Morgunblaðið - 08.10.2020, Qupperneq 44
44 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. OKTÓBER 2020
Töfrar eldhússins byrja með Eirvík
Eldhúsið er ekki bara herbergi,
heldur upplifun
Hvort sem þú leitar að klassískum retro kæliskáp á heimilið, rómantískri eldavél í sumar-
bústaðinn, litríkum matvinnslutækjum í eldhúsið eða nýrri fallegri innréttingu erum við með
frábæra valkosti fyrir þig. Vöruúrval Eirvíkur er afar fjölbreytt og ættu allir að geta fundið
eitthvað við sitt hæfi. Af hverju að vera eins og allir hinir - þegar maður getur verið
einstakur!
Eirvík Suðurlandsbraut 20, Reykjavík, sími 588 0200, eirvik.is.
Opnunartími mánudaga - föstudaga 10-18, laugardaga 11-15
Þann 4. október sl.
gáfu þrír fremstu far-
aldsfræðingar heims-
ins, prófessorar við
Harvard-, Oxford- og
Stanford-háskólana
(Kulldorff, Gupta og
Bhattacharya) út yf-
irlýsingu kennda við
Great Barrington í
Bandaríkjunum.
Fjöldi prófessora og
faraldsfræðinga hefur undirritað
yfirlýsinguna. Þar segir:
Við höfum „… alvarlegar áhyggj-
ur af því líkamlega og andlega tjóni
sem ríkjandi COVID-19 stefnu-
mörkun veldur, og mælum með
nálgun sem við köllum markvissa
vernd … Verði þessum aðgerðum
haldið til streitu uns bóluefni er til-
tækt valda þær óafturkræfu tjóni,
sem einkum bitnar á lægri lögum
samfélagsins.“
Markviss vernd felst í grófun
dráttum í því að „… ná hjarðónæmi
[með] jafnvægi milli áhættu og ár-
angurs. Þannig ætti að leyfa þeim
sem eru í minnstri lífshættu að lifa
eðlilegu lífi í því skyni að auka
ónæmi gagnvart vírusnum – ónæmi
sem er náð með náttúrulegu smiti.
Á sama tíma á að verja þá sem eru í
mestri áhættu.“ Lokaorðin eru:
„Þeim sem ekki eru í áhættuhópi
ætti án tafar að heimila að snúa aft-
ur til eðlilegs lífsmynsturs. Einfald-
ar varúðarráðstafanir, s.s. hand-
þvottur og að dvelja heima í
veikindum, þyrftu allir að viðhafa
til að lækka hjarðónæmisþröskuld-
inn. Skólar og háskólar ættu að
kenna með staðnámi. Annarri
virkni, s.s. íþróttum,
ætti að halda áfram.
Ungt fólk í lágmarksá-
ættu ætti að vinna
áfram með óbreyttu
lagi, frekar en frá
heimilum sínum. Veit-
ingahús og aðrir í við-
skiptum ættu að halda
opnu. Listir, tónlist,
líkamsrækt og önnur
menningarstarfsemi
ætti að halda áfram.
Fólk í aukinni áhættu
má taka þátt að vild, á
meðan samfélagið sem heild vernd-
ar viðkvæma með skjóli þeirra sem
mynda hjarðónæmi.“
Tegnell leiddi Svía nokkurn veg-
inn til hjarðónæmis í þessum anda í
vor (komið í maílok), þannig að far-
aldurinn veldur ekki alvarlegu tjóni
þar aftur. Svíar eru eina þjóðin sem
er frjáls.
En hér á landi birtist skuggahlið
„íslensku leiðarinnar“.
Sérstakar aðstæður
Íslendingar höfðu allt að 40%
þjóðartekna sinna af ferðamennsku
áður en faraldurinn braust út.
Efnahagslega höggið er mikið
meira hér en í öðrum Norður-
Evrópuríkjum. Faraldurinn þurfti
því að ganga strax yfir og hjarð-
ónæmi að fást. Ef sænska leiðin
hefði verið farin hefði það nást í
maílok og ferðamennskan hafist
aftur.
Alvarlegustu áhrif íslensku leið-
arinnar eru efnahagsleg og fé-
lagsleg. Það stefnir í fjöldagjald-
þrot fyrirtækja sem varða
ferðaþjónustu, stórfelldan halla-
rekstur ríkis og sveitarfélaga og
samdrátt þjóðartekna um allt að
40%, sem eykur nýgengi fátæktar
stórfelldlega og útburð og gjald-
þrot hinna atvinnulausu þegar þeir
geta ekki greitt af lánum sínum.
Gert er ráð fyrir að atvinnulausir
verði yfir 20 þús. um áramót, það
varðar afkomu 50-60 þús. manns,
barna og fullorðinna.
Seinna í vetur getur örvænting
hafa gripið um sig meðal tugþús-
unda Íslendinga með tilheyrandi
pottaglamri á Austurvelli. Þrengist
þá fyrir dyrum stjórnmálanna.
Brotið á almenningi
og fyrirtækjum
Íslenska leiðin hefur byggst á
mannréttindabrotum og ólögum.
Hér á ég við að ferðafrelsi, sam-
komufrelsi og tjáningarfrelsi
(gagnrýnisraddir á íslensku leiðina
hafa verið þaggaðar) hefur verið af-
lagt og lögreglu- og eftirlitsríki sett
á laggirnar.
Lokun landamæranna er mál
sem gæti gert ríkið skaðabótaskylt.
Hún á sér enga réttlætingu en
barði niður þá litlu ferðaþjónustu
sem fór af stað í sumar. Minnt skal
á að stjórnvaldsaðgerðir þurfa að
standast almennar kröfur, svo sem
réttmætisreglu og meðalhófsreglu.
Ef sýkingar í nágrannaríkjum eru
svipaðar og hér breytir það engu
um sýkingarhættu hér heima að
hleypa ferðamönnum inn í landið
(íslenskum eða erlendum) og ef
sýkingarhættan er meiri hér en í
nágrannaríkjunum, eins og staðan
er núna, minnkar sýkingarhættan
hér innanlands með opnun landa-
mæra.
Dýr í tilraunabúri
nútímatækninnar
Í faraldrinum hefur varkár
stefna yfirvalda í persónuvernd
vikið fyrir ofsagræðgi í gögn sem
ganga eins nálægt almenningi og
mögulegt er. Rakningarappið og
ferðaappið (sem er óheiðarlegt að
nota í þessum tilgangi) hlera allar
myndir, hljóð, staðsetningu og
hverjir eru nálægir í símum lands-
manna, brotist er inn í færslur
kreditkortafyrirtækja til að elta
fólk og lífsýni eru tekin í stórum
stíl. Lífsýni eru nýjasta og stór-
felldasta persónuverndarhættan
og hvorki fyrirséð hvernig þau
verða notuð eða af hverjum. Allt
er þetta gert án upplýsts sam-
þykkis þjóðarinnar. Þetta mál þarf
að gera upp, t.d. af eftirlitsnefnd
Alþingis, og eyða gögnunum, öpp-
unum og síðast en ekki síst lífs-
ýnunum. Hvað tefur Persónu-
vernd?
Guðlegur máttur
Sóttvarnayfirvöld láta sem þau
geti ráðið því hvaða afbrigði veir-
unnar komi til landsins og gert
landið veirulaust. Annaðhvort ætla
sóttvarnayfirvöld að mynda
norðurkóreskt ríki sem er útilokað
frá umheiminum – eða þau halda að
þau geti sigrað náttúruöflin (veir-
una). Þá hafa þau tekið sér stöðu
Guðs.
Hvað ber að gera?
Tækifærið sem Svíar notuðu í vor
til að láta faraldurinn ganga yfir –
það er liðið hjá. Í ljósi þess að veru-
leg bið getur orðið á bóluefni hlýtur
sú krafa að koma upp að sóttvarna-
yfirvöld láti faraldurinn ganga yfir,
nú þegar hann er kominn aftur:
með því skipulega undanhaldi
gagnvart honum sem Svíarnir hafa
sýnt okkur að er rétta leiðin. Þá
ætti hjarðónæmi að vera komið hjá
skemmtanaglaðasta, félagslyndasta
og yngsta hluta þjóðarinnar í jan-
úar-febrúar 2021 – sem gæti bjarg-
að því sem bjargað verður.
Verði þetta ekki gert munu spár
hagfræðinga bankanna um glæsi-
lega endurreisn íslensks efnahags-
lífs á árinu 2021 verða áramóta-
skaup. En hagfræðingar Háskólans
sem hafa reiknað út hagnaðinn af
algerri lokun landsins munu vafalít-
ið hefja kennslu í Norður-Kóreu.
Lokaorð
Fram undan er erfiður vetur,
hvað sem gert verður. Fái farald-
urinn að ganga yfir í haust opnast
þó von – en ef íslenska leiðin verður
áfram ofan á og framkvæmist út ár-
ið 2021 skapast hér á næsta ári
efnahagslegt, félagslegt og menn-
ingarlegt hörmungarástand sem á
sér ekki hliðstæðu í sögu síðustu
áratuga – eða hjá nágrannaríkj-
unum. Enginn vill bera ábyrgð á
slíku ef til kosninga kemur.
Ég hvet menn til að svara þessari
grein ekki með skinhelgi. Það er
ekki hægt að berja sér á brjóst sem
mannvinur, en drepa síðan þjóð
sína í dróma.
Leiðrétta þarf afdrifarík mistök í sóttvörnum
Eftir Hauk
Arnþórsson » Til að leiða þjóð far-
sællega í gegnum
ógn sem hefur í för með
sér mannfall og hörm-
ungar, þarf kalda skyn-
semi og heildstæða sýn
á almannahagsmuni.
Haukur Arnþórsson
Höfundur er stjórnsýslufræðingur.