Morgunblaðið - 08.10.2020, Side 32
Lögreglan á Norðurlandi eystra sá
ástæðu til þess í gær að hvetja íbúa
Fjallabyggðar til að huga að verð-
mætum sínum og geyma þau ekki
fyrir allra augum. Ennfremur að
læsa húsum sínum og geymslum
vegna ítrekaðra þjófnaða og inn-
brota á svæðinu að undanförnu.
Fréttavefurinn Trölli.is greindi
frá því á þriðjudag að þá um nótt-
ina hefði „dökkklæddur fremur
lágvaxinn maður með svarta skíða-
grímu fyrir andlitinu“ farið inn í
nokkur hús í suðurbænum á Siglu-
firði. Ekki var um innbrot að ræða;
þar sem hann fór inn var ólæst hús
og telst það vera húsbrot, að sögn
lögreglunnar. Eins hurfu verðmæti
hjá öðrum þar sem þjófurinn
komst inn og lét greipar sópa. Tal-
ið er að hann hafi athafnað sig um
og eftir miðnættið aðfaranótt
þriðjudags.
Þjófur á Sigló með
svarta skíðagrímu
32 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. OKTÓBER 2020
Netverslun Góða hirðisins var opn-
uð í gær á slóðinni www.godihirdir-
inn.is. Ruth Einarsdóttir, rekstrar-
stjóri Góða hirðisins, segir í
tilkynningu að netverslunin sé rök-
rétt skref fyrir Góða hirðinn, en í
fyrstu bylgju kórónuveirunnar var
netsala í boði á facebooksíðu Góða
hirðisins. Hún segir hagnaðarvon
ekki það sem ýti undir þessa starf-
semi.
Netverslunin var sett upp í sam-
starfi við fyrirtækið SmartMedia.
Viðskiptavinir Góða hirðisins, sem
nýta sér netverslunina, geta sótt
keyptar vörur næstu tvo laugar-
daga eftir kaupin. Tekið er fram að
verslun Góða hirðisins í Fellsmúla
28 verði áfram opin þó svo að sam-
komutakmarkanir setji strik í
reikninginn næstu vikur.
Góði hirðirinn hefur
opnað netverslun
Netverslun Ruth Einarsdóttir er rekstr-
arstjóri Góða hirðisins í Fellsmúla.
kostur fyrir ungt fólk til að eignast
sitt fyrsta heimili á viðráðanlegu
verði,“ segir Bjarni Þór.
Flestar stúdíóíbúðir eru á bilinu
42-43 fermetrar. Þriggja herbergja
íbúðirnar eru flestar nálægt 95 fer-
metrum að stærð. Verð búsetu-
réttar er um 10,5 milljónir á þeim
íbúðum og mánaðarlegt búsetugjald
um 225 þúsund á mánuði. Ef fólk
selur eignina (búseturéttinn) fæst
hann endurgreiddur uppreiknaður
miðað við vísitölu neysluverðs.
Að sögn Ágústu eru félagsmenn
Búseta yfir 5.000. Rúmlega 1.000 af
þeim eru búseturéttarhafar. Hluti
af félagsmönnum eru börn og ung-
menni yngri en 18 ára, aðrir vilja
vera í félaginu upp á seinni tíma ef
fjölskylduaðstæður breytast og/eða
vilja binda minna fjármagn í eign
þegar þeir eru komnir á efri ár.
Ágústa segir að talsverður fjöldi
ungs fólks, jafnvel fyrir tilstilli for-
eldra, gerist félagsmenn í Búseta.
Með þessu hafi unga fólkið sýnt
mikla fyrirhyggju. Félagsmenn geta
keypt búseturétt þegar þeir eru
orðnir lögráða, 18 ára að aldri.
Búseti er húsnæðissamvinnufélag
að norrænni fyrirmynd sem býður
upp á meira en 1.000 íbúðir á höf-
uðborgarsvæðinu. Ágústa segir að
nýir félagsmenn séu velkomnir og
að áhugasamir geti skráð sig í félag-
ið og sótt um búseturétt. Árgjaldið
er 5.500 krónur fyrir fullorðna og
hálft gjald fyrir börn.
A2F arkitektar hönnuðu húsin í
Árskógum. Um er að ræða lyftuhús
og því hindranalaust aðgengi að
svölum og sérafnotareitum. Bíla-
stæði í sameiginlegum bílakjallara
fylgja hluta íbúðanna og þar eru
möguleikar á tengingum fyrir raf-
hleðslu bifreiða. Lóðarhönnun var í
höndum Teiknistofunnar Storðar.
Jáverk ehf. reisir húsin við Árskóga
og verkeftirlit annast EFLA verk-
fræðistofa.
Flytja inn í nýja stúdíóíbúð
fyrir 2,7 milljóna útborgun
Búseti byggir tvö hús með 72 íbúðum í Mjóddinni Afhentar næsta sumar
Ljósmynd/Búseti
Árskógar Fjölbýlishúsin tvö sem Búseti er að byggja og verða tilbúin næsta sumar. Við hliðina, hægra megin, er
húsið sem Félag eldri borgara í Reykjavík, FEB, byggði í Árskógum 1 til 3. Verslunarmiðstöðin í Mjódd er fjær.
Ágústa
Guðmundsdóttir
Bjarni Þór
Þórólfsson
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Nú standa yfir framkvæmdir í Ár-
skógum 5 og 7 í Mjóddinni í Reykja-
vík þar sem Búseti reisir tvö fjög-
urra hæða fjölbýlishús með alls 72
íbúðum. Í húsunum eru stúdíóíbúðir
sem eru aðallega hugsaðar fyrir
ungt fólk, sem er að hefja búskap.
Búseti lauk nýlega fram-
kvæmdum við Keilugranda í
Reykjavík, þar sem byggðar voru
78 íbúðir, og voru þær afhentar nýj-
um kaupendum í sumar.
Að sögn Ágústu Guðmunds-
dóttur, sölu- og markaðstjóra Bú-
seta, verða íbúðirnar í Árskógum
tilbúnar til afhendingar næsta sum-
ar. Í boði eru 32 þriggja herbergja
íbúðir, 14 tveggja herbergja og 26
stúdíóíbúðir. Sala á búseturéttum er
hafin og getur hver umsækjandi
sótt um fleiri en eina íbúð og for-
gangsraðað. Mikill áhugi sé hjá fé-
lagsmönnum enda húsin í næsta ná-
grenni við íþróttasvæði ÍR,
grunnskóla og leikskóla svo og
verslunarmiðstöðina í Mjódd.
Huga að „fyrstu kaupendum“
Bjarni Þór Þórólfsson, fram-
kvæmdastjóri Búseta, segir að í
þessu verkefni endurtaki Búseti það
sem hafi vakið athygli í nýlegu
verkefni félagsins við Keilugranda.
Hluti hinna 72 íbúða á byggingar-
reitnum eru svokallaðar stúdíó-
íbúðir, sem eru ekki síst ætlaðar
þeim sem eru að kaupa sína fyrstu
íbúð. Búseturéttur á þeim íbúðum
er frá um 5,3 milljónum króna og
mánaðarlegt búsetugjald rúmlega
120 þúsund.
„Í boði er fjármögnunarleið, í
samstarfi við viðskiptabanka Bú-
seta, sem gerir fólki kleift að flytja í
nýja íbúð fyrir um 2,7 milljónir
króna. Þá er miðað við 50% fjár-
mögnun búseturéttar á 5,4 milljónir
króna. Verkefnið var m.a. hugsað
sem hagkvæmur og aðgengilegur
Alls bárust sjö umsóknir um emb-
ætti sýslumannsins á höfuðborg-
arsvæðinu og fimm umsóknir um
embætti sýslumannsins á Norður-
landi vestra sem auglýst voru laus
til umsóknar. Umsóknarfrestur var
til og með 1. október síðastliðnum.
Þessum embættum gegna nú
Þórólfur Halldórsson á höfuð-
borgarsvæðinu og Bjarni Stef-
ánsson, Norðurlandi vestra. Þeir
sögðu embættum sínum lausum í
sumar eftir að hafa gegnt emb-
ættum sýslumanna um áratuga
skeið.
Um embætti sýslumannsins á
höfuðborgarsvæðinu sóttu eftir-
taldir:
Petra Baumruk lögfræðingur,
Kristín Völundardóttir, forstjóri Út-
lendingastofnunnar, Þuríður Árna-
dóttir, sviðsstjóri hjá Sýslumann-
inum á höfuðborgarsvæðinu,
Hjördís Stefánsdóttir, sérfræðingur
í dómsmálaráðuneytinu, Karl Óttar
Pétursson lögmaður, Úlfar Lúð-
víksson, lögreglustjóri á Vestur-
landi og Sigríður Kristinsdóttir,
sviðsstjóri stjórnsýslusviðs Hafnar-
fjarðarkaupstaðar.
Um embætti sýslumannsins á
Norðurlandi vestra sóttu eftirtaldir:
Arnar Ágústsson nemi, fv. 1.
stýrimaður, Stefán Ólafsson lög-
maður, Birna Ágústsdóttir, löglærð-
ur fulltrúi hjá sýslumanninum á
Norðurlandi vestra, Björn Hrafn-
kelsson, fulltrúi hjá sýslumanninum
á Norðurlandi vestra, og Karl Óttar
Pétursson lögmaður.
Þeir Bjarni og Þórólfur, sem
senn láta af störfum, eru í hópi
reynslumestu sýslumanna landsins.
Bjarni er fæddur 22. desember
1950. Hann var skipaður sýslumað-
ur í Neskaupstað 1992, á Hólmavík
1998 og loks á Blönduósi 2002.
Þórólfur er fæddur 3. september
1953. Hann var skipaður sýslumað-
ur á Patreksfirði árið 1994 og sýslu-
maður Keflavík árið 2008. Hann
hefur undanfarin ár gegnt embætti
sýslumannsins á höfuðborgarsvæð-
inu . sisi@mbl.is
Tólf umsóknir um
embætti sýslumanna
Reynslumiklir menn láta af störfum
Bjarni
Stefánsson
Þórólfur
Halldórsson
Við leigjum út krókgáma
FRAMKVÆMDIR?
til lengri eða skemmri tíma
HAFÐU SAMBAND:
sími: 577 5757
www.gamafelagid.is Hugsum áður en við hendum!