Morgunblaðið - 08.10.2020, Page 53
MINNINGAR 53
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. OKTÓBER 2020
✝ Jakob Stein-grímsson
fæddist í Reykjavík
20. desember 1943.
Hann lést á heimili
sínu í Reykjavík 27.
september 2020.
Foreldrar hans
voru Steingrímur
Jónatansson, f.
11.2. 1918, d. 26.9.
1977, og Hulda
Guðmundsdóttir, f.
10.8. 1916, d. 6.6. 1996. Systir
Jakobs er Hildur, f. 14.5. 1956.
Jakob kvæntist hinn 30.12.
1967 Karen Þorvaldsdóttur frá
Reykjavík, f. 7.5. 1945. For-
eldrar hennar voru Þorvaldur
Jónsson, f. 25.12. 1916, d. 9.1.
1993, og Margrét Gísladóttir, f.
7.10. 1918, d. 3.9. 2005. Börn
Jakobs og Karenar eru: 1)
Hulda, f. 20.11.
1967, sambýlis-
maður Jón Árni
Rúnarsson. 2) Anna
Margrét, f. 28.7.
1975, eiginmaður
Tómas Gunnar
Viðarsson. Börn
þeirra eru Brynjar
Berg, Sölvi Rafn og
Daníel Darri.
Jakob starfaði
alla sína tíð hjá
Landsbankanum, lengst af í
lögfræðideildinni. Hann var
virkur í félagsstörfum og var
meðal annars í stjórn Hand-
knattleiksdeildar Ármanns og
Handknattleiksráðs Reykjavík-
ur.
Útför hans fer fram frá Ár-
bæjarkirkju í dag, 8. október
2020, klukkan 13.
Það er erfitt að trúa því að
Kobbi, tengdapabbi, sé farinn frá
okkur. Það er sárt og óraunveru-
legt.
Kobbi reyndist mér alltaf vel
og ég man alltaf eftir því hvað
hann og Karen tóku mér vel þeg-
ar ég kom inn í fjölskylduna.
Hann spurði spurninga á hæv-
erskan hátt. Honum þótti líka
skemmtilegt þegar ég hóf störf
hjá Landsbankanum enda hafði
hann unnið þar í fjöldamörg ár og
þekkti allt og alla og þótti vænt
um bankann sinn. Og ekki fannst
honum leiðinlegt að rifja upp
skemmtilegar sögur eða spyrja
mig hvort ég þekkti til gamalla
starfsmanna.
Aldrei heyrði ég Kobba tala
illa um nokkurn mann. Og hann
vildi alltaf allt fyrir alla gera.
Þegar við vorum að byggja eða
vinna í garðinum eða smíða pall-
inn var hann alltaf að bjóða okkur
aðstoð, gefa góð ráð og lána okk-
ur verkfæri, já eða koma með
kerruna. Enda átti Kobbi allar
græjur og fannst gott að geta að-
stoðað á sinn hátt því oft var bak-
ið að stríða honum.
Takk fyrir allt, Kobbi, þín
verður sárt saknað.
Tómas Gunnar.
Jakob
Steingrímsson
✝ GunnlaugurKristófer
Bjarnason var
fæddur í Múlakoti á
Síðu, Hörgslands-
hreppi, 4. mars
1952. Hann lést á
Líknardeild Land-
spítalans 29. sept-
ember 2020.
Hann var sonur
hjónanna Bjarna
Þorlákssonar,
bónda og kennara, f. 6.8. 1911 í
Múlakoti, d. 8.11. 1975, og Sig-
urveigar Kristófersdóttur hús-
móður, f. 12.4. 1919 á Keldunúpi,
d. 9.6. 2003. Systkini hans voru
1986, og Sigrún Helga Gunn-
laugsdóttir, f. 14.7. 1989.
Gunnlaugur ólst upp í Múla-
koti á Síðu og gekk í Múlakots-
skóla, unglingaskóla á Kirkju-
bæjarklaustri og Skógaskóla. Að
lokinni skólagöngu starfaði hann
við vélavinnu víða um land og síð-
ar hjá Íshúsi Hafnarfjarðar. Frá
1984 vann hann hjá Vélaverk-
stæði Jóhanns Ólafssonar í Hafn-
arfirði og árið 1999 lauk hann
sveinsprófi í vélsmíði. Síðar starf-
aði hann hjá Hval hf. í Hvalfirði.
Útför Gunnlaugs fer fram frá
Garðakirkju í dag, 8. október
2020, klukkan 13. Vegna að-
stæðna í samfélaginu geta aðeins
nánustu ættingjar og vinir verið
viðstaddir athöfnina. Verður
streymt frá athöfninni á vefslóð-
inni:
https://youtu.be/gN4R6I9RNkM
Einnig er virkur hlekkur
á:www.mbl.is/andlat
Baldur Þorlákur
Bjarnason, f. 11.1.
1942, Helga Matt-
hildur Bjarnadóttir,
f. 30.8. 1945, og
Guðrún Lilja
Bjarnadóttir, f.
16.5. 1957.
Gunnlaugur gift-
ist 7.12. 1985 Unni
Flygenring, f. 22.8.
1962. Foreldrar
hennar voru hjónin
Ágúst Flygenring og Guðbjörg
Flygenring. Börn Gunnlaugs og
Unnar eru Ágúst Þór Gunn-
laugsson, f. 14.5. 1987, maki Þór-
hildur Halla Jónsdóttir, f. 13.11.
Elsku pabbi.
Takk fyrir öll árin sem við
fengum með þér, öll ferðalögin
um fjöll og firnindi, öll skiptin
sem þú hjálpaðir okkur í fram-
kvæmdum, í bílaviðgerðum og
öllu öðru sem okkur datt í hug að
biðja þig um að hjálpa okkur
með.
Takk fyrir allar stundirnar
heima á Grund, allar helgarnar í
sumarbústaðnum og í sveitinni.
Takk fyrir allt sem þú kenndir
okkur, allt það mikilvæga og það
smávægilega.
Í lautinni, þar sem lyngið grær
og lindin er hljóð og angurvær,
má glataða gleði finna.
Friðland á sá, sem flugi nær
til fjallahlíðanna sinna.
Ef ég að borginni baki sný,
þá brosir við augum veröld ný,
full af ódáinsangan.
Þar hefjast bláfjöllin hátt við ský,
með hádegissól um vangann.
Kletturinn er mín konungshöll,
kirkja mín tindur, þakinn mjöll,
helguð heilögum anda.
Þar vex og hækkar mín hugsun öll,
unz himnarnir opnir standa.
Hreinn er faðmur þinn, fjallablær.
Fagurt er þar, sem lyngið grær.
Þar get ég elskað alla.
Á tíma og eilífð töfrum slær
af tign hinna bláu fjalla.
(Davíð Stefánsson)
Ágúst Þór og Sigrún Helga.
Gunnlaugur Kristófer Bjarna-
son, móðurbróðir okkar, eða Gulli
frændi, var okkur systkinunum
mjög kær. Það voru mikil forrétt-
indi að eiga Gulla að og búum við
að fjölmörgum minningum um
skemmtilegar samverustundir og
traustan og góðan frænda. Hann
sýndi okkur væntumþykju á svo
margan hátt. Það fór ekki mikið
fyrir Gulla og þó hann væri ekki
maður marga orða þá var hann
einkar hnyttinn. Við gleymum
aldrei prakkarasvipnum á Gulla
sem gaf strax til kynna að fjörið
væri skammt undan; eltingaleik-
ir, kitl, við á hestbaki á Gulla og
svo mætti lengi telja. Þessa fengu
börnin okkar líka að njóta.
Gulli var vélsmiður og einkar
verklaginn. Hann var með ein-
dæmum vinnusamur og sjaldan
iðjulaus. Þá var Gulli einnig mjög
fjölhæfur og gerði til dæmis við
hús, traktora, skip, jeppa og
barbí-dúkku með brotna löpp.
Hann lagði til að mynda mikið af
mörkum til að halda æskuheimil-
inu sínu, Múlakoti á Síðu, í góðu
horfi. Við systkinin og okkar fjöl-
skyldur höfum notið þess.
Það var alltaf fróðlegt að kíkja
inn í bílskúrinn til Gulla og sjá að
hverju hann var að vinna. Okkur
þótti sérstaklega spennandi þeg-
ar Gulli setti upp tilkomumikinn
logsuðuhjálm og hófst handa við
að sjóða saman málma með til-
heyrandi eldglæringum sem
minntu okkur á stjörnublys.
Gulli var sigursæll afreksmað-
ur í torfæruakstri á sínum yngri
árum. Við minnumst ferðalaga
með fjölskyldunni, til dæmis eft-
irminnilegrar ferðar að fjallabaki
sem aðeins átti að vera fær jepp-
um. Gulli og Unnur voru á Lödu
station, sem þótti ekki líkleg til
stórræða uppi á fjöllum, en það
kom ekki að sök, með Gulla undir
stýri.
Gulli bjó fyrstu árin með okkur
á Lynghaganum og svo síðar með
Unni kærustu sinni og síðar eig-
inkonu í kjallaranum hjá okkur í
Sigluvoginum. Alla tíð hafa verið
sterk bönd á milli fjölskyldnanna.
Unnur og börnin þeirra tvö, Sig-
rún Helga og Ágúst Þór, eru okk-
ur góðir vinir.
Fyrir samveru Gulla og um-
hyggju erum við ákaflega þakk-
lát. Við vottum þeim, sem og ætt-
ingjum og vinum, okkar dýpstu
samúð. Blessuð sé minning Gulla.
Ragnheiður Lóa Björnsdóttir,
Sólveig Hildur Björnsdóttir,
Hallgrímur Thorberg
Björnsson og fjölskyldur.
Genginn er góður vinur minn
og mágur, Gunnlaugur Kristófer
Bjarnason.
Þegar ég minnist Gulla, eins
og hann var ávallt kallaður, koma
mér í huga fleyg orð Egils Skalla-
Grímssonar í ljóðinu Sonator-
reki: „Mjök erumk tregt tungu að
hræra.“ Eins er mér nú farið.
Gulli var lítillátur maður en
einstaklega hjarthlýr, samvisku-
samur, greiðvikinn og hjálpsam-
ur.
Mín fyrstu kynni af honum
voru upp úr árinu 1968, þegar ég
og eiginkona mín, Helga Matt-
hildur, vorum að draga okkur
saman.
Gulli fór snemma að heiman til
að vinna fyrir sér og æxlaðist það
þannig að hann bjó hjá okkur um
tíma á Lynghaganum, en síðan
fluttum við saman í Sigluvog
ásamt Unni Flygenring, verðandi
eiginkonu Gulla. Þar í kjallaran-
um gerðu þau sér fyrsta hreiðrið.
Unnur var Gulla afar traustur
lífsförunautur og er okkur fjöl-
skyldunni mjög kær vinur.
Ég fékk strax miklar mætur á
Gulla og hélst vinskapur okkar og
fjölskyldnanna alla tíð. Við ferð-
uðumst saman innanlands og fór-
um einnig tvisvar með þeim hjón-
um til Tenerife, þótt hvorki ég né
Gulli værum hrifnir af sólböðum.
Hins vegar nutum við Gulli
gönguferða í hafgolunni og hann
naut líka hvíldar í forsælu við
lestur góðra bóka.
Hér heima fórum við Gulli oft á
laugardagsmorgnum í bíltúra
með viðkomu í Litlu kaffistof-
unni. Í þessum ferðum spjölluð-
um við um heima og geima og
krufum heimsmálin.
Gulli var vélsmiður og afar
fróður um hinar ýmsu vélar og
tæki. Hann gegndi ýmsum störf-
um og annaðist meðal annars við-
hald á svonefndum Baader-vél-
um í Íshúsi Hafnarfjarðar.
Seinna vann hann lengi hjá Vél-
smiðju Jóhanns Ólafs ehf. í Hafn-
arfirði og annaðist meðal annars
viðhald á tækjabúnaði Hvals hf. í
Hvalfirði. Réðst Gulli síðar alfar-
ið til Hvals hf. og starfaði þar uns
kraftar hans þrutu.
Ég veit að vinnusemi Gulla var
ætíð mikil og vann hann oft langt
fram yfir það sem honum var
hollt. Vinnuveitendur hans voru
ósviknir af hans framlagi.
Ófáar voru ferðir hans á æsku-
heimilið að Múlakoti á Síðu til að
laga gamla bæinn svo og til að
smíða og gera við landbúnaðar-
tæki fyrir bróður sinn, sem þar
bjó þá. Féll Gulla aldrei verk úr
hendi.
Gulli var í miklu uppáhaldi hjá
börnum okkar, enda sýndi hann
þeim hlýju og athygli. Aldrei leið
langur tími þar til hann var dott-
inn í leik með þeim, en hann var
glettinn prakkari og það kunnu
börnin sannarlega að meta.
Fyrir liðlega einu ári kom í ljós
að Gulli var með illvígt krabba-
mein. Tók hann því af æðruleysi
og hélt áfram að vinna eftir því
sem dvínandi þróttur leyfði, enda
bauð samviskusemi hans það.
Gulli var sannur heiðursmað-
ur, traustur vinur og mágur.
Hvergi ber skugga á framgöngu
hans, ósérhlífni og trúmennsku.
Það voru mikil forréttindi að fá
að eiga Gulla að.
Fyrir vinarþel Gulla alla tíð er-
um við hjónin ákaflega þakklát
og munum varðveita minningu
hans um ókomna tíð.
Blessuð sé minning elsku
Gulla.
Við hjónin vottum Unni og
börnum þeirra, Ágústi Þór og
Sigrúnu Helgu, okkar dýpstu
samúð.
Björn Ólafur Hallgrímsson.
Gunnlaugur Krist-
ófer Bjarnason
Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is
VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN
Útfararþjónusta
í yfir 70 ár
Minningarkort á
hjartaheill.is
eða í síma 552 5744
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
FJÖLNIR BJÖRNSSON,
Hlíðarvegi 58, Kópavogi,
lést á Landspítalanum Hringbraut
laugardaginn 3. október.
Útför hans mun fara fram í kyrrþey mánudaginn 12. október.
Eva Gestsdóttir
Rut Fjölnisdóttir Pétur Hjaltason
Bergþóra Fjölnisdóttir
Dóra Fjölnisdóttir Teitur Jónasson
Valdís Fjölnisdóttir Hanna Magnúsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Elskuleg móðir okkar, tengdamamma,
amma og langamma,
SIGRÍÐUR HALLDÓRSDÓTTIR,
Hvolsvelli,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands
Selfossi 27. september.
Útförin fer fram frá Stórólfshvolskirkju, Hvolsvelli, laugardaginn
10. október klukkan 12.
Útvarpað er á FM 106,1.
Sigurjón Garðar Óskarsson Anna Ólöf Ólafsdóttir
Halldór Óskarsson Edda Antonsdóttir
Ómar Óskarsson Erla Ríkharðsdóttir
Guðbjörg Óskarsdóttir Þórður Einarsson
Sigurlín Óskarsdóttir Þormar Andrésson
Óskar Óskarsson Íris Adolfsdóttir
Þórunn Óskarsdóttir Friðrik S. Þórarinsson
Unnur Óskarsdóttir Ágúst Sigurðsson
barnabörn og barnabarnabörn
Elskulegur sonur, eiginmaður, faðir, bróðir,
tengdasonur og afi,
BJÖRN JÓNSSON
tölvunarfræðingur,
lést laugardaginn 3. október.
Útförin fer fram þann 16. október í
Bústaðakirkju klukkan 13. Vegna aðstæðna verða aðeins
nánustu ættingjar og vinir viðstaddir.
Athöfninni verður streymt á slóðinni: www.sonik.is/bjornj.
Hafdís Hlíf Sigurbjörnsdóttir
Anna Kristín Daníelsdóttir
Sigurður Björn Björnsson
Margrét Kr. Waage Björnsd. Arnar Ingi Halldórsson
Hafdís Sól Björnsdóttir
Breki Björnsson
Heiða Dóra Jónsdóttir Julian Smith
Daníel Jón Jónsson
Óskar Örn Jónsson Gerður Ríkharðsdóttir
Sigmar Jónsson Birna Björg Másdóttir
Daníel Jón Kjartansson
og barnabörn
GUNNAR SIGURÐSSON,
Mörk, Suðurlandsbraut 22,
lést fimmtudaginn 24. september.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey.
Fyrir hönd aðstandenda,
Vilhjálmur Sigurðsson
Elsku móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
ÞÓRUNN ÞRÁINSDÓTTIR,
Sólvangsvegi 3,
Hafnarfirði,
lést á Hrafnistu, Hafnarfirði, 24. september.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
María Líndal Brynjólfsdóttir
Jóhannes Líndal Brynjólfss. Ingigerður Jakobsdóttir
Þráinn Líndal Brynjólfsson Hulda Pétursdóttir
barnabörn og barnabarnabörn