Morgunblaðið - 08.10.2020, Qupperneq 46
46 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. OKTÓBER 2020
Meðal afleiðinga
hnattvæðingar er sam-
anburður menntakerfa
undir merkjum al-
þjóðlegra rannsókna.
Niðurstöður hinnar svo-
nefndu TIMSS-
rannsóknar IEA um
miðjan 10. áratug síð-
ustu aldar ollu eftir-
minnilegu óðafári hér-
lendis, þar sem íslenskt
skólakerfi fékk slæma útreið hvað
kunnáttu nemenda í náttúruvísindum
og stærðfræði snerti. Af niðurstöðum
PISA-rannsókna OECD má ráða að
staðan hefur lítt batnað eftir því sem
liðið hefur á nýja öld. Þær benda til að
læsi íslenskra unglinga í náttúruvís-
indum hafi hrakað jafnt og þétt þá tvo
áratugi sem PISA hefur verið við lýði.
Samkvæmt niðurstöðum 2015, þegar
megináhersla var síðast lögð á læsi í
náttúruvísindum, lentu 26% íslenskra
ungmenna í lægsta þrepi af 6 mögu-
legum. Þau töldust því ekki hafa náð
lágmarkshæfni til að nýta sér þekk-
ingu á sviði náttúruvísinda til gagns í
lífi og starfi. Aðeins 4% töldust hins
vegar hafa náð afburðahæfni á þrep-
um 5 og 6.
Hnattrænt kapphlaup
Þátttökuþjóðum PISA hefur fjölgað
jafnt og þétt; til viðbótar OECD-
ríkjunum 36 tóku 43 önnur ríki þátt ár-
ið 2018 og dylst engum að pólitísk áhrif
PISA fara vaxandi. Þjóðarleiðtogar
hafa hneigst til að bregðast við slöku
gengi sinna skólakerfa með skyndi-
lausnum og fjölmiðlar hafa ekki látið
sitt eftir liggja. Dramatísk viðbrögð
fyrrverandi menntamálaráðherra
Noregs, Kristin Clemet, voru skýr
vottur um þá þróun sem síðan átti sér
stað, þegar hún lét þau orð falla að
slæmt gengi í PISA væri eins og að
koma heim frá vetrarólympíuleikum
án gullmedalíu. Þar með líkti hún þátt-
töku í PISA við hnattrænt kapphlaup
á borð við Ólympíuleika. Í kjölfarið
boðaði hún djarfar breytingar á
norska skólakerfinu í von um að bæta
árangur sinnar þjóðar á næstu „læs-
isleikum“ OECD.
Af svipuðum meiði
var fjárfrekt átak Bar-
ack Obama, fv. Banda-
ríkjaforseta, í mennta-
málum árið 2009, Race
to the Top. Þannig hafa
þjóðarleiðtogar, fjöl-
miðlar og almenningur í
vaxandi mæli litið á
samanburðarrannsóknir
menntakerfa sem kapp-
hlaup, eins og höfundar
ritsins The Global
Education Race: Taking
the Measure of PISA
and International Testing lýstu svo
skilmerkilega. Þar er þróun þessa
hnattræna kapphlaups rakin og bent á
ýmsar óheppilegar afleiðingar og áhrif
PISA. Aftur á móti benda bókarhöf-
undar einnig á mögulega gagnsemi
PISA, sem mætti gefa meiri gaum en
raun ber vitni.
„Við þurfum ekki fleiri
skóflur ef enginn er að moka“
Ísland er þátttakandi í þessu hnatt-
ræna kapphlaupi og hefur verið það
um nokkurt skeið. Stjórnvöld hér á
landi hafa nú kynnt menntastefnu sína
til ársins 2030. Meðal boðaðra breyt-
inga þar er að vægi náttúruvísinda á
unglingastigi verði aukið til muna.
Rökin eru viðvarandi slakur árangur í
PISA og einnig að færa þurfi hlut nátt-
úruvísinda í námskrám nær því sem
þekkist hjá nágrannaþjóðum okkar.
Ég tel ástæðu til að styðja þessar fyr-
irætlanir, sér í lagi vegna þess að mik-
ilvægi vísindalegs læsis fer að mínu
mati vaxandi í almennri menntun nú á
dögum sem forsenda virkrar borg-
aravitundar.
Fjölmargar rannsóknir á mennta-
kerfum hafa reyndar sýnt að slíkar of-
ansæknar umbætur (top-down re-
form), þar sem yfirvöld hlutast til um
innra starf skóla, eru vandasamar og
krefjast trausts og samvinnu allra sem
eiga hlut að máli. Þess vegna ber að
fagna þeirri ákvörðun mennta-
málayfirvalda að kynna þessar fyr-
irætlanir í samráðsgátt og kalla eftir
umsögnum. Þegar þetta er skrifað
höfðu 49 umsagnir borist, auk þess
sem ýmsir aðilar hafa tjáð sig um þær í
fjölmiðlum og á samfélagsmiðlum.
Þannig hafa skapast gagnlegar um-
ræður meðal hagsmunaaðila. Að vísu
kemur í ljós að andstaðan við þessar
breytingar er sterk. Í umsögnunum er
náttúruvísindum t.d. lýst sem óspenn-
andi bóknámsfagi, sem sé til þess fallið
að láta nemendum leiðast; það að auka
veg þess byggi á úreltri kerfishugsun
frá síðustu öld. Varað er við stýrandi
áhrifum PISA, ákjósanlegra sé að
hlusta á raddir nemenda og leyfa þeim
að velja sér skapandi viðfangsefni mið-
að við áhugasvið, þar sem það fyr-
irbyggi kvíða og vanlíðan. Og vitnað er
í þekkta samlíkingu þar sem dýrin í
skóginum eru látin þreyta samræmt
próf í því að klifra upp í tré.
Höfundur þessarar greinar óttast
að í þessum umsögnum felist vanþekk-
ing á eðli og mikilvægi náttúruvísinda í
almennri menntun. Einn þekktasti
hugsuður 19. aldar, Herbert Spencer,
var ekki í vafa þegar hann hélt því
fram að náttúruvísindi væru mikilvæg-
ust allra námssviða í almenna skóla-
kerfinu. Auðveldlega má færa fyrir því
rök að góð náttúruvísindamenntun sé
enn þarfari nú á dögum en þá og því
mikilvægt að auka veg hennar í við-
miðunarstundaskrá. En eins og marg-
ir benda réttilega á í samráðsgáttinni
er vandinn þar með ekki leystur.
Náttúruvísindi eru nefnilega ekki
dæmigert bóknámsfag kennt við hefð-
bundnar aðstæður í almennri kennslu-
stofu, heldur krefst þetta námssvið
skapandi og gagnrýninnar hugsunar
og verklegrar færni jafnt innan veggja
skóla sem utan, auk sérstaks búnaðar,
gagna, aðstöðu og sérbúinna kennslu-
stofa. Þegar kemur að forsendum
þeirra sem ætlað er að kenna nátt-
úruvísindi syrtir því miður í álinn. Í
einni umsögninni er svo komist að orði
að slakt gengi skýrist af því að „grunn-
skólakennarar eru upp til hópa ekki
náttúrufræðimenntaðir … og hafa því
ýmist ekki metnað fyrir eða skilning á
því sem þeim er ætlað að kenna“.
Þetta eru stór orð sem taka þarf alvar-
lega og krefjast því nánari skoðunar.
Sami aðili lauk máli sínu þannig: „Við
þurfum ekki fleiri skóflur ef enginn er
að moka.“
Janusarandlit PISA
Albert Einstein sagðist ekki vilja
líta á skólanemendur sem ílát til að
fylla, heldur kyndla er þyrfti að „lýsa
upp“. Það „að vera upplýstur“ er önn-
ur tveggja merkinga sem orðabækur
gefa orðinu læsi, lykilhugtaki í rann-
sóknum PISA. Hin merkingin er „að
vera læs og skrifandi“. Eins og kunn-
ugt er þá snýst PISA um rannsóknir á
almennu læsi, stærðfræðilegu læsi og
vísindalegu læsi. Hér er það síðast-
nefnda til umfjöllunar. Rannsókn á vís-
indalegu læsi felst með öðrum orðum í
að meta hvort 15 ára unglingar séu
nægilega „upplýstir“, þ.e. læsir á nátt-
úruvísindaleg hugtök og hugmyndir til
að geta tekið þátt í verkefnum og sam-
ræðu um náttúruvísindi og tækni sem
virkir þegnar í nútímasamfélagi. Svo
aftur sé vitnað í orðabækur má benda
á að þar er ólæsi (illiteracy) m.a. skýrt
sem þekkingarskortur eða fáfræði um
ákveðið þekkingarsvið.
PISA-rannsóknin er eins og tvíeggj-
að sverð, horfir í tvær áttir eins og
rómverski guðinn Janus og hefur því
bæði veikleika og styrkleika. Marg-
sinnis hefur verið bent á veikleika
rannsóknarinnar, til dæmis hið hnatt-
ræna kapphlaup sem áður var lýst og
það skelfilega óðafár sem því fylgir
með óheppilegum afleiðingum. Í öðru
lagi þykir áherslan á almennt læsi,
stærðfræðilegt læsi og vísindalegt læsi
hafa dregið athyglina frá öðrum mik-
ilvægum þáttum menntunar, t.d. list-
og verknámi. Í þriðja lagi hefur verið
bent á að PISA stuðli að einsleitni og
stöðlun menntunar á heimsvísu. Í
fjórða lagi hafa ýmsir dregið í efa rétt-
mæti og samanburðarhæfi gagnanna
frá einu menningarsvæði til annars;
verkefnin eru jú lögð fyrir á ólíkum
tungumálum, þýðingar eru misgóðar
og samhengi viðfangsefna misfram-
andi eða -kunnuglegt svarendum.
Loks þykir mörgum óljóst hvað PISA
mælir í raun og veru og þar með hvað
niðurstöður segja um gæði þeirra
skólakerfa sem taka þátt.
Þrátt fyrir allt hefur PISA-
rannsóknin þó tiltekna styrkleika sem
ber að gefa gaum. Hnattvæðing er
óumflýjanleg staðreynd og þar með
ýmiss konar félagslegar, menningar-
legar og efnahagslegar tengingar milli
samfélaga heimsins. Hófleg og skyn-
samleg skoðun og túlkun PISA-
niðurstaðna getur því tvímælalaust
verið gagnleg, til dæmis athugun á því
hvað þær segja um einkenni ólíkra
menntakerfa, bakgrunn nemenda, líð-
an, viðhorf, jafnrétti til náms, aðgengi
að upplýsingum, stafrænt læsi o.s.frv.
Sjálf verkefnin í PISA eru samin af
sérfræðingum í náttúruvísinda-
menntun. Þau má nýta sem fyrirmynd
við skipulag náms og kennslu.
Hér á landi þekkjast dæmi um
sveitarfélög og einstaka skóla sem
hafa óskað eftir eigin niðurstöðum í því
augnamiði að læra af þeim, til dæmis
einn stór unglingaskóli í Reykjavík.
Árið 2015 var árangur þess skóla í
náttúruvísindum fyrir ofan meðaltal
OECD og reyndar einnig fyrir ofan
meðaltal Finnlands á meðan Ísland í
heild var neðst allra Norðurlandaríkja.
Vart þarf að taka fram að mun hærra
hlutfall nemenda þessa skóla lenti í efri
hæfniþrepum en á landinu í heild.
Vísindalegt læsi: Þekking
á bláu reikistjörnunni, eðli
hennar og umhverfi
Við tilheyrum öll bláu reikistjörn-
unni, sem hringsnýst um sólina eftir
svonefndu lífbelti (habitable zone)
sólkerfisins. Ásamt dýrum og
plöntum lifum við og hrærumst und-
ir viðkvæmum lofthjúpi hennar, sem
verndar gegn áhrifum geislunar og
inniber efni sem öllum lífverum eru
nauðsynleg. Hvað sem allri
tækniþróun líður, stafrænu læsi,
fjórðu iðnbyltingunni eða kröfunni
um sjálfstæði, skapandi hugsun, lita-
gleði og fjölbreytileika, þá gilda hér
sömu náttúrulögmál og þegar New-
ton sá eplið falla til jarðar og upp-
götvaði lögmálið um þyngdarkraft
og sömu lögmál efnafræðinnar og
þegar Mendelejev kynnti til sög-
unnar útgáfu sína af lotukerfinu.
Hér gilda enn sömu lögmál og gerðu
plöntum og þörungum kleift að nýta
ljósorku til tillífunar löngu áður en
manneskjan kom til sögunnar. Því
traustari sem þekking almennings
er á þessum náttúrulögmálum og
þar með á orkuflæði, lífbreytileika,
vistkerfum, veirum, bakteríum,
bylgjuhreyfingum og öðrum mik-
ilvægum fyrirbærum af sviði nátt-
úruvísinda, þeim mun meiri líkur
eru á skynsamlegum aðgerðum til
verndar jörðinni og lofthjúpi henn-
ar, þ.e. „getu til aðgerða“ svo vísað
sé í texta aðalnámskrár.
Vísindalegt læsi er lykillinn að því
að skilja samhengi hlutanna.
Neysluvörur nútímamanneskju hafa
ferðast um jörðina þvera og endi-
langa. Fæst okkar íhuga uppruna
þeirra, hvar þær voru framleiddar,
af hverjum, við hvaða aðstæður eða
hver fórnarkostnaðurinn var fyrir
vistkerfið og fyrir samfélög víðs veg-
ar um hnöttinn. Vísindalegt læsi
eykur líkurnar á ábyrgri afstöðu í
þeim efnum.
Janusarandlit PISA og vísindalegt
læsi íslenskra unglinga
Eftir Meyvant
Þórólfsson » Vísindalegt læsi er
lykillinn að því að
skilja samhengi hlut-
anna; þess vegna er
ástæða til að styðja þær
fyrirætlanir stjórnvalda
að auka vægi náttúru-
vísinda í almenna skóla-
kerfinu.
Meyvant Þórólfsson
Höfundur er dósent við Háskóla
Íslands.
ÚRVAL AF GÓÐUM
S ÆRUM
Laugavegi 29 | sími 552 4320 | www.brynja.is | verslun@brynja.is
skæri í úrvali
Brýnum skæri og hnífa
Opið
virka
daga
frá 9-
18
lau fr
á 10-1
6
Alhliða skæri
kr. 4.995
Vi t ins r
handar skæri
kr. 4.595
Þynningarskæri
kr. 8.950
Hárskæri
kr. 6.950
Klæðskeraskæri
Verð kr. 5.480
Bróderskæri
Kr. 2.780
Storkaskæri
Kr. 4.290
Klæðskeraskæri
Stærðir 8“-12“
Verð kr. 6.450-
9.980
Vefverslun brynja.is
Flatahrauni 7 | 220 Hafnarfirði | Sími 565 1090 | www.bjb.is
Fékk bíllinn
ekki skoðun?
Aktu áhyggjulaus í burt á nýskoðuðum bíl
Sameinuð gæði
BJB-Mótorstilling þjónustar
flesta þætti endurskoðunar
anngjörnu verði og að
ki förum við með bílinn
n í endurskoðun, þér
kostnaðarlausu.
á s
au
þin
að