Morgunblaðið - 28.09.2020, Page 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. SEPTEMBER 2020
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Nú hillir undir að gamla Blöndubrúin
verði að nýju sett upp og tengi Hrút-
ey við land. Brúin var upphaflega
vígð árið 1897 og var fyrsta fast-
tengda brú landsins og er meðal elstu
samgöngumannvirkja á landinu.
Hrútey er í miðri jökulánni í útjaðri
byggðar á Blönduósi og vinsæl til úti-
vistar meðal heimamanna og ferða-
fólks.
Valdimar Hermannsson sveitar-
stjóri segir að unnið hafi verið að
verkefninu í nokkur ár. Leyfi Vega-
gerðarinnar, sem á brúna, til að nota
hana sem göngubrú liggur fyrir og
sömuleiðis jákvæð afstaða Umhverf-
isstofnunar.
Hann segir að verkefnið sé kostn-
aðarsamt og áætlar Valdimar að alls
kosti framkvæmdin um 80 milljónir
króna. Framlög hafa fengist frá
Vegagerðinni og framkvæmdasjóði
ferðamannastaða og skipta þau sköp-
um við verkefnið, sem Blönduósbær
fjármagnar að öðru leyti. Valdimar
vonast eftir framlagi frá sjóðnum á
næsta ári til að hægt sé að ljúka fram-
kvæmdinni.
Samofin sögu bæjarins
Meðal einstakra verkþátta er mal-
bikaður stígur að brúarstæðinu, bíla-
stæði, viðgerð á gömlu brúnni, stöpl-
ar undir hana, stígagerð í Hrútey og
aðstöðuhús með salernum. Núver-
andi göngubrú út í Hrútey var sett
upp árið 1988, og hefur hún orðið fyr-
ir álagstjóni og því mikilvægt að
skipta henni út. Þá verður nú hægt að
komast með léttari tæki út í Hrútey,
m.a. til að grisja og fjarlægja tré og
grisja og lagfæra göngustíga.
Valdimar segir að gamla Blöndu-
brúin sé samofin sögu bæjarins og
með því að taka hana í notkun á nýjan
leik sé verið að sýna sögunni virð-
ingu. Um leið batni aðgengi út í Hrút-
ey sem sé einstök náttúruparadís.
Þar er skógrækt, fjölbreyttur gróður
og auðugt fuglalíf þar sem gæsin á
m.a. griðland. Hrútey hefur yfirleitt
verið lokuð gestum yfir varptímann,
en í sumar var gerð tilraun til að hafa
eyjuna opna og gekk það vel að sögn
Valdimars.
Eins og áður sagði var gamla brúin
sett upp við Blöndu 1897 og þjónaði
sínu hlutverki fram til ársins 1962. Þá
var hún flutt inn í Svartárdal og brú-
aði Svartá í um 40 ár. Þegar hlutverki
hennar þar var lokið var ákveðið að
flytja hana aftur á Blönduós og finna
henni nýtt hlutverk þar. Hefur hún
síðustu ár verið á geymslusvæði við
bæinn. Í sumar var hún sandblásin,
ryðvarin og máluð.
Kauptúnið varð að stórborg
Í Þjóðólfi frá því í október 1897 er
myndræn lýsing á hátíðisdeginum
þegar brúin yfir Blöndu var vígð. Þar
er m.a. lýst ræðuhöldum fyrirmenna,
söng og miklum gleðskap. Í greininni
segir: „Það var auðséð fyrir þann,
sem þekkir sveitalífið á Íslandi og
heyskaparannirnar, að miðvikudag-
urinn 25. ágúst var eitthvað einstakur
og þýðingarmikill dagur fyrir Hún-
vetninga. Það er ekki siður um há-
sláttinn í miðri viku, að byrja daginn
með því, að söðla jóinn til að „ríða út“,
en þennan morgun gat að líta fólk á
reið í stórhópum, nálega hvert sem
lítið var, frá því um dagmálaskeið og
vel fram um hádegi …
Það var og eitt einkennilegt, að all-
ir stefndu í sömu átt – til sjáfar – og
hafði þó engin sérleg fiskifregn eða
hvalsögufrétt flogið um héraðið. –
Hvað var það þá, sem dró fleiri
hundruð starfandi manna frá atvinnu
sinni, fleiri hundruð kvenna frá búr-
kistunni og börnunum? Það var
fregnin um, að komin væri manngeng
brú á Blöndu sem ætti að vígja og
opna almenningi í dag.
Veðrið var fremur drungalegt, en
milt og enginu ánægjuspillir. Kaup-
túnið Blönduós varð að stórborg, það
úði og grúði af fólki og hestum á göt-
unum(!) og allt í kring; þó var auðséð,
að eigi stóð markaðurinn yfir, því
sölubúðir voru lokaðar. Um kl. 12
voru fánar dregnir á stengur, og um
sama skeið þyrptist mannfjöldinn
upp að norðurenda Blöndubrúar …
Þá tóku menn á rás yfir brúna,
töldust það full 600 sálna, er þar voru
staddar. Léku menn nú lausum hala
um stund hér og þar í kring, sumir
sóttu heim brennivínskrá veitinga-
mannsins á Blönduós, sem byggt
hafði nýlendu allnærri …“
Brúar Blöndu á nýjan leik
Virðing við söguna og bætt aðgengi að Hrútey Fjölþætt framkvæmd fyrir um 80 milljónir
Ljósmynd/Róbert Daníel Jónsson/Blönduósbær
Blanda Hrútey þykir einstök útivistarperla í miðri jökulánni og margir leggja þangað leið sína. Með uppsetningu gömlu brúarinnar batnar aðgengi.
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
Víkur Brúin yfir í Hrútey er komin til ára sinna og hefur orðið fyrir tjóni. Í endurnýjun lífdaga Hér má sjá gömlu brúna yfir Blöndu á árum áður.
Hrútey er í alfaraleið við þjóðveginn og er skrautfjöður í hatti Blöndu-
ósbæjar, segir m.a. á vef Skógræktarfélags Íslands. Á vef Umhverf-
isstofnunar er að finna þessa lýsingu: „Hrútey var friðlýst sem fólk-
vangur árið 1975. Gróskumikil eyja og rómuð fyrir fuglalíf. Vinsælt
útivistarsvæði.“
Hrútey var aldrei byggð en var nytjuð um aldir til beitar og keypti
Blönduóshreppur Hrútey árið 1923. Snemma var farið að ræða um að
gera Hrútey að útivistarsvæði og var eyjan friðuð fyrir búfé 1933. Vor-
ið 1942 hófst skógrækt í eyjunni og voru fyrstu trén gróðursett af
skátafélaginu á Blönduósi. Síðan hafa ýmis félög og félagasamtök
komið að gróðursetningu og umhirðu í eyjunni. Hrútey varð Opinn
skógur árið 2003, en markmiðið með verkefninu Opinn skógur er m.a.
að opna skógræktarsvæði við alfaraleiðir.
Fólkvangur frá 1975
HRÚTEY ER SKRAUTFJÖÐUR Í HATTI BLÖNDUÓSBÆJAR
Varðveittu
minningarnar
áður en þær glatast
Bergvík ehf - Nethyl 2D - Sími 577 1777 - www.bergvik.is