Morgunblaðið - 19.09.2020, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 19.09.2020, Blaðsíða 35
MINNINGAR 35 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. SEPTEMBER 2020 þekkti þau mið sem hann sigldi um. Hann var stórhuga og fékk hvatningu frá Diddu sinni. Skipin sem hann stýrði urðu æ öflugri og saman stofnuðu þau Didda ásamt öðrum vinahjónum útgerðar- og fiskvinnslufyrirtækið Friðþjóf sem þau ráku af miklum mynd- arskap og dugnaði í mörg ár. Missir Árna var mikill og djúp- stæður þegar Didda lést í árslok 2018. Einstaklega náin sambúð þeirra varði í yfir 60 ár og ekki að undra þótt hann fyndi sig hvorki heilan né hálfan mann eftir þann missi. Í öllum sínum verkum var Árni góð fyrirmynd og lagði gjörva hönd á að byggja upp gott og heil- brigt samfélag á Eskifirði. Hann var gegnheill sjálfstæðismaður. Trúði á einstaklingsfrelsi og at- vinnufrelsi með hagsmuni allra stétta fyrir augum og mannúð gagnvart þeim sem minna mega sín. Hann lifði eftir þeirri lífsstefnu að frumkvæði og framkvæmda- þróttur sérhvers manns eigi að fá notið sín, að menn fái notið ávaxta verka sinna og sjái tilgang í því að leggja sig alla fram. Árni hafði mótaðar skoðanir á því sem hann taldi skipta máli og það var gaman að ræða við hann um gamla tíma sem og lífsins gagn og nauðsynjar. Því miður verða símtöl okkar ekki fleiri. Eskfirska frændsemin er rík og rótgróin. Árni og pabbi ræktuðu með sér nána frændsemi og vin- áttu. Þegar Árni lét smíða sér stærra skip og þurfti að láta frá sér happafleyið Sæljón SU 103 fékk hann frænda sinn til að kaupa skipið vestur í Stykkishólm þar sem stofnað var til farsællar útgerðar. Við andlát Árna frænda koma upp í hugann minningar um ára- tuga vináttu þeirra hjóna í minn garð og fjölskyldu minnar. Hlýjar móttökur einkenndu ávallt heim- sóknir okkar á Steinholtsveginn. Fyrir það er þakkað af heilum hug. Börnum Árna, fjölskyldum þeirra og eftirlifandi systkinum hans sendi ég hugheilar samúðar- kveðjur. Guð blessi bjarta minn- ingu frænda míns Árna Halldórs- sonar. Halldór Árnason. Árni mágur var af kynslóð skipstjórnarmanna sem komu fram á sjónarsviðið á árunum kringum 1960. Þetta voru ungir menn sem alist höfðu upp við sjó og á honum. Í Stýrimannaskólan- um kynntust þeir nýrri tækni sem gjörbylti síldveiðum: asdikinu, sem fann torfurnar þótt þær væru langt undir haffletinum, og kraft- blökkinni, sem gerði mögulegt að kasta síldarnótinni beint frá skip- inu og draga inn með vélarafli. Næturnar urðu þá stærri og dýpri og veiðarnar stórjukust. Þessir aflasælu fiskimenn urðu þjóð- hetjur, a.m.k. hetjur í sínu byggð- arlagi. Árni fór kornungur að stunda sjó á litlum bátum, seinna varð hann stýrimaður á Víði SU og að loknu stýrimannsprófi skip- stjóri á nýjum og vel búnum skip- um Hraðfrystihúss Eskifjarðar, hverju af öðru. Síðar gerðist Árni eigin herra á Sæljóninu. Ásamt góðum félögum stofnaði hann fiskvinnsluna Friðþjóf sem þeir eða öllu heldur þau ráku með miklum blóma um árabil. Um tvítugt kynntist Árni Ragnhildi systur minni, sem fyrir tilstuðlan örlaganornanna hafði ráðið sig í kaupavinnu austur á land. Það leyndi sér ekki að stúlk- an var ástfangin upp fyrir haus, enda giftust þau árið eftir að hún lauk stúdentsprófi og hófu sam- búð, fyrst í Reykjavík meðan Árni lauk Stýrimannaskólanum, og síð- an á ættarslóðum hans á Eskifirði. Hjónaband þeirra varð langt og farsælt, en Ragnhildi missti Árni fyrir tæpum tveimur árum. Hann var sem vængbrotinn síðan en hélt þó reisn sinni og var eigin herra þangað til jörðin togaði hann til sín og veitti honum þá áverka sem drógu hann til dauða á nokkrum dögum. Árni varð snemma ábyrgur fyr- ir stórri fjölskyldu og lífi og limum áhafna á hafinu. Í öllu fasi hans og framkomu fann maður glöggt til myndugleika og stjórnsemi sem hann var gæddur en þó án allrar háreysti eða fyrirferðar. Ég ímynda mér að hann hafi sjaldan þurft að beita sína menn hávaða eða átölum, enda var hann farsæll skipstjóri og hélst vel á mann- skap. Mér þótti alltaf merkilegt hve vel honum og systur minni tókst að stýra sínu fleyi í samein- ingu, því að hún var einnig stjórn- söm og hafði ákveðnar skoðanir. Ég held þó að það séu engar ýkjur að saman hafi þau haldið striki að einu marki. Afkomendurnir hafa erft þeirra góðu eiginleika. Það var fróðlegt að fylgjast með því hvernig þau Árni og Ragnhildur og samstarfsmenn þeirra byggðu upp og ráku Frið- þjóf. Ég kom þar á vinnudegi. Eigendur fyrirtækisins sátu ekki spariklæddir í glerbúrum heldur gengu til allra verka við hlið ann- arra starfsmanna, en á meðan sat Ragnhildur í lítilli herbergis- kompu heima og sá um alla skrif- stofuvinnuna. Árni Halldórsson var eftir- minnilegur maður, vel lesinn í eldri íslenskum bókmenntum og þjóðlegum fræðum. Hann sagði skemmtilega frá og hafði frá mörgu að segja, allt frá erfiðum tilraunum til að bjarga sjómönn- um í sjávarháska að gamansögum um fólk og viðburði. Hann hafði næmt auga fyrir kímilegum ein- staklingum og skrýtnum atvikum sem drifið hafði á daga hans. Harmur er um sinn kveðinn að afkomendum, frændgarði og vin- um Árna Halldórssonar, en gott er að minnast góðs drengs. Vésteinn Ólason. Ef ég á einhverjum mikið að þakka er það Árna Halldórssyni, skipstjóra og útgerðarmanni. Hann gaf mér ungum manni tæki- færið að verða skipstjóri og gleymi ég aldrei þegar hann hringdi í mig og spurði mig hvort ég vildi ekki taka við af honum sem skipstjóri á Sæljóninu, hann ætlaði að hætta og fara í land og starfa við fiskvinnslu í landi. Þetta var stór og mikil áskorun og var mér hálfbrugðið, var búinn að vera stýrimaður í tvö ár á loðnu- skipi og togara eftir að ég kláraði Stýrimannaskólann í Reykjavík, en sá að þarna var stórt tækifæri sem erfitt var að hafna. Ég varð þungt hugsi en sagðist koma yfir til hans á eftir enda stutt að fara þar sem ég bjó í næsta húsi í kjall- araíbúð foreldra minna. Það var tekið vel á móti mér á Steinholts- vegi 7 eins og venjulega þar sem ég hitti fyrir þau hjónin Árna og Diddu. Ég sló til og Árni sagði við mig að ég gæti alltaf leitað til hans ef mig vantaði upplýsingar sem ég að sjálfsögðu nýtti mér óspart. Árni sagði við mig nokkur orð sem ég hef haft að leiðarljósi allan minn skipstjóraferil og það var að hafa alltaf trú á verkefninu sem ég væri að fara í, þá gengi það upp. Það voru forréttindi að vinna hjá þeim hjónum og meðeigendum hjá Friðþjófi hf. í þau rúm 6 ár sem ég var skipstjóri á Sæljóninu. Ég þekkti Árna vel, hafði búið í næsta húsi og það var mikill vin- skapur milli þeirra hjóna og for- eldra minna og ég bar mikla virð- ingu fyrir Árna skipstjóra sem barn og var oft á heimili þeirra og lék mér við syni hans. Ein af mín- um fyrstu minningum um Árna er þegar við Halldór sonur hans fengum að fara með á Krossanes- inu á síld út á Rauðatorg, ég 9 ára og Halldór 8 ára, ég fylgdist með og horfði á hann kasta nótinni og ég hugsaði: Mig langar að verða skipstjóri eins og Árni. Bræður mömmu voru mjög mikið með Árna til sjós og allir báru þeir hon- um söguna vel enda ekki annað hægt svo vandaður og áræðinn aflamaður sem hann var, það er engin tilviljun að Árni náði í þrjú ný skip fyrir Hraðfrystihús Eski- fjarðar erlendis, Hólmanes og Vattarnes til Noregs og Krossa- nes til Austur-Þýskalands. Vin- skapur okkar Árna hélst alla tíð og hittumst við reglulega og spjölluðum um fiskveiðar og margt fleira enda fylgdist Árni vel með. Nú ert þú elsku vinur róinn á ný og óþekkt mið og vonandi hittir þú Diddu þína þar, sem þú sakn- aðir svo mikið. Elsku vinir og fyrrverandi ná- grannar, Kristín, Halldór, Björn, Sigrún, Guðmundur, Auður og af- komendur. Votta ykkur öllum mína dýpstu samúð. Minning þín er mér ei gleymd; mína sál þú gladdir; innst í hjarta hún er geymd, þú heilsaðir mér og kvaddir. (Káinn) Grétar Rögnvarsson. Árni Halldórsson, vinur minn og fyrrum starfsfélagi í hartnær fjörutíu ár, hefur nú leyst land- festar í hinsta sinn, en hann lést að morgni 9. sept. Samstarf okkar hófst haustið 1964 þegar við fór- um að sækja nýtt 250 t. fjölveiði- skip til Austur-Þýskalands, Krossanes SU 320, fyrir Hrað- frystihús Eskifjarðar, var þetta þriðja nýsmíðin sem hann tók við fyrir það fyrirtæki hin voru Hólmanes og Vattarnes. Áður hafði hann verið á ýmsum bátum, þar á meðal Víði SU þar sem hann var stýrimaður. Rétt fyrir jólin komum við heim með Krossanesið og vorum við saman á því til ársins 1968 en þá lauk sjómennsku okkar í þágu Hraðfrystihúss Eskifjarðar og við stofnuðum eigið fyrirtæki, Friðþjóf hf., með Kristni Karls- syni, Unnari Björgólfssyni og eig- inkonum okkar. Jafnframt var ráðist í kaup á 64 t. trébát frá Hafnarfirði, Sæljóni SU103, og hann sóttur um vorið 1968. Ekki fór útgerðin vel af stað, því að þegar við ætluðum að fara að sigla af stað heim, nýbúnir að sleppa landfestum, þá hrundi gír- inn við vélina, sem kostaði hálfs mánaðar töf meðan beðið var eftir varahlutum. Bjuggum við í bátn- um og notuðum tímann til að mála og þrífa. Fengum varahlutina og allt komst í lag og við héldum heim. Þennan bát gerðum við út í 4 ár. Farið var á vetrarvertíð til Hornafjarðar og Vestmannaeyja í janúar og komið heim í byrjun maí, ansi langt úthald. Við nutum þess að hafa alla tíð á góðum mannskap að skipa. Átti Árni ótrúlega auðvelt með að ráða dug- lega stráka um borð. Árið 1972 var Sæljónið selt og við keyptum stærri bát og fékk hann nafnið Friðþjófur, hann áttum við í rúm 2 ár, en þá var hafin smíði á 150 t. bát á Akureyri, Sæljóni SU 104, sem við fengum árið 1974. Þessi bátur reyndist í alla staði mjög vel. Í um tvo áratugi var hann í eigu fyrirtækisins og alfarið gerð- ur út frá Eskifirði. Allan afla verk- uðum við enda komnir með fisk- verkun bæði fyrir bolfisk og síld. Árni var með Sæljónið til ársins 1981, þá hætti hann á sjónum og fór að starfa við fyrirtækið í landi. Hann aflaði sér matsmannsrétt- inda og sá um að gæðameta salt- fisk, skreið og síld. Þessum störf- um sinnti hann af mikilli kostgæfni enda vandvirkur og kappsamur við allt sem hann gerði. Árni var mikill mannþekkj- ari, til marks um það má geta þess að þegar kom að því að ráða eft- irmann hans á Sæljónið, réð hann ungan og efnilegan strák, Grétar Rögnvarsson, þá 24 ára, sem var alls óvanur slíkum veiðum sem fyrirtækið stóð að, en hann var fljótur að ná tökum á þessu með dyggri aðstoð frænda síns Páls Helgasonar vélstjóra. Þegar Grét- ar hætti árið 1988 réð Árni annan ungan mann og að sama skapi óreyndan, Ómar Sigurðsson. Eru báðir þessir ágætu menn nú með fengsælustu skipstjórum og stjórnendur stórra uppsjávar- skipa. Sýnir þetta betur en annað hversu mikill mannþekkjari hann var. Árið 1997 var útgerð Frið- þjófs hf. hætt. Samstarf okkar Árna í gegnum árin var alltaf gott. Við vorum ef til vill ekki sammála um allt, en gengum ávallt sáttir frá borði. Kæri vinur, takk fyrir samstarfið og vináttuna í gegnum árin. Ég votta börnum hans og öðrum ættingjum innilega samúð. Bjarni Stefánsson. Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN Útfararþjónusta í yfir 70 ár Sálm. 16.1-2 biblian.is Varðveit mig, Guð, því að hjá þér leita ég hælis. Ég segi við Drottin: „Þú ert Drottinn minn, ég á engin gæði nema þig.” Innilegar þakkir fyrir sýnda samúð og hlýju við andlát elsku móður okkar, tengdamóður og ömmu, KRISTÍNAR L. VALDEMARSDÓTTUR, Sléttuvegi 11, áður Hrauntungu 22, Kópavogi, sem lést á Hrafnistu í Hafnarfirði 6. ágúst. Sérstakar þakkir til alls starfsfólks Báruhrauns í Hafnarfirði fyrir einstaka umhyggju. Kærleikskveðja, Frosti Bergsson Halldóra M. Mathiesen Valdimar Bergsson Helga M. Geirsdóttir Anna Rós Bergsdóttir Haraldur Guðfinnsson ömmubörn, langömmubörn og langalangömmubarn Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, KRISTÍNAR ÖNNU GUÐJÓNSDÓTTUR, Álfaskeiði 58, Hafnarfirði. Sérstakar þakkir til starfsfólks á Hjúkrunarheimilinu Sólvangi. Guðjón Þorkelsson Sesselja G. Sigurðardóttir Magnús Þorkelsson Guðrún Ásmundsdóttir Íris Þorkelsdóttir Friðrik Guðjónsson barnabörn og barnabarnabörn Elsku faðir minn, afi, tengdafaðir og bróðir, JÓHANN GUÐJÓNSSON líffræðingur og kennari við Flensborgarskólann, lést mánudaginn 14. september. Útför fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju föstudaginn 25. september klukkan 13. Þeim sem vilja minnast hans er bent á að styrkja umhverfis- og náttúruverndarsamtök að eigin vali. Guðrún Eva Jóhannsdóttir Jón Trausti Guðjónsson Jóhanna Eldey Óskarsdóttir Gunnsteinn Guðjónsson Daníel Orri Óskarsson Anna Kristín Guðjónsdóttir Óskar Pétur Einarsson Magnús Guðjónsson Ingvar Guðjónsson Elskulegur faðir minn, tengdafaðir og afi, ÞÓRÐUR SIGURÐSSON, fyrrv. yfirlögregluþjónn, Böðvarsgötu 11, Borgarnesi, lést föstudaginn 4. september í Brákarhlíð í Borgarnesi. Útför hans fer fram frá Borgarneskirkju laugardaginn 26. september klukkan 13. Henni verður einnig streymt á www.kvikborg.is. Þökkum auðsýnda samúð, vináttu og hlýju. Guðlaugur Þór Þórðarson Ágústa Johnson Þórður Ársæll Sonja Dís Anna Ýr Rafn Franklín Hjartkær móðir okkar og tengdamóðir, GUÐNÝ SIGURÐARDÓTTIR, lést á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Höfða þriðjudaginn 8. september. Útför hennar fer fram frá Akraneskirkju þriðjudaginn 22. september klukkan 13. Streymt verður frá athöfninni á vef Akraneskirkju, www.akraneskirkja.is. Guðmundína Hallgrímsdóttir Matthías Pálsson Ólafur Hallgrímsson Bryndís Bragadóttir Hörður Hallgrímsson Geirlaug Jóna Rafnsdóttir og fjölskyldur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.