Morgunblaðið - 08.10.2020, Qupperneq 53

Morgunblaðið - 08.10.2020, Qupperneq 53
MINNINGAR 53 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. OKTÓBER 2020 ✝ Jakob Stein-grímsson fæddist í Reykjavík 20. desember 1943. Hann lést á heimili sínu í Reykjavík 27. september 2020. Foreldrar hans voru Steingrímur Jónatansson, f. 11.2. 1918, d. 26.9. 1977, og Hulda Guðmundsdóttir, f. 10.8. 1916, d. 6.6. 1996. Systir Jakobs er Hildur, f. 14.5. 1956. Jakob kvæntist hinn 30.12. 1967 Karen Þorvaldsdóttur frá Reykjavík, f. 7.5. 1945. For- eldrar hennar voru Þorvaldur Jónsson, f. 25.12. 1916, d. 9.1. 1993, og Margrét Gísladóttir, f. 7.10. 1918, d. 3.9. 2005. Börn Jakobs og Karenar eru: 1) Hulda, f. 20.11. 1967, sambýlis- maður Jón Árni Rúnarsson. 2) Anna Margrét, f. 28.7. 1975, eiginmaður Tómas Gunnar Viðarsson. Börn þeirra eru Brynjar Berg, Sölvi Rafn og Daníel Darri. Jakob starfaði alla sína tíð hjá Landsbankanum, lengst af í lögfræðideildinni. Hann var virkur í félagsstörfum og var meðal annars í stjórn Hand- knattleiksdeildar Ármanns og Handknattleiksráðs Reykjavík- ur. Útför hans fer fram frá Ár- bæjarkirkju í dag, 8. október 2020, klukkan 13. Það er erfitt að trúa því að Kobbi, tengdapabbi, sé farinn frá okkur. Það er sárt og óraunveru- legt. Kobbi reyndist mér alltaf vel og ég man alltaf eftir því hvað hann og Karen tóku mér vel þeg- ar ég kom inn í fjölskylduna. Hann spurði spurninga á hæv- erskan hátt. Honum þótti líka skemmtilegt þegar ég hóf störf hjá Landsbankanum enda hafði hann unnið þar í fjöldamörg ár og þekkti allt og alla og þótti vænt um bankann sinn. Og ekki fannst honum leiðinlegt að rifja upp skemmtilegar sögur eða spyrja mig hvort ég þekkti til gamalla starfsmanna. Aldrei heyrði ég Kobba tala illa um nokkurn mann. Og hann vildi alltaf allt fyrir alla gera. Þegar við vorum að byggja eða vinna í garðinum eða smíða pall- inn var hann alltaf að bjóða okkur aðstoð, gefa góð ráð og lána okk- ur verkfæri, já eða koma með kerruna. Enda átti Kobbi allar græjur og fannst gott að geta að- stoðað á sinn hátt því oft var bak- ið að stríða honum. Takk fyrir allt, Kobbi, þín verður sárt saknað. Tómas Gunnar. Jakob Steingrímsson ✝ GunnlaugurKristófer Bjarnason var fæddur í Múlakoti á Síðu, Hörgslands- hreppi, 4. mars 1952. Hann lést á Líknardeild Land- spítalans 29. sept- ember 2020. Hann var sonur hjónanna Bjarna Þorlákssonar, bónda og kennara, f. 6.8. 1911 í Múlakoti, d. 8.11. 1975, og Sig- urveigar Kristófersdóttur hús- móður, f. 12.4. 1919 á Keldunúpi, d. 9.6. 2003. Systkini hans voru 1986, og Sigrún Helga Gunn- laugsdóttir, f. 14.7. 1989. Gunnlaugur ólst upp í Múla- koti á Síðu og gekk í Múlakots- skóla, unglingaskóla á Kirkju- bæjarklaustri og Skógaskóla. Að lokinni skólagöngu starfaði hann við vélavinnu víða um land og síð- ar hjá Íshúsi Hafnarfjarðar. Frá 1984 vann hann hjá Vélaverk- stæði Jóhanns Ólafssonar í Hafn- arfirði og árið 1999 lauk hann sveinsprófi í vélsmíði. Síðar starf- aði hann hjá Hval hf. í Hvalfirði. Útför Gunnlaugs fer fram frá Garðakirkju í dag, 8. október 2020, klukkan 13. Vegna að- stæðna í samfélaginu geta aðeins nánustu ættingjar og vinir verið viðstaddir athöfnina. Verður streymt frá athöfninni á vefslóð- inni: https://youtu.be/gN4R6I9RNkM Einnig er virkur hlekkur á:www.mbl.is/andlat Baldur Þorlákur Bjarnason, f. 11.1. 1942, Helga Matt- hildur Bjarnadóttir, f. 30.8. 1945, og Guðrún Lilja Bjarnadóttir, f. 16.5. 1957. Gunnlaugur gift- ist 7.12. 1985 Unni Flygenring, f. 22.8. 1962. Foreldrar hennar voru hjónin Ágúst Flygenring og Guðbjörg Flygenring. Börn Gunnlaugs og Unnar eru Ágúst Þór Gunn- laugsson, f. 14.5. 1987, maki Þór- hildur Halla Jónsdóttir, f. 13.11. Elsku pabbi. Takk fyrir öll árin sem við fengum með þér, öll ferðalögin um fjöll og firnindi, öll skiptin sem þú hjálpaðir okkur í fram- kvæmdum, í bílaviðgerðum og öllu öðru sem okkur datt í hug að biðja þig um að hjálpa okkur með. Takk fyrir allar stundirnar heima á Grund, allar helgarnar í sumarbústaðnum og í sveitinni. Takk fyrir allt sem þú kenndir okkur, allt það mikilvæga og það smávægilega. Í lautinni, þar sem lyngið grær og lindin er hljóð og angurvær, má glataða gleði finna. Friðland á sá, sem flugi nær til fjallahlíðanna sinna. Ef ég að borginni baki sný, þá brosir við augum veröld ný, full af ódáinsangan. Þar hefjast bláfjöllin hátt við ský, með hádegissól um vangann. Kletturinn er mín konungshöll, kirkja mín tindur, þakinn mjöll, helguð heilögum anda. Þar vex og hækkar mín hugsun öll, unz himnarnir opnir standa. Hreinn er faðmur þinn, fjallablær. Fagurt er þar, sem lyngið grær. Þar get ég elskað alla. Á tíma og eilífð töfrum slær af tign hinna bláu fjalla. (Davíð Stefánsson) Ágúst Þór og Sigrún Helga. Gunnlaugur Kristófer Bjarna- son, móðurbróðir okkar, eða Gulli frændi, var okkur systkinunum mjög kær. Það voru mikil forrétt- indi að eiga Gulla að og búum við að fjölmörgum minningum um skemmtilegar samverustundir og traustan og góðan frænda. Hann sýndi okkur væntumþykju á svo margan hátt. Það fór ekki mikið fyrir Gulla og þó hann væri ekki maður marga orða þá var hann einkar hnyttinn. Við gleymum aldrei prakkarasvipnum á Gulla sem gaf strax til kynna að fjörið væri skammt undan; eltingaleik- ir, kitl, við á hestbaki á Gulla og svo mætti lengi telja. Þessa fengu börnin okkar líka að njóta. Gulli var vélsmiður og einkar verklaginn. Hann var með ein- dæmum vinnusamur og sjaldan iðjulaus. Þá var Gulli einnig mjög fjölhæfur og gerði til dæmis við hús, traktora, skip, jeppa og barbí-dúkku með brotna löpp. Hann lagði til að mynda mikið af mörkum til að halda æskuheimil- inu sínu, Múlakoti á Síðu, í góðu horfi. Við systkinin og okkar fjöl- skyldur höfum notið þess. Það var alltaf fróðlegt að kíkja inn í bílskúrinn til Gulla og sjá að hverju hann var að vinna. Okkur þótti sérstaklega spennandi þeg- ar Gulli setti upp tilkomumikinn logsuðuhjálm og hófst handa við að sjóða saman málma með til- heyrandi eldglæringum sem minntu okkur á stjörnublys. Gulli var sigursæll afreksmað- ur í torfæruakstri á sínum yngri árum. Við minnumst ferðalaga með fjölskyldunni, til dæmis eft- irminnilegrar ferðar að fjallabaki sem aðeins átti að vera fær jepp- um. Gulli og Unnur voru á Lödu station, sem þótti ekki líkleg til stórræða uppi á fjöllum, en það kom ekki að sök, með Gulla undir stýri. Gulli bjó fyrstu árin með okkur á Lynghaganum og svo síðar með Unni kærustu sinni og síðar eig- inkonu í kjallaranum hjá okkur í Sigluvoginum. Alla tíð hafa verið sterk bönd á milli fjölskyldnanna. Unnur og börnin þeirra tvö, Sig- rún Helga og Ágúst Þór, eru okk- ur góðir vinir. Fyrir samveru Gulla og um- hyggju erum við ákaflega þakk- lát. Við vottum þeim, sem og ætt- ingjum og vinum, okkar dýpstu samúð. Blessuð sé minning Gulla. Ragnheiður Lóa Björnsdóttir, Sólveig Hildur Björnsdóttir, Hallgrímur Thorberg Björnsson og fjölskyldur. Genginn er góður vinur minn og mágur, Gunnlaugur Kristófer Bjarnason. Þegar ég minnist Gulla, eins og hann var ávallt kallaður, koma mér í huga fleyg orð Egils Skalla- Grímssonar í ljóðinu Sonator- reki: „Mjök erumk tregt tungu að hræra.“ Eins er mér nú farið. Gulli var lítillátur maður en einstaklega hjarthlýr, samvisku- samur, greiðvikinn og hjálpsam- ur. Mín fyrstu kynni af honum voru upp úr árinu 1968, þegar ég og eiginkona mín, Helga Matt- hildur, vorum að draga okkur saman. Gulli fór snemma að heiman til að vinna fyrir sér og æxlaðist það þannig að hann bjó hjá okkur um tíma á Lynghaganum, en síðan fluttum við saman í Sigluvog ásamt Unni Flygenring, verðandi eiginkonu Gulla. Þar í kjallaran- um gerðu þau sér fyrsta hreiðrið. Unnur var Gulla afar traustur lífsförunautur og er okkur fjöl- skyldunni mjög kær vinur. Ég fékk strax miklar mætur á Gulla og hélst vinskapur okkar og fjölskyldnanna alla tíð. Við ferð- uðumst saman innanlands og fór- um einnig tvisvar með þeim hjón- um til Tenerife, þótt hvorki ég né Gulli værum hrifnir af sólböðum. Hins vegar nutum við Gulli gönguferða í hafgolunni og hann naut líka hvíldar í forsælu við lestur góðra bóka. Hér heima fórum við Gulli oft á laugardagsmorgnum í bíltúra með viðkomu í Litlu kaffistof- unni. Í þessum ferðum spjölluð- um við um heima og geima og krufum heimsmálin. Gulli var vélsmiður og afar fróður um hinar ýmsu vélar og tæki. Hann gegndi ýmsum störf- um og annaðist meðal annars við- hald á svonefndum Baader-vél- um í Íshúsi Hafnarfjarðar. Seinna vann hann lengi hjá Vél- smiðju Jóhanns Ólafs ehf. í Hafn- arfirði og annaðist meðal annars viðhald á tækjabúnaði Hvals hf. í Hvalfirði. Réðst Gulli síðar alfar- ið til Hvals hf. og starfaði þar uns kraftar hans þrutu. Ég veit að vinnusemi Gulla var ætíð mikil og vann hann oft langt fram yfir það sem honum var hollt. Vinnuveitendur hans voru ósviknir af hans framlagi. Ófáar voru ferðir hans á æsku- heimilið að Múlakoti á Síðu til að laga gamla bæinn svo og til að smíða og gera við landbúnaðar- tæki fyrir bróður sinn, sem þar bjó þá. Féll Gulla aldrei verk úr hendi. Gulli var í miklu uppáhaldi hjá börnum okkar, enda sýndi hann þeim hlýju og athygli. Aldrei leið langur tími þar til hann var dott- inn í leik með þeim, en hann var glettinn prakkari og það kunnu börnin sannarlega að meta. Fyrir liðlega einu ári kom í ljós að Gulli var með illvígt krabba- mein. Tók hann því af æðruleysi og hélt áfram að vinna eftir því sem dvínandi þróttur leyfði, enda bauð samviskusemi hans það. Gulli var sannur heiðursmað- ur, traustur vinur og mágur. Hvergi ber skugga á framgöngu hans, ósérhlífni og trúmennsku. Það voru mikil forréttindi að fá að eiga Gulla að. Fyrir vinarþel Gulla alla tíð er- um við hjónin ákaflega þakklát og munum varðveita minningu hans um ókomna tíð. Blessuð sé minning elsku Gulla. Við hjónin vottum Unni og börnum þeirra, Ágústi Þór og Sigrúnu Helgu, okkar dýpstu samúð. Björn Ólafur Hallgrímsson. Gunnlaugur Krist- ófer Bjarnason Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN Útfararþjónusta í yfir 70 ár Minningarkort á hjartaheill.is eða í síma 552 5744 Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, FJÖLNIR BJÖRNSSON, Hlíðarvegi 58, Kópavogi, lést á Landspítalanum Hringbraut laugardaginn 3. október. Útför hans mun fara fram í kyrrþey mánudaginn 12. október. Eva Gestsdóttir Rut Fjölnisdóttir Pétur Hjaltason Bergþóra Fjölnisdóttir Dóra Fjölnisdóttir Teitur Jónasson Valdís Fjölnisdóttir Hanna Magnúsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Elskuleg móðir okkar, tengdamamma, amma og langamma, SIGRÍÐUR HALLDÓRSDÓTTIR, Hvolsvelli, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands Selfossi 27. september. Útförin fer fram frá Stórólfshvolskirkju, Hvolsvelli, laugardaginn 10. október klukkan 12. Útvarpað er á FM 106,1. Sigurjón Garðar Óskarsson Anna Ólöf Ólafsdóttir Halldór Óskarsson Edda Antonsdóttir Ómar Óskarsson Erla Ríkharðsdóttir Guðbjörg Óskarsdóttir Þórður Einarsson Sigurlín Óskarsdóttir Þormar Andrésson Óskar Óskarsson Íris Adolfsdóttir Þórunn Óskarsdóttir Friðrik S. Þórarinsson Unnur Óskarsdóttir Ágúst Sigurðsson barnabörn og barnabarnabörn Elskulegur sonur, eiginmaður, faðir, bróðir, tengdasonur og afi, BJÖRN JÓNSSON tölvunarfræðingur, lést laugardaginn 3. október. Útförin fer fram þann 16. október í Bústaðakirkju klukkan 13. Vegna aðstæðna verða aðeins nánustu ættingjar og vinir viðstaddir. Athöfninni verður streymt á slóðinni: www.sonik.is/bjornj. Hafdís Hlíf Sigurbjörnsdóttir Anna Kristín Daníelsdóttir Sigurður Björn Björnsson Margrét Kr. Waage Björnsd. Arnar Ingi Halldórsson Hafdís Sól Björnsdóttir Breki Björnsson Heiða Dóra Jónsdóttir Julian Smith Daníel Jón Jónsson Óskar Örn Jónsson Gerður Ríkharðsdóttir Sigmar Jónsson Birna Björg Másdóttir Daníel Jón Kjartansson og barnabörn GUNNAR SIGURÐSSON, Mörk, Suðurlandsbraut 22, lést fimmtudaginn 24. september. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Fyrir hönd aðstandenda, Vilhjálmur Sigurðsson Elsku móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÞÓRUNN ÞRÁINSDÓTTIR, Sólvangsvegi 3, Hafnarfirði, lést á Hrafnistu, Hafnarfirði, 24. september. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. María Líndal Brynjólfsdóttir Jóhannes Líndal Brynjólfss. Ingigerður Jakobsdóttir Þráinn Líndal Brynjólfsson Hulda Pétursdóttir barnabörn og barnabarnabörn
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.