Morgunblaðið - 28.09.2020, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. SEPTEMBER 2020
Það kemur ekki á óvart að eittmegináhersluefni Viðreisnar
á nýafstöðnu landsþingi flokksins
skuli hafa verið innganga í Evr-
ópusambandið og
upptaka evr-
unnar, sem er
raunar skilyrði
fyrir inngöngu í
sambandið.
Það er meðmiklum ólík-
indum þegar
horft er til
ástandsins í Evrópusambandinu
að hér á landi skuli finnast flokk-
ur – og systurflokkar að auki –
sem enn heldur fast við þessa
stefnu.
Þeir sem fylgjast með brexit-
átökunum og óbilgjarnri kröfu
ESB um að Bretar afsali sér yf-
irráðum yfir fiskimiðum sínum
þrátt fyrir að hafa yfirgefið sam-
bandið hljóta líka að verða mjög
hugsi yfir þessum óbreyttu
áherslum Viðreisnar.
En forysta Viðreisnar veit líkaað ESB sýndi líka með
afdráttarlausum hætti í aðildar-
viðræðum Íslands, í tíð vinstri-
stjórnar Samfylkingar og VG, að
Íslandi stæði ekkert til boða í
tengslum við sjávarútveginn.
Viðreisn er sama um þettaenda telur flokkurinn sjálf-
sagt að fórna bæði landbúnaði og
sjávarútvegi eins og sést á því að
í stjórnmálaályktuninni er talað
um að kasta núverandi fiskveiði-
stjórnarkerfi og setja þessa
undirstöðuatvinnugrein í algert
uppnám.
Tæpast er hægt að gera sér íhugarlund meira ábyrgðar-
leysi, einkum á þeim viðkvæmu
tímum í efnahag landsins sem nú
ríkja.
Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir
Ábyrgðarlaus
stjórnmálaályktun
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Dekton er mjög slitsterkt og rispuþolið borðplötuefni.
Dekton þolir mikinn hita. Það má setja heita potta og pönnur
beint á steininn án þess að eiga það á hættu að skemma hann.
Blettaþolið SýruþoliðHögg- og
rispuþolið
Viðarhöfða 1, 110 Reykjavík | Sími 566 7878 | rein.is
HÁTT
HITAÞOL
Nöfn 411 Íslendinga eru í gagnabanka kínversks
fyrirtækis sem fylgist með hegðun fólks á samfélags-
miðlum í meintu samstarfi við kínverskar varnar-
mála- og leyniþjónustustofnanir.
Fyrirtækið, Zhenhua Data Information Techno-
logy, segir ekkert athugavert við gagnabankann,
sem hefur að geyma nöfn alls 2,4 milljóna einstak-
linga. Á meðal nafna í gagnabankanum eru stjórn-
málamenn, opinberir starfsmenn víðs vegar um
heiminn og listamenn. Gagnabankinn er ekki að-
gengilegur, en um 10% nafnanna hafa verið birt í
fjölmiðlum erlendis.
Í frétt Guardian kemur fram að í gagnabankanum
sé að finna persónulegar og oft ítarlegar upplýsingar
um einstaklinga. Netöryggisfyrirtæki í Ástralíu,
sem þjónustar bæði yfirvöld í Ástralíu og Bandaríkj-
unum, hefur náð að staðfesta um 250.000 nöfn í
gagnabankanum. Á meðal þeirra eru 52.000 Banda-
ríkjamenn, 35.000 Ástralar og um 10.000 Bretar. Á
meðal nafna í gagnabankanum eru Boris Johnson og
Scott Morrison, forsætisráðherrar Bretlands og
Ástralíu, fjölskyldur þeirra, breska konungsfjöl-
skyldan og hernaðarleiðtogar. liljahrund@mbl.is
Nöfn 411 Íslendinga í gagnaleka
Fylgjast með hegðun
fólks á samfélagsmiðlum
AFP
Gagnabanki Fyrirtækið segir ekkert athugavert
við bankann, sem geymir 2,4 milljónir nafna.
Kjörnir fulltrúar, sem eru formenn
ráða og nefnda Akureyrarbæjar,
verða talsmenn bæjarins í viðkom-
andi málaflokkum í stað þess að bæj-
arstjóri svari fyrir mál og sé fulltrúi
sveitarfélagsins út á við. Þetta er
meðal áherslna sem nú eru boðaðar í
bæjarstjórn Akureyrar, þar sem all-
ir fulltrúar koma
nú að stjórn mála,
svo minni- og
meirihluti eru
ekki til skv. því
sem ákveðið var í
síðustu viku.
Gunnar Gísla-
son, oddviti Sjálf-
stæðisflokksins í
bæjarstjórn,
greindi frá þessu
í þættinum Vikulokunum á Rás 1 sl.
laugardag. Þar sagði bæjarfulltrú-
inn að ætlunin væri „… að reyna að
ná því fram að fulltrúar flokkanna
fái svona nokkuð jafna athygli“.
Þungur rekstur Akureyrarbæjar,
meðal annars vegna kórónuveir-
unnar, er meginástæða þess að
meiri- og minnihluti í bæjarstjórn-
inni tóku höndum saman. Við þessar
aðstæður segir Gunnar Gíslason í
samtali við Morgunblaðið að bæj-
arstjórinn, sem nú er Ásthildur
Sturludóttir, hafi nóg að gera við að
stýra umfangsmiklum rekstri bæj-
arins. Leiti fjölmiðlar til bæjarstjóra
eftir upplýsingum um tiltekin mál
verði þeim þá vísað á formenn við-
komandi nefnda. Formaður um-
hverfis- og mannvirkjasviðs svari
fyrir framkvæmdir í bænum, for-
maður fræðsluráðs svari fyrir skóla-
mál og svo framvegis. Sjálfur er
Gunnar ekki í forsvari fyrir neitt af
ráðum bæjarins – og kveðst því
þurfa að finna aðrar leiðir til að
koma sínum sjónarmiðum á fram-
færi.
„Hverjir eigi að svara fjölmiðlum
er hluti af sáttmála sem við bæjar-
fulltrúar gerðum við breytingar á
meirihlutanum. Þar verðum við auð-
vitað 100% sammála en ætlum þá að
ræða okkur til niðurstöðu í málum
sem ólíkar skoðanir eru á. Megin-
málið nú er að koma rekstri bæj-
arins í jafnvægi,“ segir Gunnar.
sbs@mbl.is
Bæjarfulltrúarnir
fái meiri athygli
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Akureyri Kjörnir fulltrúar til svara.
Gunnar
Gíslason