Morgunblaðið - 28.09.2020, Blaðsíða 25
Gígja, f. 2018. 3. Ingólfur, f. 8.7. 1991,
BA í kvikmyndafræði og heimspeki,
nemi í leiklist í Falmouth University
í Bretlandi. 4. Hannes, f. 25.5. 1995,
BS í landfræði og tónlistarmaður,
Reykjavík. Unnusta Sigríður Óla-
dóttir læknanemi.
Systkini Ara Páls eru Kristrún, f.
7.3. 1962, héraðsdómari í Reykjavík,
Sigurður, f. 4.4. 1966, prófessor við
Háskólann á Akureyri, og Jónína
Guðrún, f. 26.5. 1968, framhalds-
skólakennari í Fjölbrautaskólanum
við Ármúla.
Foreldrar Ara Páls eru hjónin
Rannveig Pálsdóttir, f. 25.5. 1935,
húsfreyja og gjaldkeri á Laugar-
vatni, nú búsett í Reykjavík, og
Kristinn Kristmundsson cand. mag. í
íslenskum fræðum og skólameistari
ML árin 1970-2002, f. 8.9. 1937, d.
15.9. 2010.
Ari Páll
Kristinsson
Hannes Magnússon
bóndi í Stóru-Sandvík, Flóa
Sigríður Kristín Jóhannsdóttir
húsfreyja í Stóru-Sandvík, Flóa
Ari Páll Hannesson
bóndi í Stóru-Sandvík, Flóa
Rannveig Sigríður Bjarnadóttir
húsfreyja í Stóru-Sandvík, Flóa
Rannveig Pálsdóttir
húsfreyja og gjaldkeri
á Laugar-vatni, nú
búsett í Reykjavík
Bjarni Sigurðsson
b. Minna-Garði, Fjallaskaga og Lambadal
Rannveig M. Sveinsdóttir
húsfreyja Minna-Garði, Dýrafirði
Guðni Guðbergsson
fiskifræðingur
Jónína G. Kristmundsdóttir
Jaðri, Hrun.
Kristín
Hannesdóttir
Sigurður
Hannesson
Margrét K.
Sigurðardóttir
Elín Kristmundsdóttir
Haukholtum, Hrun.,
Jóhanna
Hannesdóttir
Axel
Sigurðsson
Katrín Axelsdóttir
málfræðingur.
Hannes Sigurðsson
útvegsbóndi, Hrauni í Ölfusi
Elín Oddleifsdóttir
bóndi Seljavöllum
Hannes Finnbogason
skurðlæknir
Hannes Þ. Sigurðsson starfsmaður Sjóvá, hand-
bolta- og knattspyrnudómari, heiðursfélagi ÍSÍ
Kristín Vala Ragnarsdóttir
prófessor
on
Jónína Gestsdóttir
húsfreyja á Kaldbak,
Hrun.
Guðbrandur Brynjólfss
bóndi á Kaldbak, Hrun.
Kristmundur Guðbrandsson
bóndi á Kaldbak, Hrun.
Elín Hallsdóttir
húsfreyja á Kaldbak, Hrun.
Hallur Guðmundsson
bóndi á Stórafljóti, Bisk.
Sigríður Skúladóttir
húsfreyja á Stórafljóti, Bisk.
Úr frændgarði Ara Páls Kristinssonar
Kristinn Kristmundsson
cand.mag., skólameistari
Menntaskólaskólans að Laugarvatni
DÆGRADVÖL 25
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. SEPTEMBER 2020
HEILSUNUDDPOTTAR
FRÁ SUNDANCE SPAS
Gæði, þjónusta, ábyrgð - það er Tengi
Smiðjuvegi 76 • Kópavogi • Sími 414 1000 • Baldursnesi 6 • Akureyri • Sími 414 1050 www.tengi.is • tengi@tengi.is
Opið virka daga frá kl. 8-18 og laugardaga kl. 10-15
HEILSUNUDDPOTTAR OG HREINSIEFNI FYRIR HEITA POTTA
„Æ, ÞAÐ VARÐ SMÁMÚGÆSING ÞEGAR
EINHVER HÓSTAÐI ÁN ÞESS AÐ HALDA
FYRIR MUNNINN.”
„ÉG HEF ALDREI VIÐURKENNT ÞETTA
FYRIR NEINUM ÁÐUR EN ÉG MIÐAÐI Á
KRÓKÓDÍL.”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að setja smáfútt í
sambandið.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
VONANDI ENDAR ÞESSI
DRAUMUR ALDREI!
ÉG ER KOMINN HEIM, HELGA!
AFSAKAÐU ÞRIGGJA VIKNA
SEINKUNINA!
HEILSU GÆSLA
ÞÚ MISSTIR
AF AFMÆLIS-
DEGINUM
MÍNUM! EN
ÞÉR ER SAMA
UM ÞAÐ!
AUÐVITAÐ
ER MÉR
EKKI
SAMA!
ÞÚ VEIST HVERSU HEITT ÉG
ELSKA KÖKUR OG ÍS!
Þórarinn Eldjárn yrkir margtgott og skemmtilegt og birtir á
heimasíðu sinni, – „Afglapinn“:
Til útlanda fór afglapinn
í ótal borgum var
en ekkert nema símann sinn
sá hann þar.
Síðan er „Flughugur“:
Að fara í hugmyndaflug
með flugmyndahug
er passlegt fyrir Pegasus
en pínlegt fyrir Íkarus.
Bjarni Gunnlaugur Bjarnason
segir á Boðnarmiði, að þetta átti að
verða hástemmd haustvísa en
missti flugið einhvers staðar,
grundvallaratriðin eru þó þarna:
Enn er komið aftur haust
engu þar um breyti
Veturinn mun vafalaust
vera á næsta leiti!
Gunnar J. Straumland bætti við:
Inn til lands við aftanklið,
eins og skip að nausti,
sýnist mér að sumarið
sigli brátt að hausti.
Guðrún Bjarnadóttir kvað:
Höldum víst að hunskist allt
hér í vanans spori.
Í október samt yrði svalt,
ef angaði af vori.
Síðan kemur haustvísa Jóns
Ingvars Jónssonar:
Haustið rænir okkur yl,
öllu fúst að granda.
Úti maður berst í byl,
bleytu og skúrafjanda.
Sumarið er svifið til
sólar- fokking –landa.
Þetta gefur Kristjönu Sigríði
Vagnsdóttur tilefni til að íhuga
„Ævisporin“:
Ekki er ævin eintómt grín
ævisporin metrar,
Sólin verður sæt og fín,
seinni hluta vetrar
Magnús Geir Guðmundsson kveð-
ur:
Kveður sumar kemur haust,
kólnar brátt í húsum.
Norðan heiða náðarlaust,
nú er bágt hjá músum.
Kristjana Sigríður Vagnsdóttir
segir: „Ég var að taka kanínurnar
mínar í hús, viti menn; ein músar-
tísla var komin inn í húsið sem kan-
ínurnar voru í úti. Við vorum að
horfa á litla greyið sem hríðskalf.
Gömul vísa í lokin:
Að stöðva lax í strangri á
og stikla á hörðu grjóti,
eins er að binda ást við þá,
sem enga leggja á móti.
Halldór Blöndal
(halldorblondal@simnet.is)
Vísnahorn
Á ferð og flugi