Morgunblaðið - 19.09.2020, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 19.09.2020, Qupperneq 24
24 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. SEPTEMBER 2020 19. september 2020 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 137.49 Sterlingspund 177.21 Kanadadalur 104.16 Dönsk króna 21.802 Norsk króna 15.128 Sænsk króna 15.584 Svissn. franki 150.99 Japanskt jen 1.3145 SDR 194.35 Evra 162.2 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 197.187 Hrávöruverð Gull 1936.1 ($/únsa) Ál 1759.0 ($/tonn) LME Hráolía 42.32 ($/fatið) Brent ● Samkvæmt ný- birtum tölum Þjóð- skrár Íslands hækkaði íbúðaverð á höfuðborgar- svæðinu að með- altali um 0,8% milli júlí og ágúst. Verð á fjölbýli hækkaði um 0,7% og verð á sérbýli um 0,9%. Eins og bent er á í Hagsjá Landsbankans þá hefur íbúða- verð síðastliðna þrjá mánuði hækkað að jafnaði um 0,7% milli mánaða. Í fyrra var sambærileg hækkun 0,3%. „Það er því nokkuð ljóst að sumarið í ár var mun kröftugra en sumarið í fyrra, og hafa vaxtalækkanir haft veruleg áhrif á eftirspurn eftir húsnæði.“ Íbúðaverð á höfuðborg- arsvæðinu fer hækkandi Kaup Eftirspurn er eftir íbúðum. Baldur Arnarson baldura@mbl.is Ákall um aðgerðir til að styrkja Ís- land sem nýsköpunarland var meginstefið á Iðnþingi í gær. Var sú þörf talin sérstaklega knýjandi í ljósi samdráttar í kórónuveirukreppunni. Árni Sigurjónsson, formaður SI, setti Iðnþingið, en hann sagði miklar áskoranir bíða í atvinnulífinu. „Óveðursskýin voru vissulega far- in að hrannast upp í lok síðasta árs. Hagkerfið var farið að kólna, óvíst var um frekari vöxt og hvaðan hann ætti að koma. Heimsfaraldurinn hef- ur svo algjörlega breytt forsendum á alla kanta,“ sagði Árni sem taldi að þjóðin mætti engan tíma missa. Ákvarðanir og aðgerðir næstu 12-18 mánuði verði þýðingarmiklar. Á slík- um krossgötum þurfi að hugsa stórt. Meðal aðgerða sem hann lagði til var að auka fjárframlög í Tækni- þróunarsjóð og hækka endur- greiðsluhlutfall vegna kostnaðar við gerð erlendra kvikmynda á Íslandi. Þá væri brýnt að ráðast í byggingu nýs Tækniskóla. Flýta mætti upp- byggingu innviða með því að opna fyrir þátttöku einkafjárfesta, t.d. líf- eyrissjóðanna. Slík fjárfesting væri arðbær þegar vextir væru lágir. Meira í bætur en nýsköpun Mikilvægt væri að forgangsraða rétt á krepputímum. Það skjóti enda skökku við að stjórnvöld „hafi nú í vor og sumar varið um átta milljörð- um króna í greiðslu launa starfs- manna á uppsagnarfresti til saman- burðar við 5 milljarða fjárfestingar í nýsköpun og hagvexti framtíðar“. Jafnframt þyrfti ríkisvaldið að draga úr álögum á fyrirtæki. Atvinnurekendur þrýsti nú „mjög á um myndarlega lækkun trygginga- gjalds og fasteignagjalda“ sem muni skapa aukið rými til ráðninga og sköpunar nýrra starfa. „Álögur á at- vinnulífið eru komnar langt úr hófi fram og einboðið að lækka skatt- heimtu til stuðnings aukinni verð- mætasköpun. Fjölgun starfa er for- gangsatriði og hvatar sem þessir munu skila árangri samstundis,“ sagði Árni. Flestum mætti vera ljóst að kaupmáttur launatekna muni rýrna í þessari kreppu. Verkalýðs- forystan standi nú frekar vörð um samningsbundnar hækkanir en störf sinna umbjóðenda. Næst stigu á svið Ingólfur Bend- er, aðalhagfræðingur SI, og Sigríður Mogensen, sviðsstjóri hugverka- sviðs SI, en fundarstjóri var Logi Bergmann Eiðsson fjölmiðlamaður. Störf víkja fyrir sjálfvirkni Ingólfur sagði að skapa þyrfti 60 þúsund störf á næstu árum til að ná avinnuleysi niður og mæta fólks- fjölgun. Raunar þyrfti að skapa enn fleiri störf að teknu tilliti til þess að störf muni víkja fyrir sjálfvirkni. Bráðavandinn væri að skapa störf fyrir þá 21 þúsund einstaklinga sem væru nú atvinnulausir á Íslandi. Sigríður benti á að ríkisstjórnin hefði samþykkt aðgerðapakka vegna faraldursins upp á 150-200 milljarða en aðeins varið 4,5-5 milljörðum króna í nýsköpun. Taldi hún mikil tækifæri felast í því að markaðssetja Ísland sem nýsköpunarland á breiðari grunni. Rétt væri að laða að erlenda frumkvöðla og sérfræðinga. Komin aftur á dagskrá Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfa- dóttir, ferðamála-, iðnaðar- og ný- sköpunarráðherra, sagði átök 20. aldar milli hægri og vinstri, frjáls- hyggju og félagshyggju, ekki vera jafn hörð og áður. Þær deilur hefðu vikið fyrir öðrum viðfangsefnum sem knúið hefðu dyra, á borð við mann- réttindamál, jafnréttisbaráttu, fjöl- menningu og umhverfismál. Nú þyrfti að koma verðmætasköp- un aftur á dagskrá þjóðmálaumræð- unnar, samhliða hinum málefnunum. Ráðherrann rakti hvernig fjár- mögnun sprotafyrirtækja hefði verið efld með stofnun hvatasjóðsins Kríu. Hin aðgerðin væri að rýmka heim- ildir lífeyrissjóða til að fjárfesta í fjárfestingarsjóðum. Taldi ráð- herrann dýrmæt sóknarfæri felast í því að einfalda erlendum sérfræð- ingum að fá atvinnuleyfi á Íslandi. Nú sé unnið í nokkrum ráðuneytum við að færa þetta til betri vegar. Ráðherrann vék einnig að þætti ríkisins í atvinnuuppbyggingu; taldi nú heyrast of margar raddir úr at- vinnulífinu um sífellt meiri ríkis- stuðning. Spyrja mætti hvort ríkið ætti að ýta vagninum eða ryðja hindrunum úr vegi hans. Andvígur hærri styrkjum Þá taldi ráðherrann ekki tilefni til að hækka endurgreiðsluhlutfall vegna erlendra kvikmynda. Kerfið á Íslandi væri samkeppnishæft. Næstir í pallborði voru Þórður Magnússon, stjórnarformaður Eyris, Margrét Ormslev, aðstoðar- forstjóri Carbon Recycling Inter- national, og Sigurður Ragnarsson, forstjóri ÍAV. Spurði Logi þau hvort umhverfið á Íslandi væri nógu hag- fellt fyrir nýsköpunarfyrirtæki. Fram kom í máli Þórðar að Íslend- ingar væru frjóir og hugmyndaríkir og matskerfið vegna nýsköpunar öfl- ugt. Hins vegar þyrfti að efla eftir- fylgni og samráð við markaðinn. „Tækniþróun verður að vinnast í samráði við markaðinn,“ sagði Þórð- ur og benti á skort á fjármögnun. Af 883 umsóknum í Tækni- þróunarsjóð hefðu 128 fengið braut- argengi. Þá hefðu 33 af 412 umsókn- um í sjóðinn í sumar verið samþykktar. Taldi Þórður þetta áhyggjuefni. Fólkið á bak við umsóknirnar hefði enda hugmyndir sem gætu skapað verðmæti. Nú séu margir á atvinnu- leysisbótum sem gætu verið í vinnu. Auka þarf skilvirkni kerfisins Margrét sagði að grettistaki hefði verið lyft í mörgu er varðaði fjár- mögnun nýsköpunarfyrirtækja. Hins vegar þyrfti að auka skilvirkni kerfisins. T.d. nefndi hún hversu langan tíma hefði tekið að sækja um kennitölu fyrir erlendan aðila vegna atvinnuuppbyggingar á Íslandi. Sigurður sagði Íslendinga standa frammi fyrir miklu tækifæri til að markaðssetja Ísland sem nýsköpun- arland og laða hingað útlendinga og Íslendinga sem búa erlendis. Í næsta pallborði voru fulltrúar líf- tæknifyrirtækja. Guðmundur Fertram Sigurjóns- son, forstjóri Kerecis, sagði stefna í að velta fyrirtækisins myndi aukast úr einum í þrjá milljarða í ár. Mark- aðssetning erlendis væri að skila sér. Sesselja Ómarsdóttir, fram- kvæmdastjóri lyfjagreiningardeild- ar Alvotech, sagði útlit fyrir að velta fyrirtækisins yrði 5% af VLF á Ís- landi og 20% af útflutningstekjum árið 2027. Ágústa Guðmundsdóttir, annar tveggja stofnenda Zymetech, sagði mikil tækifæri fólgin í því að efla meistara- og doktorsnám á Íslandi. Sigurður Hannesson, fram- kvæmdastjóri SI, lauk þinginu. Hann sagði óveðursskýin enn vofa yfir þjóðinni. Það hrikti í tveimur grunnstoðum hagkerfisins, ferða- þjónustu og orkusæknum iðnaði. Lausnin væri að reisa fjórðu stoðina sem fælist í hugviti og nýsköpun. Óveðursský yfir hagkerfinu Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Iðnþing í Hörpu Árni Sigurjónsson, formaður SI, ávarpar fundargesti.  Formaður SI segir kaupmátt á niðurleið  Verkalýðsforystan berjist fyrir umsömdum hækkunum  Iðnþing fór fram í skugga kórónuveirukreppunnar  Gagnrýnt að ekki sé varið meira fé til nýsköpunar Kaja organic, Kalmansvellir 3, kajaorganic.com, kajaorganic@gmail.com Byggmjólk Eina íslenska jurtamjólkin Sölustaðir: Hagkaup, Fjarðarkaup, Melabúðin, Vegan búðin Fiskkompaní, Frú Lauga, Brauðhúsið og Matarbúr Kaju á Akranesi Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.