Morgunblaðið - 19.09.2020, Page 10

Morgunblaðið - 19.09.2020, Page 10
ÁHRIF KÓRÓNUVEIRUNNAR Á ÍSLANDI10 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. SEPTEMBER 2020 BAKSVIÐ Sighvatur Bjarnason sighvaturb@mbl.is Mánuður er liðinn í dag frá því að reglur um tvöfalda skimun komu- farþega til Keflavíkur tóku gildi. Frá þeim tímapunkti hafa komur til Keflavíkur verið að meðaltali 12 á dag sem er 40% fækkun frá því í ágúst, fyrir tíma núverandi sótt- varnareglna. Eftir hægan en stöðugan uppgang sumarsins voru margir vonsviknir þegar boðað var að 19. ágúst tækju gildi nýjar reglur um tvöfalda skim- un komufarþega til landsins og sóttkví á milli. Lét t.d. Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Sam- taka ferðaþjónustunnar, hafa eftir sér að með þessum aðgerðum „væri búið að loka íslenskri ferðaþjónustu eins og hún leggur sig“. Sigþór Kristinn Skúlason, fram- kvæmdastjóri Airport Associates, taldi líklegt að erlend flugfélög myndu klára að sækja sína sumar- farþega og hverfa svo á braut, tíma- bundið a.m.k. Vaxtarverkir á hávertíð Í sumar voru flugfélögin að finna taktinn og stilla leiðakerfi sitt eftir kvikri eftirspurn. Talsvert framboð var á ferðum til landsins, en aflýs- ingar hlutfallslega margar að sama skapi. Fyrstu þrjá dagana í ágúst voru t.d. 111 komur auglýstar til Keflavíkur en 46 þeirra var aflýst. Á eftir fylgdi flugáætlun þar sem veru- lega dró úr uppsettum ferðum en af- lýsingum fækkaði verulega á móti. Frá 1. ágúst lentu að meðaltali 20 áætlunarvélar á dag og svo virtist sem jafnvægi væri komið á og takt- urinn fundinn. Frá 19. ágúst hefur hins vegar sig- ið á ógæfuhlið millilandaflugs og flugferðum fækkað jafnt og þétt. Miðað við fjölda skimana hefur komufarþegum einnig fækkað. Í ágústmánuði var mestur fjöldi tæp- lega 3.000 á einum degi og að með- altali 2.365 á dag. Þeim hefur síðan fækkað jafnt og þétt og eru að með- altali 1.261 á dag frá því að tvöföld skimun var tekin upp, fæstir voru þeir 428 síðastliðinn þriðjudag. Því má ljóst vera að áhrif sóttvarna- reglna hafa verið líkt og spáð var. Fjölda flugferða aflýst Eftir að umrætt jafnvægi komst á fór aftur að bera á því að fjölda aug- lýstra flugferða væri aflýst með skömmum fyrirvara. Frá 19. ágúst hefur að meðaltali 35% ferða verið aflýst og hefur hlutfallið vaxið jafnt og þétt það sem af er mánuði og var mest 63% af auglýstum ferðum á ein- um degi. Icelandair ber þar höfuð og herðar yfir önnur félög með yfir 90% af aflýstum ferðum sem birtast á vef Isavia. Samkvæmt heimildum blaðsins segir það ekki alla söguna, því flug- félög hafa ólíkar aðferðir við að stilla af leiðakerfi sitt með skömmum fyr- irvara, þannig að aflýst flug birtist ekki á auglýstri dagskrá Keflavíkur- flugvallar. Umsvif flugfélaga Seinnipart sumars höfðu 13 flug- félög reglulega viðkomu á landinu. Af tíðum gestum hafa félögin British Airways, Norwegian, Atlantic og Czech litla sem enga viðkomu haft í mánuðinum. Air Greenland, Vueling, Air Baltic og Transavia halda uppi einstaka ferðum. Lufthansa, SAS og easyJet eru meira áberandi með nokkuð reglulegt áætlunarflug og fá- ar aflýsingar. Af þeim flugfélögum sem halda uppi mestri ferðatíðni eru umsvif Icelandair og Wizz Air mest, en sam- an deila þau 50% af fjölda ferða til landsins. Wizz Air hefur örlítið for- skot með 28% ferða, en athygli vekur að það sem af er mánaði hefur eng- um ferðum félagsins verið aflýst á heimasíðu Isavia. Íslendingar eða ferðamenn? Gögn frá Ferðamálastofu gefa til kynna að frá byrjun mánaðar séu ferðamenn rúmlega tvöfalt fleiri en Íslendingar af heildarfjölda komu- farþega. Þegar betur er að gáð má sjá að margir þeirra sem gætu talist ferðamenn eru líklega útlendingar með fasta búsetu hér á landi. Tengingar Wizz Air eru að stórum hluta við Austur-Evrópu sem styður þá tilgátu að flestir sem koma til landsins eru að snúa til síns heima og eiginlegir ferðamenn séu í raun afar fáir. Talsverður samdráttur í flugi  Áhrif tvöfaldrar skimunar komufarþega komin fram  Flugferðum fækkar og hlutfall aflýstra ferða eykst  Icelandair og Wizz Air umsvifamest í fjölda ferða  Hlutur ferðamanna minnkar hlutfallslega Komur til Keflavíkur, aflýsingar og skimanir Fjöldi koma til Keflavíkur og aflýst komuflug 19.8.-16.9. Fjöldi skimana á komufarþegum og hlufall aflýstra koma 19.8.-16.9. 3.000 2.400 1.800 1.200 600 0 80% 64% 48% 32% 16% 0% ágúst september 25 20 15 10 5 0 -5 -10 16 8 17 23 20 11 16 13 13 14 20 17 11 12 7 10 10 12 14 8 8 6 8 8 9 10 5 4 5 4 4 2 2 4 3 3 4 4 4 3 7 5 6 6 6 9 7 10 6 7 6 6 10 8 11 6 7 5 Fjöldi koma til Keflavíkur Fjöldi aflýsinga Fjöldi skimana á komufarþegum Hlutfall aflýsinga af auglýstum komum Heimild: Isavia.is Heimild: Isavia.is, covid.is 2.699 428 1.056 688 64% 47% 8% 33% 1.979 Komur til landsins Hlutur flugfélaga 19.8.-16.9. Icelandair Wizzair SAS easyJet Transavia Lufthansa Aðrir 28% 8% 9% 4% 5% 22% 24% Morgunblaðið/ÞÖK Millilandaflug Talsverður samdráttur hefur orðið í tíðni millilandaflugs og fjölda komufarþega frá 19. ágúst. Samdráttur » Fjöldi flugferða og komu- farþega hefur dregist verulega saman frá því að reglur um tvöfalda skimun tóku gildi. » Icelandair hefur stærsta hlutfall aflýstra ferða sam- kvæmt vef Isavia. » Mörg flugfélög hafa hætt flugi hingað. Icelandair og Wizz Air deila 50% af heildarfjölda ferða. Önnur flugfélög hafa litla en reglulega viðkomu. Reykjavík Krókháls 9 Sími: 590 2020 Reykjanesbær Njarðarbraut 9 Sími: 420 3330 Bílaríki, Akureyri Glerárgötu 36 Sími: 461 3636 benni.is B irt m eð fyrirvara um verð- og m yndabrengl. Verð frá:7.490.000 kr. á gamla verðinu. Fimm ára ábyrgð + 181 hestöfl, 420 Nm + 3ja tonna dráttargeta + Hátt og lágt drif + Byggður á grind + 7 manna + Sjálfstæð fjöðrun + Sjálfvirk öryggiskerfi + Fimm ára ábyrgð Aukabúnaður ámynd: 33” hækkun - 30 cm. veghæð Jeppi ársins 2020 1975 | Sérfræðingar í bílum | 2020

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.