Morgunblaðið - 13.11.2020, Qupperneq 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. NÓVEMBER 2020
446536
Lexus Nx300h f-sport hybrid ‘18, sj.skipt.
ekinn 31 þús. km. Verð: 7.290.000 kr.
446362
Opel Mokka Innovation ‘18, sjálfskiptur,
ekinn 71 þús. km. Verð: 3.390.000 kr.
446516
Nissan Qashqai Acenta ‘20, sjálfskiptur,
ekinn 17 þús. km. Verð: 4.890.000 kr.
Land Rover Evoque ‘13, sjálfskiptur,
ekinn 153 þús. km. Verð: 3.490.000 kr.
446531
BMW X5 xdrive 30d ‘11, sj.skiptur,
ekinn 187 þús.km. Verð: 3.490.000 kr.
112900
591039 446473 446505
SsangYong Korando DLX ‘19, sjálfskiptur,
ekinn 66 þús.km. Verð: 3.690.000 kr.
446537 446405
Notaðir bílar
Reykjanesbær
Njarðarbraut 9
Bílasala Suðurnesja
Sími: 420 3330
Selfoss
Fossnes A
Ib bílar
Sími: 480 8080
Akureyri
Lónsbakka
Bílaríkið Bílabúð Benna
Sími: 461 3636
Meira úrval á
notadir.benni.is
Reykjavík
Krókháls 9
Sími: 590 2035
* Birt með fyrirvara um mynda- og textabrengl.
Mikið úrval 4x4 á Krókhálsi 9
SsangYong Tivoli HLX ‘20, sjálfskiptur,
ekinn 21 þ. km. Verð: 3.590.000 kr.
SsangYong Rexton DLX ‘17. sjálfskiptur,
ekinn 76 þús. km. Verð: 3.990.000 kr.
Suzuki Vitara Gl+ ‘19, sjálfskiptur,
ekinn 63 þús. km. Verð: 2.990.000 kr.
SsangYong Tivoli XLV DLX ‘17, sjálfskiptur,
ekinn 69 þús. km. Verð: 2.690.000 kr.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Samtök atvinnurekenda á sunnan-
verðum Vestfjörðum gagnrýna
ákvörðun Vegagerðarinnar um að
semja við Norlandair um sérleyfi í
áætlunarflugi til Bíldudals og óttast
að þjónustan versni til muna frá því
sem verið hefur í höndum Ernis.
Vegagerðin bauð út fyrr á þessu
ári sérleyfi á nokkrum flugleiðum
sem niðurgreiddar eru af ríkinu og
flugfélagið Ernir hefur sinnt um ára-
bil. Ágreiningur hefur verið um
framkvæmdina og er hann ekki enn
útkljáður en eftir að kærunefnd út-
boðsmála aflétti stöðvun framgangs
málsins í annað sinn og heimilaði
samninga gekk Vegagerðin til samn-
inga við þá sem hún taldi lægstbjóð-
endur.
Samið var við Erni um áframhald-
andi flug á milli Reykjavíkur og
Hafnar í Hornafirði og við Norland-
air um flug til Bíldudals og Gjögurs.
Norlandair mun hefja flug á sína
staði næstkomandi mánudag.
Ætluðu að fá stærri vél
Friðrik Adolfsson, framkvæmda-
stjóri Norlandair, segir að félagið
muni nota níu sæta flugvél með jafn-
þrýstibúnaði við áætlunarflug til
Bíldudals og Gjögurs í vetur, eins og
krafist var í útboði. Gert var ráð fyrir
fimmtán manna vél á sumrin. Frið-
rik segir að félagið hafi ákveðið að fá
nýja og stærri vél til að sinna þessum
verkefnum. Það hafi ekki gengið eft-
ir þar sem ekki sé hægt að þjálfa
áhöfn vegna kórónuveirufaraldurs-
ins. Málið verði endurskoðað þegar
séð verður hvaða verkefni verða eftir
að faraldrinum lýkur.
Samtök atvinnurekenda á sunnan-
verðum Vestfjörðum lýsa yfir þung-
um áhyggjur vegna frétta af breyt-
ingum á flugi til Bíldudals. Það er
sagt reiðarslag að flufélagið Ernir
eigi nú skyndilega að hverfa af vett-
vangi eftir umdeilt útboð. Félagið
hafi veitt afbragðsþjónustu og sé
með flugvélar sem henti þjónustunni
vel. Í staðinn eigi að bjóða helmingi
minni flugvél sem búin er jafnþrýsti-
búnaði og 50 ára gamlan Twin Otter
án jafnþrýstibúnaðar. Sé þetta stökk
niður á við í þjónustu.
Friðrik lýsir sig ósammála þessu.
Vélin þeirra henti betur fyrir Bíldu-
dalsflugvöll en sú sem notuð hefur
verið. Hann tekur fram að ekki sé
ætlunin að nota Twin Otter-vélar fé-
lagsins í þetta verkefni, þær séu upp-
teknar í verkefnum í Grænlandi sem
skapi uppistöðuna í tekjum fyrir-
tækisins. Twin Otter-vélar eru not-
aðar við áætlunarflug félagsins út
frá Akureyri, til Þórshafnar, Vopna-
fjarðar og Grímseyjar. Friðrik segir
að Grænlandsverkefnin verði að
hluta til gerð út frá Reykjavík og það
fari ágætlega saman við áætlunar-
flugið.
Norlandair verður með afgreiðslu
hjá Air Iceland Connect á Reykja-
víkurflugvelli og inni í bókunarkerfi
þess. Bendir Friðrik á að ódýrustu
fargjöld á áfangastaðina fyrir vestan
séu í upphafi 12.350 kr. sem hann tel-
ur mun lægra verð en hagkvæmustu
fargjöld hafi verið til þessa.
Pólitískur þrýstingur
Flugfélagið Ernir er áfram með
áætlunarflugið til Hafnar og flýgur
einnig til Húsavíkur en án samnings
við ríkið. Vegna fækkunar farþega til
Vestmannaeyja í kórónuveiru-
faraldrinum var flugi þangað hætt.
Hörður Guðmundsson, forstjóri
Ernis, segir að félagið sé með fleiri
verkefni en býst ekki við að þau nægi
fyrir flugvélar hans og mannskap.
Hann bendir einnig á að mörg flug-
félög eigi í erfiðleikum vegna farald-
ursins.
Telur Hörður að Vegagerðin hafi
brotið lög. Það sé della að það varði
almannahagsmuni að semja áður en
málin eru útkljáð hjá kærunefnd.
Telur hann að pólitískur þrýstingur
frá Akureyri kunni að hafa ráðið
niðurstöðunni.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Gjögur Flugvélarnar taka jafnt farþega sem póst og annan varning í áætlunarflugi innanlands.
Atvinnurekendur
óttast lakari þjónustu
Norlandair tekur við flugi til Bíldudals og Gjögurs
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Útlit er fyrir auknar birgðir af
lambakjöti ef ekki rætist úr með inn-
anlandsmarkað og útflutning. Sala á
lambakjöti dróst mjög saman í sum-
ar, frá því sem verið hefur. Forstöðu-
maður stórrar kjötafurðastöðvar ótt-
ast að ef mikið verður flutt inn af
kjöti á næstu mánuðum muni mark-
aðurinn hrynja. Það eina rétta sé að
stöðva innflutning á meðan verið er
að vinna úr birgðunum.
Hrun varð í sölu kindakjöts í sum-
ar. Ef miðað er við sölu frá framleið-
endum dróst sala á dilkakjöti saman
um þriðjung á þriðja ársfjórðungi, í
júlí til september, en um 28,5% ef lit-
ið er á allt kindakjöt. Sala annarra
innlendra kjöttegunda stóð í stað í
sumar eða dróst saman.
Framleiðsla á dilkakjöti í slátur-
tíðinni í haust hélt áfram að minnka.
Kemur það eitthvað á móti minnk-
andi sölu.
Mest fer til Bretlands
Útflutningur á kindakjöti hefur
gengið fremur illa vegna kórónu-
veirufaraldursins. Ágúst Andrésson,
forstöðumaður kjötafurðastöðvar
KS, segir að Bretland hafi haldið út-
flutningnum uppi. Færeyjar taki
alltaf sitt. Nánast ekkert hafi farið til
Spánar í haust. Það grundvallast á
því að helsti kaupandi afurðanna þar
á enn birgðir frá fyrra ári vegna
samdráttar í ferðaþjónustu. Ágúst
segir að lítið hafi farið til Noregs af
sömu ástæðu, þar séu færri munnar
að metta. Hins vegar hafi þau skila-
boð borist frá stærsta innflytjandan-
um þar að búast megi við að kvótinn
fyrir næsta ár, 600 tonn, verði nýttur
á næsta ári. Ágúst segir þó að það
fari vitaskuld eftir því hvenær hjólin
fari að snúast á ný.
Þá hefur lítið farið til Þýskalands,
Danmerkur og Ítalíu í haust.
Steinþór Skúlason, forstjóri SS,
hefur svipaða sögu að segja. Lítið
fari á Spánarmarkað. Segir Steinþór
að SS sé að flytja út 330 tonn þessar
vikurnar sem er 80 tonnum minna en
á sama tíma í fyrra. Telur hann þó að
útflutningurinn eigi að duga, það er
að segja ef salan hér heima kemst í
samt lag.
Ágúst segir að ágætisskilaverð fá-
ist fyrir útflutt kjöt. Þar hjálpi lækk-
un á gengi krónunnar til.
Erfið samkeppni
Steinþór telur að þótt fáir ferða-
menn hafi komið til landsins í ár
komi það á móti að Íslendingar séu
meira heima. Meðalmannfjöldi í
landinu sé því svipaður. Hins vegar
hafi ferðamenn borðað meira af kjöti
en Íslendingar. Telur hann að sam-
drátt í kjötneyslu megi að hluta
rekja til efnahagslegra afleiðinga
kórónuveirufaraldursins, meðal ann-
ars aukið atvinnuleysi. Fólk kaupi
ódýrari mat. Þá hafi samkomubann
áhrif, fólk komi minna saman á ætt-
armót og fleiri samkomur þar sem
oft er mikið borðað af kjöti.
Ágúst segir að minni tollvernd á
kjöti og óheftur innflutningur hafi
áhrif á okkar eigin framleiðslu.
Hægt sé að fá ódýrt kjöt í Evrópu nú
og flytja inn tollalaust eða með lág-
um tollum. Erfitt sé að keppa við
það. Það leiði til birgðasöfnunar á
innlendu kjöti.
Segir hann að framleiðsla á kinda-
kjöti hafi minnkað það mikið á und-
anförnum árum að ekki ætti að vera
vandamál að fleyta birgðunum áfram
þangað til ferðamennirnir fari að
skila sér aftur. Ef hins vegar of mik-
ið verði flutt inn af kjöti á meðan
ástandið er erfitt, geti markaðurinn
hrunið. Telur hann það eina rétta að
stöðva innflutning á meðan verið er
að vinna úr málum.
Innflutningur
verði stöðvaður
Birgðir af kindakjöti aukast þrátt
fyrir minni framleiðslu Salan hrynur
Morgunblaðið/RAX
Slátrun Hætt er við að birgðir safn-
ist upp í frystigeymslum landsins.