Morgunblaðið - 24.10.2020, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. OKTÓBER 2020
fasteignaverdmat.is
Ármúli 7, 2. hæð | Sími 546 1100 | investis@investis.is | www.investis.is
Sérfræðingar
í sölu fyrirtækja
• Mjög áhugaverð verslun í Kringlunni.
• Ungó, söluturn í Keflavík með farsæla rekstrarsögu.
• Við leitum að fjárfestum til að ganga til liðs við áhugavert
heilsuvörufyrirtæki.
• Herrafataverslun með hágæða merki, áhugavert fyrirtæki.
• Sérverslun með ljósmyndavörur og búnað.
• Innlendur matvælaframleiðandi með áhugaverðar vörur.
• Veitingarekstur í Mathöllum, velta yfir 200 milljónir.
Við vinnum að eftirtöldum verkefnum:
Við vinnum að sölu, sameiningum og fjármögnun yfir 60
fyrirtækja af ýmsum stærðum og í hinum ýmsu atvinnugreinum.
Andrés Magnússon
andres@mbl.is
Fjöldi dauðsfalla hérlendis það sem af er þessu
ári er verulega undir meðallagi undanfarinna
50 ára. Þetta má sjá á línuritinu að ofan, sem
sýnir frávik uppsafnaðra dauðsfalla á hverja
100 þúsund íbúa landsins, dag frá degi, miðað
við meðaltal þeirra allt frá upphafi árs 1970 til
þessa dags.
Það þýðir að það sem af er þessu ári hafi 137
færri látist á Íslandi en vænta mætti miðað við
meðaltalið.
Þetta kemur vafalaust mörgum á óvart í
ljósi heimsfaraldurs kórónuveirunnar, sem
þegar hefur valdið dauða 11 manns hér á landi.
Örðugt er að nefna óyggjandi ástæður fyrir
því, en vera má að aukin árvekni og sóttvarnir
hafi skilað sér þannig. Því má vera að ýmsar
umgangspestir hafi síður breiðst út vegna
sóttvarna, svo færri, sem veikir voru fyrir, hafi
látist. Á móti má nefna að sum önnur ár eru
verulega undir meðaltalinu líka, án þess að
nefna megi augljósar skýringar á því.
Það var Eðvald Ingi Gíslason, gagnavís-
indamaður hjá Motus, sem vann þessa grein-
ingu upp úr opinberum gögnum frá Hagstofu
og Þjóðskrá. Til að sannreyna þau bar hann
tölurnar saman við upplýsingar frá landlækni,
en þó þar hafi örlítið borið á milli, m.a. vegna
mismunandi talningar á látnum eftir ríkisfangi
og lögheimili, er munurinn óverulegur.
Frávik uppsafnaðs fjölda látinna yfir árið frá meðaltali
Tala látinna á hverja 100 þúsund íbúa, dag frá degi, frá 1970 til 2020
Heimild: Eðvald Ingi Gíslason, Hagstofa og Þjóðskrá.
Janúar Febrúar Mars Apríl Maí Júní Júlí Ágúst September Október Nóvember Desember
1970 1980 1990 2000 2010 2020
1988
1995
1981
1996
2016
1987
1991
2013
2015
1993
1990
2017
1992
2018
1994
2019
2014
2012
2001
1975
1978
1976
2020
Fram í miðjan apríl var 2020 dæmigert meðalár
Af línuritinu má lesa að það sem af er þessu ári hafi orðið um 38 færri dauðsföll
á hverja 100 þúsund íbúa en verið hafa að meðaltali undanfarin 50 ár
Fyrri hrina dauðsfalla vegna kórónuveirunnar
Inflúensufaraldurinn 1988
Snjóflóð á Flateyri 1995
+70
+60
+50
+40
+30
+20
+10
0
-10
-20
-30
-40
-50
-60
-70
D
au
ðs
fö
ll
yf
ir
m
eð
al
ta
li
19
70
-2
0
20
D
au
ðs
fö
ll
un
di
r
m
eð
al
ta
li
19
70
-2
0
20
Meðaltal dauðsfalla á hverja 100 þúsund íbúaFrávik dauðsfalla 2020 frá meðaltali
Dauðsföll í ár langt undir meðaltali 50 ára
Allt að 50 manns hafa í þessari viku
komið á dag í sýnatökur vegna kór-
ónuveirunnar hjá Heilbrigðisstofnun
Suðurlands, en þær fara nú fram í
kjallara verslunarhúss Krónunnar á
Selfossi. Hægt er að aka inn í húsið
og aldrei þarf fara út úr bílnum.
Heilbrigðisstarfsfólk í hlífðarfötum
kemur svo og tekur sýni.
„Þetta er frábær aðstaða. Áður
fóru sýnatökurnar fram hér á baklóð
byggingar sjúkrahússins á Selfossi
og voru undir berum himni. Biðrað-
irnar voru oft langar og trufluðu
jafnvel aðra umferð. Nú höfum við
skjól í húsi fyrir sýnatökurnar og
þetta er eins og best verður á kosið,“
segir Margrét Björk Ólafsdóttir,
hjúkrunarforstjóri á Selfossi.
Í kjallarann á Selfossi er stefnt til
sýnatöku öllum úr Árnes- og Rang-
árvallasýslu sem þurfa. Kórónu-
veiran og COVID-19 hafa talsvert
látið á sér kræla á Suðurlandi og
skv. tölum gærdagsins eru 57 manns
á svæðinu öllu með virk smit og í ein-
angrun og 70 eru í sóttkví.
Alls greindust 30 smit innanlands
á fimmtudag. Af þeim voru 60% í
sóttkví en 12 utan hennar. Nú eru
1.110 manns í einangrun vegna kór-
ónuveirusýkingar á Íslandi. Í sóttkví
eru 2.542. sbs@mbl.is
Morgunblaðið/Sigmundur Sigurgeirsson
Bílalest Biðröð bíla á bökkum Ölfusár, þar sem var fólk á leiðinni í skimun sem fram fer í verslunarhúsinu til hægri.
Kórónuskimun í Krónukjallara
50 mæta á dag á Selfossi 70 eru í sóttkví á Suðurlandi