Morgunblaðið - 24.10.2020, Page 31
MINNINGAR 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. OKTÓBER 2020
✝ Sigfríð StellaÓlafsdóttir
fæddist á Seyðis-
firði 26. júní 1941.
Hún lést á Land-
spítalanum við
Hringbraut 16.
október 2020.
Foreldrar henn-
ar voru Ólafur Þór-
steinsson, f. 20.9.
1913 á Seyðisfirði,
d. 17.9. 1968 og Hulda Sigur-
jónsdóttir, f. 15.10. 1912 á Vest-
dalseyri við Seyðisfjörð, d.
12.12. 1988.
Systir Stellu var Steinunn
Jónína Ólafsdóttir, f. 16.5. 1935
á Seyðisfirði, d. 24.9. 2015. Maki
Leifur Haraldsson, f. 6.12. 1934
á Seyðisfirði, d. 11.9. 1995.
Eftirlifandi eiginmaður
Stellu er Birgir Hallvarðsson, f.
20.3. 1934 í Reykjavík. For-
eldrar hans voru Hallvarður
Rósinkarsson, f. 14.5. 1904, d.
6.3. 1975, og Guðfinna Lýðs-
dóttir, f. 4.5. 1904, d. 9.5. 1991,
bæði fædd á Skógarströnd.
Stella og Birgir eignuðust tvö
börn. 1. Ólafur, f. 19.6. 1963 á
Seyðisfirði, kvæntur Charuwan
ríkisspítalanum í Ósló og síðan
sem þernur á norsku frakt- og
farþegaskipi sem sigldi m.a. til
Suður-Ameríku. Hún kom síðan
heim úr þessu ævintýri sumarið
1962 og kynntist verðandi
manni sínum strax við heim-
komuna. Hún byrjaði fljótlega
að vinna á gömlu símstöðinni
sem í þá daga var handvirk.
Hún vann um tíma hjá Kaup-
félagi Austfjarða og einnig á
nýju símstöðinni. Hún vann í
mörg ár við bókhald hjá sýslu-
manninum á Seyðisfirði og eftir
að hún og Birgir fluttu til
Reykjavíkur rétt eftir aldamót-
in vann hún hjá skattstjóranum
í Reykjavík á meðan heilsa
leyfði.
Hún söng í mörg ár með sam-
kórnum Bjarma á Seyðisfirði og
í kirkjukór Seyðisfjarðarkirkju.
Þau Birgir byggðu sér heim-
ili í Botnahlíð 14 á Seyðisfirði
sem þau fluttu inn í rétt fyrir
jólin 1969 og eftir flutninginn
til Reykjavíkur bjuggu þau í
Asparfelli. Þau hafa ekið austur
á Seyðisfjörð og dvalið þar á
hverju sumri síðan þau fluttu
suður, að undanskildu sumrinu í
sumar.
Stella verður jarðsungin frá
Seyðisfjarðarkirkju í dag, 24.
október 2020, kl. 14.
Vegna fjöldatakmarkana
geta einungis nánustu aðstand-
endur og vinir verið viðstaddir.
Rongmalee, fæddri
13.5. 1970. Dætur
þeirra eru 1.a) Sup-
hitsara (Prim), f.
19.12. 1998 og 1.b)
Chinsujee (Gell), f.
8.9. 2000. Þau eru
búsett á Seyðis-
firði. 2. Guðfinna
Björk, f. 11.5. 1967
á Seyðisfirði, gift
Ásbirni Guðjóni
Jónssyni, f. 27.5. 1972 á Sel-
fossi. Þau eru búsett á Selfossi.
Börn þeirra eru 2.a) Birgir
Aron, f. 30.3. 1994 í Reykjavík,
búsettur á Selfossi 2.b) Sara
Bóel, f. 24.9. 1997 í Stavanger,
Noregi, sambýlismaður Sander
Stensholt Terjesen. Þau eru
búsett í Noregi. 2.c) Guðrún
Stella, f. 3.7. 2003 á Selfossi,
búsett þar.
Stella stundaði nám við
Barnaskólann á Seyðisfirði og
Alþýðuskólann á Eiðum, þar
sem hún jafnframt æfði sund af
kappi. Hún byrjaði ung að salta
síld á síldarplönunum og tvítug
að aldri fór hún ásamt vinkonu
sinni til Noregs á vit ævintýr-
anna. Þar unnu þær um tíma á
Árið 1962 kom ég ungur maður
austur á Seyðisfjörð með Strand-
ferðaskipi, hafði ráðið mig til
Kaupfélagsins. Kom kaupfélags-
stjórinn, Björgvin Jónsson, niður
á bryggju og sótti mig. Hann
sagðist vera búinn að útvega mér
herbergi og fór með mig inn í bæ
upp að húsi einu, þar sem fullorð-
inn maður stóð úti. Björgvin
stöðvaði bifreiðina, steig út og
sagði við viðkomandi „jæja, þá er
ég kominn með tengdasoninn“.
Þetta var Ólafur Þórsteinsson og
sú sem Björgvin átti við var yngri
dóttir Ólafs, Sigfríð Stella. Ég
fékk herbergi á loftinu. Ólafur var
einn heima, en konan hans, Hulda
Sigurjónsdóttir var í Reykjavík til
lækninga. Dóttir hans Sigfríð
Stella var erlendis, hafði farið með
vinkonu sinni til Noregs, starfað
þar á Rikshospitalen í Ósló og síð-
an í siglingu með skipi frá Fred
Olsen sem hét Borgland. Hún
kom heim nokkrum vikum eftir að
ég kom austur. Kynni okkar urðu
ekki mikil fyrst í stað, en fljótlega
fórum við að ræða saman og úr því
varð meira. Strax um haustið
ákváðum við að „rugla reytum
okkar saman“ og fórum að búa
saman og giftum okkur ári síðar.
Börnin urðu tvo, Ólafur og Guð-
finna Björk. Ég vann hjá kaup-
félaginu og Stella var á símanum.
Þetta var ekki stórt bæjarfélag og
íbúarnir þekktu hver annan. Út af
þessum samdrætti, varð spenn-
ingur í bænum, og á Þorrablóti um
veturinn þar sem Valgeir Sigurðs-
son gerði gamanvísur, nefndi
hann að Birgir hefði náð í Stellu
með forgangshraði. Við Stella
byrjuðum búskap 1962 og vorum
gift frá 1963 eða í tæp sextíu ár og
áttum saman yndislega ævi, þrátt
fyrir veikindi hennar og áföll mín.
Um aldamótin var lungnasjúk-
dómurinn farinn að ágerast og því
ákveðið að færa sig um set og
flytjast nær læknunum í Reykja-
vík. Hún slasaðist hér heima
fyrstu vikuna í október og var flutt
á sjúkrahús, eftir vikutíma var
þrek hennar þrotið. Þegar ég lít til
baka þá er ég sannfærður um að
mér var stýrt austur, það var mitt
gæfuspor. Sambúð okkar var í
einu og öllu framúrskarandi, góð
og ástúðleg. Við vorum stundum
ekki sammála, en það endaði í sátt.
Að lokum þakka ég henni fyrir öll
árin, ást hennar og umhyggju, og
börnum okkar tveimur fyrir það
sem þau voru okkur.
Þinn
Birgir.
Sigfríð Stella
Ólafsdóttir
✝ SigurbjörgKristjánsdóttir
fæddist á Stöng í
Mývatnssveit 28.
febrúar 1929. Hún
lést á Dvalarheim-
ilinu Hlíð á Ak-
ureyri 15. október
2020.
Foreldrar henn-
ar voru Kristján
Ásmundsson f.
17.5. 1901, d. 18.5.
1963, og Lára Sigurðardóttir,
f. 7.7. 1905, d. 3.9. 1968. Sig-
urbjörg átti fjögur systkini,
Ásdísi, Jakob sem er látinn,
Ásmund og Sigurð. Sonur
hennar er Trausti Jón Gunn-
arsson f. 6.12. 1961, kvæntur
Helgu Eyrúnu Sveinsdóttur, f.
1.10.1966. Synir þeirra eru :
1. Rúnar, f. 30.12. 1985,
kvæntur Hörpu
Stefánsdóttur.
Börn þeirra eru
Rakel, Jakob og
Eygló.
2. Eyþór, f. 23.5.
1995, í sambúð
með Kötlu Rún Ár-
skóg.
Útför hennar
fer fram frá Húsa-
víkurkirkju í dag,
24. október 2020,
klukkan 14. Í ljósi aðstæðna
verða aðeins nánustu ættingjar
og vinir viðstaddir útförina.
Athöfninni verður streymt á
Facebook-síðu Húsavík-
urkirkju.
https://tinyurl.com/y6k8k82g
Virkan hlekk á slóð má
nálgast á:
https://www.mbl.is/andlat
Bogga frænka, eins og við köll-
uðum Sigurbjörgu alltaf, ólst upp
í foreldrahúsum á tvíbýlinu Stöng
í Mývatnssveit. Mamma ólst þar
líka upp og þær voru jafngamlar,
Bogga var elst fimm systkina og
mamma yngst þriggja systra.
Bogga og mamma voru bræðra-
dætur, Kristjáns og Kolbeins frá
Stöng og einnig systradætur,
mæður þeirra Lára og Jakobína
voru hálfsystur samfeðra og
systradætur frá Sandvík í Bárð-
ardal. Eftir skólagöngu í farskól-
anum í Mývatnssveit fór Bogga í
alþýðuskólann og kvennaskólann
á Laugarvatni en mamma á
Löngumýri í Skagafirði ásamt
Dísu systur Boggu. Merkilegt
þykir að stúlkurnar af heiðinni
skyldu fara svo langt til náms en
seinna sótti Bogga námskeið og
sýningar í matargerð til Parísar
og Kaupmannahafnar.
Bogga var lengst af yfirmat-
ráðskona á Kristneshæli og lét af
störfum þegar hælið sameinaðist
FSA árið 1993 og fór á lífeyri, þá
að detta í 65 ára aldurinn. Við
Hólabrautarsystur réðum okkur í
sumarvinnu í eldhúsið hjá Boggu
og var það okkar kvennaskóli.
Hún var nákvæm og gerði miklar
kröfur til sjálfrar sín og þar með
til annarra, þoldi illa slæpur og
slóðagang, vildi að störfin væru
unnin hratt og örugglega. Ég hef
ekki unnið með jafn handfljótri
manneskju og var það henni
áreynslulaust sem var líka sér-
stakt. Bogga aðstoðaði við allar
veislur sem haldnar voru í fjöl-
skyldunni, fermingar, giftingar
og afmæli með góðum ráðum og
útsjónarsemi, ekkert fór til spillis,
allt útreiknað og nákvæmt. Hún
var alltaf tilbúin að hjálpa til og
taka þátt. Boggu má líka lýsa sem
ákveðinni fyrirmynd, hún var
komin með bílpróf á undan mörg-
um öðrum konum þar sem það
var ekki algengt í þá daga að kon-
ur tækju bílpróf. Hún var einstæð
móðir og þurfti að komast ferða
sinna og fór hún um allt á Bjöll-
unni. Hún var varkár í akstri og
það eru kannski fimm ár síðan
hún fór síðustu ferðina sína ak-
andi austur í Stöng. Hún var virk-
ur félagi í Ferðafélagi Akureyrar
og var með matarbílinn í mjög
mörgum ferðum yfir langt árabil.
Þar kynntist hún mjög mörgum
góðum konum og voru þær dug-
legar að halda hópinn og hittast
allt þar til heilsan fór að gefa sig.
Gaman var að mæta í afmælis-
kaffi til Boggu þar sem þær voru
saman komnar að rifja upp gamla
daga.
Við systkinin í Hólabraut
þökkum alla samfylgdina, kennsl-
una og greiðasemina. Minning um
Boggu frænku mun lifa um ókom-
in ár. Sendum Trausta og fjöl-
skyldu innilegar samúðarkveðjur.
Jakobína Björnsdóttir.
Þegar litið er til baka til æsku-
og unglingsáranna kemur í ljós að
sumar manneskjur skiptu mun
meira máli í lífi manns en maður
gerði sér grein fyrir þá. Ein
þeirra var Bogga. Bogga á Stöng,
Bogga í Kristnesi, sveitungi og
vinkona foreldra minna, fyrir-
mynd og ómetanlegur kennari í
ótal efnum. Með mikinn áhuga á
tónlist, ferðalögum, leiklist,
myndlist, og lagði sitt af mörkum
í nánast öllu félagsstarfi sem
bauðst. Hæfileikarík á ótal svið-
um þó maður pældi kannski lítið í
því áður fyrr. Hún var svo sjálf-
sagður hluti af lífi okkar. Matar-
gerð og rekstur eldhúss var henn-
ar starf lengst af og eitt af því
mikilvægasta í uppvexti mínum
var að vinna undir hennar stjórn í
eldhúsinu á Kristneshæli. Þar
lærði maður vandvirkni og vinnu-
semi, sköpunargleði og hug-
myndaauðgi. Gamlar góðar að-
ferðir í bland við nýtt í faginu, allt
var áhugavert og sérdeilis bragð-
gott. En svo var það allt hitt.
Bogga var ein af fyrstu konum
sem ég man eftir sem hafði bílpróf
og átti bíl. Sjálfstæði hennar og
dugnaður kom þar vel fram. Við
mæðgurnar ferðuðumst oft með
henni og Trausta syni hennar á
grænu fólksbílsbjöllunni og hún
ók hratt og örugglega. Það var
aldrei neitt vesen eða vandræði,
bara ferðagleði og ánægja.
Bogga var alltaf til staðar á
mikilvægum tímamótum í lífi fjöl-
skyldu okkar. Hún hjálpaði til við
bakstur og undirbúning og stóð
vaktina með okkur þegar húsið
fylltist af gestum og gangandi.
Ekki síður mikilvæg voru samt öll
innlitin, þegar hún kom við á Spít-
alaveginum hjá okkur. Hún var
örlát og gjafmild og það var alltaf
svo ljúft að fá hana í heimsókn.
Hún kynnti fyrir okkur ýmiss
konar nýja hluti, ávexti, græn-
meti og áhugaverðar hugmyndir.
Best var þegar Trausti sonur
hennar kom með. Honum fylgdi
mikið fjör og hann var næstum
eins og bróðir okkar Dísu systur á
æskuárunum og við lékum okkur
saman úti og inni, heima og í
Kristnesi.
Bogga var áhugasöm um menn
og málefni en lét aldrei mikið fyr-
ir sér fara, hún var hlédræg og
leyfði öðrum fremur að njóta sín.
En það var ótrúlega gaman að
spjalla við hana, hún var glettin,
sagði sögur og pældi í ýmsum
hlutum. Hún var hins vegar lítið
opinská um sitt eigið líf og lét
áhuga sinn um listir og önnur
málefni meira í ljós. Hún átti fal-
leg málverk og fagra muni sem
fegruðu heimili hennar. Ferming-
argjöfin hennar til mín var hljóm-
plata með píanóverkum eftir
Beethoven sem ég hlustaði enda-
laust á og naut innilega. Píanóið
þeirra Trausta reyndist mér líka
vel og ég fékk oft að æfa mig hjá
henni.
Eitt af því síðasta sem við
ræddum um var söngkonan Ce-
cilia Bartoli. Hún var svo heilluð
af henni, átti bæði CD- og DVD-
diska með henni og við vorum svo
sammála um hversu söngurinn og
útgeislunin var stórkostlegt og
hrífandi.
Kæri Trausti. Við systkinin úr
Spítalavegi 13 sendum þér og fjöl-
skyldu þinni innilegar samúðar-
kveðjur. Sá þráður sem tengir
minningar, vináttu og frændsemi,
virðingu og kærleik er mikilvæg-
ur í lífi manns. Mikilvægari en
flest annað. Þakklæti okkar fyrir
Boggu er ómælanlegt.
Sólveig Anna Jónsdóttir.
Sigurbjörg
Kristjánsdóttir
Sálm. 10.14
biblian.is
Þú gefur gaum að
mæðu og böli og
tekur það í hönd
þér. Hinn bágstaddi
felur þér málefni
sitt, þér sem hjálpar
munaðarlausum.
Þakka innilega auðsýnda samúð og hlýhug
við andlát og útför elskulegs
eiginmanns míns,
ÞORSTEINS FRIÐRIKSSONAR,
fv. bankafulltrúa.
Guðrún Lýðsdóttir
Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug við
andlát og útför ástkærs föður míns,
tengdaföður og afa,
ÞÓRÐAR SIGURÐSSONAR,
Böðvarsgötu 11, Borgarnesi.
Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki
Brákarhlíðar fyrir alúð og góða umönnun.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Guðlaugur Þór Þórðarson Ágústa Johnson
Þórður Ársæll
Sonja Dís
Anna Ýr
Rafn Franklín
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug við andlát og útför okkar ástkæru
STELLU STEFÁNSDÓTTUR,
Starrahólum 11,
Reykjavík.
Ásmundur Reykdal
og fjölskylda
Okkar innilegustu þakkir fyrir auðsýnda
samúð, vináttu og hlýhug við andlát og
útför eiginmanns míns, föður okkar,
tengdaföður og afa,
HARÐAR ADOLFSSONAR,
Fellahvarfi 15, Kópavogi.
Nanna María Guðmundsdóttir
börn, tengdabörn og barnabörn
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug vegna andláts og útfarar elskulegs
föður okkar, tengdaföður, afa og langafa,
STYRMIS HREINSSONAR,
Eyrargötu 26, Eyrarbakka.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk
hjúkrunarheimilisins Sólvalla á Eyrarbakka fyrir góða umönnun
og hlýtt viðmót.
Ásdís Styrmisdóttir Magnús I. Guðjónsson Öfjörð
Gunnar Styrmisson Bára Hafliðadóttir
Hjalti Styrmisson Martha Rut Sigurðardóttir
Sólveig Styrmisdóttir Viðar Þór Pálsson
Ragnheiður Ásta Styrmisd.
barnabörn og barnabarnabörn
Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug við
andlát og útför
VILHJÁLMS JÓNS GUÐBJARTSSONAR.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki
Maríuhúss, Skógarbæjar og L4 á Landakoti
fyrir einstaka umönnun og alúð.
Jóhanna Sigríður Guðjónsdóttir
Dröfn Vilhjálmsdóttir Elfar Úlfarsson
Guðjón Vilhjálmsson Rebekka Sif Kaaber
Símon Elvar Vilhjálmsson Bryndís Einarsdóttir
Símonía K. Helgadóttir
Alexander, Ósk, Vilhjálmur Jón, Jóhanna Inga,
Bára Margrét, Eva Sóley