Morgunblaðið - 19.09.2020, Qupperneq 48
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Listakonan Þórey Eyþórsdóttir
opnar listasýningu á eigin verkum í
Gallerí Vest á Hagamel 67 í Reykja-
vík klukkan 15 í dag. „Ég hef lifað
fjölbreyttu lífi, er með fjölbreytta
menntun, lærði meðal annars textíl
fyrir áratugum og hérna má sjá
vefnað, útsaum og málverk frá
löngum ferli,“ segir hún.
Þórey útskrifaðist frá Myndlista-
og handíðaskólanum 1965 og segist
öðru hverju hafa unnið við vefnað,
þótt hún hafi unnið fyrir sér sem tal-
meina-, uppeldis- og sálfræðingur.
„Mitt aðalstarf hefur verið að fá fólk
til þess að lifna við og tala við mig.
Vefnaðurinn hefur alltaf átt ítök í
mér og ég hef haldið mig við skap-
andi störf í frítímanum, sérstaklega
eftir að ég fór að minnka við mig
vinnu.“
Þegar þau hjónin Þórey og Krist-
ján Baldursson tæknifræðingur
fluttu heim frá Noregi 2014, eftir að
hafa búið þar í um 20 ár, keyptu þau
húsnæði, þar sem áður var bakarí,
og breyttu í Gallerí Vest. „Hérna er
ég með fína vinnustofu, tvo vefstóla
og frábæran sýningarsal og ákvað
að sýna verk eftir mig.“ Þórey segist
samt ekki hafa sinnt listinni vel að
undanförnu því hún hafi þurft að
fara í liðskiptaaðgerð á mjöðm í nóv-
ember í fyrra. „Eftir að hafa beðið í
16 mánuði eftir að komast í aðgerð
gafst maðurinn minn upp, þoldi ekki
að horfa á mig kveljast svona, og við
borguðum mikla peninga til að kom-
ast að hjá Klíníkinni í Ármúla.“
Stöðugt að breyta til
Þórey leggur áherslu á að lífið sé
skemmtilegt og sýningin taki mið af
því. „Mér finnst gaman að lifa og
finn mér alltaf eitthvað að gera,“
segir hún. Bætir við að hún saumi,
máli og vefi jöfnum höndum. „Ég
elska að breyta til enda hef ég lifað
þannig lífi, stöðugt verið að taka að
mér verkefni í Noregi, kynnst nýju
fólki og nýju umhverfi. Ég þakka
guði fyrir að hafa fengið að upplifa
þetta allt saman.“
Gleðin leynir sér ekki hjá Þóreyju
en smá fát kemur á hana og hún
verður alvarleg þegar spurt er hvað
hún hafi haldið margar sýningar.
„Ég er ekki góð í að halda því sam-
an,“ segir hún. Blaðar í bæklingum
og sér að hún hefur sýnt víða, meðal
annars í Danmörku og Noregi.
„Fyrir mörgum árum fannst mér
ekkert við að vera á Akureyri og
stofnaði ásamt listafólki á Norður-
landi félagið Nytjalist. Upp úr því
fékk ég fyrst allra inngöngu í Gilið
og þar rak ég Galleríið AllraHanda í
nokkur ár.“
Ekkert nafn er á sýningunni. „Ég
hef ekkert hugsað út í það,“ segir
Þórey. „Þetta er svo sem dæmigert
fyrir mig. Ég veð úr einu í annað og
nú er ég að halda sýningu með góð-
um stuðningi frá manninum mínum.
Hann er ekki í listinni, en mamma
hans var vefnaðarkennari og kenndi
í húsmæðraskóla eins og ég. Honum
finnst gaman þegar mér dettur eitt-
hvað í hug og ég nýt góðs af því.“
Þórey segist vera alsæl með
vinnustofuna og salinn. „Hérna er ég
í mínu ríki og þótt allt sé í drasli nýt
ég þess að vera hérna. Ég fylgi eng-
um stefnum heldur geri það sem
kemur upp í hugann hverju sinni.“
Sýningin endurspegl-
ar skemmtilegt líf
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Í Gallerí Vest Þórey Eyþórsdóttir opnar sýningu á verkum sínum í dag.
Þórey Eyþórsdóttir sýnir vefnað, útsaum og myndlist
Í vinnustofunni Þórey Eyþórsdóttir er hugmyndarík og stöðugt að.
Smáralind | Kringlunni | Spönginni | Reykjanesbæ | Akranesi
Sími 511 2022 | dyrabaer.is
Hæ sæti
– hvað vilt þú borða!
ÚTSÖLUSTAÐIR:
Byko, Selfoss – Garðheimar
Heimkaup – Dýrabær
Bragðgott, holltog næringarríkt
Myndlistarmaðurinn Guðrún Einarsdóttir opnar sýn-
ingu í Vitavarðarhúsinu í Gróttu á Seltjarnarnesi í dag.
Sýnir Guðrún, sem er meðal kunnustu myndlistar-
manna sinnar kynslóðar, þar ný og nýleg olíumálverk
auk hluta. Sýningin verður opin nú næstu viku og svo 3.
til 10. október. Gestir þurfa að kynna sér síðdegis-
flóðatöflu fyrir Gróttu til að komast þangað út og til
baka og er sýningin opin í samræmi við það. Í dag er
sýningin opin kl. 11 til 16 og á morgun, sunnudag, kl. 12
til 17.
Guðrún Einarsdóttir sýnir olíu-
málverk í vitavarðarhúsinu í Gróttu
LAUGARDAGUR 19. SEPTEMBER 263. DAGUR ÁRSINS 2020
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í lausasölu 1.196 kr.
Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr.
PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr.
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Mál hlauparans Caster Semenya er eitt það áhugaverð-
asta sem komið hefur upp í íþróttaheiminum á síðustu
árum. En um leið er það eitt hið leiðinlegasta. Á tímum
þegar barist hefur verið fyrir því að afreksíþróttafólk
taki ekki lyf sem hafa áhrif á frammistöðu stendur tvö-
faldur ólympíumeistari í 800 metra hlaupi kvenna
frammi fyrir því að þurfa að taka inn lyf til að fá að
keppa áfram í greininni. »41
Þarf að taka lyf til að fá að keppa
áfram í sinni grein
ÍÞRÓTTIR MENNING