Morgunblaðið - 24.10.2020, Qupperneq 43
MENNING 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. OKTÓBER 2020
SÝND MEÐ
ÍSLENSKU TALI
SÝND MEÐ
ÍSLENSKU TALI
FYRSTA STÓRMYND ÁRSINS
Nýjasta Meistaraverk
Christopher Nolan
★★★★★
★★★★★
★★★★★
The Guardian
The Times
The Telegraph
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
MÖGNUÐ MYND SEM
GAGNRÝNENDUR HLAÐA LOFI :
★★★★★
★★★★★
★★★★★
Roger Ebert.com
San Fransisco Cronicle
The Playlist
88%
SPLÚNKUNÝ MYND FYRIR
ALLA FJÖLSKYLDUNA
SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI.
MYNDIN SEM HEFUR SLEGIÐ Í GEGN
Í EVRÓPU UNDANFARNAR VIKUR.
SÝND MEÐ
ÍSLENSKU TALI
SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALISÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI
Færeyjanna Freyja
Ferðalag Eivör hefur ávallt fylgt eigin kompás og beitir sínu segli eftir því.
unnið með Lönu Del Rey m.a. Færeying-
arnir Högni Lisberg, Mikael Blak, Theodor
Kapnas, Marjun Kjelnæs, Per Højgaard
Petersen og Mattias Kapnas eru þarna líka,
allt tíðir samstarfsmenn. Íslendingar eru
þarna einnig, Ásgeir syngur eitt lag með
henni, Sigga Ella tekur ljósmyndir og Snorri
Eldjárn Snorrason sá um glæsilegt um-
slagið.
Segl er meðvitað útspil hvað auknar al-
þjóðlegar vinsældir varðar, ég tek
spurningartóninn til baka. Fyrir það fyrsta
er hún á ensku (9 lög af 12) og hér stígur
poppdívan Eivör fram með mjög ákveðnum
hætti. Hún mátar sig við söngkonur eins og
Lykke Li, Tove Lo, Susan Sundför og
Robyn og stenst að sjálfsögðu allan saman-
burð.
Það er viss þrískipting í útfærslunni hér.
Það sem er nýtt er sterk áhersla á kalt, stáli
bundið og pumpandi nútíma-
popp, tölvu- og taktvinna í
blússandi gír, evrópsk
klúbbastemning til grund-
vallar víða. Sjá „Let it come“
sem er mikilúðlegt, gæti
þess vegna verið í James
Bond-mynd, svo kvikmynda-
legt er það. Í öðru lagi er
það dramað, epíkin sem
Eivör hefur alltaf unnið með,
eitthvað sem hún gerir eins
og að drekka vatn. Óðurinn
til Kate Bush heldur áfram hér, eins og í
öðrum verkum hennar. Sjá t.d. hið ógurlega
„This City“, sem sameinar Bush-poppið og
nútímastemninguna sem ég nefndi í upphafi.
Í þriðja lagi er það svo þjóðlagaminnið,
færeyski bragurinn sem Eivör hefur alltaf
unnið með, leynt eða ljóst. Hann er vissu-
lega hverfandi hérna og helst má heyra
hann í rólegri lögunum og þá sérstaklega
þeim sem sungin eru á færeysku, eðlilega.
Þegar best lætur koma þessir þrír þættir
saman í einum glæsilegum skurðpunkti:
Fyllilega nútímaleg poppdíva sem vinnur
með gerðarlega, dramabundna og epíska
tónlist að hætti Kate Bush og Bjarkar um
leið og hún er með báða fætur kirfilega í
Götusandinum fagra.
Svona gera bara snillingar. Náttúrubörn
jafnvel.
Eivör Pálsdóttir er hæglega einn af helstu popplistamönnum
Norðurlanda í dag og vegur hennar fer vaxandi. Segl, nýjasta
plata hennar – og sú níunda – treystir hana enn frekar í sessi.
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Nú er ég búinn að vera að skrifa um Eivöru
Pálsdóttur og hennar magnaða ferðlag um
króka og kima tónlistarinnar í tæplega tutt-
ugu ár og ekki er hægt að tala um dauða
stund. Ég kynntist þessu náttúrubarni rétt
eftir aldamótin og kolféll fyrir fyrstu plötu
hennar eins og svo margir, plata sem kom
út 2000 og hún söng inn á aðeins sextán ára
að aldri. Ferill hennar hefur síðan þá verið
á rólegri og nokk öruggri siglingu upp á við.
Plötur hennar hafa verið alls konar. Hún
hefur sungið djass, kántrí, þjóðlagapopp,
rokk og sinnt tilraunamennsku – svona með-
al annars.
Eftir að hún fór að vinna reglubundið
með eiginmanni sínum, tón-
skáldinu Tróndi Bogasyni, er
eins og vegferðin hafi farið að
verða traustari. Eftir heilmikið
stílaflakk er eins og það sé
verið að lenda ákveðinni
stefnu, a.m.k. hvað plötugerð
varðar. Eivör er að eðlisfari
kamelljón, getur allt, en ég við-
urkenni að ég kinka kolli yfir
þessari leið sem nú er verið að
fara, hafi þetta verið meðvituð
ákvörðun. Enda helst þetta í
takt við auknar vinsældir, frekari tónleika á
erlendri grundu og hálfgert strandhögg í
landi Breta en Eivör kom fram í þætti Jools
Holland árið 2017, eftir að platan Slör hafði
verið gefin út á ensku það ár. Þetta sam-
starf hennar og Trónds sem ég er að vísa í
hófst á Room (2012) og hélt svo áfram á
Bridges (2015) og svo Slör (2015). Það að
sami upptökustjóri sé á þeim öllum gefur
þeim vissan heildarhljóm, þó ólíkar séu þær
innbyrðis. Það má samt segja að á Slör hafi
verið byrjað að tálga til þá Eivöru sem við
heyrum í hér. Poppstjörnuna Eivöru. Nei,
poppdívuna Eivöru. Þá Eivöru sem á jafn
sjálfsagt tilkall til stóra sviðsins og hver sú
sem þar dansar.
Segl er unnin með Tróndi sem upptöku-
stýrir að vanda en einnig kemur Dan nokk-
ur Heath að þeim málum en hann hefur