Morgunblaðið - 28.09.2020, Qupperneq 13
SVIÐSLJÓS
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Lögreglan í Svíþjóð segir að hún
eigi í erfiðleikum með að hafa hemil
á skipulagðri glæpastarfsemi, sem
birtist í formi „fjölskyldna“. Þessar
glæpaklíkur halda uppi sínu eigin
„réttarfari“ sín á milli, á sama tíma
og ofbeldisfullum glæpum hefur
fjölgað mjög á síðustu árum.
Sérfræðingar, sem AFP-frétta-
stofan ráðfærði sig við, segja að
þessar glæpafjölskyldur hafi nú
talsverð ítök í sumum af fátækustu
hverfum Svíþjóðar. Skotárásir og
sprengingar eru reglulega í frétt-
um, og vitni eru of óttaslegin við af-
leiðingarnar til þess að gefa vitn-
isburð sinn fyrir dómi.
Deilan útkljáð á hóteli
Glæpafjölskyldurnar og ofbeldið
sem fylgir illdeilum þeirra komust í
hámæli í Svíþjóð í byrjun ágúst,
þegar 12 ára stúlka lést í skotárás í
Stokkhólmi, en hún varð fyrir
byssukúlu þegar skotið var á með-
lim einnar fjölskyldunnar úr bíl sem
ekið var hjá. Málið vakti mikla reiði
í Svíþjóð og umræðu um stöðu mála.
„Hefurðu séð Guðföðurinn? Þá
veistu hvernig þetta er,“ sagði
blaðamaðurinn Johanna Bäckström
Lerneby við AFP-fréttastofuna, en
hún skrifaði bók um eina af fræg-
ustu glæpafjölskyldum Svíþjóðar.
Meðlimir þeirrar fjölskyldu kom-
ust nýlega í fréttir í Svíþjóð þegar
þeir settu upp vegartálma og kröfðu
akandi vegfarendur um skilríki, en
þá átti fjölskyldan í útistöðum við
aðra glæpafjölskyldu. Sagði einn af
þeim sem stóðu að tálmunum við
sænska ríkissjónvarpið SVT að
þeim væri ætlað að „verja íbúa og
börn í hverfinu“.
Deilan var útkljáð í lok ágúst,
þegar fulltrúar fjölskyldnanna
tveggja ásamt öðrum sem hlut áttu
að máli hittust á hóteli í Gautaborg
og sömdu um vopnahlé sín á milli.
Þó að talsmenn lögreglunnar væru
vopnahléinu fegnir kvörtuðu þeir
hástöfum yfir því að vandamálið
hefði verið leyst án aðkomu lögregl-
unnar. Hún hefði í raun verið sett til
hliðar í baráttu gengjanna.
Mats Löfving vararíkislögreglu-
stjóri vakti einnig athygli á málinu í
byrjun þessa mánaðar, en hann
sagði við sænska ríkisútvarpið SR
að gróft áætlað væru að minnsta
kosti 40 glæpafjölskyldur nú í Sví-
þjóð, og bætti við að þær hefðu
komið gagngert til landsins til þess
að stunda skipulagða glæpastarf-
semi. Um leið hefðu fjölskyldurnar
tekið með sér sitt eigið réttarfar og
stjórnkerfi, sem sænsk lög næðu
ekki yfir.
„Eitur“ í sænsku samfélagi
Stefan Löfven, forsætisráðherra
Svíþjóðar, hefur einnig tjáð sig um
vandann, en hann kallaði glæpafjöl-
skyldurnar „eitur í samfélagi okkar
sem við þurfum að losna við“.
Löfven hefur hins vegar neitað að
tengja hina skipulögðu glæpastarf-
semi við þjóðerni fólks, en umtals-
efnið þykir mjög viðkvæmt í Sví-
þjóð, þar sem Svíar hafa viljað taka
á móti sem flestum sem þangað
vilja flytja og gera það sem best.
Áhöld eru hins vegar um árang-
urinn.
Lögreglan hefur einnig neitað að
greina frá þjóðerni þeirra sem til-
heyra glæpagengjunum, eða hvaða
hópar það eru sem helst hafa fallið í
„glæpafjölskyldu“-farið. Löfven
greindi hins vegar frá því að marg-
ar fjölskyldnanna hefðu sett niður
rætur sínar í þeim hverfum þar sem
hátt hlutfall íbúanna telst vera inn-
flytjendur eða afkomendur þeirra.
Er vandamálið því að hluta til
rakið til þess, að Svíar hafa ekki náð
að tryggja að allir þeir sem flust
hafa til landsins hafi lært tungu-
málið, sem aftur hefur sett þá í laka
stöðu á sænskum vinnumarkaði, og
þá aftur gert útsettari fyrir því að
hrekjast á glæpabrautina. „Þeir
sem búa á þessum svæðum eru oft
tiltölulega fátækt fólk, sem hefur
ekkert val, jafnvel þótt það vildi
flytja annað,“ segir Bäckström
Lerneby.
AFP
Fórnarlambsins minnst Skotárás í gengjastríði, sem felldi 12 ára stúlku í Stokkhólmi í ágúst síðastliðnum, olli mikilli reiði í Svíþjóð.
Komu með sitt eigið réttarfar
Áætlað að um 40 „glæpafjölskyldur“ leggi stund á skipulagða glæpastarfsemi í Svíþjóð Skotárás
sem felldi 12 ára stúlku olli mikilli hneykslan Skjóta helst rótum í fátækari hverfum sænskra borga
FRÉTTIR 13Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. SEPTEMBER 2020
Donald Trump
Bandaríkja-
forseti tilnefndi
dómarann Amy
Coney Barrett í
hæstarétt Banda-
ríkjanna við
formlega athöfn í
Hvíta húsinu á
laugardag. Í
ávarpi sínu lýsti
Trump Barrett
sem mikilli afrekskonu. Hin 48 ára
Amy Coney Barrett tekur við dóm-
arastöðu Ruth Ginsburg, sem féll
frá í síðustu viku, samþykki öld-
ungadeild Bandaríkjaþings tilnefn-
ingu hennar. Þykir Barrett íhalds-
söm og er líklegt að tilnefningin
verði umdeild. Taki Barrett sæti
við dómstólinn áður en forsetakosn-
ingar fara fram í Bandaríkjunum
verða repúblikanar með meirihluta
hæstaréttardómara, sex talsins
gegn þremur.
Trump tilnefndi
Barrett í hæstarétt
Amy Coney
Barrett
BANDARÍKIN
Glæpatíðni í Svíþjóð hefur jafnan verið lág, og ofbeldisglæpir enn sjald-
gæfari. Morðtíðni í landinu mældist 1,07 á hverja 100.000 íbúa árið 2018,
en meðaltalið í Evrópu var 2,39 samkvæmt Eurostat, og 5,0 í Bandaríkj-
unum samkvæmt bandarísku alríkislögreglunni FBI. Á Íslandi var morð-
tíðnin sama ár 0,86 á hverja 100.000 íbúa.
Á fyrstu sex mánuðum ársins 2020 hafa aftur á móti 20 manns látist í
163 mismunandi skotárásum í Svíþjóð, en 42 létust í 334 skotárásum allt
árið 2019 samkvæmt tölum sænsku lögreglunnar.
Minnst 20 manns látist á árinu
MORÐTÍÐNI Í SVÍÞJÓÐ
Smiðjuvegi 9 · 200 Kópavogi
Sími 535 4300 · axis.is
Vandaðar íslenskar innréttingar