Morgunblaðið - 08.10.2020, Page 56

Morgunblaðið - 08.10.2020, Page 56
56 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. OKTÓBER 2020 Loðnuvinnslan óskar eftir að ráða vélstjóra í 50% stöðu á Hoffell SU-80 Loðnuvinnslan er rótgróið sjávarútvegsfyrirtæki í fremstu röð og fer öll starfsemi fyrirtækisins fram á Fáskrúðsfirði. Áhugavert tækifæri fyrir metnaðarfullan einstakling. Við hvetjum konur jafnt sem karla til að sækja um starfið. LVF H é ra ð sp re n t Viðkomandi þarf að hafa full réttindi til vélstjórnar VF-1 og hafa reynslu í starfi. Leitað er að lausnamiðuðum einstaklingi sem hefur brennandi áhuga á starfinu. Róið er samkvæmt skiptikerfi. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst og hafi búsetu á Fáskrúðsfirði. Nánari upplýsingar um starfið veitir Kjartan Reynisson útgerðarstjóri í síma 893-3009/kjartan@lvf.is eða Ragnheiður Elmarsdóttir mannauðsstjóri í síma 892-7484/ragna@lvf.is. Umsókn ásamt ferilskrá skal senda á netfangið ragna@lvf.is. Umsóknarfrestur er til og með 25. október 2020. BLÖNDUÓSBÆR Hnjúkabyggð 33 | 540 Blönduós | Sími 455 4700 Menningar-, íþrótta- og tómstundafulltrúi Blönduósbær auglýsir laust til umsóknar starf Menningar-, íþrótta- og tómstundafulltrúa. Um nýtt starf er ræða með starfshlutfalli 80–100%. Tilgangur starfsins er að hafa umsjón með öllu menningar-, íþrótta- og tómstundastarfi Blönduósbæjar í góðu samstarfi við hlutaðeigandi aðila. Á Blönduósi er góð aðstaða fyrir öflugt íþróttastarf og skýr framtíðarsýn fyrir styrkingu á núverandi tómstundastarfi fyrir alla aldurshópa í þessu vaxandi samfélagi á NV-landi. Hér er fjölbreytt og skemmtilegt tækifæri fyrir skipulagðan einstakling til þess að móta nýtt starf í samstarfi við fjölmarga aðila á svæðinu. Næsti yfirmaður er sveitarstjóri. Markmið og verkefni: • Verkefnavinna og þátttaka í stefnumótun í þessum málaflokkum. • Vinna náið með menningar-, íþrótta- og tómstundanefnd sveitarfélagsins. • Umsjón og þróunarvinna með starfsemi félagsmiðstöðvarinnar Skjólsins. • Er tengiliður sveitarfélagsins við félagasamtök sem eru með skipulagða íþrótta- og tómstundastarfsemi í sveitarfélaginu, á grundvelli samninga. • Vinnur í nánu samstarfi við stjórnendur grunnskóla og íþróttamiðstöðvar. • Er tengiliður og umsjónaraðili með verkefninu Heilsueflandi samfélag. • Verkefnastjórn við undirbúning viðburða á vegum sveitarfélagsins. • Önnur verkefni á þessu sviði sem viðkomandi er falið af sveitarstjóra. Hæfniskröfur: • Háskólamenntun sem nýtist í starfinu, gjarnan á sviði kennslu, tómstunda- og félagsmálafræði, eða önnur menntun sem nýtist. • Góðir forystu-, skipulags- og samskiptahæfileikar. • Reynsla og þekking af íþrótta- og tómstundastarfi. • Mikill áhugi á velferð íbúa og hæfni til að eiga samskipti við alla aldurshópa. • Frumkvæði, jákvætt hugarfar og hugmyndaauðgi. Launakjör erum samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Hreint sakavottorð er skilyrði fyrir ráðningu. Umsækjendur af öllum kynjum eru hvattir til að sækja um starfið. Nánari upplýsingar veitir Valdimar O Hermannsson, sveitarstjóri. Upphaf starfs er sem fyrst eða samkvæmt nánara samkomulagi. Umsóknum skal skilað á netfangið, valdimar@ blonduos.is Umsóknarfrestur er til og með 24. október 2020. Intellecta ehf. Síðumúla 5 108 Reykjavík 511 1225 intellecta.is Intellecta er sjálfstætt þekkingarfyrirtæki stofnað árið 2000. Við vinnum með stjórnendum við að auka árangur, bæta rekstur og efla stjórnun. Ráðgjafar Intellecta hafa sterkan faglegan bakgrunn og víðtæka alþjóðlega reynslu. Þennan grunn notum við í samvinnu við viðskiptavini til að móta hugmyndir sem skipta máli og í innleiðingu lausna sem skila árangri. RÁÐNINGAR Starfsmenn eru lykill að árangri allra fyrirtækja. Nú finnur þú það sem þú leitar að á FINNA.is IÐNAÐARMENN VERSLANIR VEITINGAR VERKSTÆÐI BÓKHALDSÞJÓNUSTA OG FLEIRA

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.