Morgunblaðið - 28.09.2020, Side 27
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. SEPTEMBER 2020
Viktor Gísli Hallgrímsson lands-
liðsmarkvörður í handknattleik varð í
gær danskur bikarmeistari þegar lið
hans GOG vann Tvis Holstebro 30:28
í úrslitaleik sem fram fór í Holstebro.
Viktor varði 13 skot og þar á meðal
frá Óðni Þór Ríkharðssyni á mik-
ilvægu augnabliki undir lok leiksins.
Tvö kvennalið í körfuknattleik, KR
og Keflavík, eru komin í sóttkví þar
sem kórónuveirusmit hefur komið
upp hjá öðru liðanna en þau mættust
í fyrstu umferð Dominos-deildar
kvenna síðasta miðvikudag. KR átti
að mæta Val annað kvöld og Keflavík
átti að leika við Skallagrím á miðviku-
daginn en báðum leikjum hefur verið
frestað.
Körfuknattleiksmaðurinn Þorleifur
Ólafsson leikur á ný með Grindavík á
komandi keppnistímabili en hann hef-
ur tekið fram skóna eftir þriggja ára
hlé. Þorleifur er 35 ára og á að baki
18 landsleiki fyrir Íslands hönd. Hann
hefur að undanförnu verið aðstoð-
arþjálfari Grindavíkurliðsins, og mun
gegna því hlutverki áfram.
Aron Jóhannsson skoraði tvö
marka Hammarby sem vann Falken-
berg 3:1 á útivelli í sænsku úrvals-
deildinni í knattspyrnu í gær.
Ingibjörg Sigurðardóttir skoraði
eitt marka Vålerenga sem burstaði
Klepp 7:0 í norsku úrvalsdeildinni í
fótbolta í gær. Vålerenga er með
þriggja stiga forystu á toppnum.
Berglind Björg Þorvaldsdóttir
skoraði mark Le Havre sem gerði
jafntefli, 1:1, við París FC í franska
fótboltanum á laugardaginn.
Luis Suárez lék í gær sinn fyrsta
leik með Atlético Madrid eftir að
hann kom þangað frá Barcelona.
Suárez lék síðustu 20 mínúturnar
gegn Granada og náði að leggja upp
eitt mark og skora tvö á þeim tíma, í
6:1-sigri í spænsku 1. deildinni í
knattspyrnu.
Stjarnan vann öruggan sigur á
Grindavík, 106:86, í Meistarakeppni
karla í körfuknattleik í Garðabæ í
gærkvöld. Mirza Sarajlija skoraði 22
stig fyrir Stjörnuna og Hlynur Bær-
ingsson 15 en Dagur Kár Jónsson
skoraði 30 stig fyrir Grindvíkinga.
Eitt
ogannað
KR – FYLKIR 1:2
0:1 Orri Hrafn Kjartansson 32.
1:1 Óskar Örn Hauksson 48.
1:1 Sam Hewson 90.(v)
MM
Orri Hrafn Kjartansson (Fylki)
Stefán Árni Geirsson (KR)
M
Kristinn Jónsson (KR)
Atli Sigurjónsson (KR)
Óskar Örn Hauksson (KR)
Aron Snær Friðriksson (Fylki)
Sam Hewson (Fylki)
Daði Ólafsson (Fylki)
Þórður Gunnar Hafþórsson (Fylki)
Arnór Borg Guðjohnsen (Fylki)
Rautt spjald: Ragnar Bragi Sveinsson
(Fylki) 58., Beitir Ólafsson (KR) 90.
Dómari: Ívar Orri Kristjánsson – 7.
Áhorfendur: Ekki gefið upp.
VALUR – BREIÐABLIK 1:1
0:1 Róbert Orri Þorkelsson 76.
1:1 Birkir Már Sævarsson 90.
M
Hannes Þór Halldórsson (Val)
Birkir Már Sævarsson (Val)
Eiður Aron Sigurbjörnsson (Val)
Rasmus Christiansen (Val)
Aron Bjarnason (Val)
Anton Ari Einarsson (Breiðabliki)
Damir Muminovic (Breiðabliki)
Róbert Orri Þorkelsson (Breiðabliki)
Viktor Karl Einarsson (Breiðabliki)
Brynjólfur Willumsson (Breiðabliki)
Rautt spjald: Davíð Ingvarsson (Breiða-
bliki) 60., Valgeir Lunddal Friðriksson
(Val) 62.
Dómari: Vilhjálmur A. Þórarinsson – 8.
Áhorfendur: 504.
HK – STJARNAN 2:3
0:1 Jósef Kristinn Jósefsson 39.
0:2 Guðjón Pétur Lýðsson 41.
1:2 Hörður Árnason 52.
2:2 Guðmundur Þór Júlíusson 73.
2:3 Hilmar Árni Halldórsson 85.
MM
Hilmar Árni Halldórsson (Stjörnunni)
M
Guðmundur Þór Júlíusson (HK)
Birnir Snær Ingason (HK)
Ásgeir Marteinsson (HK)
Hörður Árnason (HK)
Jósef Kristinn Jósefsson (Stjörnunni)
Guðjón Pétur Lýðsson (Stjörnunni)
Daníel Laxdal (Stjörnunni)
Elís Rafn Björnsson (Stjörnunni)
Þorsteinn Már Ragnarsson (Stjörnunni)
Dómari: Jóhann Ingi Jónsson – 5.
Áhorfendur: Um 100.
GRÓTTA – KA 2:4
0:1 Hallgrímur Mar Bergmann 26.
0:2 Hallgrímur Mar Bergmann 45.
1:2 Karl Friðleifur Gunnarsson 69.(v).
1:3 Steinþór Freyr Þorsteinsson 75.
1:4 Hallgrímur Mar Bergmann 90.(v)
2:4 Kieran McGrath 90.
MM
Hallgrímur Mar Bergmann (KA)
M
Karl Friðleifur Gunnarsson (Gróttu)
Kristófer Melsted (Gróttu)
Ólafur Karel Eiríksson (Gróttu)
Andri Fannar Stefánsson (KA)
Ásgeir Sigurgeirsson (KA)
Bjarni Aðalsteinsson (KA)
Steinþór Freyr Þorsteinsson (KA)
Dómari: Guðmundur Á. Guðmundss. – 6.
Áhorfendur: Ekki gefið upp.
ÍA – VÍKINGUR R. 2:2
1:0 Tryggvi Hrafn Haraldsson 51.
1:1 Ágúst Eðvald Hlynsson 53.
1:2 Halldór J. S. Þórðarson 56.
2:2 Tryggvi Hrafn Haraldsson 65.(v)
M
Árni Snær Ólafsson (ÍA)
Jón Gísli Eyland (ÍA)
Óttar Bjarni Guðmundsson (ÍA)
Marcus Johansson (ÍA)
Ísak Snær Þorvaldsson (ÍA)
Stefán Teitur Þórðarson (ÍA)
Tryggvi Hrafn Haraldsson (ÍA)
Ingvar Jónsson (Víkingi)
Sölvi Geir Ottesen (Víkingi)
Halldór Smári Sigurðsson (Víkingi)
Erlingur Agnarsson (Víkingi)
Ágúst Eðvald Hlynsson (Víkingi)
Adam Ægir Pálsson (Víkingi)
Halldór J.S. Þórðarson (Víkingi)
Dómari: Helgi Mikael Jónasson – 8.
Áhorfendur: Um 70.
FH – FJÖLNIR 1:0
1:0 Morten Beck Guldsmed 82.
M
Jónatan Ingi Jónsson (FH)
Guðmundur Kristjánsson (FH)
Logi Hrafn Róbertsson (FH)
Logi Tómasson (FH)
Jeffrey Monakana (Fjölni)
Hans Viktor Guðmundsson (Fjölni)
Jóhann Árni Gunnarsson (Fjölni)
Grétar Snær Gunnarsson (Fjölni)
Dómari: Einar Ingi Jóhannsson – 7.
Áhorfendur: 325.
Liðsuppstillingar, gul spjöld, viðtöl og
greinar um leikina – sjá mbl.is/sport/fot-
bolti.
FÓTBOLTINN
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Birkir Már Sævarsson var enn og
aftur í aðalhlutverki hjá Vals-
mönnum í gærkvöld en þá kom hann
í veg fyrir að þeir töpuðu í fyrsta
skipti síðan í fjórðu umferð Pepsi
Max-deildar karla.
Birkir jafnaði metin fyrir Val gegn
Breiðabliki, 1:1, á 90. mínútu í
spennuleik liðanna á Hlíðarenda þar
sem allt stefndi í að Blikar næðu að
knýja fram sigur eftir að Róbert Orri
Þorkelsson kom þeim yfir með sínu
fyrsta marki í efstu deild. Birkir hef-
ur nú skorað fjögur mörk í þremur
síðustu leikjum Vals.
Þótt Valsmenn misstu þarna tvö
stig að lokinni tíu leikja sigurhrinu er
staða þeirra áfram afar vænleg á
toppnum. Níu stiga forskot á FH-
inga sem reyndar eiga leik til góða.
„Ef til vill hefur 4:1-sigurinn gegn
FH í Kaplakrika kallað fram ein-
hvers konar spennufall hjá Vals-
mönnum. Forskot liðsins í deildinni
er orðið mjög myndarlegt og þá get-
ur verið erfitt að halda einbeitingu.
Valsmenn geta verið ánægðir með
stigið úr því sem komið var. Jafntefli
á heimavelli gegn öflugu liði Breiða-
bliks setur ekki mikið strik í reikn-
inginn hjá meistaraefnunum,“ skrif-
aði Kristján Jónsson m.a. í grein um
leikinn á mbl.is.
Hilmar bjargaði Stjörnunni
Hilmar Árni Halldórsson styrkti
stöðu Stjörnunnar á ný í Evrópubar-
áttunni þegar hann skoraði sigur-
markið gegn HK í Kórnum, 3:2, í
gærkvöld, rétt fyrir leikslok. Hilmar
lagði einnig upp tvö fyrri mörk
Garðabæjarliðsins sem komst í 2:0 í
fyrri hálfleik.
„Svekkelsi HK-inga í leikslok var
gríðarlegt, enda búnir að leggja mik-
ið á sig til að jafna leikinn. Þeir geta
hins vegar sjálfum sér um kennt því
ef þú leyfir Hilmari Árna Halldórs-
syni að fá frítt skot rétt utan teigs, þá
refsar hann oftar en ekki,“ skrifaði
Jóhann Ingi Hafþórsson m.a. um
leikinn á mbl.is.
Guðmundur Þór Júlíusson skor-
aði 100. mark HK í efstu deild, og
jafnframt sitt fyrsta, þegar hann
jafnaði metin í 2:2 í seinni hálf-
leiknum.
Evrópusæti raunhæft hjá Fylki
Fylkismenn eru komnir af alvöru í
baráttuna um Evrópusæti eftir ótrú-
lega atburðarás í uppbótartímanum
gegn KR á Meistaravöllum í gær.
Sam Hewson skoraði þá sigurmark
þeirra úr vítaspyrnu, 2:1, eftir að
Beitir Ólafsson markvörður KR
kastaði boltanum frá marki sínu en
rak síðan olnbogann í andlit Ólafs
Inga Skúlasonar.
Beitir var rekinn af velli og verður
þar með í banni þegar KR sækir Vík-
ing heim næsta fimmtudagskvöld.
„KR-ingar geta nagað sig ræki-
lega í handarbökin fyrir að hafa ekki
getað nýtt sér liðsmuninn 11 gegn 10,
annan leikinn í röð á heimavelli.
Fylkismenn unnu hins vegar vel til
baka í þeirri stöðu og náðu að halda
KR-ingum í skefjum allt þar til sig-
urmarkið féll þeim í skaut í blálokin,“
skrifaði Stefán Gunnar Sveinsson
m.a. um leikinn á mbl.is.
Ragnar Bragi Sveinsson fyr-
irliði Fylkis er kominn í tveggja
leikja bann en hann fékk sitt annað
rauða spjald á tímabilinu á 58. mín-
útu. Hann missir af leikjunum mik-
ilvægu við Breiðablik og Val.
KR-ingurinn Pálmi Rafn
Pálmason lék sinn 200. leik í efstu
deild hér á landi í gær en hann hefur
samtals spilað 427 deildaleiki á Ís-
landi og í Noregi.
Óskar Örn Hauksson skoraði
mark KR og fór þar með upp fyrir
Skagamanninn Ríkharð Jónsson og í
14. sætið yfir markahæstu menn
deildarinnar frá upphafi með 79
mörk.
Langþráð en mikilvægt mark
Danski framherjinn Morten Beck
Guldsmed skoraði loks sitt fyrsta
mark á tímabilinu þegar FH vann
nauman sigur á botnliði Fjölnis í
Kaplakrika, 1:0, eftir hornspyrnu
Loga Tómassonar. Þeir komu báðir
inn á sem varamenn hjá FH.
„FH hefur oft spilað betur en í dag.
Liðið skapaði sér sárafá færi gegn sig-
urlausum Fjölnismönnum og hafði Atli
Gunnar Guðmundsson lítið að gera í
marki gestanna. Sjálfstraustið er lítið
sem ekkert hjá Fjölnismönnum og það
kom sennilega fáum á óvart að FH hafi
skorað sigurmarkið að lokum. Þetta
hefur verið þannig sumar fyrir Fjölni,“
skrifaði Jóhann Ingi Hafþórsson m.a.
um leikinn á mbl.is.
Björn Daníel Sverrisson fyrirliði
FH lék sinn 250. deildaleik á ferlinum,
samanlagt á Íslandi, í Noregi og Dan-
mörku.
Tvenna þriðja leikinn í röð
Tryggvi Hrafn Haraldsson skoraði
tvö mörk fyrir Skagamenn, þriðja leik-
inn í röð, þegar þeir gerðu jafntefli við
Víkinga, 2:2, í líflegum leik á Akranesi.
Víkingar þurfa að bíða enn lengur
eftir fjórða sigurleiknum á tímabilinu
en þeir hafa ekki unnið í síðustu níu
leikjum sínum í deildinni.
„Bæði lið geta verið sátt við fína
hluti. Skagamenn voru þó sterkari í
vörn en vantaði bitið í sóknina og
Víkingar áttu margar góðar sóknir,“
skrifaði Stefán Stefánsson m.a. um
leikinn á mbl.is.
Þrenna í 100. sigurleik KA
Hallgrímur Mar Bergmann skor-
aði þrennu fyrir KA í öruggum sigri
á Gróttu á Seltjarnarnesi, 4:2.
Þar með er KA komið á lygnan sjó
og möguleikar Gróttu á að halda sér
uppi aðeins tölfræðilegir, rétt eins og
hjá Fjölni.
Þetta er önnur þrenna Hallgríms
fyrir KA í deildinni en hin kom gegn
ÍBV árið 2017.
KA fagnaði aðeins sínum þriðja
sigri á tímabilinu en um leið sögu-
legum því þetta var 100. sigurleikur
félagsins í deildinni frá upphafi.
Andri Fannar Stefánsson KA-
maður lék sinn 200. deildaleik á ferl-
inum gegn Gróttu. Þar af eru 133
leikir í efstu deild.
Birkir Már
forðaði Val
frá ósigri
Morgunblaðið/Íris
Hlíðarendi Kristinn Freyr Sigurðsson og Viktor Karl Einarsson í baráttu á
miðjunni í jafnteflisleik Vals og Breiðabliks í gærkvöld.
Fjórða markið í þremur leikjum
Umdeilt í lokin þegar Fylkir vann KR
KNATTSPYRNA
1. deild kvenna, Lengjudeildin:
Víkingsv.: Víkingur R. – Keflavík ....... 19.15
Varmá: Afturelding – Augnablik ........ 19.15
Akraneshöll: ÍA – Fjölnir ......................... 20
Í KVÖLD!
Spánn
Zaragoza – Gran Canaria................... 88:71
Tryggvi Snær Hlinason skoraði 16 stig
fyrir Zaragoza, tók 6 fráköst og átti eina
stoðsendingu. Hann lék í 30 mínútur.
Manresa – Valencia............................. 74:82
Martin Hermannsson skoraði 7 stig fyrir
Valencia, átti 3 stoðsendingar og tók 2 frá-
köst. hann lék í 14 mínútur.
Andorra – Málaga ............................... 78:81
Haukur Helgi Pálsson skoraði 13 stig
fyrir Andorra, gaf 5 stoðsendingar og tók
eitt frákast. Hann lék í 17 mínútur.
Úrslitakeppni NBA
Vesturdeild, úrslit:
LA Lakers – Denver ........................ 117:107
Lakers vann 4:1 og mætir Miami eða
Boston í úrslitum.