Morgunblaðið - 28.09.2020, Side 24
með málfarsleiðbeiningum (Málfars-
bankinn) og gefin út viðamikil opinber
stafsetningarorðabók 2006. Frá 2006
hefur starfsemin verið undir merkjum
Stofnunar Árna Magnússonar í ís-
lenskum fræðum. Þar er Ari Páll
rannsóknarprófessor og stofustjóri
málræktarsviðs. Eftir hann liggja
fjöldamargar greinar og bókarkaflar.
Hann hefur einnig áfram sinnt
stundakennslu við HÍ, og hefur dvalið
við erlenda háskóla sem gesta-
fræðimaður.
Árið 2017 gaf Ari Páll út fræðslu-
bókina Málheima. „Ég hef lagt mig
sérstaklega eftir að skoða íslenska
málrækt og málstefnu frá fræðilegu
sjónarhorni og einkum hugað að sam-
anburði við önnur málsamfélög. Við-
tökurnar við Málheimum hafa stað-
fest að þörf var á slíku riti.“
Ari Páll hefur lagt sitt af mörkum
til að styrkja íslenska tungu og verið
formaður Íslenska málfræðifélagsins,
setið í Íslenskri málnefnd, ritstýrt
lenskum framburði handa erlendum
nemum sem var notuð í 30 ár. Einnig
kenndi hann einn vetur í MS og MR,
og síðar við Framhaldsskólann á
Laugum.
Haustið 1990 hóf hann störf hjá Ís-
lenskri málstöð við málfarsráðgjöf og
útgáfustörf, ásamt stundakennslu við
HÍ. Árin 1993-1996 var hann málfars-
ráðunautur RÚV.
„Litlar rannsóknir höfðu verið
gerðar á íslensku útvarpsmáli og ég
taldi að málfarsleiðbeiningar yrðu
vandaðri ef þær stæðu á styrkari
fræðilegum grunni. Ég fór að safna
efni og kynna mér erlend skrif um
málnotkun í fjölmiðlum og gaf síðan út
Handbók um málfar í talmiðlum, og
lauk doktorsprófi í íslenskri málfræði
með ritgerð um málnotkun í útvarpi.“
Ari Páll var settur forstöðumaður
Íslenskrar málstöðvar 1996-1999 og
skipaður forstöðumaður 2000-2006. Á
þeim árum var opnaður íðorðabanki
1997, settur á fót gagnabanki 2002
A
ri Páll Kristinsson fædd-
ist í Stóru-Sandvík í
Flóa 28. september
1960. Fyrsta aldursárið
var hann á Laugarvatni
þar sem faðir hans kenndi íslensku í
menntaskólanum.
„Síðan fluttum við til Reykjavíkur
og ég ólst upp í Norðurmýri til tíu ára
aldurs og gekk í Austurbæjarskólann.
Pabbi kenndi íslensku í MR og víðar
og mamma sá um heimilið. Mamma
er tónelsk og sendi mig einnig í
Barnamúsíkskólann á efstu hæð Iðn-
skólans. Við systkinin vorum í sveit
hjá ættingjum okkar í Stóru-Sandvík
öll sumur sem börn og unglingar. Þar
var fjórbýlt og fjölmennt á þeim ár-
um. Auk algengra sveitastarfa fékk
ég að aðstoða við stórfellda rófna- og
kartöflurækt, laxveiði, að steypa ein-
angrunarplötur úr Hekluvikri o.fl.“
Ari Páll fluttist að Laugarvatni
öðru sinni 1970 þegar faðir hans gerð-
ist skólameistari ML. „Pabbi var far-
sæll skólameistari en einnig frábær
kennari og ég lærði hjá honum Eglu,
hljóðfræði og málsögu. Það var eig-
inlega kennarinn Kristinn fremur en
pabbinn Kristinn sem kom mér á
bragðið í íslenskri málfræði.“
Ari Páll lauk stúdentsprófi frá ML
1979, BA-prófi í íslensku og almenn-
um málvísindum frá HÍ 1982, og
cand.mag.-prófi í íslenskri málfræði
1987, ásamt kennsluréttindum. Með-
fram háskólanum var hann í píanó-
námi og í Háskólakórnum. „Ég hafði
alltaf gaman af að spila á bassa og
núna er kontrabassinn mitt eftirlæt-
ishljóðfæri. Ég hef um árabil sungið
með Kammerkór Seltjarnarneskirkju
og í nokkur ár með Kammerkór Suð-
urlands. Tónlistaráhuginn kemur frá
mömmu og móðurætt hennar, þykist
ég vita. En gönguferðir um fjöll og
firnindi hafa einnig lengi verið sér-
stök ástríða sem ég tók í arf frá pabba
sem var mikill göngugarpur. Á seinni
árum höfum við hjónin verið iðin að
skoða heiminn og ferðast m.a. til
Kína, Indlands og Georgíu. Og sum-
arið 2018 átti ég erindi á ráðstefnu á
Nýja-Sjálandi og við nýttum tækifær-
ið til að fara í hnattreisu.“
Ari Páll var stundakennari með
námi, í íslensku fyrir erlenda stúd-
enta við HÍ, og samdi kennslubók í ís-
Tungutaki RÚV, Málfregnum og Orði
og tungu, verið formaður Örnefna-
nefndar og sinnt ýmsu alþjóðlegu
tungumálasamstarfi af Íslands hálfu.
Fjölskylda
Eiginkona Ara Páls er Sigrún Þor-
geirsdóttir cand. mag., ritstjóri Hug-
takasafns utanríkisráðuneytisins, f.
21.11. 1958. Foreldrar hennar voru
Elín Ingólfsdóttir kennari, f. 17.4.
1928, d. 18.5. 2014, og Þorgeir K. Þor-
geirsson, framkvæmdastjóri hjá Pósti
og síma, f. 17.6. 1931, d. 22.3. 2002.
Börn, tengdabörn og barnabörn
Ara Páls og Sigrúnar eru: 1. Þorgeir,
f. 17.8. 1983, sóknarprestur í Egils-
staðaprestakalli. Eiginkona Hlín Stef-
ánsdóttir félagsráðgjafi. Börn þeirra:
Bára María, f. 2011, Ísak Ari, f. 2014,
Sigrún, f. 2016. 2. Kristrún, f. 30.5.
1989, sérnámslæknir í lyflækningum
og doktorsnemi, búsett í Garðabæ.
Sambýlismaður Héðinn Eiríksson
tölvunarfræðingur. Dóttir þeirra:
Ari Páll Kristinsson rannsóknarprófessor – 60 ára
Ferðalög Ari Páll og
Sigrún í eftirminnilegu
ferðalagi á Indlandi.
Rannsakar málrækt og málstefnu
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. SEPTEMBER 2020
Við framleiðum lausnir
Sími 577 6700 / islandshus@islandshus.is / www.islandshus.is
NJÖRVI & NJÖRVI+
Öflug árekstrarvörn
Njörvi er öflugur stólpi til
að verja mannvirki og
gangandi fólk. Hentar líka
vel til skyndilokana vega
og til að afmarka
akstursleiðir og bílaplön.
Alexander Maximilian Wilhelm Olbrich fæddist 28.9.
1950 í Neuburg an der Donau í Bayern í Þýskalandi. Eft-
ir stúdentspróf nam hann lífefnafræði við Ludwig-
Maximilian-háskólann í München og lauk doktorsprófi
1979. Hann fékk styrk (JSPS) til að vinna við rannsókn-
arstörf við ríkisháskólann í Kyoto, Japan 1979- 81.
Alexander hóf störf hjá þýska utanríkiráðuneytinu í
Bonn 1981 og árið 1983 var hann sendur til Tókýo þar
sem hann var blaðamannafulltrúi þýska sendiráðsins til
1997. Þaðan lá leiðin aftur til Bonn þar sem hann vann í
menningarmáladeildinni 1987-90. Næsti póstur var í
Aþenu og þar vann Alexander sem viðskiptafulltrúi við þýska sendiráðið.
Alexander var sendiráðunautur og staðgengill sendiherra í sendiráði Þýska-
lands í Reykjavík frá 1992-97. Alexander leið vel á Íslandi, lærði íslensku og
hafði gaman af að ferðast um landið. Hann fór í fjallgöngur og var hrifinn af
jarðhitaböðum og heitum pottum sundlauganna.
Eftir Ísland fór hann til Bonn en við sameiningu Austur- og Vestur-Þýska-
lands 1990 varð Berlín aftur höfuðborg Þýskalands og þangað fluttust flest
ráðuneytin. Alexander starfaði í deild þýska utanríkisráðuneytisins sem hefur
með friðsama notkun kjarnorku að gera. Árið 2001 var Alexander sendur til
Hollands en þar vann hann á vegum þýska utanríkisráðuneytisins hjá OPCW.
Frá 2005-9 starfaði Alexander í Berlín áður en hann var sendur sem aðalræðis-
maður til Osaka-Kobe, Japan. Japan er í miklu uppáhaldi hjá Alexander og
hann er hrifinn af hinni sérstöku japönsku menningu. Seinasti pósturinn var
Quito, Ekvador, þar sem Alexander var sendiherra Þýskalands frá 2013-16.
Þetta var sérstaklega spennandi staður að starfa á og þarna var margt að sjá
og uppgötva. Það hefur komið sér vel á starfsævi Alexanders að vera mikill
tungumálamaður, en hann talar fjölmörg tungumál reiprennandi.
Eiginkona Alexanders er Rebekka Magnúsdóttir, f. 2.2. 1950, þýskukennn-
ari og þýðandi. Synir Alexanders og Rebekku eru: 1) Wilhelm Magnús Alex-
andersson Olbrich, f. 29.9. 1982 í Bonn, d. 4.9. 2004; 2) Gunnar Alexandersson
Olbrich, f. 9.12. 1985 í Tókíó, fornleifafræðingur og doktorsnemi við háskólann í
Tübingen, sambýliskona hans er Marta Styszen, f. 8.8. 1985 í Póllandi. For-
eldrar Alexanders voru Ilse Ottilie Ludmilla Olbrich, kaupmaður, f. 23.12. 1913
í Kastner (nú Pólland), d. 28.9. 1987, og Wilhelm Paul Franz Olbrich, f. 31.1.
1914 í Glatz, Slesíu, d. 19.6. 1970, píanósmiður og síðan kaupmaður.
Dr. Alexander Olbrich
fyrrverandi sendiherra 70 ára
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Nú verður þú að setjast niður og
skrifa lista yfir þau verkefni sem þú hefur
látið hrúgast upp að undanförnu. Vertu
tilbúinn að deila leyndarmáli með vini.
20. apríl - 20. maí
Naut Nú ferðu að uppskera árangur
erfiðis þíns, bæði í einkalífi og starfi.
Drífðu í því taka til í geymslunni.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Ýttu frá þér öllum efasemdum
um eigið ágæti. Ef þú þráir eitthvað nógu
heitt þá færðu það. Þú færð óvænt sím-
tal.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú átt aldrei eftir að sjá eftir því
að styðja einhvern sem þarf á aðstoð að
halda. Sjálfstætt val er alltaf best.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þér finnst sem þú nálgist mark-
miðið sem þú settir þér í upphafi árs.
Ekki gefast upp á síðustu metrunum.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Það er nauðsynlegt að eiga ein-
hvern til þess að deila með gleði og sorg
því það er engum hollt að byrgja allt inni.
Vertu opin/n fyrir nýjum tækifærum.
23. sept. - 22. okt.
Vog Lausn verkefnis þíns liggur nær þér
en þig grunar í fljótu bragði. Nálgastu
viðfangsefni af léttleika og gleði.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Leggðu þig fram um að sýna
þínar bestu hliðar svo að þér takist að
vinna aðra til fylgis við málstað þinn.
Leyfðu lífsgleði þinni að njóta sín.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Á meðan þú umbreytir þínum
ytri heimi þá verða einnig breytingar á
þínum innri heimi. Hugsaðu áður en þú
talar.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Taktu ekki allt bókstaflega
sem þú heyrir heldur sannreyndu það
sjálf/ur. Hikaðu ekki við að koma hug-
myndum þínum á framfæri.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Sambönd eru vinna sem þarf
ekki að vera íþyngjandi. Ræddu
framtíðardrauma þína við aðra og vittu
hvað þeim finnst. Teldu upp að tíu áður
en þú tjáir þig.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þetta er góður dagur til að átta
sig á hvar þú ert staddur/stödd í lífinu.
Dagurinn í dag gæti orðið einn af þeim
erfiðari. Ekki örvænta, það er bjart fram-
undan.
Til hamingju með daginn