Morgunblaðið - 08.10.2020, Side 4

Morgunblaðið - 08.10.2020, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. OKTÓBER 2020 Reykjavíkurborg Umhverfis- og skipulagssvið Loftslagsviðurkenning Reykjavíkurborgar og Festu – tilnefningar óskast Leitað er eftir tilnefningum um fyrirtæki, félagasamtök, stofnanir eða einstaklinga vegna loftslagsviðurkenningar. Tilnefningarnar geta verið frá aðilunum sjálfum eða öðrum. Markmið viðurkenningarinnar er að vekja athygli á því sem vel er gert í loftslagsmálum og vera hvatning til annarra. Tillögur þurfa að berast fyrir 27. október 2020 merktar „Loftslagsviðurkenning 2020“ á netfangið usk@reykjavik.is eða með pósti til Reykjavíkurborgar, Borgartúni 12–14, 105 Reykjavík. Óskað er eftir rökstuðningi með tilnefningunni og bent er á að hægt er að styðjast við eyðublað sem finna má á reykjavik.is/loftslagsvidurkenning, en þar má einnig nálgast frekari upplýsingar. Loftslagsviðurkenningin verður afhent á loftslagsfundi Reykjavíkurborgar og Festu þann 27. nóvember 2020. „Fyrstu tölur frá Samtökum iðnaðar- ins sýna um 3% samdrátt í Reykjavík milli ára og er það lítill samdráttur samanborið við höfuðborgarsvæðið allt,“ segir Sigurborg Ósk Haralds- dóttir, formaður skipulags- og sam- gönguráðs borgarinnar. Ný talning Samtaka iðnaðarins hefur leitt í ljós verulegan samdrátt í nýbyggingum íbúða á höfuðborgarsvæðinu. Sigur- borg segir hins vegar að þetta líti vel út í Reykjavík „og við erum bjartsýn á að íbúðauppbygging á þessu ári verði meiri en á síðasta ári. Árið 2019 fóru 846 nýjar íbúðir í byggingu en á fyrstu sex mánuðum þessa árs voru útgefin byggingarleyfi fyrir samtals 646 íbúðir svo það stefnir í vöxt í Reykjavík,“ segir hún. „Þetta rímar vel við þá staðreynd að síðustu fimm ár hafa verið eitt mesta uppbygg- ingartímabil í Reykjavík í ára- tugi. Frá ársbyrj- un 2015 hefur haf- ist bygging á 5.680 nýjum íbúð- um. Mesta sam- dráttarskeiðið var hins vegar frá 2009 til 2011 en þá var hafin smíði á 282 íbúðum og þar af einungis 10 íbúðum árið 2010,“ segir hún. Stór breyting á aðalskipulagi borgarinnar kynnt Sigurborg segir að í stórri breyt- ingu á gildandi aðalskipulagi borgar- innar sem kynna átti í gær í skipu- lags- og samgönguráði sé gert ráð fyrir kröftugum vexti í Reykjavík þar sem stefnt sé á uppbyggingu 1.000 íbúða á hverju ári til ársins 2040. „Við gerum ráð fyrir að íbúafjölgun verði áfram knúin af aðflutningi fólks að utan. Reykjavík er útvörður lands- ins í alþjóðasamfélaginu og því er sér- staklega mikilvægt að styrkja sam- keppnisstöðu borgarinnar. Hún er nefnilega í samkeppni um ungt vel menntað fólk og alþjóðleg fyrirtæki. Kröftug íbúðauppbygging er grunn- forsenda þess að Reykjavík verði hreyfiafl hagvaxtar og nýsköpunar á Íslandi. Því stefnir Reykjavík ótrauð á að leiða húsnæðisuppbyggingu á höfuðborgarsvæðinu næstu árin,“ sagði hún. omfr@mbl.is Morgunblaðið/Eggert Nýbyggingar Á fyrstu sex mánuðum þessa árs voru útgefin byggingarleyfi fyrir samtals 646 íbúðir í borginni. Segir stefna í vöxt bygginga í Reykjavík  Stefnt á uppbyggingu 1.000 íbúða á hverju ári til 2040 Sigurborg Ósk Haraldsdóttir Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Ný Krýsuvíkurkirkja, sem verið hef- ur í smíðum undanfarin ár hjá nem- endum trésmíðadeildar Tækniskól- ans í Hafnarfirði, var í vikunni hífð af jörðu og sett á dráttarvagn. Stefnt er að flutningi kirkjunnar á sinn varanlega stað í næstu viku, en margvíslegan undirbúning þarf áð- ur. Nú þarf meðal annars að útbúa burðarþolið malarplan fyrir kranann sem notaður verður til að færa guðs- húsið, sem er 6,8 tonn að þynd, af palli dráttarbíls yfir á kirkjuhólinn. Fyrri kirkja í Krýsuvík var byggð árið 1857 en brann til kaldra kola í eldsvoða af völdum íkveikju 2. jan- úar 2010. Strax í kjölfarið kom fram áhugi meðal stjórnenda Iðnskólans í Hafnarfirði, sem þá var, á að smíði nýrrar kirkju yrði verkefni tré- smíðanema skólans. Hljómgrunnur var fyrir slíku og þar með komst málið á hreyfingu milli stjórnenda skólans og kirkjunnar fólks. Nákvæmum fyrirmyndum hefur verið fylgt við smíði kirkjunnar, en starfsmenn Þjóðminjasafnsins tóku þá gömlu út mjög nákvæmlega árið 2003; mældu, mynduðu og skráðu. Hafa þær upplýsingar í raun gert þessa vandasömu smíði gerlega, en hún hefur tekið rúman áratug. Vígsluathöfn innan tíðar „Kirkjan er tilbúin, predikunar- stóll, altari, bekkir og annað hefur verið fest niður. Því er ekkert að vanbúnaði að vígsluathöfnin verði innan tíðar, nema samkomutak- markanir stöðvi okkur. Verkefnið er nánast komið í höfn,“ segir Sigurjón Pétursson, sem er í forystu vina- félags Krýsuvíkurkirkju. Ljósmynd/Sigurjón Pétursson Flutningur Tilfæringar með kirkjuna við Tækniskólann í Hafnarfirði. Krýsuvíkurkirkju lyft á vörubílspall  Flutt á varanlegan stað í næstu viku Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Við höfum þurft að meta stöðuna eftir hendinni hverju sinni og haga okkur allt öðruvísi við að móta þessa herferð en lagt var upp með,“ segir Sigríður Dögg Guðmundsdóttir, fagstjóri ferðaþjónustu hjá Íslands- stofu. Ríkissjóður veitti 1,5 milljörðum króna í markaðsverkefnið Ísland – saman í sókn sem ætlað er að efla ís- lenska ferðaþjónustu í tengslum við áföll vegna kórónuveirunnar. Þegar hefur verið ráðist í herferðina Let it out þar sem fólki var boðið að losa um streitu vegna veirunnar með því að láta öskur sitt hljóma á Íslandi. Vakti herferðin nokkra athygli. „Við höfum nú ráðstafað 20% af heildarfjárhæðinni þannig að megn- ið er eftir. Nú er verið að móta frek- ari aðgerðir og vissulega viljum við eiga þungann af aðgerðunum inni þegar fólk fer að ferðast og bóka ferðir á ný. Hins vegar er mikilvægt að það séu stöðug skilaboð frá áfangastaðnum. Við lítum á þetta eins og kosningar, við viljum hafa áhrif á það hvað fólk mun kjósa. Ef við ætlum bara að auglýsa á kjördag meðan aðrir eru búnir að auglýsa í aðdraganda kosninganna munum við verða undir,“ segir Sigríður. Óþreyja í ferðalöngum Í gær fór fram Vestnorden-ferða- kaupstefnan en hún er haldin fyrir fyrirtæki á Íslandi, í Færeyjum og á Grænlandi. Alls voru 175 fyrirtæki skráð til leiks og fór kaupstefnan fram á vefnum. Sigríður segir að ferðaþjónustufyrirtæki vinni al- mennt langt fram í tímann. Máli skipti að viðhalda sterkum viðskipta- tengslum og vera tilbúin þegar fólk fer að ferðast á ný. „Það er óþreyja í fólki að fara aftur að ferðast og okk- ur fannst mikilvægt að sitja ekki með hendur í skauti þótt það séu ferðatakmarkanir núna,“ segir hún. Vestnorden-ferðakaupstefnan er haldin annað hvert ár á Íslandi og hin árin til skiptis í Færeyjum og á Grænlandi. Í ár stóð til að halda kaupstefnuna á Reykjanesi en vegna kórónuveirunnar reyndist það ekki hægt. Stefnt er að því að halda Vest- norden undir venjulegum formerkj- um á Reykjanesi að ári, 5.-7. október 2021. Ráðstefnan hefur verið fastur liður í dagskrá ferðaþjónustufyrir- tækja hér síðan árið 1986. Hafa varið fimmtungi  Íslandsherferð tekur breytingum Herferð Fólk var hvatt til að láta öskur sitt hljóma á Íslandi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.