Morgunblaðið - 08.10.2020, Side 56
56 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. OKTÓBER 2020
Loðnuvinnslan óskar eftir að ráða
vélstjóra í 50% stöðu á Hoffell SU-80
Loðnuvinnslan er rótgróið sjávarútvegsfyrirtæki í fremstu röð og fer öll starfsemi
fyrirtækisins fram á Fáskrúðsfirði.
Áhugavert tækifæri fyrir metnaðarfullan einstakling.
Við hvetjum konur jafnt sem karla til að sækja um starfið.
LVF
H
é
ra
ð
sp
re
n
t
Viðkomandi þarf að hafa full réttindi til vélstjórnar VF-1 og hafa reynslu í starfi.
Leitað er að lausnamiðuðum einstaklingi sem hefur brennandi áhuga á starfinu.
Róið er samkvæmt skiptikerfi.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst og hafi búsetu á Fáskrúðsfirði.
Nánari upplýsingar um starfið veitir
Kjartan Reynisson útgerðarstjóri í síma 893-3009/kjartan@lvf.is eða
Ragnheiður Elmarsdóttir mannauðsstjóri í síma 892-7484/ragna@lvf.is.
Umsókn ásamt ferilskrá skal senda á netfangið ragna@lvf.is.
Umsóknarfrestur er til og með 25. október 2020.
BLÖNDUÓSBÆR
Hnjúkabyggð 33 | 540 Blönduós | Sími 455 4700
Menningar-, íþrótta- og tómstundafulltrúi
Blönduósbær auglýsir laust til umsóknar starf Menningar-, íþrótta- og
tómstundafulltrúa. Um nýtt starf er ræða með starfshlutfalli 80–100%.
Tilgangur starfsins er að hafa umsjón með öllu menningar-, íþrótta- og
tómstundastarfi Blönduósbæjar í góðu samstarfi við hlutaðeigandi
aðila. Á Blönduósi er góð aðstaða fyrir öflugt íþróttastarf og skýr
framtíðarsýn fyrir styrkingu á núverandi tómstundastarfi fyrir alla
aldurshópa í þessu vaxandi samfélagi á NV-landi. Hér er fjölbreytt og
skemmtilegt tækifæri fyrir skipulagðan einstakling til þess að móta
nýtt starf í samstarfi við fjölmarga aðila á svæðinu. Næsti yfirmaður
er sveitarstjóri.
Markmið og verkefni:
• Verkefnavinna og þátttaka í stefnumótun í þessum málaflokkum.
• Vinna náið með menningar-, íþrótta- og tómstundanefnd
sveitarfélagsins.
• Umsjón og þróunarvinna með starfsemi félagsmiðstöðvarinnar
Skjólsins.
• Er tengiliður sveitarfélagsins við félagasamtök sem eru með
skipulagða íþrótta- og tómstundastarfsemi í sveitarfélaginu, á
grundvelli samninga.
• Vinnur í nánu samstarfi við stjórnendur grunnskóla og
íþróttamiðstöðvar.
• Er tengiliður og umsjónaraðili með verkefninu Heilsueflandi
samfélag.
• Verkefnastjórn við undirbúning viðburða á vegum sveitarfélagsins.
• Önnur verkefni á þessu sviði sem viðkomandi er falið af sveitarstjóra.
Hæfniskröfur:
• Háskólamenntun sem nýtist í starfinu, gjarnan á sviði kennslu,
tómstunda- og félagsmálafræði, eða önnur menntun sem nýtist.
• Góðir forystu-, skipulags- og samskiptahæfileikar.
• Reynsla og þekking af íþrótta- og tómstundastarfi.
• Mikill áhugi á velferð íbúa og hæfni til að eiga samskipti við alla
aldurshópa.
• Frumkvæði, jákvætt hugarfar og hugmyndaauðgi.
Launakjör erum samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra
sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Hreint sakavottorð er
skilyrði fyrir ráðningu. Umsækjendur af öllum kynjum eru hvattir til að
sækja um starfið. Nánari upplýsingar veitir Valdimar O Hermannsson,
sveitarstjóri. Upphaf starfs er sem fyrst eða samkvæmt nánara
samkomulagi. Umsóknum skal skilað á netfangið, valdimar@
blonduos.is Umsóknarfrestur er til og með 24. október 2020.
Intellecta ehf. Síðumúla 5 108 Reykjavík 511 1225 intellecta.is
Intellecta er sjálfstætt þekkingarfyrirtæki stofnað árið 2000. Við vinnum með stjórnendum
við að auka árangur, bæta rekstur og efla stjórnun. Ráðgjafar Intellecta hafa sterkan faglegan
bakgrunn og víðtæka alþjóðlega reynslu. Þennan grunn notum við í samvinnu við viðskiptavini
til að móta hugmyndir sem skipta máli og í innleiðingu lausna sem skila árangri.
RÁÐNINGAR Starfsmenn eru lykill að árangri allra fyrirtækja.
Nú finnur
þú það
sem þú
leitar að á
FINNA.is
IÐNAÐARMENN
VERSLANIR
VEITINGAR
VERKSTÆÐI
BÓKHALDSÞJÓNUSTA
OG FLEIRA