögn Guðjóns var tekjuáætlun
þessa árs tekin úr sambandi sl. vor
vegna óvissu. Sú staða sé óbreytt, en
unnið er að endurskoðun rekstrar-
áætlana vegna 2020 og 2021.
Spurður hvort Reitir hafi komið til
móts við leigutaka sem urðu fyrir
tekjufalli vegna faraldursins segir
Guðjón félagið hafa tekið þann pól í
hæðina að bíða og sjá hvaða áhrif að-
gerðir hins opinbera myndu hafa á
rekstur þessara aðila.
„Við tókum jafnframt þá ákvörðun
strax sl. vor að fresta leigugreiðslum
hjá þeim sem urðu fyrir mesta tekju-
fallinu, þar á meðal hótelunum, og
bíða og sjá til. Það er óbreytt en það
liggur auðvitað í augum uppi að hót-
elin eru að öllum líkindum ekki að
fara af stað á næstu vikum og mán-
uðum,“ segir Guðjón um horfurnar.
„Síðustu mánuði hafa hótelin verið
að greiða einungis takmarkaðan
hluta af umsömdum leigugreiðslum.
Stærsti mótaðili okkar í hótelgeiran-
um eru Icelandair-hótelin Nordica,
Natura og Hótel Alda en næst kem-
ur Hótel Borg (í Keahótel-keðjunni).
Svo er það Heilsumiðstöðin í Ármúla
9 eða Hótel Ísland. Við höfum frest-
að leigugreiðslum hjá þessum þrem-
ur aðilum að stærstum hluta frá apríl
og erum að vinna með þeim þessar
vikurnar til að átta okkur betur á því
hvernig við förum með þessar frest-
uðu leigugreiðslur,“ segir Guðjón.
Samkomulag til bráðabirgða
Helgi S. Gunnarsson, forstjóri
Regins, segir stjórn félagsins hafa
ákveðið í júní að félagið myndi vinna
með þeim leigutökum sem verða
verst úti vegna faraldursins.
„Við byrjuðum á því að gera sam-
komulag til bráðabirgða við þessi
fyrirtæki og síðan gerðum við við-
aukasamninga sem við kláruðum að
mestu í haust og síðsumars og erum
að ljúka við núna,“ segir Helgi.
Reginn er með 430 leigutaka og
koma 7-8% af tekjum frá hótelum.
Rekstrartekjur félagsins voru um
9,8 milljarðar í fyrra og samsvarar
8% hlutfall hótelanna því tæpum 800
milljónum miðað við fullan rekstur.
Að sögn Helga afmarkaði félagið
þá viðskiptavini sem hefðu orðið
verst úti vegna kórónuveirufarald-
ursins, einkum hótel, verslanir og
veitingahús í miðbæ Reykjavíkur.
Þá hafi ýmis verslun og þjónusta
sem ekki sé háð ferðamönnum orðið
fyrir tekjufalli vegna samkomu-
banns. T.d. kvikmyndahús, líkams-
ræktarstöðvar og hárgreiðslustofur.
Reginn hafi útbúið mismunandi
úrræði fyrir leigutaka sína sem taki
mið af áhrifum faraldursins á rekst-
ur þeirra. Til dæmis hafi verslun í
Smáralind orðið fyrir tímabundnum
áhrifum vegna faraldursins, í rúman
mánuð, en svo náð sér á strik og enn
betur eftir fyrstu afléttinguna á
samkomubanninu. Í slíkum tilvikum
hafi úrræðin falist í frestun á leigu
sem var svo dreift á næstu mánuði.
„Svo eru önnur fyrirtæki sem
lenda í verulegu tekjufalli, eins og
hótelin, en í þeim tilvikum eru samn-
ingar teknir upp og gerðir viðauka-
samningar, nýir samningar, sem
gilda í 12-18 mánuði,“ segir Helgi.
Við gerð viðaukasamnings sé nú-
gildandi samningi breytt tímabund-
ið. Til að mynda samningum við hót-
el sem greiddu fasta leigu á mánuði
en greiði nú tímabundið aðeins hlut-
fall af tekjum sínum í leigu.
Um 9% af virði fasteigna
Garðar H. Friðjónsson, forstjóri
Eikar, segir hlutfall hótela og veit-
ingastaða í veltu félagsins ekki hafa
verið gefið upp. Hins vegar sé hlut-
fall hótela í virði fasteigna félagsins
um 9%. Þá sé hlutfall veitingastaða,
skv. sama mælikvarða, um 4%.
„Sumir af veitingastöðum okkar
ganga vel en það er undir því komið
hvort þeir eru háðir erlendum ferða-
mönnum eða ekki,“ segir Garðar.
Hann segir ekki gefið upp hvaða
áhrif tekjusamdráttur hótela annars
vegar og veitingastaða hins vegar
muni hafa á leigutekjur Eikar í ár.
Rekstrartekjur voru 8,7 ma. 2019.
Spurður hvaða áhrif faraldurinn
muni hafa á tekjur félagsins í ár seg-
ir Garðar að félagið hafi uppfært
EBITDA-spá ársins. Upphafleg spá,
fyrir faraldurinn, var upp á 5.689
milljónir króna en uppfærð spá, eftir
faraldurinn, hljóðar upp á 4.850-
5.100 milljónir króna.
Spurður um leigutaka hótelbygg-
inga segir Garðar að Flugleiðahótel
(Icelandair Hótel Reykjavík Mar-
ina), séu stærsti leigutakinn en svo
séu aðrir minni leigutakar (sjá graf).
Hugsanlega lokað í vetur
Fram kemur í uppgjöri Eikar
vegna fyrri hluta ársins að rekstur
Hótels 1919 hafi gengið ágætlega á
fyrsta ársfjórðungi en að á öðrum
ársfjórðungi hafi tekjur dregist sam-
an um ríflega 90%. „Félagið gerir
ráð fyrir að hótelið verði rekið með
tapi í fyrirsjáanlegri framtíð og ekki
er hægt að útiloka að Radisson Hotel
Group taki ákvörðun um að hótelið
verði lokað yfir vetrarmánuðina.
Félagið heldur áfram viðræðum
við þá leigutaka sem hafa orðið fyrir
verulegri tekjuskerðingu að lausn
þeirra mála og eru flest málin í far-
vegi,“ sagði þar meðal annars.
Þá hefði Eik ráðið Deloitte til að
aðstoða leigutaka við áætlanagerð
og við að nýta úrræði sem hið opin-
bera og bankastofnanir buðu upp á.
Samhliða því hafi Deloitte veitt fé-
laginu ráðgjöf varðandi lausnir fyrir
leigutaka. Þær haldi áfram að snúast
fyrst og fremst um frestun á leigu-
greiðslum. Það hafi leitt af sér að
staða viðskiptakrafna hækkaði
nokkuð á milli ársfj. og varúðaraf-
skriftir aukist eins og búist var við.
Koma til móts
við tekjufall
hjá hótelum
Vægi hótela í leigutekjum stóru
fasteignafélaganna er mismunandi
Icelandair-
hótelin
Nordica, Natura og Alda Pósthússtræti
Icelandair Hotel
Reykjavik Marina
Kea hótel
Hótel Borg
Keahótel
Akureyri
Þingholtsstræti
Heilsumiðstöðin
Ármúla 9 (Hótel Ísland) Mjölnisholti
City Center Hotel
Austurstræti
Hótel
Óðinsvé
Þórsgötu
Gistihúsið Centrum
Akureyri
Above Reykjavík
Höfðatorgi
Hótel 1919
Pósthússtræti
(Radisson Blue)
Hótelbyggingar og stóru fasteignafélögin
Dæmi um hótelbyggingar í leigu hjá stóru félögunum þremur
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hönnun Svíta á Icelandair Marina.
FASTEIGNA
MIDLUN
Skólavörðustígur 3 I 101 Reykjavík I Sími 575 8500 I www.fasteignamidlun.is I fasteignamidlun@fasteignamidlun.is
KLAPPARÁS 8
Virkilega fallegt og vel skipulagt tveggja hæða 320,3 m2 ein-
býlishús, þar af stór 61 fm bílskúr, á eftirsóttum stað í fjöl-
skylduvænu hverfi að Klapparás 8, Árbænum, 110 Reykjavík.
Verulega fallegur garður umvefur húsið. Heitur pottur á neðri
hæð, sólpallur á efri og neðri hæð. Eignin er mjög vel staðsett,
stutt er í skóla, leikskóla, þjónustu, íþróttasvæði, sundlaug og
fallegar gönguleiðir við Elliðarárdalinn.
Eignin verður sýnd þriðjudaginn 22. september 2020
Bóka þarf skoðun hjá Gunnari Bergmann í síma 839 1600 eða (gunnar@fasteignamidlun.is)
Innanlandsflug Icelandair gekk
ágætlega í sumar, þrátt fyrir erfiðar
ytri aðstæður. Seglin voru rifuð í
takt við breytta eftirspurn þannig
að þessi þáttur starfseminnar var
rekinn á um það bil hálfum afköst-
um.
„Við fengum skellinn í apríl, vor-
um með sáralítinn rekstur fyrsta
mánuðinn eftir að kórónuveirufar-
aldurinn skall á. Við vorum þó fljót
að ná okkur upp í 50% rekstur og
vorum í því horfi í júní og júlí. Bak-
slag kom í kjölfar annarrar bylgju
faraldursins í ágúst en við höfum
verið að vinna okkur til baka,“ segir
Þóra Eggertsdóttir, forstöðumaður
innanlandsflugs Icelandair Group.
Hún segir að í ástandi sem þessu
sé framboð stillt af miðað við eft-
irspurn. Það geri það að verkum að
sætanýting sé svipuð og áður, en
vitaskuld hafi ferðunum fækkað
mikið. Aðeins er eitt flug á viku til
Grænlands á vegum félagsins og
hefur verið þannig frá því í vor.
Bjartsýn fyrir veturinn
Þóra segir að unnið hafi verið að
hagræðingu í innanlandsfluginu
undanfarin ár og hafi starfsemin
verið komin á góðan stað þegar
kórónuveirufaraldurinn skall á.
„Við erum bjartsýn á framhaldið
en vitum þó að ferðaþjónustan mun
eiga í erfiðleikum þar til hægt verð-
ur að bólusetja fólk gegn veirunni.
Við erum ánægð með loftbrúna, hún
hefur farið vel af stað og móttökur
verið framar mínum björtustu von-
um,“ segir Þóra en loftbrúin er heiti
á niðurgreiðslu stjórnvalda á flug-
fargjöldum íbúa á landsbyggðinni.
helgi@mbl.is
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Innanlands Eftir sameiningu Flugfélags Íslands og Icelandair Group er
innanlandsflugið rekið undir merkjum síðarnefnda félagsins.
Innanlandsflug á
hálfum afköstum