Morgunblaðið - 24.10.2020, Page 11
Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.isEngjateigi 5 // 581 214 // hjahrafnhildi.is
ÚRVAL AF FLOTTUM
ÚLPUM
Skipholti 29b • S. 551 4422
Fylgdu okkur á facebook
SKOÐIÐ
NETVERSLUN
LAXDAL.IS
FLOTT
VETRA
DRESS
LAXDAL ER Í LEIÐINNI
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. OKTÓBER 2020
Sveitarstjórn Norðurþings hefur
samþykkt að veita Íslandsþara ehf.
vilyrði fyrir átta þúsund fermetra lóð
við Hrísmóa eða Víðimóa. Lóðirnar
eru á iðnaðarsvæði sunnan við bæinn
og hyggst fyrirtækið reisa þar 4-5
þúsund fermetra hús fyrir vinnslu á
stórþara.
Snæbjörn Sigurðarson, sem hefur
unnið að verkefninu síðustu mánuði,
segir að undirbúningur sé á fullu.
Áhersla er lögð á að ljúka fjármögn-
un á næstu vikum og segir hann að
hópur fjárfesta sé að skoða málið of-
an í kjölinn. Gangi allar áætlanir eft-
ir verði hægt að hefja uppbyggingu
snemma á næsta ári og vinnslu þá
um sumarið.
Áformað er að nýta Húsavíkur-
höfn til að landa þara og til útskip-
unar á afurðum. Sé þarans aflað
lengra frá Húsavík sé mögulegt að
landa honum annars staðar og keyra
þá til vinnslu á Húsavík.
Í matvæli, lyf og heilsuvörur
Stefnt er að því að árið 2025 þegar
starfsemin hafi náð fullum afköstum
verði ársvelta fyrirtækisins um 5,4
milljarðar króna. Á þeim tíma er
gert ráð fyrir um 90 stöðugildum hjá
fyrirtækinu.
Í fréttailkynningu frá Íslandaþara
í september segir að Húsavík sé á
góðri leið með að verða miðstöð fyrir
umhverfisvæna framleiðslu úr nátt-
úrulegum hráefnum í matvæli, lyf og
heilsuvörur sem spurn sé eftir á al-
þjóðlegum mörkuðum. Fyrirtækið
telji að gott aðgengi að lykilþáttum,
s.s. jarðhita, þaramiðum og góðum
innviðum, skipti höfuðmáli við val á
staðsetningu fyrir starfsemina.
Fyrirtækið muni afla og vinna
stórþara, Laminaria hyperborea, en
í honum búi einstök flóra náttúru-
legra efna sem hægt sé að vinna úr
fjölbreyttar og verðmætar afurðir.
Ein meginafurðin nýtist í fram-
leiðslu bakflæðislyfja og virki þarinn
þannig sem náttúrulegur valkostur
við aðrar vörur á markaði. aij@mbl.is
Lóð fyrir þaravinnslu
Íslandsþari undirbýr starfsemi á Húsavík Vinnsla gæti
hafist næsta sumar Um 90 starfsmenn eftir fimm ár
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Íslandsþari Vilyrði hefur fengist um lóð á iðnaðarsvæði sunnan við bæinn.
Veronika Steinunn Magnúsdóttir
veronika@mbl.is
Njáll Trausti Friðbertsson, þing-
maður Sjálfstæðisflokksins, segir
Reykjavíkurborg hafa lítið gert til
þess að standa við
samkomulag sem
gert var við Sig-
urð Inga Jó-
hannsson, sam-
göngu- og
sveitarstjórn-
arráðherra, þess
efnis að breyt-
ingar á aðal-
skipulagi verði
gerðar og rann-
sakaðir verði
möguleikar á lagningu nýs flugvallar
í Hvassahrauni. Njáll hefur lagt
fram þingsályktunartillögu ásamt
sex öðrum þingmönnum um að fram-
tíð Reykjavíkurflugvallar verði bor-
in undir þjóðina í þjóðaratkvæða-
greiðslu, þar sem spurt verði hvort
landsmenn vilji að flugvöllur og mið-
stöð innanlands-, kennslu- og
sjúkraflugs verði áfram í Vatnsmýr-
inni uns annar jafngóður eða betri
kostur sé tilbúinn til notkunar. ,,Við
teljum brýnt að þjóðin fái tækifæri
til að segja hug sinn varðandi helstu
samgöngumiðstöð landsins og
Reykjavíkurflugvöllur er gríðarlega
mikilvægur út frá öryggishlutverki
hans, sjúkraflugi og sem vara-
flugvöllur alþjóðaflugvallakerfis
landsins. Hann hefur einnig stóru
hlutverki að gegna í almannavarna-
kerfi landsins,“ segir Njáll og bætir
jafnframt við að vitanlega gegni völl-
urinn einnig veigamiku hlutverki í
innanlandsflugi. Njáll furðar sig á
því að Reykjavíkurborg hafi ekkert
aðhafst í tengslum við samkomulag
borgaryfirvalda og samgöngu- og
sveitarstjórnarráðherra, þar sem
samið var um að borgin myndi kanna
möguleika á lagningu nýs flugvallar í
Hvassahrauni.
Grunnatriði að koma vellinum
inn í aðalskipulag borgarinnar
Samkomulagið var undirritað fyr-
ir ári, í nóvember 2019, en Njáll seg-
ir sérstakt að ekki sé gert ráð fyrir
Reykjavíkurflugvelli í aðalskipulagi
borgarinnar lengur en til ársins
2024. Gert er ráð fyrir norður/suður-
braut vallarins til ársins 2022 fyrir
tilstuðlan undirskriftasöfnunar
Hjartans í Vatnsmýrinni, en áður
var gert ráð fyrir brautinni til ársins
2016. ,,Það lítur ekki lítur út fyrir að
Reykjavíkurborg sé að koma
Reykjavíkurflugvellinum í Vatns-
mýri inn í aðalskipulag Reykjvíkur á
nýjan leik á meðan þessir kostir eru
skoðaðir í Hvasssahrauni, enda tek-
ur það ferli um 15-20 ár. Þess vegna
er það grunnatriði að koma Reykja-
víkurflugvelli inn í aðalskipulag
borgarinnar,“ segir Njáll að end-
ingu. Þá hefur Ari Trausti Guð-
mundsson, þingmaður Vinstrihreyf-
ingarinnar - græns framboðs, sagt
tilefni til þess að endurskoða stað-
setningu Hvassahraunsflugvallar.
Telur Ari Trausti nú ástæðu til að
endurskoða mat á náttúruvá, þegar
fjallað er um Hvassahraunsflugvöll.
Sagði hann það ekki róttæka hug-
mynd, í samtali við mbl.is í gær,
heldur fyllilega eðlileg viðbrögð við
þróuninni á Reykjanesskaga. Álykti
Alþingi að fram skuli fara almenn og
leynileg þjóðaratkvæðagreiðsla um
tiltekið málefni eða lagafrumvarp fer
um framkvæmdina samkvæmt lög-
um um framkvæmd þjóðaratkvæða-
greiðslna, nr. 91/2010, og er niður-
staða slíkrar atkvæðagreiðslu
ráðgefandi. ,,Öll skynsamleg rök
hníga í þá átt að halda flugvellinum
og miðstöð innanlandsflugs í Vatns-
mýrinni en verði þar einhver breyt-
ing á er nauðsynlegt að öll þjóðin fái
að koma að þeirri ákvörðun á beinan
og lýðræðislegan hátt,“ sagði Njáll í
flutningsræðu um þingsályktunar-
tillöguna á mánudaginn var.
Telur brýnt að þjóðin
hafi lokaorðið
Reykjavíkurborg hefur lítið gert til að standa við samkomulag
Njáll Trausti
Friðbertsson
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Reykjavíkurflugvöllur Öll skynsamleg rök hníga í þá átt að halda flugvellinum, að mati Njáls Trausta þingmanns.
Félagar í Félagi grunnskólakennara
samþykktu nýgerðan kjarasamning
við Samband íslenskra sveitarfélaga.
Úrslit atkvæðagreiðslu um samning-
inn, sem lauk klukkan ellefu í gær-
morgun, urðu þau að 73,23% sögðu
já en 25,07% sögðu nei. 3.642
greiddu atkvæði um samninginn eða
68,65% þeirra sem voru á kjörskrá.
Gildistími hins nýja samnings er
frá 1. september sl. til 31. desember
á næsta ári. Laun félagsmanna í FG
hækka í samræmi við lífskjarasamn-
ingshækkanir sem samið hefur verið
um. Frá 1. september sl. hækkar
launatafla um 17 þúsund kr. og 24
þúsund kr. og önnur hækkun verður
svo 1. janúar næstkomandi um 24
þúsund kr. Samið var um annarupp-
bætur í lok hverrar annar. 1. desem-
ber verður greidd 91.225 kr. ann-
aruppbót og svo 93.505 kr. 1. júní og
aftur 1. desember á næsta ári.
Samkomulag náðist um sveigj-
anlegt vinnuumhverfi kennara sem
gefst kostur á að vinna ýmis verk-
efni óstaðbundið. Segir í bókun að
bætt tækni í fjarvinnu og fjar-
kennslu hafi gerbreytt möguleikum
til aukins sveigjanleika í störfum
kennara og skapað ný tækifæri í
skipulagi skólastarfs. Svigrúmið
sem þetta veitir stuðli einnig að
auknu samræmi á milli vinnu og
einkalífs og að bættri vinnustaða-
menningu.
Í kennarasamningnum er einnig
kveðið á um 30 daga lágmarksorlof
og í honum segir að auk mán-
aðarlauna sé heimilt að greiða önnur
laun er starfinu fylgja með mán-
aðarlegri greiðslu vegna starfs-
tengdra þátta og/eða álags sem ekki
verði mælt í tíma, jöfnunar launa
einstakra hópa á milli almenns og
opinbers vinnumarkaðar og reglu-
bundinnar yfirvinnu sem geta komið
í stað tímakaups í yfirvinnu.
FG sam-
þykkir
kjara-
samning
Samkomulag um
meiri sveigjanleika
Samkomulag hefur náðst í kjara-
deilu Eflingar og Samtaka sjálf-
stæðra skóla (SSSK) um kjör ná-
lægt 300 félagsmanna Eflingar hjá
einkareknum leik- og grunn-
skólum. Var nýr kjarasamningur
undirritaður í gær.
Í tilkynningu frá Eflingu segir að
í samningnum sé kveðið á um að
kjör félagsmanna taki mið af samn-
ingi sem Efling gerði við Reykja-
víkurborg, líkt og félagið hafi kraf-
ist frá upphafi viðræðna.
,,Engar af skerðingum sem SSSK
höfðu lagt til í viðræðunum eru í
samningnum,“ segir í tilkynningu
félagsins og ennfremur að öllum
kröfum Eflingar hafi verið mætt.
Efling og SSSK
ná samkomulagi