Morgunblaðið - 08.10.2020, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 08.10.2020, Qupperneq 28
28 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. OKTÓBER 2020 BAKSVIÐ Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Í næsta mánuði verður byrjað að steypa upp nýtt þjóðarsjúkrahús á Landspítalalóðinni. Samið var við byggingarfyrirtækið Eykt um að vinna verkið fyrir tæpa 8,7 milljarða króna og er áætlað að það taki þrjú ár. Enda verður þetta ein stærsta bygging Íslands, um 70.000 fermetr- ar. Síðan tekur við vinna við innrétt- ingar og annan frágang og áætlað er að taka sjúkrahúsið í notkun árið 2025-2026. Meðferðarkjarninn, eins og ein- ingin er nefnd, er stærsta einstaka bygging Hringbrautarverkefnisins og mun gegna lykilhlutverki í starf- seminni, segir í kynningu á heima- síðu Nýs spítala. Í meðferðarkjarnanum munu fara fram flóknar og vandasamar aðgerð- ir, rannsóknir og umönnun sjúklinga þar sem stuðst er við háþróaða tækni og sérhæfða þekkingu. Kröfur um aðbúnað verða sambærilegar og í nýjum sjúkrahúsum í nágrannalönd- um okkar. Mun tengjast öðrum starfs- einingum Landspítalans „Meðferðarkjarninn er hugsaður út frá starfsemi bráða- og háskóla- sjúkrahúss, með áherslu á einfalt og skýrt fyrirkomulag ásamt greiðum leiðum milli starfseininga. Meðferðarkjarninn tengist öðrum starfseiningum spítalans með tengi- göngum og tengibrúm,“ segir á heimasíðunni. Meðferðarhluti hússins verður á neðstu þremur hæðum þess.  Á 1. hæð er aðalinngangur frá Sóleyjartorgi og bráðamóttaka sem leysir af hólmi bráðamóttökur sem í dag eru á fimm stöðum í Reykjavík. Á 1. hæð verður einnig framleiðslu- apótek fyrir spítalann og neðanjarð- artengingar við núverandi húsnæði Landspítalans.  Á 2. hæð verða myndgreining, speglanir, hjartarannsóknir og smit- sjúkdómadeild, sem og annað aðal- anddyri meðferðarkjarnans. Þar verður einnig ýmiss konar þjónusta svo sem matartorg, fyrirlestrasalir, smávöruverslanir og upplýsingaborð.  Á 3. hæð verða skurðstofur, hjarta- og æðaþræðingarstofur og gjörgæsla ásamt móttöku, og und- irbúnings- og vöknunaraðstöðu skurðstofa. Tengibrú verður á 3. hæð yfir í kvennadeild og Barnaspítala Hringsins.  4. hæðin er nær eingöngu tæknihæð sem þjónar meðal annars skurðstofum á 3. hæð en á hæðinni eru einnig vinnu- og hvíldarrými starfsfólks.  Á 5. og 6. hæð verða legudeildir. Níu legudeildir verða í húsinu, átta á efstu tveimur hæðunum og ein á 2. hæð. Hverri þeirra verður skipt upp í þrjár einingar þar sem teymi starfs- fólks sinnir að jafnaði átta sjúkling- um innan hverrar einingar. Allar sjúkrastofur legudeilda eru einbýli með sérsnyrtingu. Góð aðstaða verð- ur fyrir aðstandendur á sjúkrastof- um og legudeildum en í meðferð- arkjarna verða þeir sjúklingar sem þurfa hvað mesta umönnun starfs- fólks.  Í kjallara hússins verða ýmis þjónusturými sem styðja við klíníska starfsemi hússins. Þar eru meðal annars búningsklefar starfsmanna, dauðhreinsun, framleiðsluhluti apó- teks og framleiðsla geislavirkra efna sem notuð eru í myndgreiningu. Þá verður þar ýmis stoðþjónusta svo sem þvottastöð fyrir rúm, ræsti- miðstöð, hjálpartækjalager og tæknirými. Frá kjallara verða neðanjarðartengingar til meðal ann- ars rannsóknahúss og háskólabygg- ingar. Áætluð staða á hverri einingu spítalans fyrir sig miðað við há- markskálag á miðjum degi er sem hér segir: Legudeildir 210, gjör- gæsla 25, skurðstofur, undirbún- ingur og vöknun 60, hjarta- og æða- þræðingar 15, myndgreining og speglun 50 og bráðamóttaka 120. Alls eru þetta 480 sjúklingar. „Meðferðarkjarninn verður stór bygging með fjölþætta starfsemi. Honum verður deilt upp í fimm byggingarhluta til að draga úr stærðaráhrifum hans á nær- umhverfið. Rýmin á milli bygging- arhlutanna mynda ljósgarða sem hleypa birtu inn í velflest meðferðar- og vinnurými og skapa græðandi umhverfi fyrir sjúklinga, gesti og starfsfólk,“ segir á heimasíðu Nýs spítala. Mikill fjöldi sérfræðinga hefur undirbúið verkefnið. Corpus- hópurinn vinnur nú að fulln- aðarhönnun meðferðarkjarnans. Í Corpus-teyminu eru Hornsteinar arkitektar, Basalt arkitektar, LOTA verkfræðistofa, VSÓ Ráðgjöf, TRIVIUM ráðgjöf, NIRAS, De Jong Gortmaker Algra, Buro Hap- pold engineering, Reinertsen og Asplan Viak. Nýja þjóðarsjúkrahúsið rís  Í næsta mánuði verður byrjað að steypa upp meðferðarkjarna á Landspítalalóðinni  Þetta verður lykilbygging nýs spítala þar sem hægt verður að meðhöndla 480 sjúklinga miðað við hámarksálag Tölvumynd/Corpus Nýr Landspítali Meðferðarkjarninn verður stærsta byggingin á lóðinni, um 70 þúsund fermetrar. Hún mun gegna lykilhlutverki í starfsemi spítalans. Landspítalalóðin Meðferðarkjarninn er fyrir miðri mynd. Þetta verður risabygging eins og vel sést í samanburði við gamla spítalann til hægri. Góð þjónusta í tæpa öld 10%afslátturfyrir 67 ára og eldri
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.